Morgunblaðið - 26.04.2011, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2011
Pólitískir krufningalæknar Evr-ópuvaktar hafa litið á innyflin
í Samfylkingunni:
Síðsumar 2002 beitti vefsíðanKreml.is sem þá var haldið úti
af hópi manna innan Samfylking-
arinnar sér fyrir skoðanakönnun
sem sýndi, að Sam-
fylkingin ætti að fá
Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur til for-
ystu í landsmálum,
þótt hún hefði ný-
lega náð kjöri sem
borgarstjóri.
Össur Skarphéðinsson naut dvín-andi vinsælda sem formaður
Samfylkingarinnar. Var talið að
um „hannaða atburðarás“ væri að
ræða til að velta honum úr sessi.
Ingibjörgu Sólrúnu var ekki sætt
sem borgarstjóra eftir þetta og
hvarf úr Ráðhúsinu í ársbyrjun
2003 og varð forsætisráðherraefni
Samfylkingarinnar þá um vorið án
þess að ná kjöri á þing. Hún fékk
ekki sæti þar fyrr en Bryndís Hlöð-
versdóttir sagði af sér þing-
mennsku og hvarf að Bifröst í
Borgarfirði.
Nú fetar hópur innan Samfylk-ingarinnar sem ræður yfir
vefsíðunni Eyjunni í fótspor Kreml-
.is, efnir til skoðanakönnunar sem
sýnir „mjög afgerandi“ óánægju
með störf Jóhönnu Sigurðardóttur
sem forsætisráðherra.
„Eyjan spurði viðhorfshóp sinn:
„Ertu ánægð/ur með störf Jóhönnu
Sigurðardóttur sem forsætisráð-
herra?“ Alls greiddu 1.068 atkvæði.
Af þeim sagði 291 já eða um 27
prósent. Nei sögðu 532 eða um
helmingur. Aðrir voru ekki vissir
eða vildu ekki svara spurning-
unni.“
Samfylkingin er upptekin afarkitektum pólitískrar at-
burðarásar. Nú hefur vefurinn
hennar, Eyjan, tekið sér stöðu við
teikniborðið.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Ydda teikniblýin
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 25.4., kl. 18.00
Reykjavík 6 skúrir
Bolungarvík 5 heiðskírt
Akureyri 4 heiðskírt
Egilsstaðir 7 skýjað
Kirkjubæjarkl. 6 léttskýjað
Nuuk -5 skýjað
Þórshöfn 6 alskýjað
Ósló 20 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 heiðskírt
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 17 heiðskírt
Lúxemborg 22 heiðskírt
Brussel 22 heiðskírt
Dublin 12 skýjað
Glasgow 15 heiðskírt
London 18 heiðskírt
París 23 heiðskírt
Amsterdam 22 heiðskírt
Hamborg 18 heiðskírt
Berlín 17 heiðskírt
Vín 17 skýjað
Moskva 17 heiðskírt
Algarve 18 léttskýjað
Madríd 18 skýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Róm 17 skýjað
Aþena 12 skýjað
Winnipeg 11 léttskýjað
Montreal 15 skýjað
New York 16 alskýjað
Chicago 8 skúrir
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:18 21:34
ÍSAFJÖRÐUR 5:09 21:53
SIGLUFJÖRÐUR 4:52 21:36
DJÚPIVOGUR 4:44 21:07
Sólskálar
Smi›sbú› 10 | 210 Gar›abær
Sími: 554 4300 | www.solskalar.is
hf
-sælureitur innan seilingar!
Tölvunám á netinu:
www.tolvunam.is - sími 552 2011
Access
Excel
Outlook
Námskeið á netinu í
Photoshop
Powepoint
Word
verð frá 660 kr. á mánuði
(binditími 12 mánuðir)
„Þetta var skemmtilegt mót og
spenna allt til loka,“ segir Héðinn
Steingrímsson, sem á laugardag
ávann sér titilinn Íslandsmeistari í
skák öðru sinni á ævinni en hann
hefur eingöngu keppt þrisvar á
mótinu. Fyrra sinnið var fyrir 21 ári,
þegar Héðinn varð Íslandsmeistari
aðeins 15 ára gamall og stendur það
aldursmet enn. Hann keppti líka ár-
ið 2006 og varð þá í öðru sæti á eftir
Hannesi Hlífari Stefánssyni. Alls
tefldi Héðinn níu skákir nú og vann
sex þeirra en gerði jafntefli í þremur
og fór því taplaus út úr mótinu.
Héðinn er menntaður tölvunar-
fræðingur en er atvinnumaður í
skák. Lið hans, Hansa Dortmund,
hefur áunnið sér sæti í efstu deild
þýsku deildakeppninnar í skák, Bun-
desliga, sem er talin sú sterkasta í
heimi ásamt þeirri rússnesku. „Þar
keppir m.a. heimsmeistarinn, Visw-
anathan Anand, og fleiri skákmenn
svo það er dálítið spennandi. Ég hef
yfirleitt teflt á fyrsta borði í liðinu
mínu svo það verður í fyrsta sinn
sem Íslendingur teflir á jafn háu
borði í þeirri deild.“
Héðinn keppir reglulega á Íslandi,
m.a. á Alþjóðlega opna Reykjavík-
urmótinu. Það er sterkasta mótið
sem haldið er hérlendis, en hann var
sigurvegari þess móts árið 2009.
Sömuleiðis hefur hann keppt með
Fjölni á Íslandsmóti skákfélaga.
Fær þátttökurétt
á EM á næsta ári
Með sigri í móti helgarinnar
ávann Héðinn sér þátttökurétt í
landsliði Íslands sem og þátt-
tökurétt á Evrópumóti einstaklinga
á næsta ári. „Ég hef haft mikinn
áhuga á að keppa á því móti en EM
er í rauninni undankeppnin um
heimsmeistaratitilinn í skák. Þetta
er sambærilegt mót og Jóhann
Hjartarson keppti á, en hét þá milli-
svæðamót. Í framhaldi af því tefldi
hann við Kortsnoj og vann hann í
einvígi en tapaði svo reyndar fyrir
Karpov. Árangur hans á mótinu er
örugglega eitt af helstu afrekum Ís-
lendings á skáksviðinu.“
Því má bæta við að Héðinn er
stigahæstur virkra skákmanna
landsins í dag. ben@mbl.is
Íslandsmeistari öðru sinni
Héðinn Steingrímsson tefldi til
sigurs á Austurlandi um páskana
Morgunblaðið/Ómar
Skákmeistari Héðinn Steingrímsson með verðlaunin sem hann fékk.
Morgunblaðið sigraði sameinað lið
Stöðvar 2 og Vísis í úrslitum spurn-
ingakeppni fjölmiðlanna sem send
var út á Bylgjunni um páskana.
Morgunblaðið fór með sigur af
hólmi í æsispennandi bráðabana, en
lokastaðan var 13-11. Lið Morgun-
blaðsins skipuðu blaðamennirnir
Arnar Eggert Thoroddsen og Anna
Lilja Þórisdóttir. Stjórnandi keppn-
innar var Logi Bergmann Eiðsson.
Morgun-
blaðið vann
Arnar Eggert Anna Lilja