Morgunblaðið - 26.04.2011, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2011
ENGIR TVEIR
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/V
O
R
53
52
5
04
/1
1
BAKSVIÐ
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Engin áform eru að svo stöddu hjá
umhverfis- og samgöngusviði
Reykjavíkurborgar um að fresta á ný
gildistöku umdeildrar 15 metra reglu
við sorplosun í borginni, að sögn
skrifstofustjóra sviðsins, Guðmundar
B. Friðrikssonar. Aðalfundur Hús-
eigendafélagsins samþykkti fyrir
skömmu ályktun þar sem hvatt var til
þess að horfið yrði frá breytingunni
eða henni a.m.k. frestað um ár.
Frá 1. maí verður innheimt sér-
stakt gjald ef sorpílát eru meira en 15
metra frá götu. Forsendan er að
meiri fjarlægð sé íþyngjandi fyrir
sorphirðumenn og geri starf þeirra
tímafrekara og dýrara en ella.
Ásakanir um „gönuhlaup“
Húseigendafélagið segir að ekkert
samráð hafi verið haft við borgarbúa
og samtök þeirra, um „gönuhlaup“ sé
að ræða og félagið telur að kanna
þurfi hvort breytingin hafi lagastoð.
Reynist svo vera þurfi að veita fólki
meiri frest til að gera nauðsynlegar
ráðstafanir, t.d. breyta staðsetningu
sorpíláta. Er skorað á borgaryfirvöld
„að taka sönsum og auka hvorki
vanda sinn né borgarbúa frekar en
orðið er með fyrirhyggjuskorti,
hörku og óbilgirni í þessu viðkvæma
máli“.
Guðmundur B. Friðriksson segir
að ekki hafi verið rætt í umhverfis- og
samgönguráði hvort fresta beri gild-
istökunni og hann segist ekki sjálfur
sjá ástæðu til þess. En er það rétt hjá
Húseigendafélaginu að afleiðingin af
breytingunni geti orðið sóðaskapur
vegna þess að sorpílát „í reiðileysi“
sem færð hafa verið nær götu geti olt-
ið? Hver á að sjá um að hlutirnir séu
alltaf í lagi?
„Við erum að setja upp vinnuregl-
ur um það hvernig þessi mál verða,“
segir Guðmundur. „Meðal annars er
til skoðunar ef t.d. Veðurstofan gefur
út stormviðvörun að í þeim tilfellum
myndum við sækja tunnurnar og
skila þeim, ekkert hefur verið ákveð-
ið um þetta.“
Hver íbúi beri ábyrgð á sínum ílát-
um og ef hann velji að borga ekki
aukagjaldið geti hann ekki varpað
allri ábyrgðinni á borgina. Guðmund-
ur segir rétt að tekið geti tíma að fá
leyfi byggingaryfirvalda til að breyta
staðsetningu sorpgeymslna sem oft
séu steyptar og teiknaðar sem hluti
af húsinu. Mjög víða sé þó einfalt mál
að reisa nýja geymslu nær götu.
Hann segist skilja vel óánægju
margra en breyting af þessum toga
tíðkist víða erlendis til að draga úr
óþarfa kostnaði.
Sáu ekki ástæðu til samráðs
- En er það rétt að ekki hafi verið
haft neitt samráð við húseigendur og
samtök þeirra?
„Nei, það var ekkert samráð haft
við Húseigendafélagið. Við höfum
ekki lagt það fyrir Húseigendafélagið
þegar við höfum gert breytingar á
sorphirðu í Reykjavík hingað til. Það
hefði eflaust ekki verið vitlaust en við
sáum ekki ástæðu til þess á þeim tíma
þegar þessi ákvörðun var tekin.“
Guðmundur segir að áætlað hafi
verið að um helmingur íbúa þyrfti
annaðhvort að breyta staðsetningu á
geymslunni eða greiða aukagjaldið
sem er 4.800 krónur árlega á hvert
ílát ef ílátin eru of langt frá götu. Ef
farin hefði verið sú leið að hækka
sorphirðugjald á alla hefði ekki verið
fyrir hendi nein hvatning í kerfinu
fyrir borgarbúa til að draga úr kostn-
aðinum. Slíkur sparnaður væri ávinn-
ingur fyrir alla Reykvíkinga.
Senn tekur 15 metra reglan gildi
Stendur ekki til að fresta gildistöku 15 metra sorphirðureglu í Reykjavík þrátt fyrir hávær mótmæli
Gert ráð fyrir að helmingur borgarbúa þurfi að breyta staðsetningu sorpíláta eða greiða aukagjaldið
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Sorphirða Mælingamaður frá Reykjavíkurborg að störfum við að kanna fjarlægð frá götu að sorpílátum.
Í tilkynningu frá umhverfis- og
samgöngusviði Reykjavíkur-
borgar segir m.a. að til skoð-
unar sé að gefa borgarbúum
kost á að aðlagast þessari
breytingu á sorphirðunni í maí-
mánuði, til að nota tímann og
leiðbeina íbúum sem enn hafi
ekki brugðist við. Einnig er til
skoðunar að starfsmenn Sorp-
hirðu Reykjavíkur sæki tunnur
lengra en 15 metra á dögum
þegar veður er vont. Fara á yfir
reglurnar á fundi umhverfis- og
samgönguráðs í dag.
Aðlögunar-
tími í maí
15 METRA REGLAN