Morgunblaðið - 26.04.2011, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2011
ERU EINS
Engir tve
ir einsta
klingar e
ru nákvæ
mlega e
ins. Þett
a skiljum
við hjá V
erði og þ
ess vegn
a viljum
við kynn
ast
viðskipta
vinum o
kkar bet
ur. Við læ
rum að þ
ekkja þá
svo að þ
eir fái ör
ugglega
þá þjónu
stu sem
þeim he
ntar.
Við viljum
sjá til þe
ss að þú
sért með
réttu try
ggingarn
ar, hvort
sem um
er að ræ
ða líf- og
heilsutry
ggingu,
trygging
u fyrir h
úsið, bíl
inn eða
fyrirtæki
ð.
VIÐ VILJ
UM KYN
NAST ÞÉ
R BETUR
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Þetta tókst framúrskarandi vel. Það
er erfitt að áætla nákvæmlega hversu
margir sóttu Ísafjörð heim vegna há-
tíðarinnar. Maður hefur hins vegar
heyrt að íbúafjöldi Ísafjarðarbæjar
hafi tvöfaldast,“ segir Guðmundur M.
Kristjánsson, einn aðstandenda tón-
listarhátíðarinnar Aldrei fór ég suð-
ur, um hátíðina í ár.
Íbúar Ísafjarðar eru um 3.500 og
voru gestir því á fjórða þúsund að
þessu sinni, reynist mat manna rétt.
Fiskisúpa og plokkfiskur
– Hvað með fjárhagshliðina?
„Við höfum miðað við að styrkir og
önnur fjáröflun dugi fyrir helm-
ingnum af kostnaðinum. Það kostar
um 5 milljónir að halda rokkhátíð al-
þýðunnar. Afganginn sækjum við í
sölu varnings og minjagripa. Svo selj-
um við fiskisúpu og plokkfisk en báðir
réttir njóta mikilla vinsælda.“
– Hafið þið upp í kostnaðinn?
„Já. Síðustu ár höfum við verið
réttum megin við núllið. Megin-
markmið félagsskaparins sem að
þessu stendur er að græða ekki pen-
inga. Þetta er allt gert í sjálfboða-
vinnu. Tónlistarhúsið fáum við frítt.
Það var uppbókað á hótel allt til Þing-
eyrar og verslunin afar blómleg.“
– Forláta lopapeysa sem Mugison
klæddist var boðin upp til styrktar
hátíðinni. Á hvað var hún slegin?
„Hæsta boð var 150.000 kr. Kaup-
andinn var Ísólfur Haraldsson.“
Slegist um sviðsljósið
– Voru einhverjir til vandræða?
„Lögreglan segir okkur að allt hafi
farið friðsamlega fram sem að hátíð-
inni sneri. Það fylgir þessu þó fylliríi
eins og gengur og gerist. En það var
enginn með leiðindi,“ segir Guð-
mundur og svarar því síðan til að 15
erlendir blaðamenn hafi sótt hátíðina
sem hófst á skírdag og lauk á laug-
ardag. Um 30 bönd tróðu upp en 150
bönd sóttu um að fá að spila. „Hvert
band fær 20 mínútur á sviðinu, hvort
sem það er frægt eða ekki. Þau slást
um að fá að spila.“
Íbúafjöldi Ísafjarðar
tvöfaldaðist á rokkhátíð
Ljósmynd/Sigurjón J. Sigurðsson
Stuð Á laugardagskvöldið Páll Óskar hélt uppi stuðinu á rokkhátíðinni.
Mikil stemning og
fjölmenni á Aldrei
fór ég suður í ár
Frítt fyrir alla
» Enginn aðgangseyrir er á
tónleika hátíðarinnar.
» Þrátt fyrir vaxandi aðsókn
segir Guðmundur M. Krist-
jánsson, einn aðstandenda
hátíðarinnar, að ekki komi til
greina að breyta því.
Heimsmeistaramót unglinga í sam-
kvæmisdönsum fór fram í Barce-
lona á Spáni um páskana. Fyrir
hönd Íslands kepptu Birkir Örn
Karlsson, 14 ára, og Perla Stein-
grímsdóttir, 13 ára, og urðu þau í
16. sæti af 35 keppendum á mótinu.
Er þetta að sögn kunnugra ein-
stakur árangur á heimsmeist-
aramóti hjá íslensku danspari en
aðeins eitt par frá hverju landi hef-
ur keppnisrétt, eða það par sem er
í fremstu röð í sínu heimalandi. Er
því um mjög sterka keppni að
ræða.
Birkir Örn og Perla hafa dansað
saman í eitt ár og eiga framtíðina
fyrir sér í dansinum.
Samkvæmisdansar Perla Steingrímsdóttir og Birkir Örn Karlsson dansa á
HM á Spáni um páskana, þar sem þau urðu í 16. sæti af 35 mögulegum.
Í 16. sæti á HM
unglinga í dansi