Morgunblaðið - 09.06.2011, Síða 29
DAGBÓK 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2011
Sudoku
Frumstig
8 2
9 3 1
7 5
5 9 8
7 2
2 7 9 1 5
5 1 2 4 7
9 1
3
7 5 2 3
3 1 8 7
5 6
2 9
6
9 2
1 7
7 3 1 8
8 6 9 7
7 3 9
9 3 2 8
8 6 9 2 5
9
2
5 3 8
1 2 5 7 9 6
5 8
7 6 3
5 1 9 6 8 4 2 7 3
6 2 3 9 1 7 5 8 4
7 4 8 3 2 5 6 9 1
4 9 2 5 6 3 7 1 8
3 7 5 1 4 8 9 2 6
1 8 6 7 9 2 3 4 5
9 6 7 4 5 1 8 3 2
2 5 1 8 3 9 4 6 7
8 3 4 2 7 6 1 5 9
8 6 1 4 9 2 7 5 3
9 2 3 6 5 7 1 4 8
5 7 4 1 8 3 6 9 2
4 3 2 9 6 1 5 8 7
7 9 8 3 4 5 2 6 1
6 1 5 7 2 8 9 3 4
2 4 9 8 7 6 3 1 5
3 5 6 2 1 4 8 7 9
1 8 7 5 3 9 4 2 6
2 4 5 8 9 3 7 1 6
9 3 7 6 4 1 5 8 2
8 6 1 5 7 2 3 9 4
4 9 2 7 3 6 8 5 1
7 1 3 4 5 8 6 2 9
6 5 8 2 1 9 4 3 7
3 7 4 9 2 5 1 6 8
5 8 9 1 6 7 2 4 3
1 2 6 3 8 4 9 7 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 9. júní, 160. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Hann stendur mér við
hlið til þess að veita mér lið og vernd.
(Daníel 11, 1.)
Víkverja varð ekki um sel þegarhann sá í upphafi mánaðar við-
vörun Alþjóðaheilbrigðisstofnunar
Sameinuðu þjóðanna (WHO) um að
farsímar gætu valdið krabbameini.
Ráðlagði stofnunin fólki að senda
smáskilaboð og nota handfrjálsan
búnað fremur en að bera farsímann
að höfði sér.
x x x
Víkverja létti aðeins við lesturgreinar á heimasíðu The New
York Times þar sem farið var ofan í
það hver hættan væri í raun. Þar kom
fram að WHO hefði metið 900
áhættuþætti. 107 væru krabbameins-
valdandi, þar á meðal asbest og tóbak.
59 væru sennilega krabbameinsvald-
andi, til dæmis vinna á næturvöktum.
266 væru mögulega krabbameins-
valdandi, þar á meðal kaffi og nú far-
símar. Í greininni kemur fram að
tengingin á milli farsíma og krabba-
meins er mjög veik. Geislunin, sem
farsímar gefi frá sér, sé óveruleg og
ekki nógu sterk til að eyðileggja efna-
sambönd eða skemma DNA.
x x x
Stærsta könnunin, sem gerð hefurverið, svokölluð Interphone-
könnun, bendi jafnvel til þess að far-
símar verndi fyrir krabbameini, en
því trúi enginn. Fimm milljarðar far-
síma eru skráðir í notkun í heiminum
og væru þeir krabbameinsvaldandi
ætti að hafa brotist út faraldur. „Ef
horft er til þróunar krabbameins í
heila þau 25 ár, sem farsímar hafa
verið í notkun, sjást engar vísbend-
ingar um aukningu,“ hefur blaðið eftir
Meir J. Stampfer, prófessor við
læknaskóla Harvard-háskóla. „Ólíkt
stærðfræði er í vísindum ekki hægt að
tala um algera vissu, en í samhengi
hlutanna er hér ekki á ferðinni heil-
brigðisvá, sem ég myndi hafa áhyggj-
ur af.“
x x x
Ígreininni segir þó að ekki megi af-skrifa hættuna af farsímum með
öllu. Nú hafi heil kynslóð verið ber-
skjölduð fyrir farsímum frá barnæsku
og enginn viti hvaða áhrif það hafi á
heilsu að nota farsíma alla ævi.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 drottningu, 8 tert-
an, 9 náin, 10 megna, 11
glataði, 13 óhreinkaði, 15
korntegundar, 18 ísbrú, 21
blóm, 22 siðprúð, 23 kjánar,
24 einvígi.
Lóðrétt | 2 tréð, 3 gleypi, 4
reka í gegn, 5 borða, 6 afkimi,
7 sögustaður, 12 atorku, 14
knöpp, 15 kvennamaður, 16
jafnaðargeð, 17 tottuðum, 18
vísa, 19 sterk, 20 gleðikona.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 rusla, 4 fegin, 7 kopps, 8 ölæði, 9 aur, 11 alin, 13 óaði,
14 ýfing, 15 skýr, 17 nekt, 20 und, 22 rausn, 23 ísing, 24 klaga,
25 linan.
Lóðrétt: 1 rekja, 2 seppi, 3 ausa, 4 fjör, 5 glæða, 6 neiti, 10 ur-
inn, 12 nýr, 13 ógn, 15 skrök, 16 ýsuna, 18 efinn, 19 tigin, 20
unna, 21 díll.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ólík nálgun. A-NS.
Norður
♠9
♥1076
♦ÁD53
♣109872
Vestur Austur
♠G102 ♠KD74
♥32 ♥KD984
♦KG1086 ♦9742
♣543 ♣–
Suður
♠Á8653
♥ÁG5
♦–
♣ÁKDG6
Suður spilar 1♠.
Austur opnar létt í þriðju hendi á
1♥ og suður á leikinn. Einhverjar til-
lögur?
Þetta virðist vera upplagt tækifæri
til að beita „Michaels“-innákomu:
segja 2♥ og lýsa þannig í einni sögn
minnst 5-5 í spaða og láglit. Um styrk-
inn má alltaf tala síðar.
Spilið er úr margræddum úrslitaleik
Bandaríkjamanna um keppnisréttinn
á HM. Öðrum megin var aldursforset-
inn í suður, Fred Gitelman (46). Hann
sagði 1♠ og þar dóu sagnir! Í sama
sæti á hinu borðinu sat yngsti spil-
arinn, Justin Lall (24). Hann sagði 2♥.
Makker hans, Joe Grue, spurði um
láglitinn með 2G. Svarið er uppbyggj-
andi samkvæmt kerfinu og því gat
Lall stokkið í 6♣, þar og þá.
Giltelman fékk 9 slagi í 1♠ (140);
Lall fékk 12 slagi í 6♣ (1370).
9. júní 1741
Ferming barna var lögboðin
hér á landi, en hún hafði þó
tíðkast um aldir.
9. júní 1943
Hæstaréttardómur var kveð-
inn upp í Hrafnkötlumálinu,
sem fjallaði um heimild til út-
gáfu fornrita án svonefndrar
samræmdrar stafsetningar
fornrar, en Halldór Laxness
og fleiri höfðu þá gefið út
Hrafnkels sögu Freysgoða
með nútímastafsetningu. Út-
gefendur voru sýknaðir.
9. júní 1964
Höggmyndin Útlagar eftir
Einar Jónsson var sett upp við
Suðurgötu í Reykjavík. Undir
myndinni er stór steinn úr
Öskjuhlíðinni.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Planið er nú bara að vera með fjölskyldunni og
fara út að borða,“ segir Ólafur Örn Ingólfsson,
hagfræðingur og starfsmaður Fjármálaeftirlits-
ins. Tilefnið er ákveðin tímamót en hann er 60 ára
í dag.
Ólafur Örn segir afmælið sitt ekki efst í huga
sér um þessar mundir heldur dóttir hans, sem hef-
ur verið í framhaldsnámi við Háskólann í Reykja-
vík og útskrifast 18. júní næstkomandi. „Ég er að
rifna úr stolti, það er mikilvægara að halda út-
skriftarveislu heldur en afmæli að mínu mati. Ég
mun þó að sjálfsögðu slá á létta strengi,“ segir
Ólafur kátur.
Ólafur er kvæntur Ingibjörgu Guðmundsdóttur og eiga þau eina
dóttur. Hann útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands
árið 1976 og þaðan lá leið hans í framhaldsnám til Uppsala í Svíþjóð.
Ólafur segist þakklátur fyrir hvern dag sem hann sé við góða
heilsu. „Ég er við góða heilsu þó ég sé farinn að finna fyrir aldrinum í
speglinum heima hjá mér. Maður þorir vart að líta í spegilinn lengur,“
segir Ólafur hlæjandi og bætir því við að hann finni ekki fyrir aldr-
inum að öðru leyti. janus@mbl.is
Ólafur Örn Ingólfsson er 60 ára í dag
Breytt andlit í speglinum
Hlutavelta
Margrét Jóna
Stefánsdóttir
hélt tombólu í
verslunarmið-
stöðinni Gler-
ártorgi og safn-
aði með því
4.060 krónum
sem hún styrkti
Rauða krossinn
með.
Flóðogfjara
9. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.57 0,8 12.14 3,2 18.25 1,0 3.06 23.49
Ísafjörður 1.27 1,9 8.01 0,5 14.14 1,7 20.28 0,6 1.59 25.06
Siglufjörður 3.49 1,2 10.10 0,2 16.45 1,1 22.37 0,3 1.34 24.56
Djúpivogur 2.59 0,7 9.10 1,9 15.26 0,7 21.42 1,9 2.22 23.31
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Leitaðu að öruggum farvegi fyrir
atorku þína en mundu að enginn er annars
bróðir í leik. Það getur kostað nokkur óþæg-
indi að leita nýrra leiða til lausnar vanda-
málum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Ákvörðun eða dómur stjórnvalds hefur
áhrif á fjölskyldu þína eða eignir þínar. Vinir
átta sig alls ekki á því hvað þú ert frökk/
frakkur núna.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þér finnst einhverjir vera að seilast
inn á valdsvið þitt. En hlutirnir ganga vel og
fólk hugsar jákvætt um þig.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er ekki til neins að stinga höfðinu
í sandinn. Betur sjá augu en auga og margar
hendur vinna létt verk.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ef þú lítur í kringum þig sérðu að marg-
ur er mun verr staddur en þú og að þú hefur í
raun ástæðu til þess að una glaður við þitt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Láttu ekki undan minnstu löngun til
lausungar í fjármálum því allt slíkt hefnir sín.
Gættu þess að bregðast aldrei aðdáendum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Nú er rétti tíminn til að eiga samskipti
við fólk. Lærðu að sjá undir yfirborðið og
upplifðu þá fölskvalausu gleði sem svo oft
felst í því smáa.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þarft að skipuleggja hlutina
miklu betur því aðeins þannig geturðu bætt
afköst þín bæði heima fyrir og í vinnunni.
Veittu þá handleiðslu sem þér er unnt.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Stundum er allt í lagi að fara eftir
fyrstu tilfinningu þótt yfirleitt sé skynsamlegt
að tékka hana af til öryggis. Ykkur ætti að
reynast auðvelt að telja aðra á ykkar band.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Notaðu daginn til þess að ljúka
fasteignasamningum eða kaupa eitthvað fyrir
heimilið eða fjölskyldumeðlim. Þér er hætt
við að gera of miklar kröfur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Gættu þess að tala skýrt og skil-
merkilega við fjölskyldumeðlimi. Segðu sjálf-
um þér að hverju þú dáist og nýtur í eigin fari.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú getur bara ekki stillt þig um að
kaupa eitthvað fallegt í dag. Daginn í dag ætt-
irðu að nota til læra, stunda tilraunir, spyrja
spurninga og æfa þig.
Stjörnuspá
Ragna Kristín
Árnadóttir frá
Hafnarhólmi við
Steingrímsfjörð,
nú til heimilis í
Æsufelli 6, verð-
ur áttræð í dag,
9. júní. Af því til-
efni er öllum vin-
um, ættingjum og nágrönnum boð-
ið til veislu laugardaginn 11. júní
milli kl. 16 og 20 í Seljakirkju.
80 ára
1. e4 c5 2. Rc3 d6 3. f4 Rc6 4. Rf3 g6 5.
Bb5 Bd7 6. 0-0 a6 7. Bxc6 Bxc6 8. d3
Bg7 9. De1 Dd7 10. a4 f5 11. Rd5 fxe4
12. dxe4 Hb8 13. Rg5 Bxd5 14. exd5
Df5 15. Re6 Bf6 16. De2 h5 17. Ha3
Rh6 18. Hg3 Kd7
Staðan kom upp í atskákhluta Am-
ber-mótsins sem lauk fyrir nokkru í
Mónakó. Magnus Carlsen (2.815) frá
Noregi hafði hvítt gegn Búlgaranum
Veselin Topalov (2.775). 19. Hg5 Bxg5
20. fxg5 Dxd5 svartur hefði einnig
staðið höllum fæti eftir 20. … Dg4 21.
Dd3 Rf5 22. Hf4. Framhaldið varð eft-
irfarandi: 21. Rf4 Dd4+ 22. Be3 De4
23. gxh6 Hxh6 24. Rd5 Hhh8 25. Dd2
Hhf8 26. He1 Hf5 27. Rb6+! Kc6 28.
Bxc5! Hbf8 29. Bd4 og svartur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is