Morgunblaðið - 10.06.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2011
Róbert B. Róbertsson
robert@mbl.is
V
ið höfum lengi haft
áhuga á rými og því
hvernig fólk setur
merkingu í umhverfi
sitt og hvernig um-
hverfið verður merkingarfullt með
öllum þessum sögum sem eru
svona eins konar draugar sem
leynast í umhverfinu. Við erum öll
með okkar persónulegu reynslu af
borginni. Þegar við löbbum um
borgina man maður eftir því að
þarna gerðist þetta og hérna ger-
iðist hitt og þar fram eftir göt-
unum. Okkur langaði að rannsaka
það hvernig fólk býr til borgina
sína og hvaða sögur eru til dæmis
á bak við gangstéttarhelluna og á
bak við húsin eða veggjakrotið eða
bara hvað sem er í borginni. Okkur
datt í hug að það væri góð nálgun
að búa til vefsíðu og fá fólk til þess
að deila með okkur sinni upplifun
af borginni,“ segir Sigrún Þor-
grímsdóttir, einn af aðstandendum
síðunnar.
Draga sál borgarinnar
fram í dagsljósið
Á síðunni getur fólk deilt upp-
lifun sinni og komist að því hvernig
aðrir hugsa um borgina. Markmið
síðunnar er að draga sál borgar-
innar fram í dagsljósið, gera hana
aðgengilega almenningi og jafn-
framt búa til vettvang fyrir já-
kvæða, uppbyggilega og skapandi
umræðu um borgarrýmið.
Sigrún hvetur fólk til þess að
birta sögur eða myndir á síðunni.
„Við viljum hvetja fólk til þess að
vera ófeimið við að birta sögur á
Borgin er uppfull
af minningum
Í síðustu viku settu þjóðfræðinemarnir Sigrún Þorgrímsdóttir og Katrín Guð-
mundsdóttir heimasíðuna urb.is á laggirnar. Urb.is er vefur þar sem fólk getur
komið á framfæri sínum persónulegu upplifunum og sögnum af Reykjavík. Fann-
ar Ásgrímsson, vefhönnuður og nemi í japönsku, sá um uppsetninguna og tækni-
mál á síðunni, jafnframt því að koma að hugmyndavinnu.
Morgunblaðið/Ómar
Koss Margir eiga minningar um sinn fyrsta koss á götum borgarinnar.
Hún Kandee Johnson er svo miklu
meira en verulega fær snyrtifræð-
ingur sem vill deila með heiminum
öllum förðunartrixunum. Hún er
sannur gleðgjafi, full af hvatningu og
jákvæðni. Enda stendur á forsíðunni
hennar: Welcome to the happiest
place on the Internet. Hún er
skemmtileg þessi rúmlega þrítuga
stelpa sem fæddist í Ameríkunni og
hefur unnið fyrir stjörnurnar og MTV,
CNN, ABC og fleiri virta miðla. Hún
fær verulega miklar „flettingar“ á
síðuna sína, og hún er líka á Youtube
og Facebook. Svo er hún með annað
blogg: Kandeeland.com, þar sem
fólki gefst tækifæri á að skyggnast
inn í líf hennar. Tékkið á þessari
stelpu, hún er ekki aðeins frábær í
snyrtifaginu, hún er líka lífskúnstner
sem deilir með heiminum matarupp-
skriftum og öðru sem hana langar að
gleðja fólk með.
Vefsíðan www.kandeej.com
Fagurt fljóð Hún Kandee er fjörug og nennir ekki að eyða dögunum í leiðindi.
Kandee káta og hvetjandi
Um þessa fyrstu ferðahelgi er tilvalið
að skella sér austur á Egilsstaði og
mæta á rokktónleika sem þar verða á
morgun, laugardag. Tónleikarnir, sem
haldnir eru undir nafninu vegaREIÐI,
verða í Bragganum og fram koma Cliff
Clavin, Myrká, Chino Gunslinger, Made
By Mud og Deaf Happiness. Tónleik-
arnir vegaREIÐI hafa verið undir væng
Vegahússins sem er ungmennahús til
húsa í Sláturhúsinu á Egilsstöðum.
Þar hafa komið fram þær sveitir sem
eru starfandi á svæðinu og stundum
stærri nöfn. Þetta er í fimmta skiptið
sem vegaREIÐI er haldin en tilgang-
urinn er að bjóða upp á góða rokk-
tónleika á Héraði og gefa ungu fólki
kost á að vera með og njóta.
Endilega …
… Tékkið á rokkveislunni
Sem krakki hafði ég mikið gaman af teiknimynda-bókunum um kúrekann Lukku-Láka og rann-sóknarblaðamanninn Tinna. Í einhverri af bók-unum um Láka birtist persóna farandsölu-
manns sem reynir að pranga lífselixír sem á að vera allra
meina bót upp á auðtrúa borgara í hverju plássi sem
hann kemur til. Töfralyfið var að sjálfsögðu ekkert meira
en handahófskennt samsull sölumannsins og gerði lítið
annað en að særa bragðlauka þeirra sem féllu fyrir fag-
urgala hans.
Í bókinni (umdeildu) um Tinna í Afríku bjargar sögu-
hetjan íbúum lítils þorps frá galdralækni sem heldur
þeim í heljargreipum með því að hóta þeim yfir-
skilvitlegum refsingum ef þeir hlýða ekki. Í báðum
sögunum fá þessir svikarar makleg málagjöld og
eru opinberaðir sem loddararnir sem þeir eru.
Í raunveruleikanum komast hins vegar þvælu-
sölumenn af þessum toga yfirleitt upp með belli-
brögð sín. Alltaf virðist vera til nóg af fólki sem er
tilbúið til að gabba samborgara sína, oft þá sem eiga
við veikindi eða erfiðleika að stríða. Þá er ekki
síður til fólk sem er tilbúið til að ganga á lag
sírenusöngva alls kyns kuklara, hvort sem
það eru hómópatar, heilarar, detoxarar
eða prestar.
Nýlega birti DV heila opnu um hó-
mópatíu, gervivísindin sem ganga út á
að selja fólki vatn og sykur dýrum
dómum, án einnar einustu örðu af
gagnrýni. Hinar svokölluð remedíur
sem notast er við eru þynntar út að
svo miklu marki að þær eru ekkert
annað en lyfleysur.
Ekki nóg með það heldur er því
haldið fram að því útþynntari sem lausn-
in er því sterkari sé hún. Samkvæmt þeirri
speki ættu úthöfin væntanlega að vera ban-
eitruð ef svo mikið sem dropi af eiturefni hefði
fallið í þau. Til þess að fá eina einustu sameind
af hinu meinta virka efni í algengustu remedí-
unum þyrfti að innbyrða öll atómin í sólkerfinu af þeim.
Ef þetta virkaði í raun væri væntanlega olíuvandi heims-
ins leystur að eilífu!
DV hefði ekki þurft að leita lengra en á heimasíðu
Organon, „fag“-félags hómópata á Íslandi, til fá þetta
staðfest. „Remedíur eru það mikið þynntar að
ekki er lengur talað um eiginlegt efni heldur
hvata,“ stendur þar kinnroðalaust. Enda gæta
hómópatar sín á því að lofa engum lækningum
heldur aðeins að „aðstoða“ við heilsu fólks. Þeir
hafa að minnsta kosti vit á því að láta ekki hanka
sig á tæknilegum atriðum eins og vörusvikum …
Virðulegar stofnanir eins og apótek taka
jafnvel þátt í plokka fé af ginnkeyptu fólki
með því að bjóða upp á tilgangslaust glund-
ur í hillum sínum. Til að nefna eitt dæmi er
í mörgum apótekum selt „fæðubótaefni“
sem kennir sig við lengingu lífsins. Ég hef
það frá lyfjafræðingi að það eina sem fólk
fær úr töflunum séu þúsund milligrömm
af C-vítamíni. Dollan af töflunum selst á
hátt í fimm þúsund krónur.
Sjónhverfingamaðurinn James Randi
sem hélt fyrirlestur hér á landi síðasta
sumar hefur lengi barist ötullega gegn
alls kyns gervivísindum í gegnum tíð-
ina. Það er mikið til í því sem hann segir
að einu sjúkdómseinkennin sem kukl eins
og hómópatía getur lagað í einum hvelli er
bólgið peningaveski.
»Það er mikið til í því sem Randi segirað einu sjúkdómseinkennin sem kukl
eins og hómópatía getur lagað í einum
hvelli er bólgið peningaveski.
HeimurKjartans
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Eiðismýri,
Tjarnarmýri,
Kolbeinsmýri,
Suðurmýri,
Granaskjól,
Lambastaðabraut,
Sólbraut,
Sæbraut.
Óskum eftir
á Seltjarnarnesi
Domusnova fasteignasala - Turninum 12 hæð - 201
Kópavogur - Sími 527 1717 - Axel Axelsson löggiltur
fasteignasali
Heimir og Domusnova leita eftir einbýli
rað/parhúsi fyrir ákveðinn viðskiptavin í
eftirfarandi götum:
Upplýsingar gefur Heimir í síma 822 3600 eða heimir@domusnova.is