Morgunblaðið - 25.06.2011, Side 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2011
Morgunblaðið/G.Rúnar
Hestar Tveir glófextir með einn gráan á milli sín. Brúnn er algengasti hestaliturinn í dag samkvæmt Bergljótu.
unum, því mig langaði að hafa þau til
sýnis á hestaleigunni svo fólk gæti átt-
að sig á litunum. Þau hár eru nú til
sýnis í krukkum á Kjarvalsstöðum,“
segir Bergljót og hlær.
Það sem er einstakt við íslensku
hestalitina er fjölbreytileikinn og það
má meðal annars þakka íslenskum
hrossabændum að sögn Bergljótar.
„Þeir hafa staðið sig vel í að halda lita-
fjölbreytninni við. Litaafbrigðin eru
gríðarlega mörg en grunnlitirnir eru:
grár, rauður, brúnn, jarpur, leirljós,
moldóttur, bleikur, móálóttur og vind-
óttur. Svo eru blæbrigðin af þeim
mjög mörg og auðkennin líka. Blæ-
brigði er eins og glóbrúnn eða ljós-
jarpur. Auðkennin eru t.d. skjótt,
blesótt og sokkótt. Svo koma líka önn-
ur einkenni eins og glófext, vindhært
og hringeykt. Engin önnur hestakyn
eru með slíkan fjölbreytileika. Ég hef
verið mikið innan um útlendinga á
hestaleigunni og í hestaferðunum og
þeim þykir mjög spennandi að velta
fyrir sér þessum litablæbrigðum.“
Velur ekki eftir litnum
Bergljót hefur ekki áhyggjur af
að þessi litafjölbreytni muni tap-
ast úr ís-
lenska
hrossa-
stofn-
inum.
„Mér
finnst
allir
vera svo vakandi í kringum ræktun ís-
lenska hestsins, allir eru að vanda sig
og hafa áhuga á að halda litunum við.
Það eru samt alltaf ákveðnir grunn-
litir mest áberandi, t.d. er brúnn
ríkjandi núna en rauður litur var al-
gengari áður.“
Spurð hvort hún eigi uppáhalds-
hestalit segir Bergljót það nú ekki
vera. „Þeir eru skemmtilegir sem
maður sér sjaldnar. Annars finnst
mér fjölbreytileikinn skemmtileg-
astur. Ég er sjálf ekkert í ræktun en
ég á eina meri sem er sérkennileg á
litinn. Hún er sótrauð með grásprengt
tagl og fax, hringeyg og blesótt. Ég
setti hana nú bara undir voða fallegan
jarpan graðhest um daginn, ekki með
það í huga að fá sérkennilegan lit. Í
hestaleigunni er nauðsynlegt fyrir
mig að vera með alveg tamda hesta
svo ég hef ekki verið í neinni ræktun.
Ég sæki bara í mjög góða hesta en vel
þá ekki eftir litum.“
Landsmót hestamanna hefst í
Skagafirði á morgun. Bergljót má
ekki vera að því að fara þangað enda
háannatími á hestaleigunni. „Það er
alltaf að verða meira að gera, bæði
verið aukning á Íslendingum og út-
lendingum. Við ríðum bæði um Rauð-
hóla og Hólmsheiðina og þarna er
hægt að fara í einn útreiðatúr og sjá
fjögur stöðuvötn en samt alltaf verið
innan borgarmarka Reykjavíkur.
Endalaust fallegt,“ segir Bergljót að
lokum.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Brákarhátíðin verður haldin í þriðja
sinn í Borgarnesi í dag. Hugmyndin
að hátíðinni er sótt til Egilssögu og
hinnar mögnuðu ambáttar Þorgerðar
brákar. „Þetta er skemmtileg bæj-
arhátíð sem sækir hugmyndina í sög-
una og víkingamenninguna. Brák var
mikil hetja og við segjum stundum að
hún sé fyrsta íslenska hetjan því hún
fórnaði lífi sínu fyrir barn sem hún
var að passa, sem var Egill Skalla-
grímsson. Í sögunni hljóp hún niður
Borgarnesið og stakk sér til sunds til
að reyna að bjarga lífi sínu en henni
var drekkt þar, steini var hent milli
herða hennar. Það er alltaf verið að
tala um víkinga sem fóru út og drápu
mann og annan en hin raunverulega
hetja er manneskjan sem sýndi um-
hyggju og ást og kenndi Agli skáld-
skapinn og fórnaði svo lífi sínu fyrir
hann,“ segir Sigríður Margrét Guð-
mundsdóttir í Landnámssetrinu. Hún
er ein þeirra sem standa að hátíðinni.
„Það er félagsskapur sem heitir
Neðribæjarsamtökin í Borgarnesi
sem stendur fyrir hátíðinni. Í þeim
samtökum er fólk sem hefur áhuga á
því að efla mannlífið í bænum.“
Borgnesingar hafa alltaf haldið nafni
Brákar á lofti og er mörg örnefni að
finna tengd henni í bænum, t.d. Brák-
arbraut, Brákarsund og litlu og stóru
Brákarey.
Margt verður um að vera í bænum í
dag. Hátíðin hefst kl. 10 á leðjubolta í
fjörunni í Englendingavík. Kl. 11 verð-
ur Brákarhlaup ræst frá Grana-
staðatúni, en Brák hljóp niður nesið á
flótta undan Skallagrími. Hlaupnir
verða 10 km og 2,5 km. Á sama tíma
verður búningagerð fyrir börnin.
„Síðan verður mikil skrúðganga frá
Brákarsundi sem risabrúður leiða.
Bernd Ogrodnik vann brúðurnar fyrir
hátíðina í fyrra með krökkunum í
vinnuskólanum en þær eru af Brák,
Agli, Skallagrími og Þórði Granasyni.
Það mæta líka víkingar úr Hringhorna
og Rimmugýgi í fullum skrúða og
verða með víkingahátíð í garðinum,“
segir Sigríður.
Bænum hefur verið skipt í hverfi eftir
litum og um kvöldið verður götugrill.
„Eftir það verður safnast saman við
menntaskólann og gengið fylktu liði
við harmónikkuleik niður í Englend-
ingavík þar sem kvöldvaka hefst,“
segir Sigríður sem er að vonum
spennt fyrir fjörugum degi.
Brákarhátíð í Borgarnesi
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Brákarhátíð Frá skrúðgöngunni á Brákarhátíðinni í Borgarnesi í fyrra.
Hátíð fyrir kvenhetju
www.brakarhatid.is
Svartur, brúnn, móbrúnn,
dökkjarpur, korjarpur, ljós-
jarpur, rauðjarpur, bleikálóttur,
dökkbleikálóttur, ljós-
bleikálóttur, bleikur, dökk-
bleikur, fífilbleikur, fölbleikur,
rauðbleikur, grár, albinói, ljós-
grár, steingrár, leirljós, dökk-
leirljós, ljósleirljós, moldóttur,
gulmoldóttur, ljósmoldóttur,
móálóttur, dökkmóálóttur, ljós-
móálóttur, rauður, dreyrrauður,
dumbrauður, dökkrauður,
rauðglófextur, sótrauður,
skjóttur, bleikálóttskjóttur,
bleikskjóttur, brúnskjóttur, grá-
skjóttur, jarpskjóttur, móskjótt-
ur, rauðskjóttur, glámóttur,
hjálmóttur, höttóttur, kinn-
skjóttur, slettuskjóttur, vind-
óttur, dökkmóvindóttur,
ljósmóvindóttur,
sótvindóttur, rauð-
vindóttur, rauðlitfö-
róttur, brúnlitför-
óttur,
jarplitföróttur, mó-
litföróttur, bleikálótt-
litföróttur, bleiklitföróttur.
Heimild: www.847.is
Fjölbreytt
litbrigði
HESTALITIR
www.islenskihesturinn.is
AFSLÁTTUR VINSTRI HÆGRI!
Orkulykillinn hefur ekkert nema góðar hliðar. Hafðu hann á kippunni og tryggðu þér:
Sæktu um Orkulykilinn í dag á www.orkan.is
• 2 kr. afslátt hjá Orkunni
• 4 kr. afslátt hjá Shell
• 5 kr. afslátt á Ofurdögum
• 10 kr. afslátt í fyrstu 2 skiptin
• 10 kr. afslátt á afmælisdaginn
• Afslátt af bílavörum
• Afslátt af smurþjónustu
• Afslátt af bílaþvotti
• Greiðslumöguleika á Stöðinni
• Orkuvernd (verðstefna Orkunnar)
• Reglulega endurgreiðsluleiki
• Sérmerkingar lykla