Morgunblaðið - 25.06.2011, Blaðsíða 41
AF STRUMPUM
Birta Björnsdóttir
birta@mbl.is
Fyrir langa, langa löngu,lengst inni í skóginumbjuggu litlar skrýtnar verur
sem kölluðu sig Strumpa. Þeir voru
góðir …“ Eflaust hljómar þessi
byrjun kunnuglega í eyrum margra
en þetta eru einmitt upphafsorðin í
teiknimyndunum um Strumpana
sem íslensk börn hafa horft á í ára-
raðir. En saga Strumpanna nær
talsvert lengra aftur.
Þegar Pierre Culliford hóf árið1959 að strumpa stutta teikni-
myndarenninga um bláleitar verur
með hvíta hatta grunaði hann ef-
laust ekki hversu strumpandi vin-
sælar verurnar ættu eftir að verða.
Belgíski teiknimyndahöfund-
urinn tók sér listamannsnafnið
Peyo og strumpaði fyrst um sinn
teiknimyndir sem gerðust á miðöld-
um fyrir Le Journal de Spirou. Í
einni slíkri kom við sögu lítil blá
vera sem kallaðist Schtroumpf.
Lesendum þótti þessi bláa fígúra
spennandi og árið 1959 strumpaðist
fyrst á prenti sjálfstæð saga nokk-
urra lítilla blárra karla sem köll-
uðust Schtroumpf. Sú þjála nafngift
vék svo nokkru síðar fyrir ensku út-
gáfunni, Smurf.
Strumpar heita þeir upp á ís-lensku og orðið kemur víða við
í sögunum af þeim. Það er nefnilega
órjúfanlegur hluti af tungumáli
þeirra bláu og er orðinu gjarnan
skipt út fyrir nafnorð og lýsing-
arorð þegar Strumparnir strumpa
saman.
Og Strumparnir hafa komið
víða við á löngum ferli. Auk þess að
birtast á strumpum dagblaða hafa
verið gefnar út um þá teiknimynda-
bækur auk fjölda teiknimynda fyrir
sjónvarp. Þar voru engir aukvisar
fengir til verksins en teiknimynda-
tvíeykið Hanna & Barbera (skap-
arar Tomma og Jenna og Flinsto-
nes-fjölskyldunnar), gerðu alls 256
teiknimyndir um Strumpana.
Þá hafa þeir strumpað á hvíta
tjaldinu auk þess sem plastlíkneski
af þeim flestum hafa gengið kaup-
um og sölum um heim allan í ára-
tugi. Þá hafa þeir, líkt og fleiri stór-
stjörnur, reynt fyrir sér á sviði
tónlistar og eftir þá liggja þónokkr-
ar útgefnar metsöluplötur. Plötur
með Strumpunum hafa til að mynda
selst í 10 milljónum eintaka á und-
anförnum þremur árum á heims-
vísu.
Órjúfanlegur hluti af söguStrumpanna er svo galdra-
karlinn Kjartan. Einhverra hluta
vegna hatar hann þessar litlu vina-
legu bláu verur af öllu hjarta og
eyðir öllum sínum kröftum í að elt-
ast við þær en hefur sjaldnast er-
indi sem erfiði. Fyrir Íslendinga er
maður að nafni Laddi jafn ómiss-
andi hluti af sögu Strumpanna og
Peyo sjálfur því hann á heiðurinn af
íslensku strumpi allra Strumpanna,
Strympu, Kjartans og Brands, auk
annarra gesta í Strumpalandi.
Eins óviðeigandi og það hljóm-ar hugsa eflaust margir Ís-
lendingar enn til erótískra kvik-
mynda þegar Strumpana ber á
góma. Ekki það að litlu bláu krúttin
hafi nokkurntímann farið sjálf yfir
velsæmismörk heldur leyndust upp-
tökur af slíkum myndum á mynd-
bandsspólum sem nokkur reykvísk
börn leigðu í sakleysi sínu í upphafi
tíunda áratugar síðustu aldar.
Í dag eru svo allir hvattir til aðganga um með hvítar húfur, í
hvítum sokkabuxum og mála andlit
sín blá í dag. Hvers vegna? Jú, í dag
er hinn alþjóðlegi Strumpadagur.
Dagsetningin er valin með fæðing-
ardag Peyo í huga en eflaust hefur
yfirvofandi frumsýning stórmyndar
um Strumpana eitthvað með hátíð-
isdaginn að gera.
En það er gott og vel því allir
dagar ættu að henta jafn vel til að
heiðra þessar bláu og góðlegu ver-
ur.
Þeim sem vilja gleðjast meðöðrum Strumpum í tilefni
dagsins er svo bent á hátíðahöld í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
milli klukkan 10 og 18 í dag. Þar
verður í boði Strumpaópal, blá and-
litsmálning, blár rjómaís og
Strumpablátt candy-floss. Þar geta
gestir einnig leitað dyrum og
dyngjum að Strumpunum sjálfum,
og auk þess að sá eigi Strump sem
finnur geta fundvísir einnig ratað á
Strumpalega vinninga.
Alveg Strumpalega góður dagur!
» „Fyrir langa, langalöngu, lengst inni í
skóginum bjuggu litlar
skrýtnar verur sem
kölluðu sig Strumpa.
Þeir voru góðir …“
Strumpar Fyrir Íslendinga er maður að nafni Laddi jafn ómissandi hluti af sögu Strumpanna og Peyo sjálfur.
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2011
90/100
VARIETY
90/100
„MYNDIN ER FRÁBÆR:
KYNÞOKKAFULL
OG FYNDIN“
- P.H. BOXOFFICE MAGA-
- IN TOUCH
- HOLLYWOOD REPORTER
BEINT Á
TOPPIN
N
Í USA
- MENT
WEEKLY
- QU
100/100
ME
JO
DÝRAFJÖR
MIÐASALA Á SAMBIO.IS
BEASTLY kl. 4 - 6 - 8 - 10 10
SUPER 8 kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10 12
KUNG FU PANDA 2 3D M/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 L
KUNG FU PANDA 2 3D M/ensku tali kl. 8 Ótextuð L
THE HANGOVER 2 kl. 10:20 12
ANIMALS UNITED 3D M/ísl. tali kl. 2
BEASTLY kl. 6 - 8 10
KUNGFUPANDA2 3D M/ísl. tali kl. 4 L
SUPER 8 kl. 6-8 -10:20 12
PIRATESOFTHECARIBBEAN kl. 3:30 10
THE HANGOVER 2 kl. 10:20 12
MR.POPPER´S PENGUINS kl. 3:30 - 8 L
BEASTLY kl. 10:10 10
SUPER 8 kl. 8 12
BRIDESMAIDS 5:40 L
KUNG FU PANDA 2 M/ísl. tali kl. 3:30 - 6 L
/ KRINGLUNNI / AKUREYRI / KEFLAVÍK
BRIDESMAIDS kl. 8 - 10:30 12
SUPER 8 kl.3:40 -5:50-8-10:20 12
KUNG FU PANDA 2 kl. 4 - 6 Ísl. tal L
/ SELFOSSI
EIN BESTA ÆVINTÝRA/SPENNUMYND ÁRSINS
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA,EGILSHÖLL,KRINGLUNNI,
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
750 kr. á allar sýningar merktar með appelsínuguluSPARBÍÓ