Morgunblaðið - 25.06.2011, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2011
Kristel Finnbogadóttir
kristel@mbl.is
„Það kom sól hérna fyrir nokkrum
dögum og ég hélt að ég væri kominn
til himna. Ég hef ekki séð hana í
næstum mánuð,“ segir Bjarni Magn-
ússon, hreppstjóri í Grímsey. Þegar
blaðamaður náði tali af honum í gær
sagði hann veðrið ekki gott í eynni,
súld og rigning, kuldi og norðanátt.
Sumarið virðist lengi á leiðinni norð-
ur og óvenjuleg kuldatíð ætlar eng-
an endi að taka. Í Grímsey, þar sem
byggð er nyrst á Íslandi, er kalt og
sólarlítið.
Krían hvarf með hretinu
„Gróður er sáralítill ef enginn. Kal
í túnum er hins vegar ekki hér, en
sprettan er lítil,“ segir Bjarni um
gróðurfar. Á Norðausturlandi og
víðar hafa bændur þurft að berjast
við afleiðingar kuldakastsins og
óvíst er um heyskap í sumar, meðal
annars vegna skemmda í túnum.
Áhrifin ná þó einnig til dýralífsins.
„Bjargfuglinn bjargaði sér og verpir
vel og snemma, bæði langvía og
lundi, en við náðum svolítið af eggj-
um fyrr í vor. Það gerði slæmt veður
seinni hluta maímánaðar þar sem
varð bæði snjókoma og öskufall. Þá
hvarf krían alveg, en hún var komin
hingað fyrir hretið. Núna er hún
smátt og smátt að koma en ég held
að hún sé enn að verpa, mánuði á eft-
ir. Það er ótrúlegt hvað þetta hefur
farið illa,“ segir Bjarni Magnússon
og nefnir jafnframt að lítið sé af mó-
fugli og æðarfugli. Um sé að ræða
óvenjulegt ástand.
Bregður við að sjá sólina
„Það var aldrei mikill snjór hérna
því lítið er um frost. Það var hins
vegar ömurlegt að sjá allt hvítt með
öskuna yfir,“ segir Bjarni um hretið.
Hann segir látlausan kulda fylgja
austanátt, norðaustanátt og norðan-
átt. Ekki frystir vegna nálægð-
arinnar við sjóinn en hitinn er eng-
inn, mest eru það fimm eða sex stig á
daginn en tvö til þrjú stig yfir nótt-
ina. Þó sólin láti sjá sig er enn sami
kuldinn til staðar. „Okkur bregður
orðið við að sjá sólina á ný eftir að
hafa ekki séð hana vikum saman og
það er sérstakt að sjá ekki sumarsól-
stöðurnar í júní. Það er skrýtið hvað
þetta stendur yfir lengi. Ég man eft-
ir köldum vorum í apríl og maí en
svona ástand í júní er sjaldgæft,“
segir Bjarni og bendir á að júnímán-
uður sé senn á enda.
„Hljóðið í fólki er ágætt, það er nú
hægt að fiska þokkalega þrátt fyrir
þennan kulda,“ segir Bjarni að-
spurður um mannlíf eyjarinnar.
Hann segir veðrið þó hafa mikil áhrif
á ferðaþjónustu í Grímsey en líflegt
er í eyjunni á sumrin. Minna af fólki
komi með ferjunni en vanalega á
þessum tíma árs auk þess sem fólk
er sækir eyjuna heim ákveður að
dvelja þar færri daga en áætlað var,
fyrst og fremst vegna veðurs.
Bjarni útskýrir að á sumrin í
Grímsey séu hvorki miklir hitar né
kuldar. Vanalegt er að norðanátt
standi í nokkra daga á þessum árs-
tíma en ekki svona lengi. Hann seg-
ist hafa verið í Færeyjum nýlega og
þar væri sama sagan með norðanátt-
ina. „Hann stóð aldrei neitt norðan í
vetur heldur voru þá eintómir snún-
ingar, ýmist frost eða hiti, “ segir
Bjarni um veðurfar þessa árs. Hann
er ekki bjartsýnn á að veður fari
hlýnandi á næstunni og veðurspáin
lofi ekki góðu. Síðustu daga virðist
rigning og súld hafa bæst við kuld-
ann. „Meira að segja völuspá fyrir
vestan sagði að engin hlýindi væru
framundan,“ segir Bjarni. Hann
vonar hins vegar að sólin fari að láta
sjá sig. „Þegar sólin er svona hátt á
lofti og sterk getur hún heldur betur
lífgað upp á mannlífið og lífríkið ef
hún sést,“ segir Bjarni.
Ekki sást til sólar í heilan mánuð
Óvenjuleg kuldatíð fyrir norðan er áberandi í Grímsey Fuglalíf kemur illa undan löngu hreti
sem nær fram í júní Kuldinn hefur einnig áhrif á gróðursprettu og ferðaþjónustu í eynni í sumar
Morgunblaðið/ÞÖK
Grímsey Alnafnarnir Bjarni Magnússon hreppstjóri og sonarsonur. Í eynni hefur lítið sést til sólar þetta sumar.
Trausti Jóns-
son veður-
fræðingur
heldur úti
vefsíðunni
Hungur-
diskar á
Mogga-
blogginu.
Þar skrifar
Trausti að
kuldakastið
hafi staðið yfir í fimm vikur
samfleytt eða frá 20. maí. Hann
hefur borið tímabilið saman við
fyrri ár með áhugaverðum nið-
urstöðum. Hann miðar við mæl-
ingar á Akureyri allt aftur til
ársi s 1949, á tímabilinu 19.
maí t l 23. júní.
Í efsta sæti kuldali ta s trón-
ir árið 2011 en meðalhiti á tíma-
bilinu hefur verið 5,51 gráða á
Akureyri. Trausti bendir þó á að
árið í ár, 2011, velur dagana og
hefur því ákveðið samanburðar-
forskot. Í öðru sæti er árið 1952
en þá var meðalhiti tímabilsins
5,61. Í þriðja sæti listans er árið
1949 en þá var meðalhiti á
þessu tímabili 6,31. Athygli vek-
ur að fjögur ár af tíu á listanum
eru frá því um svipað leyti eða
1979, 1981, 1982 og 1983.
Trausti hefur einnig borið sam-
an athuganir í Stykkishólmi allt
aftur til ársins 1846 fyrir sömu
daga. Árið 2011 er í sjöunda
sæti og meðalhitinn á tíma-
bilinu er 5,65 gráður. Kaldast
var 1860, meðalhiti 4,28 gráður.
2011 í efsta
sæti listans
VEÐURATHUGANIR
Trausti
Jónsson
Leópold Jón Jóhann-
esson, fyrrverandi
veitingamaður í
Hreðavatnsskála, lést
á Hrafnistu í Reykja-
vík 23. júní síðastlið-
inn, 93 ára að aldri.
Hann fæddist 16.
júlí 1917 á Ingunnar-
stöðum í Múlasveit.
Frá 1946-1960 var
Leópold vélamaður og
verkstjóri hjá Vega-
gerð ríkisins. Hann
vann við snjómokstur,
vegmerkingar, brúa-
og ræsasmíðar og
margt fleira um allt land. Leópold
var veitingamaður í Hreðavatns-
skála 1960-1977.
Leópold var mörgum að góðu
kunnur fyrir hjálpsemi og greið-
vikni við þá fjölmörgu sem þurftu
þess með.
Hann lauk starfsferli sínum hjá
Olíufélaginu Esso, en þar vann
hann fulla vinnu þar til hann var
rúmlega 78 ára er hann sagði
starfi sínu lausu.
Leópold var alla tíð virkur í fé-
lagsmálum. Hann var einn af þeim
sem stóðu að stofnun Starfs-
mannafélags Vegagerðarinnar,
sem stóð m.a. fyrir skemmtunum
og heimildarmyndagerð með Ósk-
ari Gíslasyni um flutning á efni í
brýr austur á Öræfi.
Leópold var alla tíð mjög
áhugasamur um
björgunar- og slysa-
varnamál. Sat sem
slíkur mörg þing
Slysavarnafélags Ís-
lands og sinnti ýms-
um trúnaðarstörfum
á þeim vettvangi.
Hann var áhuga-
maður um stofnun
Björgunarsveit-
arinnar Heiðars í
Borgarfirði og tók
virkan þátt í starfi
hennar. Leópold var
kunnur hestamaður
og stóð fyrir kynbót-
um og ræktun hrossa. Hann var
stofnfélagi í Félagi hrossabænda
og heiðursfélagi númer tvö.
Leópold var um tíma formaður
Félags eldri borgara í Kópavogi
og fararstjóri í fjölmörgum ferð-
um þess félags um land allt.
Hann var á efri árum eftirsóttur
leiðsögumaður.
Fyrri kona Leópolds var María
Magnúsdóttir. Þau eignuðust
þrjú börn: Önnu Sigurbjörgu, en
hún lést árið 1989, Magnús og
Hall Valþór. Síðari kona hans var
Olga Sigurðardóttir. Þau eign-
uðust fjögur börn: Jóhönnu
Gunnborgu, Sigurð Hjarðar, Leif
Einar, en hann lést árið 1995 og
Margréti Oddnýju. Leópold á 12
barnabörn og 16 barnabarna-
börn.
Andlát
Leópold Jón
Jóhannesson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Bolvíkingar lögðu mikið í þetta hús á sínum tíma,
peninga og sjáfboðavinnu. Þeir bera heitar tilfinn-
ingar til félagsheimilisins og vildu ekki láta það
grotna niður,“ segir Elías Jónatansson, bæjarstjóri
Bolungarvíkur.
Félagsheimili Bolungarvíkur var tekið í notkun fyr-
ir tæpum sextíu árum. Þar hefur verið miðstöð menn-
ingar og skemmtanahalds bæjarbúa.
Lengi hefur verið rætt um að endurnýja húsið og
gera breytingar svo það fullnægi kröfum nútímans,
meðal annars um aðgengi. Bæjarstjórn ákvað að ráð-
ast í verkið en það tafðist, meðal annars vegna fjár-
hagserfiðleika bæjarins. Endurnýjað hús var síðan
tekið í notkun við hátíðlega athöfn í vor.
Elías segir að Bolvíkingar hafi tekið endurbættu
félagsheimili vel og séu duglegir að nýta það. Auk
samkomusalar með leiksviði er þar eldhús vel tækjum
búið og fundarsalir. Þá er útisvið við húsið og að-
staða til að halda samkomurnar að hluta eða öllu
leyti utan húss, ef þannig viðrar.
„Öll bæjarfélög þurfa miðbæ. Með endurbyggingu
félagsheimilisins og tilheyrandi útisvæði er verið að
færa bæjarmiðjuna á þennan stað. Þar verða allar
helstu samkomur haldnar,“ segir Elías.
Kostnaður við endurbyggingu félagsheimilisins og
tilheyrandi framkvæmdir er um 250 til 300 milljónir
kr. Elías vonast til að leigutekjur standi undir bein-
um rekstrarkostnaði. „Við sjáum ekki mikið koma
upp í fjárfestingarkostnað,“ bætir hann við.
Miðjan færist að félagsheimilinu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Miðjan Starfsemi er komin á fullan skrið í Félagsheimili Bolungarvíkur. Unnið er að lokafrágangi útisvæðis.