Morgunblaðið - 13.07.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.07.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Í umræðum á ársfundi Alþjóðahval- veiðiráðsins um vísindalegan grund- völl hvalveiða í atvinnuskyni var Ís- land gagnrýnt af nokkrum ríkjum vegna veiða á langreyðum. Meðal þeirra ríkja voru Bandaríkin sem vísuðu til þess að þessi hvalategund væri í útrýmingarhættu. Ársfundurinn er haldinn á Jersey í Bretlandi, hófst síðastliðinn mánu- dag og lýkur á morgun, fimmtudag. Tómas H. Heiðar, aðalfulltrúi Ís- lands í Alþjóðahvalveiðiráðinu, segir Ísland hafa mótmælt þeirri staðhæf- ingu Bandaríkjamanna á fundinum. Var bent á að stofn langreyðar á Norður-Atlantshafi væri í góðu ástandi. Jafnframt var bent á að eng- in tengsl væru á milli þess stofns og stofns sömu tegundar hvala í Suður- höfum. En sá stofn langreyðar er að sögn Tómasar í útrýmingarhættu. Tómas segir veiðar Íslendinga á langreyði vera fyllilega sjálfbærar. Í því samhengi benti hann á að árlegur kvóti á langreyði er 154 dýr. Er sá kvóti byggður á ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar. Langreyðarstofn- inn er að sögn Tómasar um 20 þús- und dýr. M.a. sökum þessa segir hann engan fót vera fyrir gagnrýni á veiðar Íslendinga á langreyði. Í um- ræðu um vísindalegan grundvöll á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins gagnrýndi Ísland jafnframt Banda- ríkjamenn fyrir að sýna tvískinnung í máli sínu. Tómas segir Ísland hafa bent á að langreyðarveiðar þjóðar- innar væru ekki síður sjálfbærar en veiðar Bandaríkjamanna á norður- hval frá Alaska. Bent var á að Hafrannsóknastofn- un hefði gert vísindalegan saman- burð á veiðum Bandaríkjanna og Ís- lands. Segir Tómas að í ljós hafi komið að veiðarnar séu jafn sjálf- bærar. Nefnir Tómas að í báðum til- vikum nemi árlegur kvóti úr stofn- inum 0,65 prósent af stofnstærð. Tómas segir Ísland styðja hval- veiðar Bandaríkjanna frá Alaska, líkt og aðrar sjálfbærar veiðar í heiminum. Að hans mati er mikil- vægast að veiðarnar séu sjálfbærar, hvort sem um ræðir atvinnu-, frum- byggja- eða vísindaveiðar. Athygli hefur vakið á fundinum hve fáir andstæðingar hvalveiða hafa mætt að þessu sinni. En Bretar hafa lengi verið helstu andstæðingar hvalveiða í heiminum. Segir Tómas að þegar íslenska sendinefndin gekk inn á ársfundinn í Bretlandi á mánu- dag hafi þeir einungis talið rétt rúm- an tug mótmælenda á svæðinu. Hann segist finna fyrir auknum skilningi á málstað Íslands um sjálf- bæra nýtingu lifandi auðlinda í haf- inu. Gagnrýni svarað á ársfundi  Ísland gagnrýnir Bandaríkin fyrir að sýna tvískinnung á ársfundi Alþjóðahval- veiðiráðsins  Sendinefndin segist finna fyrir auknum skilningi á málstað Íslands Almenningur virð- ist vera að átta sig á sjálfbærni hval- veiða. Tómas H. Heiðar Sífellt fær miðbær Reykjavíkur á sig sögulegri blæ. Unnið er að byggingu kvists yfir Lækjargötu 8, þar sem framlenging af veitingastaðnum Thai Reykjavík mun verða til húsa, og er áætlað að framkvæmdum ljúki fyrir næsta sumar. Þetta sögufræga hús var byggt 1870 og þar bjuggu m.a. Jónas Jónassen landlæknir, Þórunn Jónassen bar- áttukona fyrir kvenréttindum og Hannes Haf- stein, skáld og fyrsti ráðherra Íslands. Lækjargata setur sögulegan svip á miðbæinn Morgunblaðið/Ómar Lára Hilmarsdóttir larah@mbl.is „Eftir fimm mánaða viðræður hefur ekkert náðst fram og því grípum við til þessa vopns,“ segir Ægir Steinn Steinþórsson hjá Félagi skipstjórn- armanna en hafnsögumenn innan fé- lagsins hafa boðað til verkfalls 26. til 30. júlí, 2. til 6. ágúst og svo til ótíma- bundins verkfalls frá 8. ágúst. Við- semjandi félagsins er Samband ís- lenskra sveitarfélaga en niðurstaða í kjaradeilum þeirra hefur ekki náðst síðan samningaviðræður hófust í febrúar. Síðasti fundur félagsins við ríkissáttasemjara var haldinn 6. júlí sl. Ægir segir ýmsa hafnarstarfsemi, m.a. umferð skipa um hafnir, verða fyrir töluverðri röskun vegna verk- fallsins, sérstaklega í ljósi þess að umferð farþegaskipa sé nú afar mik- il. Þá hafa farmenn hjá Sjómanna- félagi Íslands boðað til yfirvinnu- banns sem tekur gildi í dag frá há- degi. Síðasti fundur félagsins hjá ríkissáttasemjara var í gær án nokk- urrar niðurstöðu, en bæði félögin funda á ný á fimmtudaginn. Í gærkvöldi náðust samningar milli sjúkraliða og Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. Það sem eftir er viku funda ýmsir aðilar hjá rík- isáttasemjara, s.s. ljósmæður, skurðlæknar og slökkviliðsmenn. Hafnsögumenn boða til verkfalls á háannatíma  Kjaradeilur hafnsögumanna og farmanna enn óleystar Ögmundur Jón- asson innanrík- isráðherra segist telja að boða eigi til þjóð- aratkvæða- greiðslu um framtíð Reykja- víkurflugvallar í Vatnsmýri. Ráð- herra lét orðin falla í Morg- unútvarpi Rásar 2 í gær, en hann segir málið umdeilt þvert á stjórn- málaflokka og hjá þjóðinni allri. Sjálfur er hann þeirrar skoðunar að ekki eigi að flytja völlinn. Hjálmar Sveinsson, fulltrúi Sam- fylkingarinnar í skipulagsráði, kveðst ósammála Ögmundi varðandi hvort tveggja; flugvöllurinn eigi ekki að vera áfram þar sem hann sé nú, og einnig um það að setja eigi mál af þessu tagi í þjóðaratkvæðagreiðslu. Réttast sé að krafa um þjóð- aratkvæði komi frá almenningi. einarorn@mbl.is Vill kjósa um flug- völlinn Ögmundur Jónasson  Ráðherra stingur upp á þjóðaratkvæði Enn er mikil óvissa með framvindu mála í kjaradeilu flugmanna Ice- landair. Samninganefnd og stjórn FÍA, Félags íslenskra atvinnuflug- manna, funduðu í gær eftir að kjarasamningur flugmanna var felldur með 51% meirihluta. Hafsteinn Pálsson, formaður FÍA, segir að enn séu ekki komnar neinar niðurstöður um hvort félag- ið grípi til einhverra aðgerða, né gat hann sagt til um hvers vegna fé- lagsmenn hefðu fellt samninginn. Fundahöld halda áfram í dag og liggur því ekki enn fyrir hvaða framhald verður í kjaramálum flugmanna. larah@mbl.is Enn óvissa um við- brögð flugmanna Ekkert bendir til þess að eldgos hafi orðið undir Mýrdalsjökli og valdið hlaupinu sem reif með sér brúna yfir Múlakvísl aðfaranótt laugardags, að sögn Magnúsar Tuma Guðmunds- sonar, jarðeðlisfræðings. Það þýði hins vegar ekki að hægt sé að útiloka það með öllu. „En það var þá ekkert lykilatriði í að búa til þetta bræðslu- vatn,“ segir Magnús. „Það hefur verið jarðhiti sem hef- ur gert það á undanförnum mán- uðum.“ Samanburður á mælingum sem gerðar voru annars vegar á mið- vikudag í síðustu viku og nú á mánudag hins vegar gefur til kynna að alls hafi 17-18 milljón rúmmetrar vatns ruðst fram, und- an þremur sig- kötlum. „Svo hrynja katlarnir í miðjunni, að öll- um líkindum vegna þess að þrýsting- urinn inni í þeim lækkar svo hratt.“ Ekkert bendir til þess að gosið hafi undir jökli  Milljónir rúmmetra vatns ruddust fram Magnús Tumi Guðmundsson Karlmaður á sextugsaldri hlaut al- varlega höfuðáverka er hann missti stjórn á bifhjóli sínu nyrst á Skaga síðdegis í gær. Flogið var með manninn suður til Reykjavíkur með þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF- LÍF, sem lenti við Landspítalann um tíuleytið í gærkvöldi. Gæslunni barst beiðni frá Neyð- arlínunni um sjöleytið, en þá var TF-LÍF nýfarin í loftið til æfinga. Var hún kölluð inn aftur á Reykja- víkurflugvöll og þyrlulæknir kall- aður út til viðbótar. Einnig var fengið blóð frá Blóðbankanum. Hlaut alvarlega áverka í bifhjólaslysi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.