Morgunblaðið - 13.07.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2011
Björn Bjarnason ritar á vef sinn ítilefni af frétt Ríkisútvarpsins
af fundi Jóhönnu Sigurðardóttur og
Angelu Merkel. Í fréttinni segir:
„Eitt helsta markmið fundarins var
að kynna samnings-
markmið Íslendinga
í aðildarviðræðum
við Evrópusam-
bandið.“
Björn bendir á aðsamkvæmt
þessu sé Angela
Merkel betur að sér
um stöðu íslenskra
stjórnvalda gagn-
vart ESB en Íslend-
ingar. „Ríkisstjórnin
hefur ekki kynnt
nein samningsmark-
mið opinberlega.
Hvaða markmið kynnti Jóhanna?“
Og Björn heldur áfram: „StefánHaukur Jóhannesson, formað-
ur íslensku viðræðunefndarinnar,
hefur sagt að samningsmarkmið
verði mótuð eftir hendinni af nefnd
sinni. Í þeim orðum felst að nefndin
ætli að gæta þess að ekki slitni upp
úr viðræðunum heldur takist sam-
eiginlega að setja orð á blað sem síð-
an verði borin undir Íslendinga í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er
eina markmið íslensku nefnd-
arinnar og vissulega má kalla það
samningsmarkmið. Var það þetta
markmið sem Jóhanna kynnti fyrir
Merkel?“
Auðvitað er það gagnrýnivert efJóhanna segir annað við kansl-
ara Þýskalands en við Íslendinga,
en það væri svo sem í samræmi við
annað í upplýsingagjöf stjórnvalda.
Enn alvarlegra er að samninga-nefndin hefur í raun það eina
markmið frá ríkisstjórninni að ná
samningi hvað sem í honum stend-
ur. Og að mæla með honum hvað
sem það kostar.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Samningurinn er
eina markmiðið
STAKSTEINAR
Björn Bjarnason
Veður víða um heim 12.7., kl. 18.00
Reykjavík 13 skýjað
Bolungarvík 13 skýjað
Akureyri 18 skýjað
Kirkjubæjarkl. 12 skýjað
Vestmannaeyjar 10 alskýjað
Nuuk 11 léttskýjað
Þórshöfn 10 alskýjað
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 20 léttskýjað
Stokkhólmur 22 léttskýjað
Helsinki 22 léttskýjað
Lúxemborg 22 heiðskírt
Brussel 20 skúrir
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 17 skýjað
London 18 léttskýjað
París 23 skýjað
Amsterdam 21 heiðskírt
Hamborg 22 léttskýjað
Berlín 26 heiðskírt
Vín 27 heiðskírt
Moskva 27 heiðskírt
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 32 léttskýjað
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 33 léttskýjað
Aþena 32 heiðskírt
Winnipeg 20 léttskýjað
Montreal 26 léttskýjað
New York 31 heiðskírt
Chicago 30 léttskýjað
Orlando 31 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:35 23:33
ÍSAFJÖRÐUR 2:57 24:21
SIGLUFJÖRÐUR 2:38 24:06
DJÚPIVOGUR 2:55 23:12
Gunnlaugur Auðunn Árnason
Stykkishólmur | Öllum héraðsdýra-
læknum hefur verið sagt upp störf-
um frá og með 1. nóvember en þá
verða stöður þeirra lagðar niður.
Það er gert samkvæmt nýjum lög-
um um Matvælastofnun þar sem
ákveðið er að skilja til fulls á milli
þjónustu við dýraeigendur og eft-
irlits. Með þessum breytingum
verða lagðar niður ellefu og hálf
staða héraðsdýralækna í dreifbýli
og í staðinn koma þrjár nýjar stöður
dýralækna sem eingöngu sinna eft-
irlitsþjónustu.
Nýju eftirlitsstörfin hafa starfs-
stöð í Búðardal, á Sauðárkróki og
Egilsstöðum. Dýralæknar skulu eft-
irleiðis vera sjálfstætt starfandi.
Það getur reynst erfitt og lítið
freistandi að starfa sem dýralæknir
í hinum dreifðu byggðum, sem þó er
nauðsynlegt að þjóna, án tryggrar
afkomu. Ríkisvaldið hefur lýst því
yfir að dýralækningaþjónusta verði
tryggð í dreifðum byggðum, en
hvernig hún verði útfærð liggur ekki
fyrir þó að gildistíminn sé skammt
undan. Nú bíða héraðsdýralæknar í
óvissu eftir hvernig ríkisvaldið komi
að þessum málum og á meðan vita
þeir ekki hvað bíður þeirra.
Gott kerfi eyðilagt
Einn þeirra dýralækna, sem hafa
lengstan starfsaldur, er Rúnar
Gíslason, héraðsdýralæknir í Stykk-
ishólmi. Hann hefur starfað sem
héraðsdýralæknir á Snæfellsnesi frá
árinu 1980 og hættir sem slíkur 1.
nóvember þegar embætti hans verð-
ur lagt niður. Rúnar er ekki ánægð-
ur með breytingarnar sem í vænd-
um eru. „Við höfum búið við gott
kerfi varðandi dýralækningar í
dreifbýli. Það hefur virkað mjög vel
og hefur reynst ódýrt en með nýjum
lögum verður það eyðilagt. Það er
búið og gert og við því er ekkert
hægt að gera. Það sem ég er ósáttur
við er seinagangurinn við að kynna
hvernig ríkisvaldið ætli að tryggja
dýralækningaþjónustu í dreifðum
byggðum. Það veit enginn hvernig
sá stuðningur kemur til með að líta
út,“ segir Rúnar.
Héraðsdýralæknar hafa sinnt
þjónustu við bændur og aðra dýra-
eigendur og jafnframt opinberu eft-
irliti sem felur í sér fjósaskoðun,
dýraverndarmál og ýmsar sýnatök-
ur. Auk þess heilbrigðisskoðun slát-
urafurða ef sláturhús er í umdæm-
inu. „Dýralækningar eru mitt
aðalstarf og gæti ég trúað að eft-
irlitið væri u.þ.b. 10% ef það nær
því. En nú á að aðskilja þessi störf
sem verður mun dýrara þar sem fá-
mennið er mikið og vegalengdir
langar,“ segir Rúnar. Það liggur
ljóst fyrir hvernig eftirlitinu verður
háttað hjá nýjum héraðsdýralækn-
um sem eiga að sinna því starfi.
Varðandi þjónustu við bændur er
annað upp á teningnum. Stöður nýju
héraðsdýralæknanna hafa verið
auglýstar til umsóknar, en enginn
dýralæknir hefur sótt um tvö emb-
ætti af þrem. Þar er um allt annað
starf að ræða. Þeir sem sinna því og
hafa starfað við dýralækningar
mega þá ekki lengur lækna dýr eða
veita ráð, heldur aðeins sinna op-
inberu eftirliti. Í hinum dreifðu
byggðum er enginn fjárhagslegur
grundvöllur fyrir starfsemi sjálf-
stætt starfandi dýralækna. Til að
tryggja starfsgrundvöll dýralækna í
dreifbýli tel ég óhjákvæmilegt að
þeir verði áfram opinberir starfs-
menn og þeim tryggð föst laun.“
Að lokum segist Rúnar óttast
þjónustufall við dýraeigendur í
dreifbýli. „Ég hef starfað sem dýra-
læknir í dreifbýli allan minn starfs-
tíma, haft mikla gleði af því starfi og
átt ánægjulegt samstarf við bænd-
ur. Nú óttast ég að við blasi þjón-
ustufall við dýraeigendur í dreifbýli
og þykir mér miður að verða vitni að
því við starfslok,“ segir Rúnar Gísla-
son.
Hætta á að þjónustan hrynji
þegar embætti verða lögð af
Óvissa um hvernig dýralækningum í dreifbýli verður háttað eftir 1. nóvember nk.
Morgunblaðið/Gunnlaugur A. Árnason
Á vaktinni Rúnar Gíslason dýralæknir hlynnir að hestinum Lúkasi og Jón Ingi Hjaltalín fylgist með í kvöldblíðunni.
Störfin lögð niður
» Rúnar Gíslason hefur starf-
að sem dýralæknir frá árinu
1976 og verið dýralæknir í
Snæfellsnesumdæmi með bú-
setu í Stykkishólmi frá því
1980.
» Öllum héraðsdýralæknum í
dreifbýli hefur verið sagt upp
starfi frá og með 1. nóv., þar
sem leggja á niður störf þeirra.
» Alger óvissa er um fram-
kvæmd dýralækninga í dreifð-
um byggðum landsins.