Morgunblaðið - 13.07.2011, Page 13

Morgunblaðið - 13.07.2011, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2011 Ferðamálastofa og Slysavarna- félagið Landsbjörg hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára. Meginmarkmið samstarfsins er að tryggja viðgang og gæði ferðavefjarins safetravel.is og tyggja þar með aðgang íslenskra og erlendra ferðamanna að bestu mögulegu upplýsingum um ferða- mennsku á Íslandi hverju sinni. Slysavarnafélagið Landsbjörg vinnur jafnframt að öryggi ferða- manna á hálendinu og aðstoðar þá eftir mætti, með því m.a. að halda úti hálendisvakt sjálf- boðaliða björgunarsveita frá 24. júní til 14. ágúst. Kristinn Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Landsbjargar, og Ólöf Ýrr Atladóttir ferða- málastjóri skrifuðu undir samn- inginn. Aðgangur tryggður Á föstudag nk. kl. 14 verður opnaður græn- metismark- aður á bíla- stæði Leikfélags Hveragerðis við hliðina á Eden. Opið verður allar helgar fram á haust. Föstudaga verður opið frá kl. 14-18 og laugardaga og sunnudaga frá kl. 12-18. Boðið verður upp á nýtt grænmeti úr gróðurhúsum og nýupptekið útigrænmeti verður í boði um leið og það þroskast. Í boði verða tómatar, gúrkur, paprika, salat, kál, rófur, gul- rætur, kartöflur hnúðkál, púrra, sellerí og fleira. Þá er hugs- anlegt að bleikja og heimagerð hrossabjúgu fái að fljóta með. Grænmetismark- aður í Hveragerði Borgarbókasafn Reykjavíkur stendur fyrir fjölskyldugöngu fimmtudagskvöldið 14. júlí kl. 20. Sigrún Jóna Kristjánsdóttir og Sunna Björk Þórarinsdóttir leiða gönguna, en í henni verða spenn- andi nýlegar bækur fyrir börn kynntar á söguslóðum sínum víðs vegar í miðbænum. Einnig munu rithöfundarnir Þórarinn Leifsson og Margrét Örnólfsdóttir hitta göngugesti, Þórarinn á slóðum ömmu Huldar og Margrét á Hótel Borg, þar sem Aþena – ekki höf- uðborgin í Grikklandi – kemur við á ferðum sínum í samnefndri sögu. Gangan tekur ríflega klukku- stund. Lagt verður af stað frá Borg- arbókasafni í Grófarhúsi á slaginu kl. 20 og er þátttaka ókeypis. Kvosarganga Morgunblaðið/Árni Sæberg STUTT Íslensk jarðarber eru á boðstólum í verslunum lands- manna. Svava Kristjánsdóttir, starfsmaður hjá Garð- yrkjustöðinni Silfurtúni á Flúðum, sést hér tína jarð- arber. Hún vinnur hjá þeim hjónum Olgu Lind Guðmundsdóttur og Eiríki Ágústssyni en þau rækta jarðarber á um 3.500 fermetrum. Þau segja að markaður sér góður fyrir þessa afurð. Jarðarber hafa verið ræktuð í Silfurtúni ásamt ýmsum fleiri tegundum síðan 1997. Góður markaður fyrir íslensk jarðarber Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Héraðsdómur Suðurlands hefur vísað frá dómi máli gegn einstakling sem var ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað á Selfossi í maí í fyrra. Ástæðan fyrir því að málinu var vísað frá dómi er sú að ákæruvaldinu láðist að gera kröfu um að viðkomandi yrði látinn sæta refsingu og að greiða sak- arkostnað. Segir í úrskurði héraðs- dóms að við þingfestingu hafi lög- reglustjóraembættið á Selfossi gefið út framhaldsákæru dagsetta þann 16. júní sl. Þar kemur fram að breyta þurfi ákærunni á þann hátt að þess sé krafist að ákærði sæti refsingu og til greiðslu sakarkostnaðar. Dómarinn féllst hins vegar ekki á það þar sem ekki liggi nýjar upplýs- ingar frammi varðandi málið en í þessu tilviki hafi ákæruvaldið upp- götvað það á síðari stigum að láðst hafi að greina frá kröfugerð ákæru- valdsins. Af þessum sökum sé óhjá- kvæmilegt að vísa málinu frá. Gleymdist að krefjast refsingar norra na husid e - -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.