Morgunblaðið - 13.07.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.07.2011, Blaðsíða 18
Þurrkar og skortur eru dauðans alvara FRÉTTASKÝRING Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is M iklir þurrkar hafa lagst þungt á þjóðir Austur-Afríku að undanförnu og vald- ið búsifjum í Sómal- íu, Keníu, Eþíópíu og Djibouti. Til að auka á neyðina hefur hækkandi mat- vælaverð, samfara þurrkunum, leitt til mikillar hungursneyðar. Sam- kvæmt Barnahjálp Sameinuðu þjóð- anna, UNICEF, eru fleiri en 2 millj- ónir ungra barna vannærð og hálf milljón þeirra er í bráðri lífshættu vegna vannæringar. Þar sem ástand- ið er verst er vannæring fimm sinn- um tíðari en viðmiðunarmörk neyðar- ástands gera ráð fyrir. Þurrkarnir eru þeir verstu á svæðinu í 60 ár og hafa áhrif á daglegt líf um 12 milljóna manna. Einna verst er ástandið í Sómalíu þar sem stöðug átök hafa staðið yfir í tvo áratugi og stjórnsýsla landsins er gjörsamlega í molum. Fjöldi vannærðra barna á þurrka- svæðum Sómalíu hefur tvöfaldast síð- an í janúar og Sameinuðu Þjóðirnar telja að eitt af hverjum þremur börn- um í Suður- og Mið-Sómalíu þjáist af vannæringu. Vegna vannæringar eru börnin berskjölduð fyrir banvænum sjúkdómum á borð við malaríu og nið- urgang. Dag hvern flýja um 3000 manns í örvæntingu frá Sómalíu til nágrannaríkjanna Keníu og Eþíópíu og setjast að í flóttamannabúðum. Fjölmennustu flóttamannabúðirnar eru í Dadaab á landamærum Keníu og Sómalíu en þar hafast um 367 þús- und manns við. Í flóttamannabúð- unum er ástandið lítið skárra en heima fyrir þar sem Kenía og Eþíópía eru ekki í stakk búin til að takast á við neyðina. 270% hækkun matvælaverðs Síðustu tvö regntímabil voru langt undir meðalári í Austur-Afríku og það bitnaði harkalega á uppsker- unni. Uppskerubrestur leiddi um- svifalaust til hækkandi matvæla- verðs. Til dæmis hefur matvælaverð hækkað um 270% á einu ári í Sómalíu. Verð á korni og maís hefur sér- staklega hækkað. Umræddar hækk- anir, auk mikilla hækkana á eldsneyt- isverði, hafa þvingað fjölmarga bændur til að bregða búi þar sem þeir geta hvorki brauðfætt fjölskyldur sínar né fóðrað skepnurnar. Skepn- urnar eru dýrmætustu eignir bænda og hirðingja en án þeirra eru fjöl- skyldurnar allslausar. Samkvæmt tímaritinu The Economist hafa allt að 60% nautgripa og geita drepist þar sem ástandið er verst. Hart er barist um bestu beitarlöndin og menn hika ekki við að grípa til vopna. Um 100 hirðingjar hafa látið lífið í Keníu, það sem af er ári, við það eitt að verja beitarlönd. Margar fjölskyldur neyð- ast því til að ganga langar vegalengd- ir með það fyrir augum að leita hjálp- ar í flóttamannabúðum sem reknar eru af hjálparsamtökum. Vopnuð átök í Sómalíu hafa þó gert hjálp- arsamtökum erfitt fyrir. Dæmi eru um að herskáir uppreisnarmenn hafi meinað hjálparstarfsmönnum um að- gengi að mestu hörmungarsvæð- unum í Sómalíu. Talið er að ástandið fari snarversnandi verði ekkert að gert. Samkvæmt UNICEF þarf að lágmarki 31,8 milljónir bandaríkja- dala til að mæta ýtrustu neyðinni. Nauðsynlegt sé að tryggja öllum lág- marks-neyðaraðstoð og koma þannig í veg fyrir dauðsföll vegna vannær- ingar. Hjálparsamtök leggja nú allt kapp á að tryggja neyðaraðstoð í löndunum. UNICEF hóf nýverið söfnun til styrktar hjálparstarfi. Þá hefur Barnaheill, Save the Children á Íslandi og Rauði kross Íslands sömu- leiðis hafið söfnun vegna þurrkanna í Austur-Afríku. Reuters Hungursneyð Íslendingar geta meðal annars lagt sitt af mörkum með því að leggja til fé í hjálparsafnanir UNICEF, Barnaheilla og Rauða krossins. 18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Vandræða-gangur Jó-hönnu Sig- urðardóttur vegna kínaklúðursins fer versnandi. Eins og greint hefur verið frá hefur hún ekki treyst sér til að svara spurningum blaða- manna um klúðrið dögum og vikum saman. Hún hefur fellt niður hefðbundinn aðgang blaðamanna að ráðherrum eftir ríkisstjórnarfundi vegna þess að hún hefur verið á sífelldum flótta. Eftir langa þögn lætur hún hins vegar hafa eftir sér í Fréttablaði þeirra baugsmanna eftirfarandi: „Jóhanna segir at- hugasemdum hafa verið komið á framfæri við Morgunblaðið en ekki hafi verið tekið tillit til þeirra. Þá hafi Kínverjar sent Morgunblaðinu staðfestingu á að heimboðinu hafi ekki verið hafnað, en hún hafi ekki heldur birst á síðum blaðsins. „Þetta er ótrúleg blaðamennska, ég hef aldrei séð annað eins.““ Aðstoðarmaður sama ráð- herra hefur staðið fyrir miklu skítkasti að Morgunblaðinu á vefnum vegna kínaklúðursins við góðar undirtektir nokkurra sálufélaga sinna úr Samfylking- unni. En inn á milli glitti þó í þessa setningu frá aðstoð- armanninum: „Fréttin“ hefur bara birst í Mogganum fram að þessu og þar hefur, þrátt fyrir allt, líka birst það sem forsæt- isráðuneytið hefur sent frá sér vegna málsins.“ En að- stoðarmaðurinn hefði getað bætt því við að blaða- menn Morg- unblaðsins hefðu mörgum sinn- um á dag reynt að fá skýringar á framgöngu forsætisráðherra og ráðuneytisins frá ráðherran- um og aðstoðarmanninum sjálf- um en hvorugum hefur þóknast að láta ná í sig. Hvernig stendur á því? Ekki er það vegna tímaskorts eða vinnuálags sem slík framkoma er sýnd, eins og áróðurinn og slúðrið sem aðstoðarmaðurinn stendur fyrir á netinu sannar. Morgunblaðið hefur að sjálf- sögðu birt allt það um þetta dæmalausa klúðurmál sem að- ilar sem málið snerta hafa ósk- að eftir að birt væri. En Morg- unblaðið er ekki eins og „fréttastofa“ Ríkisútvarpsins sem lætur forystumenn Sam- fylkingarinnar meta það ein- hliða hvort frétt sé á ferðinni eða ekki og eiga um það síðasta orðið. Forsætisráðuneytið gat ekki notað þá „fréttastofu“ til að koma „leiðréttingu“ sinni á framfæri, því RÚV hafði ekki frétt neitt um hneykslið. Hún varð því að víkja sér undan er- indisrekstrinum að þessu sinni. En baugsmiðillinn lét sig hafa það. Það getur ekki hafa komið nokkrum manni á óvart. Vondur málstaður versnar bara ef ósannindi eru meg- invopnin í vörninni} Afhverju þessi ósannindi? Ólgan semblossað hefur upp í ítölsku efna- hagslífi hefur komið mörgum í opna skjöldu. Rík- isskuldir eru vissulega mjög miklar og er landið í næstefsta sæti skuld- ugra Evrópuríkja á eftir Grikklandi. En bent hefur ver- ið á að kröfuhafar á ríkissjóð Ítalíu eru að stórum hluta úr hópi landsmanna sjálfra og því má ætla að þeir séu ekki eins kvikir kröfuhafar og til að mynda erlendir vogunarsjóðir. Eins er gjarnan bent á að almennur rekstur ítalska rík- isins er ekki háður lánsfé eins og hinn gríski. Lánsfjárþörf Ítalíu er að mestu bundin end- urfjármögnunarþörf. Með öðr- um orðum fremur gamlar syndir en nýjar. En þótt vantrúin á ítölsku efnahagslífi sé að hluta til ósanngjörn er hún til staðar og veikir til muna trúna á hina sameig- inlegu mynt. Þegar nóbelsverðlaunahaf- inn Paul Krugman er spurður af hverju Ítalía lendi í vanda en ekki t.a.m. Bandaríkin, sem skarta ekki upplífgandi efna- hagslegum ein- kunnum heldur, svarar hann: Bandaríkin hafa sína eigin mynt. Og hann bætir því við að evruríkin séu í svona miklum vandræð- um því með upptöku þeirra á evrunni hafi þau kastað frá sér öllum aðgengilegum að- ferðum til að bregðast við ból- unni, undanfara hrunsins 2008.Til að öðlast bærilega samkeppnisstöðu á ný þyrftu ríkin að ganga í gegnum harkalega verðhjöðnun með miklu atvinnuleysi. Þunginn af útistandandi skuldum yrði þá enn óbærilegri. „Ríki sem ráða enn yfir eigin mynt lenda ekki í sömu vandræðum,“ seg- ir Krugman. Það er kannski von að stuðningur Breta við að taka upp evruna mælist 8 prósent um þessar mundir. En Íslend- ingar sitja uppi með það að Samfylkingunni tókst að fífla Vinstri græna til að sam- þykkja að nú væri einmitt rétti tíminn til að sóa stór- kostlegum fjármunum þjóð- arinnar í bjarmalandsför til Brussel. Aðvörunarbjöllurnar glymja hvarvetna en áfram er haldið samt} Erfiðleikarnir eiga rót í evrunni Þ úsundir ungmenna safnast saman á engi um mitt sumar og hefja frjósemishátíð. – „Það angaði allt af kynlífi í loftinu. Það voru allir að gera það. Þetta var snilld,“ segir einn viðstaddra í útvarpinu. Annar stígur á stokk og ávarpar samkomuna: „Góða kvöldið, herrar og hórur.“ Tungumál er verkfæri, tjáningartæki, leið til að miðla hugsun og tilfinningum. Börnin læra að tala, að segja hug sinn allan, segja satt og svo smám saman að segja ósatt. Minnisstætt er það að sjá barn segja ósatt í fyrsta sinn, sjá það grípa fyrir munninn um leið og ósannindin duttu út, það er nefnilega óþægilegt að ljúga þó sumir nái býsna góð- um tökum á því. (Það er svo annað mál að eftir því sem aldurinn færist yfir menn, er mér sagt, þá verða þeir sólgnari í sannleika.) Það er þó líka hægt að segja ósatt án þess að ljúga, nota hálfsannleika til að fela sannleikann. Það eru ekki bara stjórnmálamenn sem snúa svo upp á tunguna, heldur er það nánast orðið alsiða að beita málinu í póli- tískum tilgangi, menningarpólitískum og verkalýðs- pólitískum. Tungumálið er nefnilega líka valdatæki, tæki sem notað er til að viðhalda ríkjandi viðhorfum og gildum, tæki til að halda þeim niðri sem við viljum ekki að vaði uppi, til að mynda konum. Tungan snýr upp á sig og tekur breytingum; flest það sem ekki mátti segja í gær er talið viðeigandi á morgun. Sumt verður þó vonandi aldrei við- urkennt, til að mynda það að kalla allar kon- ur hórur. Í því orðavali, þó það sé gert til gamans, felst nefnilega fyrirlitning og sú fyrirlitning er ekki betri fyrir það að vera ómeðvituð eða til gamans, hún er eiginlega verri þannig því þá er erfiðara að uppræta hana. Ýmsir hafa tekið upp hanskann fyrir tón- listarmanninn sem kallaði 5.000 stúlkur hór- ur um daginn, benda á það að rapparar eigi það til að taka sér þau orð í munn, rappi og syngi um að þeir „elski þessar mellur“: Hvað höfðingjarnir hafast að, hinir meina sér leyfist það. Þeir sem bregða þeim rök- semdum fyrir sig gleyma því þó að rapp- ararnir eru að leika hlutverk, þeir eru eins og leikarar á sviði eða í kvikmynd, og það sem er í plati er ekki í alvöru. Tungumál getur verið kúgunartæki og í því eimir lengi eftir af gömlum fordómum, ekki síst í garð minni- hlutahópa, en líka í garð meirihlutans, kvenna, sem eru náttúrlega skaðræðisgripir í augum karlanna sem finna að völd eru að renna þeim úr greipum. Vopn í þeim átökum eru orð, niðrandi og meiðandi orð og máls- hættir sem strákarnir skjóta hver á annan og punda stundum á stelpurnar. Það er ekkert við því að segja, það er ekkert að því að vera krakkakjáni, en verra þeg- ar kjánahátturinn eldist ekki af mönnum. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Niðrandi og meiðandi orð STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon 2.000.000 ungra barna eru vannærð í löndum Austur-Afríku í kjölfar mikilla þurrka 500.000 ung börn eru í bráðri lífshættu vegna vannæringar 12.000.000 manna líða skort vegna afleiðinga uppskerubrests og vopnaðra átaka 3.000 flóttamenn streyma á hverjum degi frá Sómalíu til Keníu og Eþíópíu þar sem ástandið er þó lítið skárra ‹ HÖRMUNGARÁSTAND › »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.