Morgunblaðið - 13.07.2011, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 13.07.2011, Qupperneq 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2011 ✝ Gyða Bjarna-dóttir fæddist á Akureyri 19. júní 1925. Hún lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 5. júlí 2011. Foreldrar Gyðu voru hjónin Bjarni Jónsson, f. á Myrká í Hörgárdal 1. ágúst 1891, d. 26. febrúar 1947 og Svanfríður Hrólfsdóttir, f. á Tjörnum í Öngulsstaðahreppi 15. maí 1886, d. 20. mars 1969. Gyða var næstyngst af fjórum systr- um. Elst þeirra er Laufey Matt- hildur, f. 22. júní 1922, gift Ey- steini Sigfússyni og er hún ein eftirlifandi þeirra systra. Næst- elst var Inga Bergrós, f. 19. maí 1924, d. 8. mars 1988, gift Bjarna Skagfjörð Svavarssyni sem lést árið 1989. Yngst var Valgerður Sigurjóna, f. 26. október 1927, d. 20. júní 1945. Gyða giftist Jóni Baldvin Laufey Svanfríður, f. 9. júní 1955, gift Daða Erni Jónssyni, f. 19. nóvember 1954. Þeirra börn eru a) Ingibjörg, f. 12. desember 1976, b) Ívar Már, f. 26. okt. 1978, c) Hjörtur Þór, f. 10. ágúst 1981 og d) Jón Frið- rik, f. 11. mars 1984. Þegar Gyða lést voru langömmubörn- in orðin 10 talsins og veittu þau henni mikla gleði. Framan af hjúskaparárum sínum bjuggu Gyða og Jón á Akureyri en fluttust síðar til Reykjavíkur árið 1963, ekki síst til að geta verið nær Bjarna syni sínum sem vegna alvarlegra veikinda Gyðu skömmu eftir fæðingu hans og óvissu um batahorfur á þeim tíma var settur í fóstur til föð- urbróður síns Hallgríms Björnssonar og konu hans Ing- rid Agathe Björnsson (f. Mikk- elsen) en þau eru nú bæði látin. Eftir að Gyða komst á eft- irlaunaaldur bjó hún í þjón- ustuíbúðum fyrir aldraða í Furugerði 1 þar til hún, sökum heilsubrests, flutti á Hrafnistu í Hafnarfirði þar sem hún dvaldi síðustu mánuðina. Útför Gyðu fer fram í Foss- vogskapellu í dag, 13. júlí 2011, kl. 15. Björnssyni hús- gagnasmíðameist- ara, f. 11. júní 1917, d. 3. júlí 1992, ættuðum úr Svarfaðardal. Þau skildu. Börn Gyðu og Jóns eru 1) Anna Guðrún, f. 12. maí 1948. Anna var gift Óttari Guð- mundssyni, f. 28. febrúar 1948, en þau skildu. Börn Önnu og Ótt- ars eru a) Guðjón, f. 24 apríl 1973, b) Jóna Björk, f. 5. nóv. 1974 og c) Sóley Ósk, f. 21. júlí 1982. Fyrir átti Anna dótturina Gyðu Laufeyju Kristinsdóttur, f. 17. nóvember 1969. 2) Bjarni, f. 26. september 1949, kvæntur Marianne Olsen, f. 27. október 1958 og eiga þau 4 börn, a) Ingu Birnu, f. 17. september 1986, b) Önnu Maríu, f. 11. október 1987, c) Lindu Björk, f. 10. desember 1989 og d) Bjarna Hallgrím, f. 14. janúar 1994. 3) Elsku mamma. Nú er komið að leiðarlokum og kveðjustundin runnin upp. Heilsu þinni hafði hrakað mikið síðustu árin og þótt við vissum hvert stefndi grunaði engan að andlát þitt myndi bera að með jafn skjótum og óvæntum hætti og raun varð á. Þegar ég var lítil sagðist ég ætla að passa þig þegar þú yrðir gömul og veik eins og þú pass- aðir ömmu Fríðu, mömmu þína sem bjó hjá okkur þegar ég var að alast upp. Veikindi þín síðustu árin urðu hins vegar þess valdandi að þú þurftir meiri umönnun og stuðning en við gát- um veitt þér heima og síðustu mánuðina dvaldist þú á Hrafn- istu í Hafnarfirði þar sem þú undir hag þínum vel. Ung veikt- ist þú af berklum og þurftir að dveljast um lengri tíma á Land- spítalanum, langt frá fjölskyldu þinni og ungum börnum. Nokkr- um árum áður hafðir þú misst yngstu systur þína og föður úr sama sjúkdómi en sem betur fer voru ný lyf að koma á markaðinn um svipað leyti og þú veiktist og líklega má þakka þeim og öðrum nýjungum á sviði læknisfræðinn- ar á sama tíma að þér tókst að ná bata. Þú varst líka þrautseig og dugleg og neitaðir að gefast upp fyrr en í fulla hnefana því þú þráðir að komast heim til litlu barnanna þinna og fjölskyldunn- ar sem beið þín fyrir norðan. Þessi veikindi áttu þó eftir að setja mark sitt á líf þitt og heilsu um ókomna ævi. Það má segja að baráttuandinn hafi einkennt þig allt þitt líf og þú lagðir mikla áherslu á að vera sjálfbjarga í at- höfnum daglegs lífs þótt getan til þess væri farin að minnka mikið undir það síðasta. Dugnaður þinn og þrautseigja munu verða okkur sem eftir lifum hvatning til þess að gefast ekki upp þótt móti blási. Þú varst líka trúuð og leitaðir huggunar í trúnni á erf- iðum stundum. Mér er einkum minnisstætt hvað þú hafðir mikið dálæti á Passíusálmunum og lagðir mikla áherslu á að missa ekki af upplestri þeirra í útvarp- inu þegar páskarnir voru í nánd. Við eigum öll eftir að sakna þín sárt en okkur er huggun að vita að þjáningum þínum er lok- ið. Þér leið vel á Hrafnistu og sagðir að þarna vildir þú vera þar til yfir lyki. Um leið og ég og fjölskylda mín þökkum þér fyrir samveruna langar mig að koma á framfæri þakklæti til starfsfólks í Furugerði 1 þar sem þú hafðir búið í nær 20 ár og svo til starfs- fólks á 3.h B á Hrafnistu í Hafn- arfirði og allra þeirra sem önn- uðust þig í veikindum þínum og veittu okkur stuðning í kringum andlát þitt. Hvíldu í friði, elsku mamma. Blessuð sé minning þín. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þín dóttir, Laufey. Elsku amma. Það er svo skrýtið hvað lífið getur verið hverfult. Aðeins örfáum dögum áður en þú kvaddir okkur sat ég á rúmstokknum hjá þér og við ræddum um gamla og góða daga. Þá varst þú staðráðin í að hrista af þér slenið sem hafði verið að hrjá þig síðustu dagana en raunin var þó sú að það var aðeins byrjunin á skammvinnum veikindum sem áttu eftir að taka sinn toll. Þú varst mjög barngóð og það var fátt sem veitti þér eins mikla gleði og öll barnabörnin þín og langömmubörnin. Þú hafðir líka endalausa þolinmæði fyrir öllu því sem börnunum í kringum þig datt í hug. Ég gleymi því aldrei þegar ég var ung stelpa og dró þig á eftir mér út á miðja um- ferðareyju í Hlíðunum. Þar sett- umst við niður í glampandi sól- skini og ég makaði fíflamjólk yfir andlitið á þér þar sem ég þóttist hafa heyrt að fíflamjólk gerði húðina fallega. Þér datt ekki í hug að stoppa mig af heldur brostir þú blítt og tókst þessu uppátæki af stóískri ró. Alltaf varst þú svo fín, elsku amma mín, og hafðir gaman af því að hafa þig til. Ég man að þegar ég var lítil gat ég gleymt mér endalaust við að skoða og máta allar perlufestarnar þínar og skartgripina sem þú geymdir í skál á fallega snyrtiborðinu sem þér þótti svo vænt um. Suma skartgripina gerðir þú sjálf, enda varst þú með ein- dæmum handlagin og hafðir mjög gaman af því að föndra. Ég mun alltaf halda upp á stytturn- ar sem þú málaðir og gafst mér og hálsfestarnar sem þú bjóst til fyrir mig. Elsku amma, minning þín mun ávallt lifa björt og hlý í huga okkar. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Ingibjörg, Kjartan og Haraldur Daði Gyða Bjarnadóttir Þegar síminn hringir og á endanum er gamall vinur og grallaraspói frá því á unglingsárum og talar gætilega þá veit maður að það er eitthvað að. Þegar hann tilkynnir svo lát sameiginlegs vinar, þá verður manni það fyrst til að skammast sín. Tíminn var búinn, tímanum sem alltaf hafði verið rutt á undan og ætlaður hafði verið til að end- urnýja gömul kynni og forvitnast um hagi, hann var allt í einu lið- inn. Það lá aldrei illa á Páli Birgi Símonarsyni í minni grennd og hann var sannur vinur vina sinna. Í gamla vinahópnum var hann á stundum nefndur Biggi stóri því nafni hans, vinnufélagi og sameig- inlegur vinur okkar var nokkru lægri. Birgir var laginn, útsjón- arsamur og gagnið var honum meira virði en útlitið. Einhverju sinni vorum við að brasa við einhvern vélbúnað uppi á Setbergi og Birgir sendi mig á bílnum sínum að sækja verkfæri en ekki tókst betur til en svo að ég ók á fullri ferð út í hraun og við það snérist upp á grindina á þess- um ágæta breska bíl, þannig að hann varð svolítið asnalegur í framan. Þegar ég var svo að reyna að stama útúr mér lýsing- um á atvikum og tjóni, þá greip Birgir frammí og spurði: Meidd- ist einhver? Nei, sagði ég og hugs- aði um það hvað hefði gerst ef hraundrangurinn hefði brotist upp úr gólfinu. Þá fór Birgir að Páll Birgir Símonarson ✝ Páll BirgirSímonarson fæddist 26. febrúar 1939 í Melbrún, Búðum í Fáskrúðs- firði. Hann lést 13. júní 2011. Útförin fór fram í Hveragerðis- kirkju 2. júlí 2011. hlæja og sagði þetta ekki skipta neinu máli, það væri ekk- ert mál að snú ofan af þessu með skaft- talíu, en komstu með verkfærin? Við luk- um svo þessu verki og það var komin nótt. Daginn eftir, sem var sunnudagur þá fór ég eftir hádegi til Bigga til að kynnast því hvernig hann ætlaði að snúa ofanaf grind- inni. Á hlaðinu í Garðshorni stóð Prefektinn og mér létti þegar ég sá að hann var ekki svo snúinn í framan eins og mig minnti hann hafa verið í gærkvöldi. Birgir kom til dyra og var ljóslega að koma á fætur. Við fengum kaffisopa hjá henni Dúnu og Birgir fór að ræða um Húsafellshelluna og sagði það aðalmálið að þekkja hana og kunna á hana þá væri þetta ekk- ert mál svo sem hann hafði sann- að fyrir mér þremur vikum áður. En mér var ekki Húsafellshell- an í huga heldur tjónið sem ég hafði orðið valdur að og spurði hvort ég ætti ekki að sækja skaft- talíu og önnur verkfæri til að snúa ofan af grindinni. Blessaður vertu, ég kláraði það í nótt, var búinn kl. fimm. Sástu það ekki? Mér vafðist tunga um tönn og svelgdist á kaffinu og hóstaði því yfir borðið hennar Dúnu og Birgir sló á bak mér og sagði: Þolir þú ekki kaffi strákur? Þegar ég var búinn að þurrka framan úr mér kaffið og tárin úr augunum, Dúna búin að þurrka af borðinu og hlát- urskrunkið í Bigga að fjara út þá varð mér skyndilega ljóst hvers- konar fólki ég var hjá. Þrátt fyrir hrjúft yfirborð þá var þarna inn- undir ekkert nema einlægni, vel- vild og æðruleysi sem var undir- staða þeirra lífshamingju. Hrólfur Hraundal. Meira: mbl.is/minningar Í dag kveð ég hinstu kveðju pabba minn sem dó að mínu mati langt fyrir aldur fram. Í hjarta mínu á ég ótal margar minningar um föður minn sem var mér svo mikið og var svo stór hluti af lífi mínu að erfitt verður að átta sig á lífinu án hans. Í barnæsku eru það rútu- ferðirnar þar sem ég þvældist með pabba út og suður, hann hafði gaman af því að segja mér frá hinu og þessu sem fyrir augu bar á Suðausturlandinu enda þekkti hann þar hvern hól og hverja þúfu. Margar voru sund- ferðirnar, utanlandsferðirnar, útilegurnar svo fátt eitt sé nefnt. Sigmundur Sigurgeirsson ✝ SigmundurSigurgeirsson fæddist í Reykjavík 4. júní 1935. Hann lést á blóðlækningadeild Landspítalans 28. júní 2011. Útför Sigmund- ar fór fram frá Frí- kirkjunni í Hafn- arfirði 7. júlí 2011. Þegar ég eltist byggðum við saman sumarbústað í Fljótshlíðinni og hef ég átt þar margar góðar stundir með pabba mínum. Þar leið honum vel og gat dundað sér við hitt og þetta. Það má með sanni segja að Fljótshlíðin hafi verið hans líf og yndi síðustu ár- in. Hann spurði mig að því ekki fyrir svo löngu hvenær ég héldi að hann kæmist aftur í sveitina og ég sagði honum að hann kæmist þangað von bráðar. Nú hugga ég mig við það að hann komst í sveitina sína en það eru aðrar grænar grundir sem hann pabbi minn hvílir sig á en í okk- ar sveit. Við fengum áhuga á golfi á svipuðum tíma og áttum við eftir að eyða mörgum dögum saman á golfvellinum. Þrátt fyrir að pabbi væri kominn á sjötugsald- urinn þegar hann byrjaði að spila golf var hann ótrúlega lunkinn við að hitta kúluna og hann hafði mjög gaman af því að fara hring á vellinum. Mikið á ég eftir að sakna þess að geta ekki hringt í pabba minn og beðið hann um að koma með mér í golf, því svarið hans var alltaf eins: Já, ég er alveg til. Pabbi hafði alltaf áhuga á öllu því sem ég tók mér fyrir hendur hvort sem það var nám, vinna eða áhugamál og alltaf hvatti hann mig til dáða, en vildi þó alltaf að maður tæki ekki neina óþarfa áhættu, þannig var pabbi minn. Ég er svo þakklát fyrir allar góðu minningarnar og fyrir allt það sem hann pabbi minn var mér og börnunum mínum. Pabbi greindist með krabba- mein fyrir næstum tveimur ár- um. Hann var búinn að ganga til heimilislæknisins í langan tíma með verki en fékk bara af- greiðslu á verkjalyf og sjúkra- þjálfun. Loks fékk hann rétta greiningu og fór í hendur lækna sem vissu sínu viti. Allan þennan tíma hefur pabbi viljað hafa mig við hlið sér og í dag er ég þakk- lát fyrir að hafa getað gert hon- um þann greiða að ganga þessa þrautagöngu með honum. Hann stóð sig svo ótrúlega vel í þess- ari baráttu en því miður beið hann ósigur. Elsku besti pabbi minn, ég þakka þér fyrir allt það sem þú hefur verið mér og fyrir allt það sem þú hefur gert fyrir mig í gegnum árin, ég mun í hjarta mínu geyma minningu um pabba minn sem var mér svo mikið og mér þótti svo vænt um. Daginn sem þú varst kistulagður hljóm- aði þetta lag eftir Magnús Ei- ríksson í bílnum mínum og læt ég það verða lokaorðin, elsku besti pabbi minn. Farðu í friði góði vinur þér fylgir hugsun góð og hlý. Sama hvað á okkur dynur aftur hittumst við á ný Úr hjarta mínu hverfur treginn er ég hugsa um hlátur þinn. Bros þitt veitti birtu veginn betri um stund varð heimurinn. Þín dóttir, Margrét. HINSTA KVEÐJA Á hljóðri kveðjustundu í heitri þökk og trega, er hjartans bænin okkar að drottinn launi þér. Það allt sem okkur veittirðu, kæri tengdapabbi, en ástkær minning lifir, sem björt og dýrmæt er. Guð blessi góðan mann. Þín tengdadóttir, Kristín Arnarsdóttir                          ✝ Einlægar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýju og vinarhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNS PÁLSSONAR fyrrv. forstöðumanns Hvítasunnusafnaðarins á Akureyri. Sérstakar þakkir fær Snorri Óskarsson, safnaðarhirðir og Hvítasunnusöfnuðurinn á Akureyri fyrir einstaka hlýju og vinarþel. Samúel Jóhannsson, Ragnhildur Ingólfsdóttir, Rut Sigurós Jóhannsdóttir, Guðmundur Konráðsson, Hanna Rúna Jóhannsdóttir, Ágústa Jóhannsdóttir, Ellert B. Schram, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.