Morgunblaðið - 23.07.2011, Side 1
L A U G A R D A G U R 2 3. J Ú L Í 2 0 1 1
Stofnað 1913 171. tölublað 99. árgangur
ÍSLENSKIR
STEINAR TIL
VESTURHEIMS
FÓLKIÐ FÁI
MAT EN
EKKI VOPN
IÐANDI LÍF Í
LITRÍKUM HÚSUM
VIÐ HÖFNINA
SUNNUDAGSMOGGINN SIGLUFJÖRÐUR 20STEINASAFN Á GIMLI 14
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
„Við höfum íhugað að skilja,“ segir
faðir tveggja ungra barna, en hann
og konan hans eru á hrakhólum
með húsnæði.
Fjárhagsstaða fjölskyldunnar er
veik, en hún myndi batna um 780
þúsund á ári ef hjónin taka það
skref að slíta hjónabandinu.Við
skilnaðinn tvöfaldast barnabætur
og húsleigubætur fjórfaldast. Það
er ekki bara þessi fjárhagslega hlið
málsins sem hefur leitt til þess að
hjónin íhuga að skilja á pappírun-
um. Þau eru að missa leiguíbúð sína
og finna hvergi aðra íbúð í sama
hverfi þrátt fyrir mikla leit. Ef þau
ákveða að skilja ætlar konan að
skrá lögheimili sitt hjá vinkonu
sinni og þar með er tryggt að yngra
barnið heldur sínu leikskólaplássi.
Þá getur fjölskyldan leitað að hent-
ugu íbúðarhúsnæði í öðrum hverf-
um.
Séra Vigfús Þór Árnason, prest-
ur í Grafarvogi, hefur margoft bent
á að það sé óeðlilegt að stuðnings-
kerfi við barnafólk sé þannig upp-
byggt að hjón hagnist fjárhagslega
á því að skilja. Meðal annars hefur
hann rætt málið við þrjá fjármála-
ráðherra.
„Mér finnst að það eigi að líta á
það sem rétt barnsins að fá barna-
bætur og hann sé óháður hjúskap-
arstöðu.“
MBæta stöðuna við skilnað »4
„Við höfum íhugað að skilja“
Dæmi eru um að hjónaskilnaður geti bætt fjárhagsstöðuna um 780 þúsund
Barnabætur tvöfaldast og húsleigubætur fjórfaldast ef hjón ákveða að skilja 159.236
Barnabætur og húsaleigubætur
hjóna að frádregnu leikskólagjaldi
939.560
Bætur einstæðrar móður að frá-
dregnu leikskólagjaldi
‹ BARNABÆTUR HÆKKA ›
»
Baldur Arnarson
Önundur Páll Ragnarsson
Þjóðarsorg er nú í Noregi eftir að minnst
sautján féllu í tveimur árásum síðdegis í gær.
Annars vegar biðu sjö bana í sprengjuárás í
miðborg Óslóar og hins vegar féllu minnst tíu í
skotárás á eyjunni Utøya. Vísbendingar eru um
að sami maður og hóf skothríð á eyjunni hafi
sést á vettvangi í Ósló skömmu áður en
sprengja skók lykilráðuneyti. Þá kann það að
tengja ódæðin að sprengiefni fannst í eyjunni.
Fram kom í norskum fjölmiðlum að ódæðis-
maðurinn, Anders Behring Breivik, væri 32 ára
Norðmaður, ljóshærður og um 1,90 sm á hæð.
Er ekki vitað hvort hann var
einn á ferð eða hvort hann
átti sér samverkamenn. Þá
er ekki vitað hvaða hópur
eða öfl bera ábyrgð á tilræð-
unum og hafa annars vegar
verið leiddar líkur að því að
íslamistar hafi verið að verki
og hins vegar að hægri öfga-
menn hafi verið á ferð, að
sögn TV2. Íslömsk samtök,
sem kenna sig við heilagt
stríð í nafni öfgahyggju, lýstu ábyrgð á hendur
sér, að sögn New York Times, en ekki þótti
nægur grundvöllur til að taka því alvarlega.
Tala látinna var á reiki á tólfta tímanum að ís-
lenskum tíma í gærkvöldi. Norska lögreglan
staðfesti að 17 hefðu fallið en gaf jafnframt út að
búast mætti við því að dánartalan hækkaði.
Hafði fréttavefur Verdens Gang áður haft eftir
sjónarvotti á eyjunni Utøya að á milli 20 og 30
hefðu fallið fyrir hendi byssumannsins.
Hefur íslenska utanríkisþjónustan staðfest
að engar fregnir hafi borist af því að Íslend-
ingar séu í hópi látinna eða særðra í Ósló, en
fjöldi fólks er í síðari hópnum. Rætt er við
norska blaðamenn og sérfræðinga um ódæðis-
verkin í blaðinu í dag.
MARTRÖÐ Í NOREGI
Óttast er að tugir manna hafi
týnt lífi í sprengjuárás í miðborg
Óslóar og skothríð á Utøya-eyju
32 ára norskur maður er í
haldi lögreglu en hann dulbjó
sig sem lögreglumann
Seint í gærkvöldi hafði ekki
verið staðfest hvaða öfl bera
ábyrgð á ódæðisverkunum
Reuters
Ódæðisverk Maður aðstoðar slasaða konu við að yfirgefa 17 hæða skrifstofubyggingu í hjarta Óslóar en Jens Stoltenberg forsætisráðherra hefur þar skrifstofu. Enn var leitað að sprengjum í gær.
M„Gríðarlegt áfall“ »2 og 25
Anders Behring
Breivik
„Viðbúnaður lögreglu hefur verið aukinn.
Við höfum sett okkur í samband við okkar
samstarfsaðila erlendis og gert ákveðnar
ráðstafanir innanlands,“ segir Haraldur
Johannessen ríkislögreglustjóri. Farið var
yfir gátlista í gær, rætt við lykilaðila, m.a. í
samgöngum og samráð var haft við innan-
ríkis- og forsætisráðherra.
Auka viðbúnað
ÍSLENSK LÖGREGLUYFIRVÖLD