Morgunblaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is 40% afsláttur af öllum vörum Stórútsala St. 36 - 52 www.gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Ódýr og góð gisting í hjarta Kaupmannahafnar Laugavegi 63 • S: 551 4422 Sjá sýnisho rn á www.l axdal.i s GREENSTONE GLÆSIKÁPUR NÚ ÁTILBOÐSVERÐI Lára Hilmarsdóttir larah@mbl.is „Ég fann hann inni á gólfinu á vængjunum og hann var svartur með klær,“ segir Haraldur Brynj- ólfsson, fimm ára dýra- og skor- dýraáhugamaður sem fann varma- smið á dögunum í Kópavoginum. Hann er með stærri „smiðum“ sem finnast bæði hérlendis og í Evrópu, eða u.þ.b. 22 millimetrar að lengd. „Ég setti hann í blað og setti hann svo í kassa,“ segir Haraldur um fundinn en varmasmiðurinn var þá enn lifandi. Móðir Haraldar, Jó- hanna Kristín Birgisdóttir, bætir því við að hann hafi litið heldur ógnvekjandi út enda hafi sumir haldið að þarna væri kakkalakki á ferð. „Ég var ekkert hræddur,“ segir Haraldur þá. Gera má ráð fyrir að varmasmið- ur muni sjást í auknum mæli í görð- um höfuðborgarbúa á komandi ár- um, að því er fram kemur á síðu Náttúrufræðistofnunar Íslands. Í fyrstu var um sjaldséð skordýr að ræða og sást fyrst til varmasmiða hér 1990 en næst ekki fyrr en níu árum síðar. Síðan þá hafa varma- smiðir sést í síauknum mæli í Hveragerði, Keflavík, Reykjavík, Akureyri og Kópavogi. Ef til vill er þessi fundur enn ein vísbending um fjölgun varmasmiða á Íslandi. Aukningin er þó ekki áhyggju- efni garðræktenda því landneminn „gæti orðið virkur í baráttunni við að halda sniglum í skefjum,“ að því er fram kemur á heimasíðu Nátt- úrufræðistofnunar. „Stór, en ekki svo stór“ Haraldur hefur enn ekki rekist á varmasmið á Akureyri, þar sem hann á heima, en er engu að síður glöggur á skordýr í kringum sig og segir vera „jafntefli“ hvað varðar skordýr á Akureyri og í Kópavogi. „Ég hef fundið orma, járnsmiði og kóngulær, og svo hef ég fundið lengsta ánamaðk í heimi,“ segir Haraldur en honum þótti ekki mik- ið til koma þegar hann rakst á varmasmiðinn. „Hann var stór, en ekki svo stór,“ segir hann. Morgunblaðið/Ómar Varmasmiður Haraldur fann hann í Kópavogi og kom honum síðan fyrir í kassa. Þar gaf hann upp öndina. Tók „smiðinn“ upp og setti hann í kassa Haraldur Ungur en glöggur skor- dýraskoðandi á Akureyri. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Janus Arn Guðmunsson janus@mbl.is „Ég get aldrei fengið þessi 33 ár af lífi mínu bætt. En það er komin sátt í málið, þetta var mjög tilfinningaríkur og yndislegur fundur,“ segir Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, ein kvennanna sem sökuðu Ólaf Skúlason, fyrrum biskups, um kynferðisbrot. Í gær var undirrituð sátt á milli þjóðkirkjunnar annarsvegar og Sig- rúnar, Dagbjartar Guðmundsdóttur og Stefaníu Þorgrímsdóttur hins veg- ar. Gaf Stígamótum eina milljón Sigrún segist upplifa sig sátta og hefur nú afhent þjóðkirkjunni stein sem er táknrænt merki um þá byrðar sem hún hefur þurft að bera á öxlum sér árum saman. „Kirkjan mun þurfa að vinna í sínum málum áfram til að vinna traust almennings á ný.“ Í sama streng tók Magnús E. Kristjánsson, formaður nefndar kirkjuþings. „Þetta eru í sjálfu sér ekki lok, heldur stór áfangi á vegferð, við munum halda áfram okkar vinnu. Kirkjan mun halda áfram þeirri vinnu að forvörnum hvað þetta mál varðar.“ Sigrún Pálína fékk sex milljónir króna í bætur frá þjóðkirkjunni og gaf eina milljón af þeim bótum til Stígamóta til að vinna áfram að því starfi sem þar hefur verið unnið. Dag- björt Guðmundsdóttir og Stefanía Þorgrímsdóttir fengu hvor um sig fimm milljónir. „Ég er afar ánægður með að það skulu hafa náðst sættir í afar við- kvæmu og sársaukafullu máli. Ég er þakklátur þeim sem unnið hafa að þessari lausn málsins. Hér eru kafla- skil sem gefa vonir um að við getum einbeitt okkur að því að leysa önnur mikilvæg mál sem við er að etja,“ seg- ir Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís- lands. Hann bætir því við að það skuli hafið yfir allan vafa að kynferðis- afbrot séu ekki liðin á vettvangi kirkj- unnar. „Við höfum einsett okkur að læra af dýrkeyptri reynslu,“ segir biskup. „Mjög tilfinningaríkur og yndislegur fundur“  Biskup Íslands þakklátur þeim sem unnið hafa að lausn Morgunblaðið/Eggert Stolt Sigrún segist upplifa sig sátta og hefur nú afhent þjóðkirkjunni stein sem er táknrænt merki um þá byrðar sem hún hafi þurft að bera. Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is Toppfiskur ehf. hefur dregið tilboð sitt í eignir þrotabús fiskvinnslunnar Eyrarodda á Flateyri til baka. „Það var bara þannig að skiptastjóri hafði úrslitavald í þessu, hann lét minni hagsmuni gilda fyrir meiri,“ segir Jón Steinn Elíasson, framkvæmda- stjóri Toppfisks, en fyrirtækið vildi kaupa allar eignir þrotabúsins eins og þær lögðu sig, að gefnum ákveðnum forsendum um að geta hafist handa fljótlega og að hafa byggðakvóta á krókaaflamarksbátn- um Stjána Ebba á næsta ári. Jón Steinn segir að á meðan beðið hafi verið eftir ákvörðun um sölu eign- anna hafi þær rýrnað og forsendurn- ar fyrir tilboðinu því runnið út í sandinn. Jón Steinn vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið, sem gengur í gróf- um dráttum út á það samkvæmt heimildum að byggðakvótinn á Stjána Ebba hef- ur fyrnst þar sem hann hefur ekki verið gerður út á meðan málið hef- ur verið í bið- stöðu. Þá hafði Toppfiskur hug á að endurnýja húsakostinn á Flateyri í sumar og koma þar upp aðstöðu fyrir veturinn en sá tími hef- ur tapast í tafir og því yrði ekki hægt að klára undirbúning nógu snemma. Hefur málið samkvæmt heimild- um valdið vonbrigðum hjá forsvars- mönnum Toppfisks, þar sem þeir höfðu hug á að fiskvinnslan sjálf hefði yfir aflaheimildum að ráða og yrði sjálfbær um fisk til vinnslu í 8-9 mánuði ári, með yfir sextíu manns í vinnu. Ekkert hafi nú orðið úr þeim áformum. onundur@mbl.is Tilboð Toppfisks dregið til baka Jón Steinn Elíasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.