Morgunblaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011
Endurfundir prófessors við nemendur sína
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Í það minnsta fimm áhrifamiklir
íslenskir kvikmyndagerðarmenn
námu hjá hinum þekkta fram-
úrstefnu-kvikmyndagerðarmanni
Lynn Kirby í California College of
Arts í San Francisco. Nú hefur
Kirby verið boðið til landsins til að
sýna og fjalla um eigin kvikmyndir
í Bíó Paradís á mánudagskvöldið
klukkan 20:00. Þá verða endur-
fundir þessara nemenda og pró-
fessorsins. Þessir fimm nemendur
eru Þorfinnur Guðnason sem fékk
meðal annars Edduverðlaun fyrir
heimildarmynd sína Draumalandið,
Hrafnhildur Gunnarsdóttir sem er
formaður Félags íslenskra kvik-
myndagerðarmanna, Þorgeir Guð-
mundsson sem meðal annars gerði
rokkmyndina með Rúnari Gunn-
arssyni, Kári Schram.... og Sig-
urður Matthíasson kvikmynda-
tökumaður hjá North by
Northwest.
Gera mynd saman
Þorfinnur tók á móti Kirby þeg-
ar hún kom til landsins fyrr í vik-
unni og fóru þau síðan að gera til-
raunamynd saman sem verður
sýnd á meðal annarra verka Kirby
á mánudagskvöldið.
„Já, það var gaman að hitta
hana aftur,“ segir Þorfinnur í sam-
tali við Morgunblaðið. „Þetta eru
orðin 25 ár síðan ég var í námi hjá
henni og hún hafði mikil áhrif á
mann. Hún var mjög vinsæll pró-
fessor og opnaði huga manns um
eðli og áferð kvikmynda,“ segir
hann.
Aðspurður hvort hann geti nefnt
nákvæm dæmi um áhrif hennar á
sig segir hann erfitt að telja það
upp en hún hafi haft áhrif á sýn
hans. Hann bendir til dæmis á það
hvernig hann hafi handleikið efni-
við sinn í myndinni um hagamús-
ina. „Það var ekki samkvæmt
venju heimildamynda á þeim tíma
að persónugera músina með þeim
hætti sem ég gerði í þeirri mynd,
það mætti segja að það væri fyrir
áhrif frá henni að maður leit á það
yfirhöfuð sem möguleika,“ segir
Þorfinnur. „Hún þvingaði okkur til
að reyna að taka þetta hefðbundna
form myndanna og ýta því lengra.
Það sem smitaði mig var hvað hún
gerði mann að miklum leitanda.
Maður hefði getað selt sig ein-
hverri tegund myndgerðar en
vegna hennar gerði maður það
ekki. Ég hef reynt að ýta þessum
landamærum lengra í kvikmynda-
gerð minni. Hún innrætti manni
listræna hugsun,“ segir hann.
Aðspurður um hvað þessi til-
raunamynd þeirra fjalli segir hann
að þemað sé ævintýraferð hennar
til landsins. „Hluti af myndinni
verður svo sýndur á mánudags-
kvöldið þegar hún sýnir aðrar
myndir sínar. Hún er þekkt fyrir
húmor og kvenlegt innsæi í mynd-
um sínum. Hún hefur gert mjög
heimspekilegar myndir líka og er
þekkt fyrir að brjóta allar reglur
bransans. Hún og hennar kvik-
myndagerð er oftast kennd við
San Francisco-senuna sem vakti
mikla athygli á áttunda og níunda
áratugnum,“ segir Þorfinnur.
„Hún innrætti mér listræna hugs-
un,“ segir Þorfinnur Guðnason
Morgunblaðið/Ernir
Nemandinn Þorfinnur Guðnason er
einn nemenda Kirby.
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Hinn landsþekkti leikari, söngvari
og sjónvarpsmaður, Felix Bergs-
son, er að taka upp sína fyrstu
sólóplötu þessa dagana en platan á
að koma út í september. „Já, við
byrjuðum í upptökum núna um
daginn og erum komnir á fullt,“
segir Felix.
Aðspurður hvers vegna hann
hafi ekki gert sólóplötu fyrr segir
hann að það hafi alltaf verið á dag-
skránni en dregist að framkvæma
það. „Ég hef ætlað mér að gera
þetta í mörg ár. En ég hef í gegn-
um ferilinn ekki ræktað mikið í
mér söngvarann þótt ég hafi byrj-
að í faginu sem slíkur. Núna eru 25
ár síðan ég byrjaði sem poppari.
Það var þegar Greifarnir unnu
Músíktilraunir. En þá var ég búinn
að þekkja þá í tvær vikur. Ég hafði
sungið mikið í Versló og víðar en
þetta byrjaði eiginlega ekki af al-
vöru fyrr en þarna á Músíktilraun-
unum. Þeir í bandinu höfðu frétt af
mér og ætluðu að breyta aðeins
um stíl og fengu mig til liðs við þá.
Þeir höfðu alltaf verið að syngja á
ensku, en vildu núna syngja á ís-
lensku. Ég var síðasti naglinn í það
hús og við unnum Músíktilraunir
og urðum alveg ógeðslega vinsælir
alveg rosalega hratt. Stundum ger-
ist þetta of hratt einsog í þessu til-
viki, en svona var þetta bara. Ég
söng með þeim bara í tæpt eitt og
hálft ár. Annars var ég ekkert í
Greifunum eftir það. En ég hef
verið að syngja allan minn leik-
húsferil. Ég hef mikið verið að
syngja í söngleikjum og sungið á
einum 30 plötum, mest með Gunn-
ari Helgasyni,“ segir Felix. En
hann og Gunnar Helgason útskrif-
uðust úr leiklistarskóla á sama
tíma, árið 1991, Felix í Skotlandi
en Gunnar á Íslandi. Þeir hafa
unnið mikið saman síðan þá og
voru meðal annars með Stundina
okkar í mörg ár.
„Ég hafði eitthvað verið að
reyna að semja sjálfur en var aldr-
ei ánægður með það,“ segir Felix.
„Svo datt ég á bók eftir Þórarinn
Hjartarson frá Tjörn í Svarf-
aðardal. Í þessa bók hafði hann
safnað saman ástarljóðum Páls
Ólafssonar sem er kannski þekkt-
astur fyrir að hafa samið ljóðið Ló-
an er komin. Ég féll algjörlega fyr-
ir þessum ljóðum. Fékk vini mína
til að taka þátt í þessu með mér og
nú erum við komnir í tökur.
En lagahöfundar á plötunni eru
Jón Ólafsson, Stefán Már Magn-
ússon, Magnús Þór Sigmundsson,
Sveinbjörn Grétarsson, Tómas
Hermannsson, Hróðmar Ingi Sig-
urbjörnsson og Hörður Torfason.
Flest lögin hafa ekki heyrst áður,“
segir hann.
Felix og Jón Ólafsson hafa líka
starfað mjög lengi saman eða allt
frá því þeir unnu saman í Nem-
endamóti Verzlunarskóla Íslands
sem unglingar. Jón hefur meðal
annars unnið með í flestum barna-
plötunum sem Felix hefur gefið út.
Sveinbjörn Grétarsson er gamall
félagi Felixar úr Greifunum og
Stefán Már sem er sonur Magn-
úsar Eiríkssonar er kannski ekki
orðinn jafn þekktur og faðir hans
en hann hefur verið mjög vinsæll í
upptökur á annarra manna plötum
en hefur einnig samið mikið sjálfur
og spilar með þeirri skemmtilegu
hljómsveit sem kallast Geirfugl-
arnir. Magnús Þór Sigmundsson
er landsfrægur höfundur en hans
frægustu lög eru líklegast „Eru
álfar kannski menn“ og síðan lagið
„Ást“ sem Ragnheiður Gröndal
gerði mjög vinsælt um árið. Tómas
Hermannsson, plötu- og bókaút-
gefandi, hefur síðan átt nokkur
Eurovisjón-lög og mun gefa þessa
plötu hans Felixar út hjá forlaginu
sínu; Sögur.
Akústísk poppplata
„Þetta eru ákaflega falleg ljóð
og rómantísk en það er heilmikil
melankólía í þeim. Þetta var erf-
iður tími á Íslandi á 19.öldinni. Það
er engin spurning að þessi ljóð
höfða mjög til nútímamanna og við
leggjum áherslu á þau, við erum að
gera akústíska poppplötu,“ segir
Felix. „Þetta er popptónlist, ég er
að reyna að gera ekki vísnaplötu,
mér finnst sú plata vera til. Þetta
er rosalega gaman, svo gott að
vinna með þessu fólki og ætli við
klárum þetta ekki um miðjan
ágúst. Ég söng nokkur lög í dag og
svo munum við dedúa við þetta.
Þannig að núna er maður bara að
vernda röddina og fara varlega
með hana, núna má maður ekkert
rífast eða hrópa neitt,“ segir Felix.
Morgunblaðið/Eggert
Pælingar Felix Bergsson og Jón Ólafsson eru í miklu stuði að taka upp fyrstu sólóplötu Felixar sem er gerð eftir ástarljóðum skáldsins Páls Ólafssonar.
Felix rífst ekki við neinn
Felix Bergsson verndar röddina því hann er í upptökum á fyrstu sólóplötunni sinni Platan er
gerð eftir ástarljóðum 19. aldar skáldsins Páls Ólafssonar Platan kemur út í september
Ó, hvað nóttin nú er kyr
og nóg af ást í brjósti mínu.
Eg er sestur enn sem fyr,
ástin mín, hjá rúmi þínu.
Hér er fundin hjartans ró,
hvíldarlaust sem að ég leita.
Hér er augna fögur fró,
frelsi, von og ástin heita.
Hvað er þorstinn hjartans sár?
Hér er eilíf sæla fundin,
gott að fella gleðitár,
gott að vakna‘ og hníga í
blundinn.
Ó, hvað nóttin nú er kyr
og nóg af ást í brjósti mínu.
Eg er sestur enn sem fyr,
ástin mín, hjá rúmi þínu.
Páll Ólafsson (1827 - 1905)
Hjá rúmi þínu
SKÁLDIÐ PÁLL ÓLAFSSON