Morgunblaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það er einhveróskiljanlegmann- vonska, svipuð þeirri sem fékk kommúnista um allan heim til að setja kíkinn fyrir blinda augað þegar kom að hungursneyðinni í Sovétríkjunum, sem hefur orðið til þess að íslamskir öfga- menn í Sómalíu hafa neitað því að þar ríki hungursneyð. Hluti Sómalíu er undir yf- irráðum íslömsku öfgasamtak- anna al-Shabab, sem eru tengd al-Kaída. Þessi samtök hafa í tvö ár hindrað hjálparstarf á þeim svæðum Sómalíu sem þau ráða yfir og á tveimur þessara svæða er neyðin mest. Nú hafa þessi samtök lýst því yfir að tilkynning Samein- uðu þjóðanna í vikunni um að hungursneyð ríki í þessum hlutum Sómalíu sé ekkert ann- að en áróður. Þar er engin hungursneyð, að sögn al- Shabab samtakanna. Vandinn er mikill á horni Afríku, ekki aðeins í Sómalíu heldur einnig í Eþíópíu og Kenía. Þó er það aðeins í Sóm- alíu og aðeins á svæðum undir stjórn al-Shabab samtakanna sem hungursneyð hefur verið lýst yfir. Þar er ástandið verst, enda bætist illvilji valdhafanna við harðræðið sem fólk hefur mátt þola af náttúrunnar hendi. Þetta þýðir hins vegar ekki að hungursneyð verði ekki lýst yfir á öðrum svæðum í náinni framtíð eða að ástandið sé við- unandi á þeim svæðum þar sem hungursneyð hefur ekki verið lýst yfir. Mikið þarf til að Sameinuðu þjóð- irnar lýsi yfir hungursneyð og ástandið er mjög slæmt áður en til þess kemur, en hungursneyð er ekki lýst yf- ir nema meira en 30% barna þjáist af bráðri vannæringu og að meira en tveir af hverjum 10.000 deyi úr hungri á hverj- um degi. Þetta þýðir að á tveimur mánuðum deyr meira en 1% íbúa á viðkomandi svæði úr hungri. Yfir tíu milljónir íbúa fyrr- nefndra landa þjást vegna ástandsins og Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóð- anna, hefur lýst því yfir að 300 milljónir dala, jafnvirði um 35 milljarða króna, þurfi á næstu tveimur mánuðum til að takast á við vandann. Sjálfsagt er fyr- ir almenning og stjórnvöld í þeim löndum sem eru aflögu fær að leggja sitt af mörkum til að draga úr hörmungunum og bjarga þeim mannslífum sem nokkur kostur er. Þetta er það verkefni sem íbúar heimsins standa frammi fyrir til skamms tíma og er ekki óyfirstíganlegt. Til lengri tíma þarf að finna leið til að losa Sómali við hryðjuverka- mennina og stuðla að því að þeir geti búið við ásættanlegt stjórnarfar svo að þessi saga þurfi ekki að endurtaka sig. Það verkefni er hins vegar mun flóknara og tekur lengri tíma en núverandi neyðarástand leyfir. Hungursneyðin er ekki aðeins afleiðing þurrka heldur líka öfga og illmennsku} Mannvonska Borgarstjórnhefur ekki af- greitt lögboðna fjárhagsáætlun og nú verður hún að kröfu minnihlutans að koma saman til að ræða þau mál. Meirihlutinn í borg- arstjórn telur eðlilegt að standa að málum á þennan hátt ef marka má tilkynningu sem hann sendi frá sér. Hið sama má segja um ástandið í lands- stjórninni, þar sem ráðherrar ráða engu betur við sín mál en Jón Gnarr Kristinsson og Dag- ur B. Eggertsson við stjórn borgarinnar. Á vorþingi gleymdu ráð- herrar ýmsum málum sem nauðsynlegt hefði verið að af- greiða sem lög fyrir sumarið. Stjórnleysið og glundroðinn er alger, en stjórnarliðum þykir þetta ástand ekki verra en svo að þeir neita að koma heim úr sumarfríi til að afgreiða það sem út af stendur. Ráðherrar telja jafnvel í lagi að fara frek- ar út í skapandi lögskýringar en að kalla saman þing til að leiðrétta mis- tök. Og enn bætist í ástæðurnar fyrir því að þing komi saman. Fyrir nokkru var full ástæða til að þingnefnd hittist til að ræða ummæli ut- anríkisráðherra um kröfur Ís- lands vegna aðildarumsóknar að ESB og nú stendur rík- issjóður skyndilega frammi fyrir því að fjármálaráðherra virðist hafa vanmetið stórkost- lega kostnað af Sparisjóði Keflavíkur. Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, formaður Framsókn- arflokksins, hefur hvatt til þess að þing verði kallað saman vegna þess máls, auk þeirra sem urðu útundan í vor. Þetta er sjálfsögð krafa og ekkert er því til fyrirstöðu að þing komi saman í nokkra daga. Nema ef til vill ótti stjórnarliða við um- ræður um störf sín. Stjórnarliðar hræð- ast umræður á þingi meira en lögleysur } Þingið þarf að koma saman H ver gerði þetta? Hvers vegna? Ekki er nema von að Norðmenn spyrji sig. Norðurlandabúar all- ir og auðvitað margir aðrir. Hver hefði trúað því í gærmorg- un að þessi kyrrláti bær, Ósló, yrði næsta skot- mark hryðjuverkamanna? Hryllilegur atburður er staðreynd. Margir frændur okkar látnir eftir viðurstyggilega árás og Íslendingar eins og aðrir senda sínar dýpstu samúðarkveðjur. Strax í gær lýstu einhver samtök voðaverk- inu á hendur sér eins og við var að búast og þau gætu orðið fleiri. Ekki er þó víst að sannleik- urinn komi endilega í ljós á næstunni. Vonandi fæst þó botn í rannsóknina sem fyrst og sá eða þeir hljóti makleg málagjöld sem ábyrgðina bera. Hvað sem því líður er óhjákvæmilegt að velta því fyrir sér hvað átti sér þarna stað. Vildi einhver hefna fyrir þátttöku Norðmanna í hernaði annars staðar í veröld- inni? Eða var ef til vill „bara“ einhver óður heimamaður að verki? Er hugsanlega satt, eins og haldið var fram í gær, að Stoltenberg forsætisráðherra hafi átt að vera kominn á Utøya þar sem skotárásin átti sér stað? Og að spreng- ingin öfluga í miðbæ Óslóar hafi ekki síst verið til þess að beina sjónum lögreglu þangað og þar með yrði auðveld- ara að komast út á þessa fallegu eyju þar sem ungmenna- hreyfing Verkamannaflokksins var með sumarbúðir? Norðmenn og aðrar þjóðir sem vanar eru að lifa í ró og næði heima í dalnum verða nú því miður að hugsa dæmið upp á nýtt. Ís- lendingar þar á meðal. Ekki eru mörg ár síðan forseti Íslands gekk einn síns liðs úr Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg út í matvöruverslun í mið- bænum. Stjórnmálamenn hafa sem betur fer að mestu fengið að vera í friði á almanna- færi. Meira að segja heimsfrægir listamenn eða íþróttamenn hafa flestir geta notið Ís- landsdvalar án þess að abbast sé upp á þá. Meðal annars þess vegna er Ísland paradís á jörð. Við berum þá von í brjósti að áfram verði hægt að ganga um götur hér á norðurslóðum án þess að vera í lífshættu. Ég segi norður- slóðum, en á auðvitað við alla heimsbyggðina; slíkt væri óskandi en er því miður algjörlega óraunhæft eins og er, hefur verið lengi og verður um langa ókomna tíð. Því miður. En þrátt fyrir áföll eins í gær verður hinn frjálsi mað- ur að halda áfram að lifa. Ekki má láta hinn óþekkta, hvort sem það eru glæpasamtök eða sjúkir einstaklingar, eyðileggja fyrir fjöldanum. Fólk verður að sameinast í baráttu gegn þessum djöfli eins og öðrum sem herja á heiminn. Elskum friðinn, efl- um vináttu og væntumþykja. Ekki má stöðva sýninguna þótt á bjáti. Lífið verður að halda áfram þrátt fyrir allt. skapti@mbl.is Skapti Hallgrímsson Pistill Hver? Hvers vegna? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Flugvallarstarfs- menn í lausu lofti sent fækkun farþega eftir því til hvaða áfangastaðar horft er. Við sjáum því ekki mikla framtíð í því núna að fara með innanlandsflugið til Keflavíkur,“ segir Árni. Starfsemin dytti alveg niður Það ætti enginn að velkjast í vafa um nauðsyn Reykjavíkurflugvallar, segir Hörður Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélagsins Ernis, en hjá því starfa um 40-45 manns á vellinum. Tekur hann undir orð Árna um slæm áhrif á innanlandsflugið ef flugvöllurinn yrði fluttur um set. Hörður bendir á áhrifin sem flutningur til Keflavíkur hefði á ferðir félagsins fyrir erlenda ferðamenn sem koma til höfuðborgarinnar með skemmtiferðaskipunum. Fyrirtækið bjóði bæði upp á dagsferðir á áfanga- staði félagsins með áætlunarflugi en auk þess sé það með útsýnisferðir yfir landið. „Þetta er þjónusta sem er mikil- væg til að auka fjölbreytni og mögu- leika erlendra ferðamanna til að sjá Ísland á meðan skipin eru í höfn. Það myndi algerlega detta niður ef starf- semin væri færð eitthvað út fyrir borgina,“ segir hann. Hörður segir málið koma reglu- lega upp í umræðum þegar afvega- leiða þurfi aðrar umræður í borginni eins og í aðdraganda kosninga. „Þessi aðferð til að afvegaleiða umræðuna er búin að vera viðvarandi lengi.“ Morgunblaðið/Þorkell Vatnsmýri Um fimmhundruð starfsmenn vinna við Reykjavíkurflugvöll við ýmsa starfsemi. Framtíðarstaðsetning vallarins er þeim hagsmunamál. FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is F ramtíð Reykjavík- urflugvallar í Vatnsmýr- inni hefur verið deilu- efni í marga áratugi, en staðsetning hans er aug- ljóslega mikið hagsmunamál fyrir borgina jafnt sem landsbyggðina og hefur gengið illa að samræma ólík sjónarmið þar. Það eru þó ekki síður starfs- menn á flugvellinum sem eiga hags- muna að gæta, en þeir eru alls um fimm hundruð talsins hjá fjölda fyr- irtækja samkvæmt upplýsingum frá Isavia sem annast rekstur vallarins. Vinna þeir flestir sérhæfð störf við flugvallarrekstur, flugrekstur, sjúkraflug, gæsluflug, þyrluflug, flug- kennslu og þjónustu við erlend flug- félög. Tvö áætlunarflugfélög, Flug- félag Íslands og Flugfélagið Ernir, fljúga frá Reykjavíkurflugvelli. Fljúga þau til ellefu staða innan- lands í reglubundnu áætlunarflugi auk Færeyja og fimm áfangastaða á Grænlandi. Undanfarið hafa á milli 400 og 500 þúsund farþegar farið um flugvöllinn á ári hverju, þar af um 50 þúsund í Grænlands- og Færeyja- flugi. Þá eru þrír flugskólar, viðhalds- stöðvar og þjónustufyrirtæki starf- rækt á vellinum auk þess sem Land- helgisgæslan er með starfsemi þar. Nota um sjötíu einka- og kennslu- vélar sér flugvöllinn samkvæmt upp- lýsingum frá Isavia. Umfang starf- seminnar á Reykjavíkurflugvelli er því töluvert og hefði mögulegur flutn- ingur hans því mikil áhrif, bæði á starfsfólk og borgina. Sjá ekki framtíð í Keflavík Um 250 stöðugildi eru hjá Flug- félagi Íslands á Reykjavíkurflugvelli að sögn Árna Gunnarssonar, fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins. Þar er um að ræða flugmenn, flugvirkja, hlað-, innritunar-, skrifstofu- og þjón- ustufólk. Hann segir Keflavík eina skyn- samlega kostinn sem nefndur hafi verið sem hugsanlega staðsetningu fyrir flugvöllinn, en það hefði þó al- varlegar afleiðingar í för með sér fyr- ir innanlandsflugið. „Miðað við þær rannsóknir sem hafa verið gerðar hefði það veruleg áhrif á fjölda far- þega. Það myndi þýða allt að 40 pró- 500 starfsmenn á ýmsum sviðum starfa við Reykjavíkurflugvöll. 400- 500.000 farþegar hafa farið um flugvöllinn á ári hverju undanfarin ár. 60-80.000 flughreyfingar eru á ári hverju á vellinum eftir árferði. 12 flugvélar sinna áætlunarflugi til ell- efu áfangastaða innanlands. ‹ FLUGVÖLLUR Í TÖLUM › »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.