Morgunblaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is É g ólst upp hér á þess- um slóðum og mér þykir vænt um um- hverfið við Tjörnina. Ég á sterkar og djúpar rætur hér í Þingholtunum og lék mér oft í þessum garði sem barn og gekk í Miðbæjarskólann. Ég kann af- skaplega vel við að vera kominn hing- að aftur,“ segir Guðmundur Erlends- son matreiðslumaður sem á og rekur matarvagninn Grænt og grillað en vagninn sá er staðsettur í Mæðra- garðinum í miðbæ Reykjavíkur. „Við hjónin byrjuðum með vagninn heima á Selfossi fyrir tveimur árum og gerðum það mjög gott þar, áttum okkar fasta kúnnahóp sem var mjög ánægður með að geta nálgast hollan skyndibita.“ Allt heimalagað og hollt „Þetta hefur verið mikið ævintýr en fólk var alltaf að hvetja okkur til að fara með vagninn í bæinn, því þar væri meiri markaður fyrir grænan mat. Við slógum því til og erum búin Græni vagninn í Mæðragarðinum Matreiðslumaðurinn sem stendur vaktina í vagninum í Mæðragarðinum leggur mikla áherslu á hollustu. Grænt og grillað byrjaði á Selfossi en hefur flutt sig til höfuðborgarinnar og stendur við Reykjavíkurtjörn. Morgunblaðið/Ómar Stoltur Guðmundur Erlendsson er stoltur af matnum sem hann býður upp á í vagninum sínum, enda má hann vera það, hann er bæði hollur og góður. Bloggsíður eru af ýmsum toga og skemmtilegar að skoða margar hverj- ar. Vefsíðan badbanana.typepad.com ber skemmtilegt nafn en innihald síð- unnar á þó lítið skylt við skemmda banana. Nema að höfundur síðunnar, Tim Siedell, segir hið sama eiga við um hugmyndir og skemmda banana. Blandað saman verða brúnir bananar og mjólk sem er búin að vera opin ei- lítið of lengi að bananabrauði. Hið sama eigi við um hugmyndir sem virðist gjörsamlega tilgangslausar. Sé þeim blandað saman geti útkom- an orðið góð. Þannig lýsir Siedell innihaldi bloggsíðu sinnar sem er full af skemmtilegum færslum um hönn- un, tónlist, auglýsingar og ýmislegt annað. Engin röð og regla heldur skemmtileg óreiða af því sem höf- undi þykir áhugavert hverju sinni. Vefsíðan www.badbanana.typepad.com Nýting Þegar bananar eru orðnir gamlir má gera úr þeim bananabrauð. Slæmar hugmyndir verða góðar Pálína frá Grund frumflytur gjörning sinn Hverra Manna í Gerðarsafni á sunnudaginn kl. 16. Hann er saminn í tilefni sýningar Árna Páls Jóhanns- sonar og Finnboga Péturssonar, Góðir Íslendingar, sem nú stendur yfir í safninu. Pálína frá Grund er þekkt fyrir Grímuverðlaunaverk sitt Völvu sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu og fyrir einleik sinn í The Secret Face. Sýningin Góðir Íslendingar stend- ur til 31. júlí og er opin kl. 11-17 alla virka daga nema mánudaga. Að- gangseyrir 500 kr. en ókeypis á miðvikudögum Endilega... ... sjáðu gjörning í Gerðarsafni Morgunblaðið/Jim Smart Pálína Lék í The Secret Face. „Á morgun verður óvenju mikið að gera svona yfir einn laugardag en við förum og klárum uppsetningu fyrir ballið klukkan 10,“ segir Gunnar Þór Einarsson skipuleggjandi stríðs- áraballs sem haldið verður á Bar46 á Hverfisgötu í kvöld. „Um morguninn skreytum við sal- inn og förum yfir dansana frá leik- urunum. En þarna verða skemmti- atriði, danssýning frá Lindy Ravers og stuttmyndasýning frá Fut- ureShortsOne. Á ballinu verða líka leikarar í hlutverkum, meðal annars njósnarar og svartamarkaðsbrask- arar en við leggjum allt upp úr því að gera þetta sem mest ekta. Þér á að finnast þú vera komin/n aftur í tím- ann og við hvetjum fólk til að mæta í viðeigandi klæðnaði,“ segir Gunnar Þór sem sjálfur er leyndardómsfullur um það sem hann muni klæðast og segir það koma í ljós í kvöld. Eftir annasaman laugardag ætlar Gunnar Þór að slappa vel af á sunnudaginn yfir góðri bíómynd. Nánari upplýs- ingar um viðburðinn má nálgast á Fa- cebook undir Stríðsáraball. Hvað ætlar þú að gera um helgina? Eyðir kvöldinu dansandi með svartamarkaðsbröskurum Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Það verður líf og fjör á Árbæjarsafn- inu en þá verður hin árlega harm- onikuhátíð haldin með pomp og prakt. „Hátíðin hefur verið haldin í ein 15 ár og verið fjölsótt af fólki á öllum aldri. Stór hluti gesta er fjöl- skyldufólk enda safnið mjög krakka- vænt en þetta höfðar líka til eldri kynslóðarinnar. Það er líka gaman að segja frá því að á sjöunda áratugnum voru harmonikuböll haldin hér. Þá var farið í sveit, að þótti þá, og farið á harmonikuball á Árbæjarsafni. Á há- tíðinni í ár spila bæði gamlir reynslu- boltar eins og hann Karl Jónatansson en líka yngri harmonikuleikarar, meðal annars eitthvað af nemendun hans. Það er enn vinsælt að spila á harmoniku enda frábært hljóðfæri,“ Guðbrandur Benediktsson deild- arstjóri á Árbæjarsafni. Neistar koma saman Dagskráin verður vegleg að vanda og munu gestir fá að sjá og hlýða á marga af okkar fremstu harmoniku- leikurum. Þeirra á meðal má nefna Karl Jónatansson ásamt hinum sögu- frægu Neistum, sem koma saman í tilefni hátíðarinnar eftir langt hlé. Einnig stórsveit frá Harmoniku- félaginu Hljómi úr Reykjavík, Sigurð Alfonsson, Reyni Jónasson, Grétar Geirsson, Jónu Einarsdóttur, Gunn- ar Kvaran, Hrein Vilhjálmsson og Þór Halldórsson, auk fleiri hópa og einleikara. Dagskráin hefst kl. 13.00 og lýkur með sameiginlegum tón- leikum í lok dags. Það er um að gera að nýta ferðina og skoða í leiðinni þann fjölda sýninga sem sjá má í Ár- bæjarsafni og varpa ljósi á sögu Reykjavíkur. En þar er einnig fólk að störfum við handverk og búskap. Sem fyrr verður heitt á könnunni í Dillonshúsi og hægt að kaupa sér þar kaffi og meðlæti fyrir þá sem verða svangir. Ættu allir að geta skemmt sér vel á harmonikuhátíð og velkomið að fólk stígi dans ef svo ber undir. Tónlist Harmonikuhátíð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.