Morgunblaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011 Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Mál Sparisjóðsins í Keflavík kallar á skoðun á því hvernig staðið hefur verið að endurreisn sparisjóðakerf- isins, að mati tveggja þingmanna. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins, segist hafa reynt að fá upplýsingar um kostnað ríkisins vegna sparisjóðanna. Tvær fyrirspurnir liggi fyrir á þinginu en þeim hafi ekki verið svarað. „Spurningum mínum hefur til þessa verið svarað með skætingi og fjármálaráðherra hefur skýlt sér á bak við upplýsingafulltrúa ráðu- neytisins. Frá því að þessi stjórn tók við völdum þá hefur það verið ljóst að taka þurfti á málefnum sparisjóðanna og ríkisstjórnin ber ábyrgð á því að þessi staða er kom- in upp núna. Vinnubrögðin í kring- um þessa tvo sparisjóði og fleiri kallar á að þessi mál verði rann- sökuð.“ Munar milljörðum Fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá því í gær að staða SpKef væri miklu verri en menn töldu vera þegar Landsbankinn tók sparisjóðinn yfir. Landsbankinn hefur framkvæmt mat á virði eigna sjóðsins og munar þar 20 milljörðum frá því mati sem ríkið kynnti í vor. Í stað þess að þurfa rúma 19 milljarða til að upp- fylla kröfur FME um eigið fé mun SpKef þurfa 38 milljarða króna. „Það er ótrúlegt að við séum núna, tveimur og hálfu ári frá því að stjórnin tók við völdum, að fá þessar upplýsingar,“ segir Guðlaugur. „Hvað hefur það kostað að halda SpKef gangandi allan þennan tíma?“ Höskuldur Þórhallsson, þingmað- ur Framsóknarflokksins, tekur í svipaðan streng. „Ljóst er af þessu máli sem og því hvernig staðið var að sölunni á Byr sparisjóði að ým- islegt þarf að skoða varðandi það hvernig stjórnin hefur haldið á end- urreisn sparisjóðanna.“ Vill rannsókn á mál- efnum sparisjóðanna  Staða Sparisjóðsins í Keflavík mun verri en talið var Morgunblaðið/Árni Sæberg Sparisjóður Landsbankinn keypti SpKef í vor en nú er ljóst að staða hans er raunverulega mun verri talið var á þeim tíma sem kaupin áttu sér stað. SpKef » Í vor var álitið að eigið fé SpKef væri neikvætt um 11,2 milljarða króna og að um 19,4 milljarða þyrfti til að hann stæðist kröfur FME. » Nú hefur komið í ljós að eig- ið fé sjóðsins er neikvætt um 30 milljarða króna og að 38 milljarða þarf til að hann upp- fylli kröfurnar. Fjármálaeft- irlitið hefur gert alvarlegar at- hugasemdir við starfsemi Rekstrarfélags verðbréfasjóða hjá Íslenskum verðbréfum, að því er kemur fram á vefsíðu eftirlitsins. Þetta kemur í framhaldi af athugun sem eftirlitið gerði á félaginu. Á vefsíðu FME segir að gerðar hafi verið athugasemdir við áhættustýringu verðbréfasjóðanna en öll áhættustýring virðist vera á hendi sjóðsstjóra. Þá voru gerðar alvarlegar at- hugasemdir við úttekt og skýrslu innri endurskoðanda en hvort tveggja þótti ófullnægjandi. Þá telur FME að útvist- unarsamningur félagsins við Ís- lensk verðbréf hf. um útvistun á tækniþjónustu sé villandi, en Ís- lensk verðbréf hf. útvista allri slíkri þjónustu áfram til þriðja að- ila. Samkvæmt lögum um verð- bréfasjóði og fjárfestingarsjóði er rekstrarfélagi heimilt að útvista verkefnum sem tengjast rekstri verðbréfasjóða að fengnu sam- þykki Fjármálaeftirlitsins. Mikilvægt sé að FME viti hvaða aðili það er sem mun fara með út- vistuð verkefni. FME með aðfinnslur við ÍV  Öll áhættustýring hjá sjóðsstjóra Fyrsta greiðslufallið frá lokum seinni heimstyrjaldar Þetta samkomulag felur í sér tak- markað greiðslufall gríska ríkisins og er það í fyrsta sinn frá seinni heimstyrjöld sem evrópskt ríki stendur ekki undir skuldbindingum sínum. Þrátt fyrir að lenging lána og breytingar á skilmálum útgefinna skuldabréfa gríska ríkisins verði skilgreint sem takmarkað greiðslu- fall hjá matsfyrirtækjunum mun Evrópski seðlabankinn eftir sem áð- ur taka þau gild í veðlánaviðskiptum gegn eigin reglum. Er þessi undan- tekning gerð til þess að forða við bankahruni í Grikklandi vegna greiðslufalls ríkisins. Jafnframt markar samkomulagið tímamót þar sem aukið vægi ESFS er ótvírætt skref í átt að því að evru- svæðið umbreytist í einhverskonar skuldabandalag aðildarríkjanna. Það er að segja að evruríkin ábyrgist skuldir hvert annars. Þetta fyrir- komulag þýðir augljóslega á borði að verst stöddu ríkin í suðri auk Írlands eiga að njóta góðs af ríkisábyrgð Þýskalands og annarra ríkra hag- kerfa í norðri. Fjármálamarkaðir hafa endurspeglað þetta síðustu tvo daga: Áhættuálagið á þýska ríkið hefur hækkað meðan það hefur lækkað á verst stöddu evruríkin. En þar með er björninn ekki unn- inn. Frá því er langur vegur. Í fyrsta lagi verður ekki séð að afskriftir skulda gríska ríkisins gangi nógu langt til þess að gera stöðuna sjálf- bæra. Ef áætlunin nær fram að ganga yrði hlutfall skulda gríska rík- isins af landsframleiðslu 130% eftir FRÉTTASKÝRING Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Enn og aftur hefur verið efnt til lúðrablásturs á mörkuðum í kjölfar þess að leiðtogar evruríkjanna hafa komið sér saman um aðgerðir vegna skuldakreppunnar. Hætt er við því að fögnuðurinn nú verði einnig skammvinnur. Þó að aðgerðirnar sem samið var um á fimmtudag marki um margt tímamót í samruna- sögu Evrópu verður ekki séð að þær leysi þann vanda sem við er að etja vegna stöðunnar í hagkerfum Grikk- lands, Portúgal og Írlands og útiloki þar með að sami vandi gjósi upp í stærri hagkerfum á borð við Ítalíu og Spán. Í einföldu máli eru aðgerðirnar þríþættar: Í fyrsta lagi fela þær í sér afskriftir á hluta skulda gríska rík- isins meðal annars með þátttöku eig- enda krafna úr einkageiranum; í öðru lagi verða neyðarlán björgunar- sjóðsins sem Evrópusambandið setti á laggirnar vegna skuldakreppunnar (e. The European Financial Stability Facility – ESFS) lengd auk þess sem vaxtakjör á lánunum sem veitt hafa verið Grikklandi, Írlandi og Portúgal verður lækkuð umtalsvert. Í þriðja lagi fær ESFS heimild til þess að verja hluta af þeim 440 milljörðum evra sem sjóðurinn getur dregið til að veita skammtímalán til ríkja, end- urfjármagna banka og undir „sér- stökum kringumstæðum“ getur hann hafið endurkaup á útgefnum ríkisskuldabréfum illra staddra evruríkja. greiðslufall. Með öðrum orðum verð- ur það hærra en það var í fyrravetur þegar fjárfestar fóru að missa alla trú á stöðu mála þar syðra. Sam- komulagið leysir engin af þeim vandamálum sem Grikkir standa frammi fyrir varðandi endurreisn samkeppnishæfni hagkerfisins. Byrðar þýska hagkerfisins Einnig hafa sérfræðingar bent á að núverandi stærð ESFS dugi að- eins til þess að fjármagna neyðar- fjármögnun og aðra fyrirgreiðslu til Grikklands, Portúgals og Írlands. Til þess að geta veitt Ítalíu og Spáni sambærilega fyrirgreiðslu og hin ríkin þrjú hafa fengið þyrfti stærð sjóðsins að tvöfaldast eða þrefaldast að mati sérfróðra. Þar með myndi ábyrgð þýska ríkisins aukast veru- lega en fjármögnun ESFS á lánum til þeirra evruríkja sem geta ekki fjármagnað sig lengur á markaði hvílir fyrst og fremst á traustu láns- hæfi þýska hagkerfisins. Þar sem áætlunin sem samþykkt var á fimmtudag snertir á engan veg þann vanda sem felst í skorti á sam- keppnishæfni verst stöddu evruríkj- anna og dökkum efnahagshorfum samhliða niðurskurði þá er óvarlegt að álykta sem svo að það versta sé nú yfirstaðið í þeirri skuldakreppu sem plagað hefur evrusvæðið á liðnum árum. Vandinn tjóðraður með lánalínum  Fjármögnun vandans vegna skuldakreppunnar í Evrópu tryggð um tíma  Skuldir gríska ríkisins verða 130% af VLF  Evruríkin tryggja skuldir hvert annars Kátir George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, og Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB. ● Norska sementsfyrirtækið NORCEM hefur eignast 20% hlut í Björgun ehf. en fyrirtækið hefur mjög sterka mark- aðsstöðu í Noregi og er hluti af Heidel- berg Cement Group, sem er einn stærsti sementsframleiðandi í heimi. Samkvæmt heimildum mbl.is urðu eigendaskipti á Björgun ehf. í júní þegar Landsbankinn setti fyrirtækið í sölu- ferli. NORCEM var aðili að því tilboði í fyrirtækið sem tekið var. Gunnlaugur Kristjánsson, forstjóri Björgunar ehf., segist í samtali við mbl.is geta staðfest að NORCEM hafi keypt 20% hlut í fyrirtækinu. Norska fyrirtækið hafi verið í samstarfi við Björgun lengi og verið á íslenska mark- aðinum í átta ár. Fjárfestingin nú sé væntanlega einfaldlega til marks um að NORCEM hafi áhuga á að vera þar áfram. Hann geti að öðru leyti ekki tjáð sig um málið. Norðmenn með fimmtung í Björgun Sanddæluskip Björgunar að störfum. ● Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,21 prósent í viðskiptum gærdags- ins og endaði í 209,48 stigum. Verð- tryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,29 prósent og sá óverðtryggði um 0,03 prósent. Velta var með minna móti, eða um 5,1 milljarður króna. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækk- aði um 1,69 prósent í gær. Gengi bréfa BankNordik lækkaði um ein 10,17 pró- sent og bréf Össurar lækkuðu um 2,7 prósent. bjarni@mbl.is BankNordik fellur Stuttar fréttir…                                         !"# $% " &'( )* '$* ++,-.+ +/0-1 +2+-,3 22-+.. 2+-343 +/-25/ +3.-.5 +-,531 +/,-2/ +51-,0 ++1-+/ +/0-.5 +2+-0. 22-25, 2+-355 +/-322 +,4-31 +-,50/ +/,-/3 +51-.3 22+-0/,. ++1-,1 +//-,2 +22-+1 22-32. 2+-,2. +/-305 +,4-0, +-,02+ +/1-3/ +55-3. Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Samkeppniseft- irlitið hefur ógilt samruna Stjörnu- gríss við Rekstr- arfélagið Braut og LS2. Í ákvörðun Samkeppniseft- irlitsins frá því fyrr á árinu heimilaði Samkeppniseft- irlitið yfirtöku Stjörnugríss á tilteknum eignum félaganna, sem hafa farið með rekstur svínabúanna Brautarholts og Grísagarðs. Taldi Samkeppniseftirlitið ekki unnt að grípa til íhlutunar í samrun- ann vegna reglna samkeppnisréttarins um félög á fallanda fæti. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála taldi hins vegar ósannað að skilyrði um fyr- irtæki á fallanda fæti væru fyrir hendi og vísaði málinu aftur til eftirlitsins. Samkeppniseftirlitið hefur nú rann- sakað málið að nýju. Með hliðsjón af gagnaöflun og úrskurði áfrýjunar- nefndar hefur eftirlitið ógilt samruna fyr- irtækjanna. Samkeppniseftirlit ógildir samrunann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.