Morgunblaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011 Steingrímur J. Sigfússon var ílöngu viðtali í Ríkisstjórnar- útvarpinu í gærmorgun og tókst þar athugasemdalaust að tala sig framhjá flestum þeim spurningum sem fyrir hann voru lagðar.    Honum tókst tilað mynda að svara því ekki hvort að vandinn í ESB ætti að hafa áhrif á umsóknarferli Ís- lands. Þó mátti helst skilja hann þannig að vandinn þvældist ekki fyrir aðildarumsókninni og að ESB væri félagsskapur sem hann gæti al- veg hugsað sér að vera í.    Svipaða sögu er að segja af hval-veiðum Íslendinga og byggingu nýs fangelsis, Steingrímur J. er í þessum efnum mjög á báðum áttum ef marka má svör hans í gær. Hann telur að „leggja þurfi raunsætt mat á hagsmunina“ og vill „skoða alla kosti“.    Það sem hann hafði helst ákveðnaskoðun á voru skattahækkanir. Um fjárlög og skatta sagði hann: „Ég er að sjálfsögðu ekki að lofa því að ekki verði um einhverjar tekju- öflunaraðgerðir að ræða.“    Nú hefur Steingrímur J. setið ástóli fjármálaráðherra í nær tvö og hálft ár og hefur á þeim tíma náð þeim árangri að hækka alla skatta og gjöld auk þess að búa til nýja skatta.    Samt sem áður telur hann ekkinóg komið og hefur þá sann- færingu eina að skattar skuli hækka.    You ain’t seen nothing yet,“ ervíst eina loforðið sem hann er ákveðinn í að svíkja ekki. Steingrímur J. Sigfússon Eitt loforðanna heldur þó velli STAKSTEINAR Veður víða um heim 22.7., kl. 18.00 Reykjavík 15 skýjað Bolungarvík 13 skýjað Akureyri 13 skýjað Kirkjubæjarkl. 15 skýjað Vestmannaeyjar 13 heiðskírt Nuuk 8 súld Þórshöfn 11 alskýjað Ósló 15 alskýjað Kaupmannahöfn 20 skýjað Stokkhólmur 27 heiðskírt Helsinki 28 heiðskírt Lúxemborg 17 skýjað Brussel 17 léttskýjað Dublin 16 skýjað Glasgow 17 skýjað London 18 heiðskírt París 20 skýjað Amsterdam 15 skúrir Hamborg 15 skúrir Berlín 12 skúrir Vín 16 alskýjað Moskva 28 heiðskírt Algarve 22 heiðskírt Madríd 31 léttskýjað Barcelona 22 skýjað Mallorca 25 léttskýjað Róm 26 léttskýjað Aþena 31 heiðskírt Winnipeg 17 skýjað Montreal 28 léttskýjað New York 37 heiðskírt Chicago 21 þrumuveður Orlando 32 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 23. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:06 23:04 ÍSAFJÖRÐUR 3:41 23:38 SIGLUFJÖRÐUR 3:23 23:22 DJÚPIVOGUR 3:28 22:40 Janus Arn Guðmundsson janus@mbl.is „Við búumst við um tíu þúsund manns í ár, en á Mærudögum [á Húsavík] í fyrra voru um sjö þúsund, bærinn verður smekkfullur,“ segir Einar Gíslason verkefnastjóri hátíð- arinnar, eða mæruprinsinn eins og hann er oftast kallaður af heima- mönnum. Hátíðin er nú haldin 16. skipti og í gær voru Mærudagar formlega sett- ir. „Heimamenn fjölmenntu á setn- ingarhátíðina og var óvenjulega fjöl- mennt á bryggjunni, þar sem Norræna húsið hefur staðið fyrir svo- kallaðri Strandmenningarhátíð sem hefur staðið yfir frá því 16. júlí, hér á Húsavík,“ segir Einar. 25 ára afmæli Greifanna Dagskráin er með glæsilegra móti en hljómsveitin Greifarnir sem hélt sína fyrstu tónleika í samkomuhúsinu á Húsavík mun leika fyrir dansi. „Greifarnir, sem nú fagna 25 ára af- mæli sínu, muna snúa aftur til heima- haga og halda afmælistónleika,“ segir Einar og bætir við að margir aðrir fjölskylduvænir viðburðir verði á boð- stólum fyrir gesti Mærudaga. Má þar nefna hrútasýningu sem félag fjár- eiganda á Húsavík stendur fyrir, listasýningar, kvenfélagsmarkaði, fjölskyldudansleiki, brennu og margt fleira. Nálgast má dagskrá hátíð- arhaldanna [Mærudaga] á visithusa- vik.is og ættu allir að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi. Einar segir veðrið leika við Hús- víkinga að venju, en veðurspáin þar er með eindæmum góð að hans sögn. „Það er spáð tuttugu stiga hitabylgju á Húsavík um helgina,“ segir Einar. Að lokum vill Einar hvetja fjöl- skyldufólk, sem tök hefur á, til að koma og kynna sér þingeyska menn- ingu eins hún gerist best. Bærinn smekkfullur á Mærudögum  Búist er við tíu þúsund hátíðargestum á Mærudaga sem fram fara um helgina  Spáir hitabylgju á Húsavík  Hátíðin er nú haldin í sextánda sinn Sýning Sýning á ljósmyndum Ragnars Axelssonar, ljósmyndara Morgun- blaðisins, stendur yfir á hafnarsvæðinu. Myndirnar eru hengdar á fiskikör. „Það er langur tími síðan orðið mæra skaut upp kollinum hér á Húsavík, en fyrst og fremst tengdist þetta orð í upphafi brjóstsykri og karamellum,“ segir Hafliði Jósteinsson, sem man vel eftir orðinu mæra frá upphafi. Í dag segir hann að orðið sé notað sem samnefnari fyrir allt sælgæti innan bæj- armarkanna. Orðið, segir hann, sé húsvískt tungutak. „Orðið mæra á Húsa- vík varð til þegar gömlu kram- búðirnar voru og hétu.“ „Ég hef miklar mætur á þessu orði og myndi ég segja þetta vera í húsvískri bæjarsál. Þetta orð hefur mikla og skemmtilega merkingu í hugum fólks á svæð- inu,“ segir hann. Samnefnari yfir sælgæti ORÐIÐ MÆRA Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Friðarhlaupinu, sem hófst 5. júlí síð- astliðinn, lauk í gær þegar hlaupa- drottningin Tegla Loroupe kom að Ráðhúsi Reykjavíkur. Með henni í för var Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, en hann slóst í för með Loroupe við Valsheimilið og hljóp með henni síðasta spölinn að ráðhúsinu. Ásamt fjármálaráðherra voru hlauparar frá alþjóðlega Frið- arhlaupsliðinu og meðal þeirra sem tóku á móti friðarhlaupurum í gær var Eva Einarsdóttir borgarfulltrúi. Loroupe er þaulreyndur mara- þonhlaupari frá Kenía en hún hefur m.a. verið heimsmethafi kvenna í maraþonhlaupi til margra ára. Með- al afreka hennar eru heimsmet í 20 og 30 kílómetra hlaupi kvenna. Að undanförnu hafa mörg þúsund manns lagt hlaupinu lið með því að slást í för með Loroupe á ferðalagi hennar umhverfis landið, sem tók tvær vikur. Friðarhlaupið á sér langa sögu, allt frá árinu 1987, þegar indverski friðarfrömuðurinn Sri Chinmoy stofnaði það í von um að vekja fólk til umhugsunar um frið- arhugsjónina óháð þjóðerni og menningu. Í sunnudagsblaði Morgunblaðsins er ítarlegt viðtal við hlaupadrottn- inguna Loroupe. Tegla Loroupe lauk friðarhlaupi sínu í gær Morgunblaðið/Eggert Friðarhlaup Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra slóst í för með maraþonhlauparanum Tegla Loroupe og bar með henni friðarkyndilinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.