Morgunblaðið - 23.07.2011, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Rannsóknin er á fullu,“ sagði Ólaf-
ur Helgi Kjartansson, sýslumaður á
Selfossi, síðdegis í gær um brunann
sem varð í aldingarðinum Eden í
Hveragerði í fyrrinótt.
Gífurlegt eignartjón varð þegar
Eden brann nánast til kaldra kola í
fyrrinótt. Engin slys urðu á fólki og
í logninu náði eldurinn ekki að
breiðast út í nærliggjandi hús.
Ekki er vitað um eldsupptök en svo
virðist sem eldurinn hafi komið upp
í eldhúsi í veitingastaðnum.
Tilkynnt var um eldinn kl. 00.07
og þremur stundarfjórðungum síð-
ar var húsið alelda. Slökkvilið og
lögregla fengu fljótlega staðfest að
byggingin væri mannlaus og fólk
var aldrei í hættu. Allt tiltækt
slökkvilið frá Hveragerði og Sel-
fossi vann við að slökkva eldinn og
lauk því starfi undir stjórn Péturs
Péturssonar, aðstoðarslökkvi-
liðsstjóra Brunavarna Árnessýslu,
að mestu leyti um tveimur tímum
síðar, en vinnunni allri lauk um kl.
04.10 um nóttina. Björgunarsveitir
aðstoðuðu við slökkvistarfið og við
að loka svæðinu.
Kristján Einarsson, slökkviliðs-
stjóri Brunavarna Árnessýslu, segir
að styrkur eldsins hafi verið óg-
urlegur á tímabili. „Hann öskraði á
fólkið,“ segir hann og bætir við að
eldsmatur hafi verið mikill í húsinu.
„Eden var barn síns tíma,“ heldur
hann áfram og vísar til þess að í
upphafi hafi verið byggt smátt og
síðan prjónað endalaust við, oft af
ekki miklum efnum heldur meira af
bjartsýni. „Þá koma oft öll heims-
ins efni saman á einn stað,“ segir
hann.
„Við furðum okkur svolítið á
þessum mikla hraða og útbreiðslu
eldsins,“ segir Kristján ennfremur.
„Við rembumst við að finna ein-
hverjar skýringar en vonandi finn-
ur rannsóknarteymið þær.“
Rannsókn á upptökum eldsins
hófst í gærmorgun. Í gær var unn-
ið við að hreinsa rústirnar og að því
loknu tekur við rannsókn á gólfinu.
Vatnsúðakerfi mikilvægt
Kristján segir að ýmislegt megi
læra af þessum bruna. Væri húsið
byggt núna væri það með vatns-
úðakerfi en ekki sé hægt að krefj-
ast þess í gömlum húsum. Í Eden
hafi verið viðvörunarkerfi sem hafi
farið í gang og ef þetta hefði gerst
á vinnutíma hefðu allir komist út.
Verði endurbyggt 3.000 fermetra
opið hús stafna á milli verði þar
vatnsúðakerfi rétt eins og í nýjum
verslunum þar sem sé opið á milli
hæða.
„Það er kerfi dagsins,“ segir
hann, en áréttar að slökkvistarf
hafi gengið vel og körfubíllinn kom-
ið í góðar þarfir. Hann hafi gert
það að verkum að tekist hafi að
slökkva eldinn mjög fljótt og lág-
marka þannig útbreiðslu eiturefna
út í andrúmsloftið.
Eldurinn öskraði á fólkið
Ljósmynd/Hafsteinn Jónasson
Logn Eldurinn í Eden steig beint upp til himins eins og um eldgos væri að ræða og fólk var ekki í hættu.
Margt má læra
af brunanum í
Hveragerði
Bruninn í Eden
ástríða í lífinu og það voru forrétt-
indi hans að getað unnið við það
sem hann hafði ástríðu fyrir. Þetta
var glæsilegur staður.“
Rætt hefur verið um að byggja
eigi Eden upp á ný. Karen segir að
það hafi alltaf verið ósk fjölskyld-
unnar að Eden héldi áfram að dafna
eftir að fyrirtækið var komið í ann-
arra manna hendur. Sú von væri
ekki síður í brjósti sér nú eftir brun-
ann. „Það væri æskilegt en hvort
það sé raunhæft veit ég ekki.“
Ekki gefast upp
Valgerður Jóhannesdóttir tekur í
sama streng, en hún hætti að vinna í
Eden í vor eftir um 39 ára starf,
gekk í hvað sem var en vann eink-
Bragi Einarsson garðyrkjufræð-
ingur stofnaði garðyrkjustöðina
Eden í Hveragerði 1958 og rak
hana í nær hálfa öld. Hann seldi fyr-
irtækið snemma árs 2006 og lést
nokkrum mánuðum síðar.
Karen Wellk, ekkja Braga, vann
með manni sínum í Eden síðasta
aldarfjórðunginn. „Þetta er mjög
sorglegt,“ segir hún um brunann. „Í
mínum huga hefur Eden og eig-
inmaður minn alltaf verið eitt og
það sama og þegar hann féll frá
lauk þessum kafla hjá mér. En að
búa í Hveragerði og vinna með fjöl-
skyldunni var ómetanlegt.“
Eden miðpunkturinn
Eden var helsta kennileitið í
Hveragerði og helsti samkomu-
staður bæjarins. Karen segir að
Bragi hafi talið að um 400 til 500
þúsund manns hafi komið í Eden á
ári síðustu árin. Vissulega hafi tek-
ið tíma að byggja staðinn upp en
gestum, jafnt innlendum sem er-
lendum, hafi fjölgað jafnt og þétt.
Háannatíminn hafi verið á sumrin
en tímabilið hafi lengst í báða enda
upp úr 1980, byrjað fyrir páska og
staðið fram í september, auk þess
sem jólavertíð hafi hafist með
skipulögðum jólaferðum útlend-
inga til Íslands.
Karen segir að fljótlega hafi bor-
ið á því að Íslendingar hafi komið
við í Eden á leið í sumarbústað og
bíltúrar þangað um helgar frá Stór-
Reykjavíkursvæðinu og víðar hafi
verið vinsælir. Í hugum margra hafi
Eden verið fastur punktur í tilver-
unni, hluti af helginni eða fríinu.
„Það tók Braga langan tíma að
byggja Eden upp en Eden var hans
um við að smyrja brauð og baka.
„Þetta er ömurleg sjón en hurðin er
óskemmd og Eden-merkið líka,“
segir hún. „Hvað segir það? Segir
það ekki að það eigi að halda
áfram? Það þýðir ekkert að gefast
upp.“
Þegar mest var störfuðu um 40
manns í Eden. Þangað hefur legið
stöðugur straumur ferðamanna og
þeir hafa líka beint viðskiptum sín-
um til annarra í bænum. Valgerður
segir að farþegar skemmtiferða-
skipa hafi gjarnan komið við í Eden
og sama eigi við um aðra hópa.
„Þetta er voðalegt högg,“ segir Val-
gerður. „Það var gaman að fá fólk í
húsið og sjá húsið fullt af fólki sem
leið vel.“ steinthor@mbl.is
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Uppbyggjandi Bragi Ólafsson lét sér annt um blómin í Eden.
Eden aðdráttarafl með allt
að 500 þúsund gesti á ári
Valgerður Jó-
hannesdóttir vann
í Eden í nær 40 ár
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
Hveragerðisbæjar, segir sögu rekst-
urs á Eden-lóðinni ekki lokið þrátt
fyrir brunann í fyrrinótt. „Eden
verður sárt saknað en við munum
leggja allt kapp á að þarna verði
byggð upp ferðamannaþjónusta sem
sómi er af, með svipuðum hætti.“
Bæjarstjórinn tilkynnti slökkvilið-
inu um eldinn, en Aldís átti leið
framhjá Eden ásamt fleira fólki
skömmu eftir miðnætti.
„Þá var enginn eldur kominn upp
úr þakinu en það stóð mikil reykj-
arsúla upp úr þakinu á gróðurhús-
inu,“ sagði Aldís við fréttavef Morg-
unblaðsins, mbl.is, í gær. Hún sagði
biðina hafa virst langa en það hafi
samt ekki tekið slökkvilið og lög-
reglu nema örfáar mínútur að koma
á staðinn. „Svo fór eldurinn upp úr
þakinu og breiddist ótrúlega fljótt
út. Það virðist hafa verið mikill elds-
matur þarna inni og plastklæðning
sem var mjög eldfim.“
Fyrir nokkrum árum kviknaði í
flugeldageymslu í Hveragerði og
varð af mikill eldur. Aldís segir eld-
inn hafa verið jafnvel meiri nú og
stórir kolsvartir reykjarbólstrar hafi
stigið til himins. „Og hávaðinn í eld-
inum var svo sérkennilegur. Hann
öskraði,“ segir hún.
Mikið áfall
Aldís segir eldsvoðann að sjálf-
sögðu mikið áfall og fólk í bænum sé
miður sín yfir brunanum. Rekst-
urinn hafi verið samofin sögu Hvera-
gerðisbæjar og margir bæjarbúar
starfað þar á einhverjum tíma.
„Eden hefur verið burðarás í
ferðaþjónustunni hérna í gegnum
tíðina og það hefur verið rekstur
þarna í 50 ár. Maður finnur að fólk
er slegið,“ segir Aldís.
Húsnæðið var í eigu Sparisjóðs
Suðurlands en reksturinn í höndum
einkaaðila. Sá kom á staðinn í fyrri-
nótt og segir Aldís áfallið aug-
ljóslega hafa verið mikið enda mikil
vinna búin að fara í að byggja upp
reksturinn og ferðamannastraum-
urinn verið stöðugur undanfarið.
Aldís vill koma þökkum til þeirra
sem tóku þátt í slökkvistarfinu. „Það
var aðdáunarvert að fylgjast með
starfi slökkviliðs, lögreglu og hjálp-
arsveita á vettvangi, því þetta var
mikill eldur,“ segir hún.
Morgunblaðið/Ómar
Von Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, gefst ekki upp.
Bæjarstjórinn vill
byggja aftur upp