Morgunblaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 16
Ísland 50. landið
» Slawomir missti vinnuna í
fyrravetur og ákvað að stofna
fyrirtæki ásamt konu sinni.
» Fyrirtækið flytur inn FM
vörur og rekur vöruhús á Akra-
nesi.
» FM eru ilmvötn, snyrti- og
hreinlætisvörur frá Póllandi,
seldar í heimasölu í gegnum s.k.
fjölþrepamarkaðskerfi.
» Ísland er fimmtugasta landið
sem FM hefur opnað útibú í og
Slawomir sér fjölmörg tækifæri
fyrir Íslendinga við markaðs-
setningu og sölu á FM vörum.
auðvitað hafa margir vinir og kunn-
ingjar reynst okkur vel og eru þar
fremst í flokki Ole Jakob Volden og
kona hans Þóra Kristín Sævars-
Guðrún Vala Elísdóttir
Hjónin Slawomir Pilecki verkfræð-
ingur og Magdalena Pilecka lyfja-
fræðingur fluttu til Íslands frá
Szczecin í Póllandi fyrir fimm árum.
Þau opnuðu vöruhús á Akranesi nú í
júlíbyrjun með vörur sem heita FM
og eru snyrtivörur, hreinlætisvörur
og ilmvötn. Magdalena er eigandi
FM Iceland en Slawomir eig-
inmaður hennar er upphafsmað-
urinn, en eftir að hann missti vinn-
una hjá Ístak sl. vetur fór hann að
velta fyrir sér hvað hann gæti haft
fyrir stafni. „Við kynntumst FM vör-
unum í fyrsta skiptið þegar við
heimsóttum systur mína til Lond-
on,“ segir Slawomir. Í framhaldinu
ákváðu þau að opna útibú á Íslandi.
„Við ákváðum að opna útibú hér því
enginn hafði gert það áður og við
höfðum séð klárlega að svona við-
skipti (Fjölþrepamarkaðskerfi)
styrkjast ár frá ári. Svo virðist okk-
ur sem Íslendingar hafi gaman af
þessu og finnist skemmtilegt að taka
þátt.“
Tóku engin lán
Útibúið var opnað á Akranesi í
heimabæ þeirra hjóna, en þau segja
að staðsetningin skipti í raun engu
máli þar sem flestar pantanirnar
komi í gegnum netið og vörurnar
verða sendar með pósti. Ísland mun
vera fimmtugasta landið sem opnar
FM útibú í heiminum. „Í kringum 20
júní ákváðum við að opna formlega
útibú FM á Íslandi og notuðum til
þess okkar eigið fé án þess að taka
lán eða fá nokkra fjárhagsaðstoð. En
dóttir sem hafa hjálpað okkur mik-
ið.“
Fyrirtækið býður upp á ilmvötn
og snyrtivörur og einnig hreinlæt-
isvörur til heimilisnota, fyrir skrif-
stofuna eða bílinn. „Við pöntuðum
fyrstu vörurnar frá útibúinu í Lond-
on í október á síðasta ári, en við urð-
um fljótlega vör við að vini okkar
langaði líka til að prófa þær. Þess
vegna buðum við þeim að taka þátt
og með tímanum urðu það fleiri og
fleiri sem langaði að prófa vörurnar.
Fólk er líklegra til að kaupa af ein-
hverjum sem það þekkir því það
treystir þeim. Þarna sáum við tæki-
færi fyrir alla Íslendinga,“ segir Sla-
womir.
Samkvæmt markaðskerfinu geta
söluaðilar hagnast umfram beinan
hagnað af sölu, því fyrirtækið veitir
söluaðilum umboðslaun samkvæmt
markaðskerfi fyrirtækisins. „Það
besta við þetta viðskiptakerfi er að
allir geta tekið þátt og byggt sín eig-
in teymi hvar sem er í heiminum,“
segja hjónin.
FM vörurnar eru framleiddar í
Póllandi. „Ég vona að Íslendingar
muni elska þessar vörur eins mikið
og Prins pólóið,“ segir Slawomir og
hlær.
Slawomir segir að þau finni lausn-
ir í kreppunni. „Þetta er bara byrj-
unin.“
Missti vinnuna og opnaði vöruhús
Slawomir Pilecki: „Ég vona að Íslendingar muni elska þessar vörur eins mikið og Prins pólóið“
Morgunblaðið/Guðrún Vala El
Missti vinnuna og opnaði vöruhús Hér má sjá förðunarvörurnar próf-
aðar. Þegar vöruhúsið var opnað gafst konum kostur á að fá fría förðun.
Frá opnun vöruhússins á Akranesi Frá vinstri er Þóra Kristín Sævars-
dóttir, Ole Jakob Volden, Slawomir Pilecki og Magdalena Pilecka.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011
Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is | www.vib.is
VÍB – Eignastýringarþjónusta Íslandsbanka er leiðandi
á íslenskummarkaði með áratugareynslu eignastýringu.
Einkabankaþjónusta
Viðskiptavinum sem gera ríkar kröfur býðst þjónusta
sem er sniðin að þeirra þörfum. Viðskiptastjóri annast
stýringu eignasafns og veitir margvíslega ráðgjöf.
Eigna- og lífeyrisþjónusta
Hefðbundin ávöxtun, sparnaður í áskrift, stakar
fjárfestingar og lífeyrissparnaður með aðstoð
sérfræðinga okkar.
Netbanki
Aðgangur að einu breiðasta sjóðaúrvali landsins fyrir þá
sem vilja stýra eignasafni sínu sjálfir.
Fáðu nánari upplýsingar á www.vib.is eða pantaðu viðtal
við ráðgjafa í síma 440 4900.
VÍB veitir sparifjáreig-
endum metnaðarfulla
og persónulega þjónustu
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
1
-0
4
0
2