Morgunblaðið - 23.07.2011, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011
Hjónin Sigríður María Róberts-
dóttir rekstrarstjóri og Finnur
Yngvi Kristinsson verkefnisstjóri
annast reksturinn hjá Rauðku.
„Við komum heim frá Bandaríkj-
unum 2008 þar sem við vorum við
nám og störf og fórum nánast beint
í verkefnið. Það var orðið svo viða-
mikið að fleiri hendur vantaði til að
halda utan um það,“ segir Finnur.
Sigríður er frá Siglufirði, dóttir
Róberts Guðfinnssonar, og Finnur
Yngvi er ánægður með að hafa flutt
með henni þangað. „Það var áhuga-
vert að koma í jafn söguríkan stað
og Siglufjörð og taka þátt í svona
verkefni. Ekki voru mörg verðugri
verkefni á þessum tíma,“ segir
Finnur.
Ekki mörg verð-
ugri verkefni
Framkvæmdirnar við smábátahöfn-
ina hafa verið mikil innspýting í
efnahagslíf Siglufjarðar, sér-
staklega vegna þess að eigendurnir
hafa lagt áherslu á að nýta þjónustu
heimafólks sem allra mest.
„Upphaflega hugmyndin var að
gera bænum til góða,“ segir Finnur
Yngvi Kristinsson, verkefnisstjóri
hjá Rauðku. Við það hefur verið
staðið með því að framkvæma sem
mest með heimamönnum og miða
framkvæmdatímann við að þeir
geti tekið verkin að sér.
Lagðar hafa verið um 400 millj-
ónir í uppbygginguna, það sem af
er, og að minnsta kosti tvöföld sú
fjárhæð fer í byggingu hótels og
tengda starfsemi, verði af þeim
framkvæmdum. „Peningarnir
verða eftir hér á staðnum og það
margfaldar efnahagslegu áhrifin,“
segir Finnur.
Gera bænum
sínum til góða
„Við fengum 1.500 gesti fyrstu
helgina eftir að við opnuðum kaffi-
húsið. Mikið hefur verið að gera,“
segir Finnur og getur þess að þau
hafi orðið að bæta við starfsfólki
til að geta sinnt gestunum vel.
Gist í smábátahöfn
Eigendur Rauðku og tengdra fé-
laga eru með enn stærri áform.
Ætlunin er að byggja 64 herbergja
hótel við smábátahöfnina. Rætt er
við bæjarstjórn um skipulag mið-
bæjarins og umhverfismál á svæð-
inu sem Rauðkumenn leggja mikla
áherslu á. Þá er mikilvægur
grundvöllur framkvæmdarinnar að
aukið sé við afþreyingu á Siglu-
firði. Hafa þeir lýst áhuga á að
koma að gerð nýs golfvallar í Hóls-
dal og áframhaldandi rekstur og
uppbyggingu á skíðasvæðinu í
Skarðsdal.
Hótelið verður byggt í sama stíl
og veitingahúsin og hafa sama yf-
irbragð og Síldarminjasafnið og
önnur hús á svæðinu. Það verður
að hluta til byggt á uppfyllingu og
umlukið smábátahöfn. „Það á að
vera upplifun fyrir gestina að
dvelja á hótelinu,“ segir Finnur.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Rautt, gult og blátt Líf er komið í gömlu fiskvinnsluhúsin við smábátahöfnina á Siglufirði, meðal annars veitingastaður, kaffihús og listasalur. Flestir gestir staðarins líta þar við.
Í regnbogans litum
Mikið líf er í kringum litsterku veitingahúsin við smábátahöfnina á Siglufirði Tilbúin fyrsta
sumarið sem Héðinsfjarðargöngin eru opin Rauðka með áform um byggingu hótels í höfninni
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Á bekknum Finnur Yngvi Kristinsson og Sigríður María Róbertsdóttir í góðum félagsskap í sundinu á milli Rauðku-
húsanna. Bekkurinn er orðinn einn mest ljósmyndaði hluturinn á Siglufirði og þótt víðar væri leitað.
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Nýir litir eru komnir í litróf Siglu-
fjarðar með rauðu, gulu og bláu
húsunum við smábátahöfnina. Þar
eru reknir veitingastaðir og mikið
líf í sumar, úti jafnt sem inni, þeg-
ar ferðamannastraumurinn stend-
ur sem hæst. Raunar er svæðið
orðið sjálfstæður segull fyrir
ferðafólk.
Upphafið að nýja ævintýrinu á
Siglufirði er sérstætt. Íslandsbanki
lagði niður útibú sitt og útibús-
stjórinn missti þar með vinnuna.
Róbert Guðfinnsson, athafnamaður
og Siglfirðingur, stappaði stálinu í
Hörð Júlíusson, vin sinn, sem nú
stóð á tímamótum í lífi sínu.
Nokkru seinna töluðu þeir aftur
saman og þá var Róbert búinn að
kaupa húsin við smábátahöfnina og
bað Hörð um að stjórna uppbygg-
ingunni. Hörður fórnaði höndum
og sagði að þessi hús væru svo illa
farin að best væri að rífa þau.
Hann tók þó að sér verkið sem er
að ljúka í sumar.
„Þetta hefur gengið eftir, að
mestu leyti. Bærinn hefur tekið
stakkaskiptum. Verkefnið hefur
smitað út frá sér, eins og ætlunin
var,“ segir Finnur Yngvi Krist-
insson, verkefnisstjóri hjá Rauðku.
Hann vísar til upphaflegra mark-
miða Rauðku ehf. sem stofnuð var
í ágúst 2007 en þau voru að lag-
færa landið í kringum smábáta-
höfnina og byggja þar ferðaþjón-
ustu, virkja mannauðinn á svæðinu
og hvetja aðra bæjarbúa til að
taka til hendinni.
Mikið að gera í sumar
Rauðka keypti gömul fisk-
vinnsluhús við smábátahöfnina,
hús sem höfðu átt sinn blómatíma
á síldarárunum en voru komin í
niðurníðslu. Þau voru endurbyggð
í gamla stílnum og eru nú komin í
fullan rekstur. Veitingastaðurinn
Hannes Boy var opnaður í gula
húsinu á síðasta ári og gallerí í
bláa húsinu. Kaffihús, Kaffi
Rauðka, var opnað í rauða húsinu í
sumar. Í hinum enda þess húss er
salur fyrir veislur, fundi eða tón-
leika og á efri hæðinni er koníaks-
stofa og minni salur.
Á lóðinni er aðstaða til að vera
með veitingar úti á góðviðr-
isdögum, ýmis leiktæki fyrir börn,
svið til tónleikahalds, mini-
golfvöllur og strandblakvöllur.
„Við viljum vera með afþreyingu
fyrir fjölskyldufólk og finnst hún
eiga vel heima á útisvæðinu,“ segir
Finnur. Til viðbótar nefnir hann
bát sem notaður verður til sjó-
stangaveiði og útsýnisferða.
Veitingastaðurinn Hannes Boy
fékk góðar viðtökur á síðasta ári.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Leikur Útisvæðið við veitingahúsin er fyrir alla fjölskylduna. Foreldrarnir
geta fengið sér veitingar úti eða inni og fylgst með börnunum að leik.
Morgunblaðið/Skapti
Útisvæði Iðandi mannlíf við Rauðkuhúsin.