Morgunblaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 22
ÚR BÆJARLÍFINU
Albert Eymundsson
Hornafjörður
Listasafn Hornafjarðar opnaði
nýjan sýningarsal við hátíðlega at-
höfn á dögunum. Salurinn er til húsa
í gömlu slökkvistöðinni sem öll hefur
verið endurbyggð á smekklegan
hátt. Opnunarsýningin var helguð
verkum Hornfirðingsins Svavars
Guðnasonar. Stefnt er að því að sýn-
ingar verði á verkum hans á sumrin
en yfir vetrartímann verði lögð
áhersla á fjölbreytta dagskrá inn-
lendra og erlendra listamanna.
Svavar Guðnason fór til Kaup-
mannahafnar til að forframa sig
frekar á listasviðinu og kynntist þar
konu sinni, Ástu Eiríksdóttur frá
Borgarfirði eystra. Eftir andlát
Svavars lagði Ásta mikla áherslu á
að verkum hans yrði sýndur sómi og
gaf Listasafni Hornafjarðar fjölda
verka. Jafnframt hefur safnið fengið
verk eftir Svavar að gjöf frá gömlum
vinum þeirra hjóna.
Ástustofa verður sérstakur
hluti af Listasafni Hornafjarðar. Þar
verður m.a. að finna upplýsingar um
listamanninn og munir úr eigu
þeirra Svavars og Ástu en safninu
bárust höfðinglegar g9jafir úr dán-
arbúi þeirra hjóna þegar Ásta lést
árið 2008.
Humarhátíðin heppnaðist vel
og mikið líf var í bænum þrátt fyrir
vætusama tíð. Mikið framboð var á
afþreyingu og góð aðsókn að öllum
viðburðum.
Golfklúbbur Hornafjarðar
fagnar 40 ára afmæli í ár. Af því til-
efni verður opið afmælismót helgina
12. og 13. ágúst, forgjafarmót fyrri
daginn en „Texas Scramble“ þann
seinni.
Gott atvinnuástand hefur ver-
ið í sveitarfélaginu að undanförnu
bæði til sjós og lands. Góður afli hef-
ur verið hjá flestum bátum og unnið
á vöktum allan sólarhringinn í fisk-
vinnslunni. Ferðaþjónustan eflist frá
ári til árs (þrátt fyrir hremmingar
vegna náttúruhamfara) og kallar
alltaf eftir meira vinnuafli sem kem-
ur sér vel fyrir skólafólk.
Svavarssýning og Ástustofa
Morgunblaðið/ Albert Eymundsson
Opnun safna Björg Erlingsdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Hornafjarðar, Ólöf Stefánsdóttir og Karl Ómar Jónsson.
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011
Hátíð Harmonikuunnendur koma saman.
Á morgun, sunnudag, verður hin ár-
lega harmonikuhátíð haldin í Árbæj-
arsafni. Dagskráin er að vanda veg-
leg, þar má nefna Karl Jónatansson
ásamt Neistum og stórsveit frá
Harmonikufélaginu Hljómi. Einnig
Sigurð Alfonsson, Reyni Jónasson,
Grétar Geirsson, Jónu Einarsdóttur,
Gunnar Kvaran, Hrein Vilhjálmsson
og Þór Halldórsson auk fleiri hópa
og einleikara. Dagskráin hefst kl.
13:00 og lýkur með sameiginlegum
tónleikum í lok dags.
Harmonikuhátíð
Góðgerðarfélagið „Á allra vörum“
stendur fyrir sinni fjórðu lands-
söfnun. Félagið velur árlega eitt
verkefni til að styrkja og hefur m.a.
safnað fyrir SKB, Ljósið og
Krabbameinsfélag Íslands.
Í ár beinir „Á allra vörum“ kast-
ljósinu að Neistanum og málefnum
hjartveikra barna, en um 70 börn
greinast árlega með hjartagalla.
Sérstakt hjartatæki fyrir börn á
Barnaspítala Hringsins er nú komið
til ára sinna og er veruleg vöntun á
endurnýjun. Það sé ljóst að með
endurnýjuðu tæki megi spara pen-
inga og bjarga mannslífum.
Átakið hefst þann 12. ágúst nk.
og þá með sölu á varaglossum frá
Dior. Tveir nýir litir verða í boði og
fást þeir hjá viðurkenndum Dior
snyrtivöruverslunum um land allt.
Einnig verður hægt að panta gloss
hjá Neistanum, Síðumúla 6.
Auk þess er konukvöld fyr-
irhugað í Kringlunni þann 18. ágúst
þar sem kennir ýmissa grasa. m.a.
verða tilboð í verslunum og ýmsar
kynningar auk þess sem lands-
þekktir skemmtikraftar láta sjá sig.
Átakinu lýkur svo þann 26. ágúst
með landssöfnun í sjónvarpi í beinni
útsendingu á Skjá Einum.
Morgunblaðið/Ernir
Á allra vörum Í fyrra naut Ljósið góðs af söfnuninni Á allra vörum. Þá keypti Dorrit Mo-
ussaieff fyrsta glossið og málaði varir Ernu Magnúsdóttur, forstöðumanns Ljóssins.
Landssöfnun fyrir hjartveik börn
Nú í sumar tók við ný stjórn hjá
SÍA, Samtökum íslenskra auglýs-
ingastofa.
Stjórn samtakanna er að þessu
sinni skipuð þeim Ragnari Gunn-
arssyni, framkvæmdastjóra Fiton
sem er formaður, Valgeiri Magn-
ússyni, framkvæmdastjóra Pipar/
TBWA, og Hjalta Jónssyni, fram-
kvæmdastjóra Íslensku auglýs-
ingastofunnar.
Í samtökunum eru allar stærstu
auglýsingastofur landsins og
starfa samtökin á faglegum
grunni, segir í tilkynningu frá
samtökunum.
Meðal verkefna nýrrar stjórnar
er að innleiða nýjar siðareglur
auglýsenda, en þær gömlu voru
gerðar árið 1985 og eru orðnar
úreltar.
Önnur verkefni er að halda utan
um siðanefnd, vinna með stjórn-
völdum að námsefni um auglýs-
ingalæsi ásamt því að efla fagleg-
an grunn auglýsingafagsins og
standa að árshátíð auglýsingafólks
sem er ávallt haldin í október ár
hvert, segir í tilkynningunni.
Ný stjórn hjá sam-
tökum auglýsenda
Í dag ætlar hópurinn Mako Mar í samstarfi við
verslunareigendur, veitingastaði, kaffihús, sam-
tök og aðra að standa fyrir götuveislu á göngu-
götunni við Laugaveg. Margt verður um að vera
en dagskrá hefst um hádegisbil með flóamark-
aði, en svo taka við fjölmargar uppákomur með
upplestri, harmónikuleik, salsadansi, söng og
ljóðum. Meðal listamanna sem leggja fram
krafta sína í götuveislunni eru Hugleikur Dags-
son, söngkonan Bryndís Ásmunds og gítarleik-
arinn Franz Gunnarsson, félagar í hljómsveit-
inni Ásjón og reggae-spilarar sem verða með
tónleika í Hjartagarðinum.
Götuveislan á Laugavegi er liður í tilraunaverkefninu Torg í biðstöðu á
vegum Reykjavíkurborgar sem gengur út á að endurhanna og skapa líf á
torgum og götum miðborgarinnar, segir til í fréttatilkynningu frá Reykja-
víkurborg.
Götuveisla á Laugavegi í dag
Líf og fjör á göngugötunni
við Laugaveg.
Rösklega tólf þúsund farþegar
flugu með Iceland Express frá
London Gatwick í júní síðast-
liðnum, segir í tilkynningu frá fyr-
irtækinu. Það er fimmtíu prósenta
aukning frá fyrra mánuði og fjöru-
tíu og fjögurra prósenta aukning
frá sama tíma í fyrra.
Aldrei hafa jafnmargir farþegar
flogið með Iceland Express í einum
mánuði frá London, segir enn-
fremur í tilkynningunni og er þar
vitnað til nýrrar skýrslu frá bresk-
um flugmálayfirvöldum, CAA.
Aldrei fleiri flogið
STUTT
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Til stendur að veiða makríl í gildrur
í Gunnólfsvík í Bakkaflóa. Ísfélagið
á Þórshöfn hefur fengið fimm millj-
óna króna styrk frá iðnaðarráðu-
neytinu til verkefnisins. Verkefn-
isstjórinn segir markmiðið að
framleiða verðmætari vöru úr mak-
rílnum. Styrkurinn er háður þeim
skilyrðum að hugmyndin komi til
framkvæmda. Fjölmargir veiðirétt-
hafar við Bakkaflóa hafa lýst yfir
áhyggjum af gildruverkefninu og
óttast slæm áhrif á laxagengd.
Hefur gefist vel í Kanada
„Við ætlum að kanna hvort
hægt sé að veiða makrílinn í gildrur
þegar hann er feitastur og gera
þannig meiri verðmæti úr honum,“
segir Jóhann Jónsson, verkefna-
stjóri hjá Ísfélaginu. Hann segir til-
raunir þegar hafnar en verkefnið sé
þó að mestu á hugmyndastigi.
Jóhann segir hugmyndina að
makrílveiðum í gildrur sótta til
Nova-Scotia í Kanada. Þar hafi
veiðarnar skilað góðum árangri og
gildrurnar sannað ágæti sitt.
„Gildrurnar eru ekki ólíkar loðnu-
nótum, fiskurinn syndir inn og finn-
ur svo ekki leiðina út. Svo er hann
háfaður úr gildrunni og unninn,“
segir Jóhann.
Óðinn Sigþórsson, formaður
Landsambands veiðifélaga, telur að
gildrurnar hafi slæm áhrif á laxa-
gengd á svæðinu við Bakkaflóa.
Svæðið þar sem ætlað er að koma
gildrunum fyrir sé aðalgöngusvæði
laxa í Vopnafjarðarárnar. Bæði í
Bakkafjarðará og í Þistilfjarðar-
árnar. Óhjákvæmilegt sé að lax
veiðist með í gildrurnar sem bæði
sé ólöglegt og skaðlegt fyrir laxa-
stofninn.
Veiða laxinn með af gáleysi
„Þó svo menn ætli sér að veiða
þarna makríl með þessum hætti eru
þeir í raun að nota til þess veiði-
tæki sem flokkast undir lax-
veiðitæki samkvæmt lögum um lax-
og silungsveiði og það er algjörlega
bannað að nota slíkt í sjó,“ segir
Óðinn. „Við teljum algjörlega frá-
leitt að menn velti því fyrir sér að
fara út í tilraunir af þessu tagi og
sérstaklega í ljósi þess að í þeim
reglum sem gilda um makrílveiðar
eru veiðarnar bundnar við fiski-
skip.“ Óðinn segir jafnframt engar
heimildir fyrir gildruveiðum frá
landi. Þá hafi engin leyfi verið gefin
fyrir slíku og hann hafi kannað
málið sérstaklega hjá landbúnaðar-
og sjávarútvegsráðuneytinu. „Ef
menn ætla að fara að láta reyna á
það hvort þessar tilraunir stangist
á við lögin um lax- og silungsveiði
munum við alveg hiklaust fara fram
á lögbann á þetta verkefni, því
miklir hagsmunir eru í húfi,“ segir
Óðinn. Hann segir veiðirétthafa á
svæðinu áhyggjufulla því
laxastofninn sé afar við-
kvæmur.
„Ég held að þetta
hljóti að vera gáleysi. Það
eru óvönduð vinnubrögð
hjá ráðuneytinu að veita
styrk út á verkefni
sem hefur ekki
hlotið nánari
skoðun en raun
ber vitni.“
Veiðirétthafar óttast
áhrif gildruveiða
Makríll Ísfélagið á Þórshöfn hefur hlotið styrk til að hefja makrílveiðar
með gildrum. Landsamband veiðifélaga óttast áhrif á laxastofna.
Laxveiðar í sjó hafa verið
bannaðar frá árinu 1932. Óð-
inn Sigþórsson, formaður
Landssambands veiðifélaga,
telur að laxveiðilögin komi í
veg fyrir að hægt sé að veiða
makríl í gildrur því lax muni
slæðast með. Jóhann Jónsson,
hjá Ísfélaginu, hefur litlar
áhyggjur af því. „Það er nú
það jákvæða við gildrurnar að
allur sá fiskur sem kemur í
þær er geymdur lifandi og
er lifandi þegar hannkemur
úr gildrunni. Við getum því
sleppt honum aftur ólíkt
öðrum veiðarfærum sem
drepa fiskinn svo menn skulu
hafa það í huga þegar þeir
segja gildrurnar hættu-
legar.“
Segir lögin
banna gildrur
UMDEILDAR GILDRUR
Óðinn
Sigþórsson