Morgunblaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það er mikilvægt að óttinn taki ekki völd.
Ofbeldisverk munu ekki hræða okkur frá því að
sinna daglegum verkum,“ sagði Jens Stoltenberg,
forsætisráðherra Noregs, í samtali við norska
sjónvarpið, NRK, þegar norska þjóðin var enn í
losti vegna mannskæðra ódæðisverka í gær.
Atburðarásin hófst með sprengjuárás á skrif-
stofur lykilráðuneyta í miðborg Ósló. Minnst sjö
týndu lífi í sprengingunni og fjöldi fólks slasaðist.
Aðdragandinn var sá að bifreið var ekið að
skrifstofum ráðuneyta. Er ekki vitað hver eða
hverjir óku bifreiðinni og komu sprengiefninu
þannig fyrir né hversu margir voru að verki.
Sami maður talinn hafa verið á ferðinni
Sjúkraliðar voru enn að hlúa að slösuðum
þegar maður íklæddur lögreglubúningi hóf skot-
hríð á eyjunni Utøya, vestur af Ósló. Sást sami
maður á vettvangi í Ósló fyrr um daginn.
Kvaðst ódæðismaðurinn eiga það erindi í eyj-
una að þurfa að kanna aðstæður þar vegna árás-
arinnar í Ósló. Var hann því ferjaður yfir sundið.
Fram kemur í norskum fjölmiðlum að maður-
inn sé norrænn í útliti og telur norska lögreglan að
hann tengist sprengjuárásinni í Ósló. Var haft eft-
ir sjónarvotti á norskum fréttasíðum að á milli 20
og 30 hefðu fallið í valinn. Var það óstaðfest.
Gærdagurinn var frídagur í Noregi og voru
því færri að vinnu í ráðuneytunum en ella. Margir
voru þó á ferli enda árásin gerð á annatíma í viku-
lok þegar margir eiga erindi á svæðið. Gríðarleg
öryggisgæsla var í Ósló og hvatti Stoltenberg al-
menning til að halda sig frá miðborginni.
Reuters
Árás Ráðuneyti olíumála skemmdist mikið í sprengingunni, líkt og sautján hæða skrifstofuturn ýmissa ráðuneyta handan götunnar.
Óttinn taki ekki völd
Forsætisráðherra Noregs stappar stálinu í landsmenn eftir mannskæðar árásir
Óttast að allt að 30 hafi fallið í skotárás á Utøya Sjö féllu í sprengjuárás í Ósló
Ungliðar í Verkamannaflokknum
höfðu komið saman til fundar um
helgina á eyjunni Utøya þegar
ódæðismanninn bar að garði í gær.
Margir voru á baðfötum þegar
skothríðin hófst og flúðu sem fætur
toguðu þegar byssuhvellir rufu
kyrrðina. Földu sumir sig á bak við
trjágróður, aðrir fóru upp í hlíðar.
Er óttast að fólk hafi drukknað er
það stakk sér til sunds á flótta.
Árásarmaðurinn var ferjaður út í
eyjuna á báti á vegum ungliðahreyf-
ingar Verkamannaflokksins, flokks
Jens Stoltenbergs forsætisráðherra,
að sögn ungliða sem ræddi við frétta-
vef Verdens Gang.
Hávaxinn og ljóshærður
Sagði þar jafnframt að sjónvarps-
stöðin TV2 hefði eftir sjónarvottum
að ódæðismaðurinn væri um 1,90
metrar á hæð og með stutt, ljóst hár.
Þá sagði ungliðinn Brænden Mort-
ensen í samtali við vef Verdens Gang
að ódæðismaðurinn hefði talað mál-
lýsku frá austurhluta Noregs. Kom
jafnframt fram á vef Aftenposten að
hann væri 32 ára.
Byssumaðurinn er nú í haldi
norsku lögreglunnar og sagði tals-
maður hennar handtökuna ekki
mundu hafa nein áhrif á viðbún-
aðarstig vegna árásanna.
Stoltenberg var færður í öruggt
skjól en næturstaður hans var ekki
gefinn upp. Staðfest var að ráðherrar
ríkisstjórnarinnar væru allir óhultir.
Reuters
Ástæða tímasetningar? Slegið var
upp tjaldborg á eyjunni fyrir helgi.
Skelfingu
lostin
ungmenni
Flúðu undan byssu-
manninum á Utøya
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skynja mátti undrun og depurð í
röddum þeirra Norðmanna sem
blaðamaður ræddi við símleiðis í
gær. Hafði þá nýlega verið staðfest
að um árás hefði verið að ræða í Ósló.
Það var hins vegar ekki ljóst hver
var að verki og vildu viðmælendurn-
ir, sem allir eru búsettir í Ósló, því
stíga varlega til jarðar í vangaveltum
um orsakir og tildrög hermdarverks-
ins. Var umfang ódæðisins í Utøya
ekki ljóst þegar viðtölin fóru fram.
Upplifðu tómleikatilfinningu
Lars Kristian Solem, blaðamaður
hjá viðskiptablaðinu Dagens Nær-
ingsliv í Ósló, horfði á reyk stíga upp
hjá ráðuneytunum í miðborginni.
Solem, sem nýverið söðlaði um eft-
ir störf fyrir Verdens Gang, dag-
blaðsins sem fór illa út úr árásinni,
segir ritstjórn Dagens Næringsliv
hafa fundið fyrir miklum tómleika
þegar þeir uppgötvuðu að spreng-
ingin hefði verið af mannavöldum.
„Þetta er gríðarlegt áfall fyrir
Norðmenn. Við höfum ekki upplifað
neitt þessu líkt síðan 1940,“ segir
Solem og á með því við árið sem
nasistar hertóku Noreg.
Thomas Vermes, blaðamaður hjá
ABC Nyheter, var nýkominn til
borgarinnar úr utanferð þegar drun-
ur heyrðust í höfuðborginni.
Vermes, sem á reglulega erindi í
stjórnarbyggingarnar sem skemmd-
ust, segir atburðinn ekki munu víkja
úr huga íbúa Ósló.
Mun hafa áhrif á daglegt líf
„Atburðurinn mun setja mark sitt
á daglegt líf. Á þessari stundu hefur
þó enginn hugann við það. Hugurinn
er hjá fólkinu sem týndi lífi,“ segir
Vermes sem svarar því síðan að-
spurður til, að of snemmt sé að ræða
hvaða áhrif árásin kunni að hafa á
hugmyndir Norðmanna um sjálfa sig
og stöðu sína í heiminum. Hann
hugsar sig um og segir svo:
„Við lítum á okkur sem friðsama
þjóð en tökum á þessari stundu þátt í
hernaði í tveimur löndum, í Afganist-
an og í Líbíu. Árásin kann að vekja
umræður um hvort Norðmenn eigi
að standa utan vopnaðra átaka. Það
er ljóst að við stöndum ekki lengur á
hliðarlínunni. En það kann líka að
bera á því sjónarmiði að við eigum
ekki að láta undan gagnvart hryðju-
verkaöflum,“ segir hann.
Leiv Lunde, sérfræðingur í
norska utanríkisráðuneytinu, er
meðhöfundur nýlegrar bókar,
Norske interesser, um hagsmuni
Noregs á alþjóðavettvangi.
Lunde, sem var í leyfi, sagði
ótímabært að ræða hvaða áhrif árás-
in muni hafa á umræður um alþjóða-
mál í Noregi. Hann staðfesti svo að
þetta væri eina dæmið um árás á
norskri grundu síðan nasistar gengu
á land fyrir rúmum 70 árum. Engin
dæmi væru um hryðjuverkaárás á
norskri grund á tímabilinu.
Helge Ryggvik, sérfræðingur í
hagsögu við Háskólann í Ósló, þekk-
ir vel til í norska olíuráðuneytinu, en
það er við hlið forsætisráðuneytisins,
sem fór hvað verst út úr sprenging-
unni. Hann telur einsýnt að öryggis-
viðbúnaður verði hertur og að göt-
unni sem ódæðismaðurinn eða
-mennirnir notuðu til að aka að skot-
marki sínu verði að líkindum lokað.
Ekki tengt við olíuiðnaðinn
Spurður hvort einhver hefði léð
máls á því að árásin gæti tengst um-
svifum Norðmanna í olíuiðnaðinum
svaraði Ryggvik því til að hann hefði
ekki heyrt af slíkum vangaveltum.
Svo vill til að Ryggvik flutti í
fyrradag fyrirlestur á Utøya, eyj-
unni þar sem skotárásin var gerð.
Árásin á eyjunni sé mjög táknræn
sem árás á norsku ríkisstjórnina,
enda komi forystumenn þjóðarinnar
þar gjarnan við. Spurður um áhrifin
af árásunum á norska þjóðarvitund
segir Ryggvik að Norðmenn muni
nú fá áþreifanlega mynd af þátttöku
landsins í baráttunni gegn hryðju-
verkum. Hann nefnir svo virka þátt-
töku Norðmanna í loftárásum í Líb-
íu.
„Gríðarlegt áfall fyrir Norðmenn“
Ritstjórn Dagens Næringsliv horfði á reykinn stíga frá ráðuneytunum Blaðamaður hjá ABC
Nyheter telur ódæðin munu leiða til umræðna um utanríkisstefnuna Sérfræðingar meta áhrifin
Reuters
Til hjálpar Vegfarandi hlúir að konu sem særðist í árásinni í Ósló.