Morgunblaðið - 02.08.2011, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011
SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA
Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á
sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan.
Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur
sínum náttúrulega lit.
GERUM SÓLPALLINN
EINS OG NÝJAN
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
S: 897 2225
FRÉTTASKÝRING
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Langisjór hefur verið friðlýstur og
er orðinn hluti af Vatnajökulsþjóð-
garði, ásamt norðausturhluta
Eldgjár og svæðinu í kringum vatn-
ið, eins og Fögrufjöllum, Græna-
fjallgarði og upptökum Skaftár á
svæðinu suður að Lakagígum.
Umrædd friðlýsing var stærsta
kosningamálið í Skaftárhreppi í síð-
ustu kosningum, vorið 2010. Þá var
Jóna Sigurbjartsdóttir oddviti
hreppsins og rétt fyrir kosningar
var aðalskipulag tilbúið frá Skipu-
lagsstofnun til að fara í auglýsingu.
Samkvæmt því skipulagi átti miklu
meira svæði að fara undir þjóð-
garðinn en raunin er með friðlýs-
ingunni.
Guðmundur Ingi Ingason leiddi
N-listann gegn lista Jónu, L-listan-
um og vildi minnka svæðið til að
halda virkjanamöguleikum opnum
á svæðinu. Suðurorka hefur meðal
annars fengið rannsóknarleyfi til
að athuga möguleika á Búlands-
virkjun. Fulltrúar Suðurorku hafa
lýst yfir vilja til að fjárfesta fyrir
um 36 milljarða króna í Skaftár-
hreppi vegna virkjanaframkvæmd-
anna.
Vildu minna svæði
N-listinn með Guðmund Inga í
fararbroddi vann kosningarnar og
aðalskipulaginu var breytt í fram-
haldinu. En að sögn Jónu Sigur-
bjartsdóttur er samt sátt um nið-
urstöðuna. „Já, meirihluti
hreppsins vildi þessa niðurstöðu og
eftir að það varð ljóst gengum við í
samstarf við N-listann og komumst
að sameiginlegri niðurstöðu um
breytingar á aðalskipulaginu. Við
erum ánægð með að þetta svæði
hafi verið fært inn í þjóðgarðinn,
þótt upphaflegu tillögurnar okkar
hafi verið að svæðið yrði stærra,“
segir Jóna í samtali við Morgun-
blaðið. „Það skiptir máli að það sé
sátt í svona litlu samfélagi eins og
okkar og að fólk nái málamiðlun-
um,“ segir hún.
Guðmundur Ingi Ingason, odd-
viti Skaftárhrepps, ítrekar sáttina
sem náðist milli fólks í hreppnum.
Hann bætir við að hreppurinn sé
ansi stórt sveitarfélag. „En það er
engin stór virkjun á okkar svæði.
Það myndi skapa okkur mikla at-
vinnumöguleika ef hér yrði virkjað.
Ég vil líka benda á að með þessu
samkomulagi eru virkjanahug-
myndirnar komnar miklu neðar og
mun lengra frá Langasjó en var,“
segir Guðmundur Ingi.
Staðan hjá Suðurorku
Þess má geta að nýlega kom út
skýrsla um rammaáætlun en
fulltrúar Suðurorku voru ósáttir við
vinnubrögðin sem viðhöfð voru við
gerð áætlunarinnar og fannst til
dæmis ekkert tillit tekið til stærðar
virkjunarkostsins, hagkvæmni og
loftmengunar. Suðurorka hefur
haft hugmyndir um gerð 150 MW
virkjunar í Skaftárhreppi sem
nefnd yrði Búlandsvirkjun. Fyrir-
tækið hefur keypt rannsóknargögn
Landsvirkjunar á svæðinu og
vatnsréttindi af mörgum landeig-
endum, en alls ekki öllum. Sumir
landeigenda hafa lýst því yfir að
þeir muni ekki selja þeim land sitt.
Búlandsvirkjun verður
reist lengra frá Langasjó
Valkostir fyrir friðlýst svæði
Tillaga
S
kaftafell
S
kaftafell
La
ka
gí
ga
r
La
ka
gí
ga
r
Mýrd
als-
jöku
ll
Mýrd
als-
jöku
ll
Friðland að
Fjallabaki
La
ng
isj
ór
La
ng
isj
ór
VatnajökullVatnajökull
Skælinga
r Skælinga
r
Eldgjá Eldgj
á
Friðland að
Fjallabaki
Vatnajökuls þjóðgarður Friðað svæði Sveitafélagsmörk
Samþykkt
Morgunblaðið/RAX
Langisjór Fráfarandi stjórn Skaftárhrepps hafði lagt til að stærra land-
svæði færi undir þjóðgarðinn, en hún beið ósigur í kosningunum í fyrra.
Samanburður Vinstra megin er tillagan frá 2010 um svæði sem ætti að fara undir Vatnajökulsþjóðgarðinn. Sátt
náðist um að svæðið á kortinu hægra megin færi undir þjóðgarðinn og nemur stækkun garðsins 435 ferkílómetrum.
Sátt náðist um aðaldeilumálið í kosningunum vorið 2010 í Skaftárhreppi
Stórmeistarinn
Hannes Hlífar
Stefánsson hlaut
7 vinninga og
endaði í 2.-5. sæti
á opna tékk-
neska meist-
aramótinu,
Czech Open, sem
lauk um helgina
en Hannes er búsettur í Tékklandi.
Hann tapaði fyrir úkraínska stór-
meistarann Dmitry Kononenko í ní-
undu og síðustu umferð. Kono-
nenko sigraði á mótinu en hann
hlaut 7,5 vinninga. Árangur Hann-
esar samsvaraði 2.689 skákstigum
og hækkar um 16 stig fyrir frammi-
stöðu sína.
Í tilkynningu frá Skáksambandi
Íslands segir að slíkur árangur, þ.e.
meira en 2.670 stig, tryggi Hannesi
keppnisrétt fyrir Íslands hönd á
Evrópumeistaramóti einstaklinga
að ári ásamt Íslandsmeistaranum
Héðni Steingrímssyni.
Hannes Hlífar
tryggði sér þátt-
tökurétt á EM 2012
Alþjóðlegt skátamót, World Scout
Jamboree, er nú í fullum gangi í
Kristianstad í Svíþjóð. 38 þúsund
ungmenni á aldrinum 14-18 ára
sækja mótið og þar af eru 275 frá
Íslandi.
„Það hefur gengið glimrandi vel,
það er ekki hægt að segja annað,“
segir Jakob Guðnason, upplýsinga-
fulltrúi íslenska skátahópsins.
„Flestir ef ekki allir segjast hafa átt
viku lífs síns sem gleymist seint.“
Krakkarnir hafa tekið þátt í dag-
skrá sem kallast skátamót innan
skátamóts og þá fara þeir út af
svæðinu og fara á minna skátamót
þar sem eru 100-150 manns. Ein
sveitin fór t.d. til Noregs í fyrradag
og hafði rosalega gaman af því.“
Ljósmynd/skátar.is
Tjaldað Einn leikjanna sem íslensku skátarnir hafa farið í fólst í því að
prófa að tjalda með bundið fyrir augun. Vakti það mikla kátínu.
Frábær
skemmtun
hjá skátum
Snorri Baldursson þjóðgarðs-
vörður í Vatnajökulsþjóðgarð-
inum segir að þau séu mjög
ánægð með þessa viðbót við
þjóðgarðinn. „Upphaflega
hugmyndin var að öll þjóð-
lenda Skaftárhrepps færi und-
ir þjóðgarðinn,“ segir Snorri,
„en við erum voðalega ánægð
með það sem þó kom. Langi-
sjór, Eldgjá, Skælingar og
svæðið milli Lakagíga og
Skaftár eru ótrúlega mögnuð
svæði, bæði mjög lítið snortin
af mannavöldum og mjög sér-
stakt landslag, með þessum
svörtu söndum og mosavöxnu
fjöllum. Þetta er virkasti hluti
gosbeltisins sem gengur í
gegnum Ísland. Þarna hafa
verið þau fjögur risagos á
sögutíma sem engin önnur
komast nálægt: Vatnaöldu-
gosið, Eldgjárgosið, Veiði-
vatnagosið og Skaftáreldar í
Lakagígum, segir Snorri.
Mikil verð-
mæti vernduð
ÞJÓÐGARÐURINN
Kona slasaðist á ökkla við það að
detta í Esjunni í gær. Björg-
unarsveitir og Slökkviliðið á höf-
uðborgarsvæðinu komu konunni til
bjargar og var hún borin niður af
fjallinu og flutt á slysadeild Land-
spítalans. Samkvæmt upplýsingum
frá björgunarmönnum virtist um
minniháttar meiðsli að ræða en
konan var líklegast ekki brotin.
Esjan Björgunarmenn sóttu slasaða konu.
Kona slasaðist á
göngu í Esjunni
Rennslið tæpir 400
rúmmetrar í Skaftá
Enn hækkar vatn í Skaftá en
rennslið var tæpir 400 rúmmetrar á
sekúndu um miðnætti í gærkvöldi
og hafði rennslið verið að aukast.
Að sögn sérfræðings á Veðurstof-
unni er þetta lítið vatnsmagn og
ekki meira en sést í vorleysingum.
Ekki verði hægt að tala um stórt
hlaup fyrr en vatnsmagnið fer yfir
þúsund rúmmetra á sekúndu.
„Þetta er hægt og sígandi að
vaxa en þetta er voðalega lítið vatn
í sjálfu sér. Þetta er lítið hlaup en
maður veit aldrei hvernig fram-
haldið er á því. Það lítur út fyrir að
þessi hægi stígandi gæti verið
áfram í nokkra daga.“ mep@mbl.is