Morgunblaðið - 02.08.2011, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.08.2011, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. Bílar Saab 9-3 1/2007 Ekinn 47 þús. km. Leður. Sjálfskiptur. 16” álfelgur. Flottur og traustur bíll fyrir lágt verð. Aðeins 2.890 þús. www.sparibill.is Fiskislóð 16 - sími 577 3344. Opið 12-18 virka daga. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, 4WD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Snorri Bjarnason BMW 116i. 8921451/5574975. Visa/Euro. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '11. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Sumarhús ROTÞRÆR OG VATNSGEYMAR Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir - réttar lausnir. Vatnsgeymar frá 300 til 50.000 lítra. Lindarbrunnar. Borgarplast.is Mosfellsbæ, s. 561 2211. Lyngborgir.is. Sumarhúsalóðir Til sölu eignarlóðir í Grímsnesi. Stærðir 5800 m² - 8700 m² gott verð. 75 km frá Rvík. Uppl. í s. 862 9626 - 868 3592 - lyngborgir.is. Opel Astra station sjálfskiptur Til sölu Opel Astra G 1998, station, sjálfskiptur, dráttark., ekinn 212 þ. km, nýleg tímareim, nýsk. 2012, góður bíll. Verð 330 þúsund staðgreitt. Upplýsingar í síma 820 4640. Veitingastaðir HUMARHLAÐBORÐ Humarhlaðborð á Hafinu Bláa öll kvöld frá kl. 18.00 - 21.00. Aðeins 35 min frá Reykjavík. Við Óseyrarbrú, milli Þorlákshafnar og Eyrarbakka Borðapantanir í síma 483 1000 og www.hafidblaa.is Bílaþjónusta Til sölu Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ódýrari, öll hylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is, Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517-0150. Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is ✝ Bjarney Sigríð-ur Guðmunds- dóttir fæddist í Hælavík á Horn- ströndum 14. ágúst 1918 en ólst upp á Búðum í Hlöðuvík. Hún lést á Drop- laugarstöðum við Snorrabraut í Reykjavík 15. júlí 2011. Hún flutti til Reykjavíkur tvítug að aldri og bjó þar og ól sín sex börn. Foreldrar hennar voru Guðmundur Jón Guðnason frá Hælavík, f. 11.11. 1890, d. 8.12. 1972, og Jóhanna Bjarnadóttir frá Neðri-Miðvík í Aðalvík, f. 21.8. 1891, d. 12.11. 1980. Systkini Bjarneyjar eru Guð- rún Soffía Guðmundsdóttir, tví- buri við Bjarneyju, f. 15.8. 1918, d. 26.9. 2006, Kristjana Ólavía Guð- mundsdóttir, f. 29.8. 1920, d. 14.7. 1930, Kjartan Hafsteinn Guð- mundsson, f. 18.6. 1923, býr á vík, f. 22.10. 1952 og eiga þau Bjarneyju Sigrúnu, f. 22.5. 1973, Sigurð Karl, f. 15.11. 1975 og Sæv- ar Baldur, f. 25.7. 1990 og þrjú barnabörn. Sigurbjörg Guðrún, f. 10.8. 1949, maki Snæbjörn Óli Ágústsson, f. 23. maí 1940 og eiga þau Ágúst Alfreð, f. 30.11. 1971, Ingvar Jóhann, f. 16.7. 1975 og fjögur barnabörn. Jóhann Sig- urður, f. 8.9. 1953 sem á Olgu Sig- ríði, f. 31.5. 1975, Bryndísi Erlu, f. 2.12. 1976 og fimm barnabörn. Móðir Olgu og Bryndísar er Jó- hanna Olga Björnsdóttir, f. 20.2. 1957, d. 20.10. 2006. Kristinn Bjarni, f. 16.11. 1956, maki Auður Hreinsdóttir úr Kópavogi, f. 15.10. 1955 og eiga þau Guðrúnu Ósk, f. 1.5. 1976, Írisi Hrönn, f. 3.9. 1979, Kristínu Dögg, f. 28.12. 1983, Hrein Ágúst, f. 11.7. 1990 og tvö barnabörn. Þorsteinn Heiðar, f. 18.11. 1960, maki Sigríður Erna Hafsteinsdóttir og eiga þau Ernu Björk, f. 1.2. 1990, Daníel Arnar, f. 25.9. 1996, Kristbjörgu Elínu, f. 22.2. 1999 og fósturson Þorsteins og son Sigríðar, Brynjar Ágúst Snædal Agnarsson, f. 15.2. 1979 og eitt barnabarn. Bjarney verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju í dag, 2. ágúst 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Akranesi, og Herdís Salbjörg Guðmunds- dóttir, f. 3.9. 1929, búsett á Húsavík. Bjarney giftist 29. maí 1943 Ögmundi Ingvari Þorsteins- syni, verkamanni í Reykjavík, f. í Gísl- holti, Holtahreppi 29.12. 1919, d. 12.5. 2002, sonur hjónanna Þorsteins Brynjólfs- sonar frá Mykjunesi, Holtahreppi, f. 29.7. 1887, d. 2.11. 1957 og Sól- borgar Guðjónsdóttur, f. 11.6. 1893 að Kaldbak í Hrunamanna- hreppi, d. 5.8. 1978. Bjarney og Ögmundur eignuðust sex börn sem öll lifa móður sína. Þau eru: Kristján Ágúst, f. 28.8. 1943, maki Elín Þórjónsdóttir frá Ólafsvík, f. 17.7. 1946 og eiga þau Sigurð Kára, f. 9.5 1973 og Hafrúnu, f. 20.11. 1979 og eitt barnabarn. Lúðvík Baldur, f. 11.12. 1947, maki Guðrún Sigurðardóttir frá Reykja- Elsku mamma, það er með söknuði sem ég kveð þig. Um leið rifjast upp allar þær ótrúlegu gleðistundir sem við áttum saman í gegnum árin og allt það sem þú kenndir mér í leik og starfi. Sum- ar stundir eru minnisstæðari en aðrar eins og gerist og gengur í lífi voru. Nú þegar leiðir skilur fyrir fullt og allt er svo margt sem bregður fyrir í hugskoti manns frá uppvaxtarárunum sem gaman væri að segja frá. Okkar samband var sterkt og einlægt. Það var ótrúleg elja og jafnað- argeð sem einkenndi þig, elsku mamma, þegar við krakkarnir vorum að alast upp í faðmi þínum og nutum við þess til hins ýtrasta á meðan þú hafðir taumhald á okkur gemlingunum. Það var ekki og verður ekki einfalt né létt að ala upp sex börn við afar kröpp kjör og á tímum þegar litla at- vinnu var að hafa fyrir verkafólk og húsnæðisekla ríkti í höfuð- borginni í þokkabót. Þegar horft er til baka og þeir tímar skoðaðir í samanburði við nútímann getur maður ekki annað en dáðst að þér og öllu því sem þú áorkaðir. Sú djúpstæða réttlætiskennd sem einkenndi þig alla tíð mun fylgja minningu þinni um ókomna tíð og erum við systkinin afar stolt af þér fyrir það eitt. Ég tel að þú hafir öðlast þessa sterku réttlætis- og samkennd sem fylgt hefur þér alla tíð strax í æsku þegar þú tókst að þér, ung að árum, að sinna þinni lömuðu systur Kristjönu sem gat ekki tjáð sig en hún lést 10 ára gömul og þú þá við dánarbeðið. Okkur er sagt að einmitt þú ein hafir náð ótrú- legum samskiptum við hana með augunum einum. Þetta fannst mér ég einnig hafa upplifað með þér rétt fyrir andlátið þegar þú gast ekki tjáð þig nema með aug- unum. Þegar þú kvaddir þennan heim kom upp í huga mér hið yndislega ljóð Davíðs Stefánssonar sem mér fannst svo eiga vel við þig en þar segir í fyrsta erindi: Ef sérð þú gamla konu, þá minnstu móður þinnar, sem mildast átti hjartað og þyngstu störfin vann og fórnaði þér kröftum og fegurð æsku sinnar og fræddi þig um lífið og gerði úr þér mann. Þessar línur eiga einstaklega vel við þegar horft er til baka því mildast áttir þú hjartað og vannst hörðum höndum við að koma okk- ur systkinunum til manns sem þú getur svo sannanlega verið stolt af. Eitt af þínum einkennum sem ég mat mikils var þinn einstaki eiginleiki að skipta þér ekki af hlutum sem þér komu ekki við enn varst alltaf tilbúin að aðstoða væri þess óskað. Því má segja að Æðruleysisbænin hafi átt vel við þig því þér var greinilega gefið það æðruleysi að sætta þig við það sem þú fékkst ekki breytt en um leið kjark til að breyta því sem þú gast breytt. Mamma var sterk kona, kvart- aði aldrei og lét sig hafa það sem í boði var. Hún var einstaklega fé- lagslynd og starfaði af krafti fyrir verkalýðssamtökin og gekk svo langt að fara í framboð til þing- kosninga árið 1987. Hún var mikil hannyrðakona og naut þess að skapa. Hún var öflugur brige-spil- ari og skákmaður, vann oft til verðlauna. Megir þú hvíla í friði, elsku mamma, um leið og ég þakka þér allt það góða sem þú veittir mér. Lúðvík B. Ögmundsson. Í dag kveð ég hana ömmu mína. Eyju ömmu sem ég minnist með miklum hlýhug, þakklæti fyrir all- ar góðu stundirnar sem við áttum saman og fyrir allt það uppbyggi- lega og góða sem hún kenndi mér. Ég var mikið hjá henni ömmu minni þegar ég var yngri, sérstak- lega þegar ég var barn. Þó svo að hún og afi hafi búið við þröngan kost og aldrei haft mikið umleikis vorum við systkinin alltaf velkom- in til hennar. Hún tók okkur opn- um örmum og hjá henni skorti okkur aldrei neitt. Við amma eyddum heilu og hálfu dögunum við að spila hvort við annað. Hún kenndi mér að spila og líka að tefla. Það tók mig mörg ár að máta þá gömlu, enda var hún býsna lunkin í skákinni. Hún amma mín lifði tímana tvenna. Lífshlaup hennar var erf- itt. Hún fékk aldrei neitt upp í hendurnar og þurfti, held ég, að mörgu leyti að hafa meira fyrir líf- inu en flestir aðrir. Það markaði allt hennar líf að hafa fæðst og al- ist upp norður á Hornströndum þar sem lífsbaráttan var harðari en víðast hvar á Íslandi, einkum á vetrum. Hún sagði mér oft sögur af því hvernig lífið á Hornströnd- um var þegar hún var ung og hversu erfitt það var. Ég sé alltaf eftir því að hafa aldrei skrásett þessar sögur, einkum eftir að hún fór að gleyma. En ég held að sög- urnar og lýsingar hennar á því sem hún þurfti að ganga í gegnum hafi haft mikil og góð áhrif á mitt eigið gildismat. Ömmu minnar biðu heldur eng- ar vellystingar þegar hún flutti suður. Lífið var ekki samfelldur dans á rósum á Grímsstaðaholtinu á árunum eftir stríð og heldur ekki í verkamannabústöðunum í Breiðholtinu síðar. Það var erfitt. En hún kvartaði aldrei. Hún var stolt af sínu. Hún var stolt af störfum sínum, bæði af ævistarfi sínu sem verkakona og ekki síður störfum sínum í þágu Verka- kvennafélagsins Sóknar. Hún stóð með sínu fólki og skeytti aldr- ei skapi sínu á neinum, sama hvað gekk á, þó oft hafi hún haft tilefni til. Ég sá hana aldrei reiðast. Við amma vorum sammála um flest, en ekki allt. Hún talaði vel um alla nema íhaldsmenn. Á íhaldinu hafði hún litlar mætur. Hún var hrifnari af Guðmundi jaka og þeim. Af þeim ástæðum gerðum við amma með okkur þegjandi samkomulag um að tala ekki um stjórnmál eftir að ég gekk í Sjálfstæðisflokkinn. Það samkomulag héldum við alla tíð. Eyja amma mín var alla tíð glaðlynd, hlý og góð. Hjá henni var óskaplega gott að vera. Ég kveð hana ömmu með mikl- um hlýhug og söknuði. Mér þótti þá og þykir enn afar vænt um hana og ég þakka henni fyrir allt sem hún hefur fyrir mig gert. Guð blessi minningu ömmu minnar. Sigurður Kári Kristjánsson. Mig langar í nokkrum orðum að minnast Bjarneyjar Guð- mundsdóttur, sem í dag verður borin til hinstu hvílu. Kynni okkar Bjarneyjar liggja til áranna upp úr 1970 þegar ég er að stíga mín fyrstu skref innan verkalýðshreyf- ingarinnar, en hún hafði þá þegar nokkra reynslu af faglegu starfi innan Starfsstúlknafélagsins Sókn- ar í stjórn og trúnaðarráði og einn- ig sem trúnaðarmaður á sínum vinnustað, Landakoti. Bjarney hafði sterka réttlætis- kennd og var ávallt reiðubúin að miðla af reynslu sinni sem var all- nokkur og gott fyrir ungan mann að fá innsýn í þann reynsluheim. Ég var nokkuð ósveigjanlegur í skoðunum á þessum tíma, en Bjarney hafði sérstakt lag á að ræða málin við menn eins og mig, þótt hún væri ekki endilega sam- mála í einu og öllu. Á þessum tíma vissi ég ekki um skyldleika okkar Bjarneyjar í gegnum Hælavík- urættina, en ekki leið á löngu áður en hún fræddi mig um þau mál. Bjarney var dóttir Guðmundar Guðnasonar, sem var bróðir ömmu minnar, Ingibjargar Guðnadóttur. Tvíbýlið á Búðum í Hlöðuvík var myndað af þessum tveimur fjöl- skyldum, þ.e. Ingibjörgu ömmu og Guðlaugi afa annarsvegar og Guð- mundi Guðnasyni og Jóhönnu Bjarnadóttir hinsvegar. Var þetta tvíbýli barnmikið samfélag og stóð saman af 12 börnum. Bjarney Guð- mundsdóttir var eitt af þessum börnum og elst sinna systkina sem voru 5, en börn ömmu og Guðlaugs voru 7. Er þar þó ekki talinn með Þórleifur Bjarnason, sem var fyrsta barn ömmu, en utan hjóna- bands. Eftir að faðir minn Hallvarður tók að byggja sumarhús í Hlöðuvík, Búðabæ, 1977 tók ég að tengjast þessu svæði nánari böndum í gegn- um leiðsögn í Hornstrandaferðum fyrir Ferðafélag Íslands. Í gegnum slíka ferðamennsku kynntist ég síðan syni Bjarneyjar, Lúðvík Baldri sem fór með mér í margar langar og strangar Hornstranda- ferðir á tímabilinu frá 1995 til 2000. Eftir að við Lúðvík urðum eig- endur að húseignunum í Hlöðu- vík, ásamt fleiri frændum okkar úr Hælavíkurættinni, urðu tengsl okkar nánari. Einn stærsti vettvangurinn í kynnum okkar Bjarneyjar var Félagsmálaskóli alþýðu sem starfræktur var í Ölfusborgum frá 1976. Það var Menningar- og fræðslusamband alþýðu – MFA sem setti skólann á laggirnar. Í Félagsmálaskólanum náðum við Bjarney góðum tengslum, enda skólinn merkileg nýjung og fram- sækin tilraun í alþýðufræðslu. Kennsluhættir byggðust á miklu hópstarfi og umræðum. Sem dæmi má nefna að meðal kennslu- greina var sk. hópefli, sem á þeim tíma þótti mikil nýjung og afar framsækið. Næsta ár 1977 var svo skipu- lögð önnur önn og aftur mættum við Bjarney galvösk til leiks. Þátt- takan í Félagsmálaskólanum varð mér mikilvæg fyrir starf mitt innan Dagsbrúnar. Sama hygg ég að hafi gilt um Bjarneyju og hennar starf innan Starfs- stúlknafélagsins Sóknar, enda hefur hún sjálf sagt að Félags- málaskólinn hafi skipt sig miklu máli. Að lokum vil ég votta aðstand- endum mína dýpstu samúð og ég veit að minningin um góða konu mun lifa í vitund þeirra. Guðmundur J. Hallvarðsson. Bjarneyjar minnist ég með þakklæti og hlýhug. Leiðir Bjarneyjar og móður minnar, Jóhönnu Thorlacius, lágu saman á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum fyrir nokkr- um árum. Við borðið þeirra á þriðju hæðinni spiluðu þær á spil og spjölluðu. Alltaf brosti Bjarn- ey, þegar litið var inn, ætíð glöð. Bjarneyjar minnist ég fyrir frið og kyrrláta gleði sem um hana lék. Blessuð sé minning þín, Bjarney. Guðmundur Hannesson. Bjarney Sigríður Guðmundsdóttir Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEINAR GUÐMUNDSSON Lindargötu 57, Reykjavík andaðist á Elliheimilinu Grund 1. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Anna Steinarsdóttir, Gísli Snorrason, Magnús Steinarsson, Eygló Guðjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.