Morgunblaðið - 02.08.2011, Page 24

Morgunblaðið - 02.08.2011, Page 24
✝ Egill JónassonStardal, cand. mag., framhalds- skólakennari, fæddist í Stardal á Kjalarnesi 14. sept- ember 1926 og lést 23. júlí 2011 á Landspítalanum, Fossvogi. Hann var elsti sonur hjónanna í Stardal, Jónasar Magn- ússonar, bónda og vegaverk- stjóra, f. 24. júlí 1890, d. 12. ágúst 1970, og Kristrúnar Ey- vindsdóttur, f. 11. apríl 1895, d. 20. mars 1974. Systkini Egils voru: Ágústa, hjúkrunarfræð- ingur, f. 8. mars 1915, d. 25. maí 1972; Magnús, búfræðingur og bóndi í Stardal, f. 11. mars 1928; Eyvindur vegaverkstjóri, f. 30. desember 1930, d. 25. mars 2005. Auk þeirra eigin barna voru fleiri börn í fóstri hjá Stardalshjónunum um lengri og skemmri tíma, þar á meðal bróðurdóttir Jónasar, Sigríður Sigurðardóttir, f. 2. júlí 1933, d. 19. ágúst 2009, sem Stardalshjónin ólu upp sem sína eigin dóttur frá fyrsta ári. Þann 10. október 1954 kvæntist Egill Ernu (Eddu) Ing- ólfsdóttur, f. 29 janúar 1928, dóttur Ingólfs Gíslasonar og Fanneyjar Gísladóttur kaup- manna í Reykjavík. Hún lést 8. einnig námi í kennslufræði. Egill hóf fyrst kennslustörf með námi og kenndi m.a. við Gagnfræðaskóla Austurbæjar, Málaskólann Mími en lengst af sínum starfsferli kenndi hann við Verzlunarskóla Íslands. Hann gegndi jafnframt mörgum öðrum störfum um ævina, var m.a. um tíma blaðamaður hjá Morgunblaðinu, vann við vega- mælingar, vegagerð, leiðsögn í laxveiðiám og almenna ferða- mannaleiðsögn enda mjög fróð- ur um land og sögu og gjör- þekkti landið og örnefni þess. Einnig vann hann hjá Skóg- ræktarfélagi Reykjavíkur um tíma og hafði alla tíð síðan mik- inn áhuga á trjám og skógrækt. Egill var mikill áhugamaður um klassíska tónlist og söng, hann spilaði mikið á píanó og oft var glatt á hjalla á heimili hans við spil og söng með góð- um vinum. Einnig söng hann um tíma í Stúdentakórnum og átti til að koma fram með vinum sínum og syngja á skemmt- unum. En það sem fyrst og fremst einkenndi Egil var mikill áhugi á hverskyns útivist löngu áður en slíkt varð almennt vinsælt og má segja að hann hafi verið langt á undan sinni samtíð í þeim efnum. Hann var að mörgu leyti mikill æv- intýramaður, prófaði margt sem fáum datt í hug í þá daga og mun hafa verið fyrsti mað- urinn sem keyrði jeppann sinn upp á Esju en það gerði hann ásamt bróður sínum snemma á sjötta áratugnum. Hann var lengi með fremstu skyttum landsins, varð nokkrum sinnum Íslandsmeistari í skotfimi og vann til margra annarra verð- launa og mikill veiðimaður, stundaði veiðar bæði til sjós og lands. Hann var formaður Skot- félags Reykjavíkur um árabil og gegndi öðrum trúnaðarstörfum þar. Einnig var hann góður skíðamaður og notaði hvert tækifæri á veturna til að komast á skíði meðan heilsan leyfði. Hann byggði sér m.a. eigin skíðakofa á sínum heimaslóðum í Skálafellinu. Egill fékkst einnig við rit- störf og liggja eftir hann eft- irfarandi frumsamdar bækur: Jón Loftsson, samtíð hans og synir, 1967; Byssur og skotfimi, sem var fyrsta bókin sem kom út á íslensku um meðferð skot- vopna þegar hún kom fyrst út árið 1969, endurútgefin 1976 og 2003; sú bók var notuð á nám- skeiðum um áraraðir; Íslands- saga. Lesbók fyrir framhalds- skóla, 1970; Lesarkasafn fyrir Íslandsögu, 1974; Forsetinn Jón Sigurðsson og upphaf sjálfstæð- isbaráttunnar, 1981; Árbók Ferðafélags Íslands, Esja og ná- grenni, 1985. Einnig safnaði Egill saman greinasafni eftir föður sinn og stóð að útgáfu þeirra í bókinni Menn og minningarþættir, sem kom út 2004, og ritaði inngang og æviá- grip föður síns í þeirri bók. Auk þess liggur eftir hann fjöldi þýðinga og greina í blöð og tímarit. Útför Egils er gerð frá Lága- fellskirkju í Mosfellsbæ í dag, 2. ágúst 2011. Athöfnin hefst kl. 13. maí 2001. Þau eignuðust fjögur börn, þau eru: 1) Inga Fann- ey, stýrimaður, starfar hjá Haf- rannsóknastofnun Íslands, maki Sig- urður Arason, son- ur þeirra Sigurður Egill, f. 31. mars 1991. 2) Jónas, al- þjóðastjórnmála- fræðingur og framkvæmda- stjóri Frjálsíþróttasambands Íslands, maki Steinunn Ingi- björg Pétursdóttir, synir þeirra Aron Örn, f. 2. október 1992, Ísak, f. 30. september 1994, Eg- ill Pétur f. 21. maí 2001. Fyrir átti Steinunn Bjarna, f. 21. sept- ember 1988. 3) Kristrún Þórdís, f. 31. júlí 1960, hjúkrunarfræð- ingur og klínískur verk- efnastjóri hjá Vical Inc. í San Diego, Kaliforníu. 4) Egill Örn, f. 27. apríl 1967, lést af slysför- um 5. febrúar 1971. Eftir landspróf lá leið Egils í Menntaskólann í Reykjavík og lauk hann stúdentsprófi þaðan árið 1950. Eftir stúdentspróf lagði hann stund á nám í sagn- fræði, ensku og enskum bók- menntum við Edinborgar- og Kaupmannahafnarháskóla og lauk síðan cand. mag.-prófi í sagnfræði og ensku frá Háskóla Íslands árið 1957. Þá lauk hann Egill mágur minn er nú farinn í sína hinstu för. Hann var kynslóð eldri en ég því ég var bara smá- strákur uppi á Kjalarnesi þegar hann kvæntist Eddu, elstu systur minni. Okkur bræðrum þótti hann spennandi maður, veiðimaður, fjallamaður, skíðamaður og svo var hann líka heimsmaður og menntamaður. Þegar ég byrjaði í menntaskóla áttum við enn heima í sveitinni og því varð það úr að ég fékk að búa hjá Eddu og Agli og þremur ungum börnum þar sem þau voru í lítilli blokkaríbúð í Álf- heimum. Ævi Egils var enginn dans á rósum en hann tók öllu með mik- illi karlmennsku. Ég heyrði að hann hefði brennst þegar hann var barn og orðið berklaveikur sem unglingur. Skelfilegast var þó þegar þau misstu yngsta barn sitt, tæplega fjögurra ára gamalt. Egill var ábyrgðarfullur heimilis- faðir og vann alltaf mikið, sérstak- lega fyrstu búskaparárin, en var þó alltaf kærleiksríkur faðir og sinnti börnum sínum vel. Þegar á leið hafði hann þó meiri tíma af- lögu og gat notið yngsta barnsins enn meir. Eftir slysið flutti fjöl- skyldan í fyrstu á heimili foreldra minna á Öldugötu og þá kynnt- umst við enn betur. Eitt kvöld sát- um við Egill þar fram á nótt og hann sagði mér margt sem hann talaði annars ekki um, því hann bar ekki tilfinningar sínar á torg. Hann var að því leyti af gamla skólanum. Það fól líka í sér að hann var mikill búmaður, eins og Íslendingar voru áður fyrr, hann var alinn upp í sveit þar sem menn þurftu að bjarga sér um flesta hluti. Egill var hagur á tré og járn, gerði við vélar og verkfæri, smíðaði veiðistengur og annan búnað, hnýtti flugur, hlóð skot- hylki og svo framvegis. Og hann dró björg í bú. Í frystikistunni hjá Eddu og Agli var alltaf nóg af mat, fiski og kjöti. Á því heimili var villibráð hversdagsmatur. Byssuáhugi hans einskorðaðist við veiðibyssur en hann hafði skömm á hernaðartækjum og ekki er minnst á slík vopn í bók hans, Byssur og skotfimi. Hin síðari árin, sérstaklega eft- ir að hann slasaðist og gat ekki farið um fjöll og firnindi, fór ég alloft með Agli á báti, bæði út á Faxaflóa og Leirvogsvatn. Mest af því litla sem ég kann um veiði- skap lærði ég af Agli. Svo er það hin hliðin á honum, fræðimaður- inn, sagnamaðurinn, sagnfræð- ingurinn og kennarinn. Við áttum ófáar samræðurnar, af honum lærði ég margt sem mér finnst ómetanlegt og margar skemmti- sögurnar sagði hann mér. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst Agli Jónassyni Stardal. Við fjölskyldan sendum börnum hans og ættingjum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Ólafur Ingólfsson og fjölskylda. Ég lít suður eftir afleggjaran- um þegar ég heyri í ristinni, og það er ekki um að villast, Egill frændi er að koma á Landróvern- um sínum. Þetta er í miðjum sauð- burði, dagur að kveldi kominn og vorið, besti tími ársins þegar nátt- úran vaknar. Egill var mikill nátt- úruunnandi og veiðimaður. Þegar tók að vora og skólinn búinn fór hann að verða tíðari gestur uppi í Stardal, ýmist á leið út á vatn, upp í fjall, að sýsla með eitthvert dót í kofanum suður á mel, eða bara hreinlega að sleppa burt úr bæn- um í sveitina. Egill var eftirminnilegur mað- ur, með rammíslenskt tungutak, glettinn og skemmtilegur og lét aldrei bilbug á sér finna þrátt fyr- ir sinn skerf af áföllum i lífinu. Seinna þegar ég fór í fram- haldsskóla í Reykjavík kynntist ég Agli betur. Það var alltaf gam- an að koma í Brúnalandið og spjalla og hitta jafnvel einhverja af hans fjölmörgu vinum og kunn- ingjum sem lögðu reglulega leið sína þangað, nú eða fara með hon- um á sjóinn að veiða. Ég kveð frænda og góðan vin og sendi börnum hans og fjöl- skyldum þeirra samúðarkveðjur. Jóhannes. Góður vinur og veiðifélagi er allur eftir glímu við sjúkdóma og Elli kerlingu. Fundum okkar bar fyrst saman í gagnfræðanámi í Ingimarsskól- anum í Reykjavík. Síðan lá leiðin saman í Menntaskólann í Reykja- vík og Háskólann. Þar greindust námsleiðir, en ævilöng vinátta hófst á þessum árum. Þau áhugamál sem sterkast tengdu okkur voru veiðiskapur af öllum tegundum sem Ísland býð- ur upp á og annað tengt því, einn- ig skotfimi sem íþróttagrein er við stunduðum saman í Skotfélagi Reykjavíkur allt frá komu minni frá sérnámi í læknisfræði síðla árs 1963. Egill var af kjarnmiklu fólki kominn, var skarpgreindur, ris- mikill karakter, snarpur og fylginn sér. Í öllu sem hann tók sér fyrir hendur komu þessir eig- inleikar sér vel, ekki síst í skotfimi og skotveiðum, en hann var strax er við kynntumst afburðaskytta. En skotvopn og skotíþróttin var honum ætíð hugleikin, enda bera margar greinar og bók um byssur og skotfimi þess vitni. Í lífi Egils komu fyrir stormar, sjúkdómar, slys og áföll. Ungur tókst hann á við einn skæðasta sjúkdóm samtímans, berkla, en dvöl á Vífilsstöðum undir læknishendi Helga Ingvars- sonar, í byrjun lyfjameðferðar við þeim sjúkdómi, barg lífi hans. Síðar átti hann við bakvanda- mál að stríða, en þrátt fyrir marg- ar aðgerðir við hryggþófaraski, skertist smám saman afburða- þrek hans til fjallgöngu og erfiðra veiðiferða, en að lokum batt slys á refaveiðum enda á getuna til lengri göngu. En sárast var áfallið er eldsvoði varð á heimili hans í Hafnarfirði og yngsta barnið, efnilegur sonur, brann til ólífis. Þau voru þung sporin er við fé- lagarnir áttum saman þann dag. Egill missti konu sína, Eddu Ingólfsdóttur, fyrir allmörgum árum og bjó einn á heimili sínu í Fossvogi með góðri hjálp heimil- isþjónustu Reykjavíkur og aðstoð afkomenda, síðast við hnignandi heilsu uns yfir lauk. Hittumst við félagarnir þar stundum og rifjuðum upp góðar stundir og minningar frá margvís- legum veiðiferðum okkar. Marg- an morguninn sáum við sólina rísa og kasta geislum sínum yfir haustlitaða jörð, oft hrímaða eða snævi þakta. Margt sólsetrið upp- lifðum við saman við stórfljót Suð- urlands sem og á öðrum líklegum kvöldstöðum gæsa. Ennfremur hreindýraveiðar á austur-öræf- um, stundum þar sem að veiðinni var gert á staðnum og hún reidd á hestum á klakk til byggða. Egill starfaði lengst af starfs- ævinnar við kennslu í Verslunar- skóla Íslands og mun hafa verið eftirminnilegur kennari nemend- um sínum og sópaði að honum í því starfi sem og öðru er hann tók sér fyrir hendur. Að lokum kveð ég þig, kæri vin- ur og félagi, far þú vel. Ég bið guðs blessunar börnum og barna- börnum sem og öðrum ættingj- um. Jósef Ólafsson. Egill J. Stardal var um flest sérstæður maður. Hann var myndarlegur á velli, hár og herða- breiður og það gustaði af honum, að auki var honum firnamargt til lista lagt. Kennsla varð ævistarf hans. Egill þótti litríkur kennari en gagnorð frásögn gæddi kennslu hans lífi. Hugur Egils var þó ekki alfarið bundinn kennslu. Eftir hann liggja a.m.k. fimm bækur, nokkrar þýðingar og margar rit- gerðir. Þá gaf hann út minningar föður síns fyrir fáum árum. Öll þessi verk bera glögg merki höf- undar síns, enda Egill prýðilega ritfær og skrifaði meitlaðan texta. Í æsku ætlaði hann í verkfræði, en margt kom í veg fyrir þau áform. Hann hafði ótal áhugamál. Tónlist skipaði háan sess og hann hafði yndi af söng. Framar öðru áttu þó útivera og veiðar hug Egils allan. Óhætt er að halda því fram að hann var manna fróðastur um skotvopn. Hann stundaði veiðar, bæði á sjó og landi, í áratugi. Þá vann hann til margra verðlauna í skotkeppni. Sá, sem hér stýrir penna, var stráklingur, þegar hann kynntist Agli. Það var vorið 1961, sem hann bauð mér fyrst á skotæf- ingu; þá kenndi hann mér ensku og sögu til landsprófs, og undir verkstjórn hans vann eg í tvö sumur í Haukadal í Biskupstung- um. Eftir því sem árin liðu urðum við nánari félagar og vinir. Við fórum saman í ótal veiðiferðir, sumar sem vetur, og í bílskúrum hvors annars baukuðum við tím- um saman við ólíklegustu hluti: að yfirfara byssur; smíða skefti, veiðistangir og hnífa; brýna; fella net og hlaða skothylki, svo að fátt eitt sé nefnt. Svo var farið síðla kvölds út fyrir bæ og hleðslur prófaðar. Vissulega hafði Egill frumkvæði að þessu öllu og eg oftar aðeins áhorfandi; engu að síður lærði eg margt af honum. Hvergi kynnast menn betur en í veiðiferðum. Í minningu lifa gleðilegar stundir á snævi þökt- um heiðum, í skurðum, við grenjaleit um lágnætti og á kyrr- látri sumarnótt á heiðavatni fjarri alfaravegum. Fyrir kom á stundum í ferðum okkar, að við lentum í kröppum dansi. Þá var gott að hlíta ráðum úrræðagóðs manns, svo að allt fór vel að lok- um. Það fer ekki hjá því, þegar menn eru lengi samvistum úti í náttúrunni, að umræðuefni verða mörg, bæði í gamni og alvöru. Fæst af því á erindi við aðra. En þar kynntist eg glaðværð, ljúf- mennsku og falslausri hjarta- gæzku. Ekki skal fjöður yfir það dregin, að sumum þótti Egill oft ærið fljótfær í meira lagi til orðs og æðis og virtist fyrirhyggju- laus. En slík var ekki raunin, þegar á reyndi. Þá var Egill manna stálfróðastur, enda vel lesinn í sögu og bókmenntum og ágætlega heima í tækninýjung- um. Hann var sögumaður góður og minnið traust. Fyrir fáum ár- um festi eg á blað eftir honum svo kallaðar Sláttuvísur, 22 að tölu með skýringum. Eftir að Egill varð ekkjumað- ur kom hann á stundum í mat til okkar hjóna. Hann var ávallt au- fúsugestur og helzt vildi hann soðinn fisk og lambakjöt. Einn sprengidaginn kom hann í salt- kjöt og baunir. Þá kenndi hann okkur, að það væri ekkert varið í þann mat, nema hafa væna smjörklípu út í súpuna. Því hafði hann vanizt heima í Stardal og þannig vildi hann hafa það; og þannig verður það hér framveg- is. Egill var vanafastur maður. Hin síðari ár átti Egill við van- heilsu að stríða, og voru þau hon- um þung. Hann fékk að dvelja heima og naut þar umhyggju og ástríkis. Að leiðarlokum er hon- um þökkuð áratuga vinátta og vinsemd og megi hann hvíla í friði. Ágúst H. Bjarnason. Egill Jónasson Stardal  Fleiri minningargreinar um Egil J. Stardal bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. 24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011 Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 – www.utforin.is – Allan sólarhringinn Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Jón G. BjarnasonHermann Jónasson ✝ Sigríður Valdi-marsdóttir fæddist í Fremsta- felli í Kaldakinn þann 10. mars 1915. Hún lést á Kjarna- lundi við Akureyri þann 27. júlí 2011. Foreldrar Sigríð- ar voru Ester Guð- laugsdóttir, f. 21. maí 1890, og Valdi- mar Sveinbjörns- son, f. 3. desember 1893. Yngri systkini Sigríðar voru Anna María, f. 16. mars 1917, hús- freyja í Landamótsseli í Kinn, Guðlaugur, f. 19. janúar 1924, bifreiðarstjóri í Reykjavík, og hófu búskap á Eyjardalsá í Bárð- ardal en fluttu árið eftir að Bringu í Eyjafirði og bjuggu þar til 1978. Börn þeirra eru: Sverr- ir, f. 3. apríl 1940, fráskilinn og barnlaus, Vignir, f. 1. apríl 1942, kvæntur Bergljótu Jónsdóttur og eiga þau þrjú börn; Krist- björg, f. 9. desember 1944, gift Jóni Matthíassyni og eiga þau fjögur börn, og Valdimar, f. 19. mars 1947, kvæntur Svövu Jó- hannsdóttur og eiga þau þrjár dætur. Alls eru afkomendur Sig- ríðar og Gunnars 38. Árið 1978 fluttust Gunnar og Sigríður til Akureyrar þar sem Gunnar dó 19. júní 1983. Síðustu árin dvaldist Sigríður á dval- arheimilinu Kjarnalundi og naut þar góðrar umhyggju allt til ævi- loka. Útför Sigríðar verður gerð frá Munkaþverárkirkju í dag, 2. ágúst 2011, og hefst athöfnin kl. 13.30. hálfbróðir Sigurður Jóelsson, f. 7. júlí 1930, kennari í Kópavogi sem er einn þeirra systkina á lífi. Sigríður ólst upp í Kinn og á Ak- ureyri en missti föð- ur sinn 11 ára göm- ul. Nokkrum árum síðar fluttist hún með móður sinni, bróður og stjúpföður, Jóel Tóm- assyni, í Bárðardal, þar sem þau bjuggu lengst á Arndísarstöðum. 1939 giftist Sigríður Gunnari Guðnasyni frá Hvarfi í Bárð- ardal, f. 21. nóvember 1904. Þau Elsku amma mín. Það er liðinn nokkuð langur tími síðan við tókum í spil og spjölluðum saman. Ég sakna þess og ég sakna þín. Og nú þegar ég syrgi þig, þá man ég að þú sagðist fyrir þó nokkru vera tilbúin að kveðja og nú hefur ósk þín ræst. En ég sit hér eftir og leyfi hug- anum að reika. Ég man þegar ég var lítil og vildi alltaf fá að vera hjá ykkur afa á Bringu, jafnvel á jólunum svo að þið yrðuð ekki ein. Þið voruð mér svo mikilvæg að ég trúði því að það væri eins með ykkur, þið gætuð ekki verið án mín. Við áttum saman margar stundir. Flestar voru þær skemmtilegar; fjósaferðir, rommí, kasína, hárgreiðsla (þar sem ég greiddi rúlluliðina alla úr), ættfræði, skoðun gamalla ljósmynda, bókalestur, t.d. Margret Ravn, spjall (oftar en ekki um gamla daga), kleinu- bakstur og svo framvegis. Aðrar minningar sem ekki telj- ast „skemmtilegar“ leita ekki eins á mig nema þá helst þegar afi lést og þú varst svo ein. Svo þegar ég fór til Bandaríkjanna ári seinna þá sendirðu mér bréf og sagðir að þetta yrðu skrítin jól, fyrstu jólin þar sem hvorki ég né afi værum hjá þér. Þú varst vissulega ákveðin kona, en ég man ekki eftir að þú hafir skammað mig oft. Þú hafðir alltaf tíma fyrir mig. En nú er komið að leiðarlokum og ég kveð þig með þakklæti og kærleika, ég er svo rík að hafa átt þig að, amma mín. Vertu blessuð, þín Sigríður (Sigga). Sigríður Valdimarsdóttir  Fleiri minningargreinar um Sigríði Valdimars- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.