Morgunblaðið - 02.08.2011, Blaðsíða 24
✝ Egill JónassonStardal, cand.
mag., framhalds-
skólakennari,
fæddist í Stardal á
Kjalarnesi 14. sept-
ember 1926 og lést
23. júlí 2011 á
Landspítalanum,
Fossvogi. Hann var
elsti sonur
hjónanna í Stardal,
Jónasar Magn-
ússonar, bónda og vegaverk-
stjóra, f. 24. júlí 1890, d. 12.
ágúst 1970, og Kristrúnar Ey-
vindsdóttur, f. 11. apríl 1895, d.
20. mars 1974. Systkini Egils
voru: Ágústa, hjúkrunarfræð-
ingur, f. 8. mars 1915, d. 25. maí
1972; Magnús, búfræðingur og
bóndi í Stardal, f. 11. mars
1928; Eyvindur vegaverkstjóri,
f. 30. desember 1930, d. 25.
mars 2005. Auk þeirra eigin
barna voru fleiri börn í fóstri
hjá Stardalshjónunum um
lengri og skemmri tíma, þar á
meðal bróðurdóttir Jónasar,
Sigríður Sigurðardóttir, f. 2.
júlí 1933, d. 19. ágúst 2009, sem
Stardalshjónin ólu upp sem sína
eigin dóttur frá fyrsta ári.
Þann 10. október 1954
kvæntist Egill Ernu (Eddu) Ing-
ólfsdóttur, f. 29 janúar 1928,
dóttur Ingólfs Gíslasonar og
Fanneyjar Gísladóttur kaup-
manna í Reykjavík. Hún lést 8.
einnig námi í kennslufræði.
Egill hóf fyrst kennslustörf
með námi og kenndi m.a. við
Gagnfræðaskóla Austurbæjar,
Málaskólann Mími en lengst af
sínum starfsferli kenndi hann
við Verzlunarskóla Íslands.
Hann gegndi jafnframt mörgum
öðrum störfum um ævina, var
m.a. um tíma blaðamaður hjá
Morgunblaðinu, vann við vega-
mælingar, vegagerð, leiðsögn í
laxveiðiám og almenna ferða-
mannaleiðsögn enda mjög fróð-
ur um land og sögu og gjör-
þekkti landið og örnefni þess.
Einnig vann hann hjá Skóg-
ræktarfélagi Reykjavíkur um
tíma og hafði alla tíð síðan mik-
inn áhuga á trjám og skógrækt.
Egill var mikill áhugamaður
um klassíska tónlist og söng,
hann spilaði mikið á píanó og
oft var glatt á hjalla á heimili
hans við spil og söng með góð-
um vinum. Einnig söng hann
um tíma í Stúdentakórnum og
átti til að koma fram með vinum
sínum og syngja á skemmt-
unum.
En það sem fyrst og fremst
einkenndi Egil var mikill áhugi
á hverskyns útivist löngu áður
en slíkt varð almennt vinsælt og
má segja að hann hafi verið
langt á undan sinni samtíð í
þeim efnum. Hann var að
mörgu leyti mikill æv-
intýramaður, prófaði margt
sem fáum datt í hug í þá daga
og mun hafa verið fyrsti mað-
urinn sem keyrði jeppann sinn
upp á Esju en það gerði hann
ásamt bróður sínum snemma á
sjötta áratugnum. Hann var
lengi með fremstu skyttum
landsins, varð nokkrum sinnum
Íslandsmeistari í skotfimi og
vann til margra annarra verð-
launa og mikill veiðimaður,
stundaði veiðar bæði til sjós og
lands. Hann var formaður Skot-
félags Reykjavíkur um árabil og
gegndi öðrum trúnaðarstörfum
þar. Einnig var hann góður
skíðamaður og notaði hvert
tækifæri á veturna til að komast
á skíði meðan heilsan leyfði.
Hann byggði sér m.a. eigin
skíðakofa á sínum heimaslóðum
í Skálafellinu.
Egill fékkst einnig við rit-
störf og liggja eftir hann eft-
irfarandi frumsamdar bækur:
Jón Loftsson, samtíð hans og
synir, 1967; Byssur og skotfimi,
sem var fyrsta bókin sem kom
út á íslensku um meðferð skot-
vopna þegar hún kom fyrst út
árið 1969, endurútgefin 1976 og
2003; sú bók var notuð á nám-
skeiðum um áraraðir; Íslands-
saga. Lesbók fyrir framhalds-
skóla, 1970; Lesarkasafn fyrir
Íslandsögu, 1974; Forsetinn Jón
Sigurðsson og upphaf sjálfstæð-
isbaráttunnar, 1981; Árbók
Ferðafélags Íslands, Esja og ná-
grenni, 1985. Einnig safnaði
Egill saman greinasafni eftir
föður sinn og stóð að útgáfu
þeirra í bókinni Menn og
minningarþættir, sem kom út
2004, og ritaði inngang og æviá-
grip föður síns í þeirri bók. Auk
þess liggur eftir hann fjöldi
þýðinga og greina í blöð og
tímarit.
Útför Egils er gerð frá Lága-
fellskirkju í Mosfellsbæ í dag, 2.
ágúst 2011. Athöfnin hefst kl.
13.
maí 2001.
Þau eignuðust
fjögur börn, þau
eru: 1) Inga Fann-
ey, stýrimaður,
starfar hjá Haf-
rannsóknastofnun
Íslands, maki Sig-
urður Arason, son-
ur þeirra Sigurður
Egill, f. 31. mars
1991. 2) Jónas, al-
þjóðastjórnmála-
fræðingur og framkvæmda-
stjóri Frjálsíþróttasambands
Íslands, maki Steinunn Ingi-
björg Pétursdóttir, synir þeirra
Aron Örn, f. 2. október 1992,
Ísak, f. 30. september 1994, Eg-
ill Pétur f. 21. maí 2001. Fyrir
átti Steinunn Bjarna, f. 21. sept-
ember 1988. 3) Kristrún Þórdís,
f. 31. júlí 1960, hjúkrunarfræð-
ingur og klínískur verk-
efnastjóri hjá Vical Inc. í San
Diego, Kaliforníu. 4) Egill Örn,
f. 27. apríl 1967, lést af slysför-
um 5. febrúar 1971.
Eftir landspróf lá leið Egils í
Menntaskólann í Reykjavík og
lauk hann stúdentsprófi þaðan
árið 1950. Eftir stúdentspróf
lagði hann stund á nám í sagn-
fræði, ensku og enskum bók-
menntum við Edinborgar- og
Kaupmannahafnarháskóla og
lauk síðan cand. mag.-prófi í
sagnfræði og ensku frá Háskóla
Íslands árið 1957. Þá lauk hann
Egill mágur minn er nú farinn í
sína hinstu för. Hann var kynslóð
eldri en ég því ég var bara smá-
strákur uppi á Kjalarnesi þegar
hann kvæntist Eddu, elstu systur
minni. Okkur bræðrum þótti hann
spennandi maður, veiðimaður,
fjallamaður, skíðamaður og svo
var hann líka heimsmaður og
menntamaður. Þegar ég byrjaði í
menntaskóla áttum við enn heima
í sveitinni og því varð það úr að ég
fékk að búa hjá Eddu og Agli og
þremur ungum börnum þar sem
þau voru í lítilli blokkaríbúð í Álf-
heimum.
Ævi Egils var enginn dans á
rósum en hann tók öllu með mik-
illi karlmennsku. Ég heyrði að
hann hefði brennst þegar hann
var barn og orðið berklaveikur
sem unglingur. Skelfilegast var
þó þegar þau misstu yngsta barn
sitt, tæplega fjögurra ára gamalt.
Egill var ábyrgðarfullur heimilis-
faðir og vann alltaf mikið, sérstak-
lega fyrstu búskaparárin, en var
þó alltaf kærleiksríkur faðir og
sinnti börnum sínum vel. Þegar á
leið hafði hann þó meiri tíma af-
lögu og gat notið yngsta barnsins
enn meir. Eftir slysið flutti fjöl-
skyldan í fyrstu á heimili foreldra
minna á Öldugötu og þá kynnt-
umst við enn betur. Eitt kvöld sát-
um við Egill þar fram á nótt og
hann sagði mér margt sem hann
talaði annars ekki um, því hann
bar ekki tilfinningar sínar á torg.
Hann var að því leyti af gamla
skólanum. Það fól líka í sér að
hann var mikill búmaður, eins og
Íslendingar voru áður fyrr, hann
var alinn upp í sveit þar sem menn
þurftu að bjarga sér um flesta
hluti. Egill var hagur á tré og
járn, gerði við vélar og verkfæri,
smíðaði veiðistengur og annan
búnað, hnýtti flugur, hlóð skot-
hylki og svo framvegis. Og hann
dró björg í bú. Í frystikistunni hjá
Eddu og Agli var alltaf nóg af
mat, fiski og kjöti. Á því heimili
var villibráð hversdagsmatur.
Byssuáhugi hans einskorðaðist
við veiðibyssur en hann hafði
skömm á hernaðartækjum og
ekki er minnst á slík vopn í bók
hans, Byssur og skotfimi.
Hin síðari árin, sérstaklega eft-
ir að hann slasaðist og gat ekki
farið um fjöll og firnindi, fór ég
alloft með Agli á báti, bæði út á
Faxaflóa og Leirvogsvatn. Mest
af því litla sem ég kann um veiði-
skap lærði ég af Agli. Svo er það
hin hliðin á honum, fræðimaður-
inn, sagnamaðurinn, sagnfræð-
ingurinn og kennarinn. Við áttum
ófáar samræðurnar, af honum
lærði ég margt sem mér finnst
ómetanlegt og margar skemmti-
sögurnar sagði hann mér.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
kynnst Agli Jónassyni Stardal.
Við fjölskyldan sendum börnum
hans og ættingjum okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Ólafur Ingólfsson
og fjölskylda.
Ég lít suður eftir afleggjaran-
um þegar ég heyri í ristinni, og
það er ekki um að villast, Egill
frændi er að koma á Landróvern-
um sínum. Þetta er í miðjum sauð-
burði, dagur að kveldi kominn og
vorið, besti tími ársins þegar nátt-
úran vaknar. Egill var mikill nátt-
úruunnandi og veiðimaður. Þegar
tók að vora og skólinn búinn fór
hann að verða tíðari gestur uppi í
Stardal, ýmist á leið út á vatn, upp
í fjall, að sýsla með eitthvert dót í
kofanum suður á mel, eða bara
hreinlega að sleppa burt úr bæn-
um í sveitina.
Egill var eftirminnilegur mað-
ur, með rammíslenskt tungutak,
glettinn og skemmtilegur og lét
aldrei bilbug á sér finna þrátt fyr-
ir sinn skerf af áföllum i lífinu.
Seinna þegar ég fór í fram-
haldsskóla í Reykjavík kynntist
ég Agli betur. Það var alltaf gam-
an að koma í Brúnalandið og
spjalla og hitta jafnvel einhverja
af hans fjölmörgu vinum og kunn-
ingjum sem lögðu reglulega leið
sína þangað, nú eða fara með hon-
um á sjóinn að veiða.
Ég kveð frænda og góðan vin
og sendi börnum hans og fjöl-
skyldum þeirra samúðarkveðjur.
Jóhannes.
Góður vinur og veiðifélagi er
allur eftir glímu við sjúkdóma og
Elli kerlingu.
Fundum okkar bar fyrst saman
í gagnfræðanámi í Ingimarsskól-
anum í Reykjavík. Síðan lá leiðin
saman í Menntaskólann í Reykja-
vík og Háskólann.
Þar greindust námsleiðir, en
ævilöng vinátta hófst á þessum
árum.
Þau áhugamál sem sterkast
tengdu okkur voru veiðiskapur af
öllum tegundum sem Ísland býð-
ur upp á og annað tengt því, einn-
ig skotfimi sem íþróttagrein er við
stunduðum saman í Skotfélagi
Reykjavíkur allt frá komu minni
frá sérnámi í læknisfræði síðla árs
1963.
Egill var af kjarnmiklu fólki
kominn, var skarpgreindur, ris-
mikill karakter, snarpur og
fylginn sér. Í öllu sem hann tók
sér fyrir hendur komu þessir eig-
inleikar sér vel, ekki síst í skotfimi
og skotveiðum, en hann var strax
er við kynntumst afburðaskytta.
En skotvopn og skotíþróttin var
honum ætíð hugleikin, enda bera
margar greinar og bók um byssur
og skotfimi þess vitni.
Í lífi Egils komu fyrir stormar,
sjúkdómar, slys og áföll.
Ungur tókst hann á við einn
skæðasta sjúkdóm samtímans,
berkla, en dvöl á Vífilsstöðum
undir læknishendi Helga Ingvars-
sonar, í byrjun lyfjameðferðar við
þeim sjúkdómi, barg lífi hans.
Síðar átti hann við bakvanda-
mál að stríða, en þrátt fyrir marg-
ar aðgerðir við hryggþófaraski,
skertist smám saman afburða-
þrek hans til fjallgöngu og erfiðra
veiðiferða, en að lokum batt slys á
refaveiðum enda á getuna til
lengri göngu. En sárast var áfallið
er eldsvoði varð á heimili hans í
Hafnarfirði og yngsta barnið,
efnilegur sonur, brann til ólífis.
Þau voru þung sporin er við fé-
lagarnir áttum saman þann dag.
Egill missti konu sína, Eddu
Ingólfsdóttur, fyrir allmörgum
árum og bjó einn á heimili sínu í
Fossvogi með góðri hjálp heimil-
isþjónustu Reykjavíkur og aðstoð
afkomenda, síðast við hnignandi
heilsu uns yfir lauk.
Hittumst við félagarnir þar
stundum og rifjuðum upp góðar
stundir og minningar frá margvís-
legum veiðiferðum okkar. Marg-
an morguninn sáum við sólina rísa
og kasta geislum sínum yfir
haustlitaða jörð, oft hrímaða eða
snævi þakta. Margt sólsetrið upp-
lifðum við saman við stórfljót Suð-
urlands sem og á öðrum líklegum
kvöldstöðum gæsa. Ennfremur
hreindýraveiðar á austur-öræf-
um, stundum þar sem að veiðinni
var gert á staðnum og hún reidd á
hestum á klakk til byggða.
Egill starfaði lengst af starfs-
ævinnar við kennslu í Verslunar-
skóla Íslands og mun hafa verið
eftirminnilegur kennari nemend-
um sínum og sópaði að honum í
því starfi sem og öðru er hann tók
sér fyrir hendur.
Að lokum kveð ég þig, kæri vin-
ur og félagi, far þú vel. Ég bið
guðs blessunar börnum og barna-
börnum sem og öðrum ættingj-
um.
Jósef Ólafsson.
Egill J. Stardal var um flest
sérstæður maður. Hann var
myndarlegur á velli, hár og herða-
breiður og það gustaði af honum,
að auki var honum firnamargt til
lista lagt. Kennsla varð ævistarf
hans.
Egill þótti litríkur kennari en
gagnorð frásögn gæddi kennslu
hans lífi. Hugur Egils var þó ekki
alfarið bundinn kennslu. Eftir
hann liggja a.m.k. fimm bækur,
nokkrar þýðingar og margar rit-
gerðir. Þá gaf hann út minningar
föður síns fyrir fáum árum. Öll
þessi verk bera glögg merki höf-
undar síns, enda Egill prýðilega
ritfær og skrifaði meitlaðan texta.
Í æsku ætlaði hann í verkfræði, en
margt kom í veg fyrir þau áform.
Hann hafði ótal áhugamál. Tónlist
skipaði háan sess og hann hafði
yndi af söng. Framar öðru áttu þó
útivera og veiðar hug Egils allan.
Óhætt er að halda því fram að
hann var manna fróðastur um
skotvopn. Hann stundaði veiðar,
bæði á sjó og landi, í áratugi. Þá
vann hann til margra verðlauna í
skotkeppni.
Sá, sem hér stýrir penna, var
stráklingur, þegar hann kynntist
Agli. Það var vorið 1961, sem
hann bauð mér fyrst á skotæf-
ingu; þá kenndi hann mér ensku
og sögu til landsprófs, og undir
verkstjórn hans vann eg í tvö
sumur í Haukadal í Biskupstung-
um. Eftir því sem árin liðu urðum
við nánari félagar og vinir. Við
fórum saman í ótal veiðiferðir,
sumar sem vetur, og í bílskúrum
hvors annars baukuðum við tím-
um saman við ólíklegustu hluti: að
yfirfara byssur; smíða skefti,
veiðistangir og hnífa; brýna; fella
net og hlaða skothylki, svo að fátt
eitt sé nefnt. Svo var farið síðla
kvölds út fyrir bæ og hleðslur
prófaðar. Vissulega hafði Egill
frumkvæði að þessu öllu og eg
oftar aðeins áhorfandi; engu að
síður lærði eg margt af honum.
Hvergi kynnast menn betur
en í veiðiferðum. Í minningu lifa
gleðilegar stundir á snævi þökt-
um heiðum, í skurðum, við
grenjaleit um lágnætti og á kyrr-
látri sumarnótt á heiðavatni
fjarri alfaravegum. Fyrir kom á
stundum í ferðum okkar, að við
lentum í kröppum dansi. Þá var
gott að hlíta ráðum úrræðagóðs
manns, svo að allt fór vel að lok-
um.
Það fer ekki hjá því, þegar
menn eru lengi samvistum úti í
náttúrunni, að umræðuefni verða
mörg, bæði í gamni og alvöru.
Fæst af því á erindi við aðra. En
þar kynntist eg glaðværð, ljúf-
mennsku og falslausri hjarta-
gæzku. Ekki skal fjöður yfir það
dregin, að sumum þótti Egill oft
ærið fljótfær í meira lagi til orðs
og æðis og virtist fyrirhyggju-
laus. En slík var ekki raunin,
þegar á reyndi. Þá var Egill
manna stálfróðastur, enda vel
lesinn í sögu og bókmenntum og
ágætlega heima í tækninýjung-
um. Hann var sögumaður góður
og minnið traust. Fyrir fáum ár-
um festi eg á blað eftir honum
svo kallaðar Sláttuvísur, 22 að
tölu með skýringum.
Eftir að Egill varð ekkjumað-
ur kom hann á stundum í mat til
okkar hjóna. Hann var ávallt au-
fúsugestur og helzt vildi hann
soðinn fisk og lambakjöt. Einn
sprengidaginn kom hann í salt-
kjöt og baunir. Þá kenndi hann
okkur, að það væri ekkert varið í
þann mat, nema hafa væna
smjörklípu út í súpuna. Því hafði
hann vanizt heima í Stardal og
þannig vildi hann hafa það; og
þannig verður það hér framveg-
is. Egill var vanafastur maður.
Hin síðari ár átti Egill við van-
heilsu að stríða, og voru þau hon-
um þung. Hann fékk að dvelja
heima og naut þar umhyggju og
ástríkis. Að leiðarlokum er hon-
um þökkuð áratuga vinátta og
vinsemd og megi hann hvíla í
friði.
Ágúst H. Bjarnason.
Egill Jónasson
Stardal
Fleiri minningargreinar
um Egil J. Stardal bíða birt-
ingar og munu birtast í blað-
inu næstu daga.
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 – www.utforin.is – Allan sólarhringinn
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Jón G. BjarnasonHermann Jónasson
✝ Sigríður Valdi-marsdóttir
fæddist í Fremsta-
felli í Kaldakinn
þann 10. mars 1915.
Hún lést á Kjarna-
lundi við Akureyri
þann 27. júlí 2011.
Foreldrar Sigríð-
ar voru Ester Guð-
laugsdóttir, f. 21.
maí 1890, og Valdi-
mar Sveinbjörns-
son, f. 3. desember 1893. Yngri
systkini Sigríðar voru Anna
María, f. 16. mars 1917, hús-
freyja í Landamótsseli í Kinn,
Guðlaugur, f. 19. janúar 1924,
bifreiðarstjóri í Reykjavík, og
hófu búskap á Eyjardalsá í Bárð-
ardal en fluttu árið eftir að
Bringu í Eyjafirði og bjuggu þar
til 1978. Börn þeirra eru: Sverr-
ir, f. 3. apríl 1940, fráskilinn og
barnlaus, Vignir, f. 1. apríl 1942,
kvæntur Bergljótu Jónsdóttur
og eiga þau þrjú börn; Krist-
björg, f. 9. desember 1944, gift
Jóni Matthíassyni og eiga þau
fjögur börn, og Valdimar, f. 19.
mars 1947, kvæntur Svövu Jó-
hannsdóttur og eiga þau þrjár
dætur. Alls eru afkomendur Sig-
ríðar og Gunnars 38.
Árið 1978 fluttust Gunnar og
Sigríður til Akureyrar þar sem
Gunnar dó 19. júní 1983. Síðustu
árin dvaldist Sigríður á dval-
arheimilinu Kjarnalundi og naut
þar góðrar umhyggju allt til ævi-
loka.
Útför Sigríðar verður gerð
frá Munkaþverárkirkju í dag, 2.
ágúst 2011, og hefst athöfnin kl.
13.30.
hálfbróðir Sigurður
Jóelsson, f. 7. júlí
1930, kennari í
Kópavogi sem er
einn þeirra systkina
á lífi.
Sigríður ólst upp
í Kinn og á Ak-
ureyri en missti föð-
ur sinn 11 ára göm-
ul. Nokkrum árum
síðar fluttist hún
með móður sinni,
bróður og stjúpföður, Jóel Tóm-
assyni, í Bárðardal, þar sem þau
bjuggu lengst á Arndísarstöðum.
1939 giftist Sigríður Gunnari
Guðnasyni frá Hvarfi í Bárð-
ardal, f. 21. nóvember 1904. Þau
Elsku amma mín.
Það er liðinn nokkuð langur
tími síðan við tókum í spil og
spjölluðum saman. Ég sakna þess
og ég sakna þín. Og nú þegar ég
syrgi þig, þá man ég að þú sagðist
fyrir þó nokkru vera tilbúin að
kveðja og nú hefur ósk þín ræst.
En ég sit hér eftir og leyfi hug-
anum að reika. Ég man þegar ég
var lítil og vildi alltaf fá að vera
hjá ykkur afa á Bringu, jafnvel á
jólunum svo að þið yrðuð ekki ein.
Þið voruð mér svo mikilvæg að ég
trúði því að það væri eins með
ykkur, þið gætuð ekki verið án
mín.
Við áttum saman margar
stundir. Flestar voru þær
skemmtilegar; fjósaferðir,
rommí, kasína, hárgreiðsla (þar
sem ég greiddi rúlluliðina alla
úr), ættfræði, skoðun gamalla
ljósmynda, bókalestur, t.d.
Margret Ravn, spjall (oftar en
ekki um gamla daga), kleinu-
bakstur og svo framvegis.
Aðrar minningar sem ekki telj-
ast „skemmtilegar“ leita ekki
eins á mig nema þá helst þegar afi
lést og þú varst svo ein. Svo þegar
ég fór til Bandaríkjanna ári
seinna þá sendirðu mér bréf og
sagðir að þetta yrðu skrítin jól,
fyrstu jólin þar sem hvorki ég né
afi værum hjá þér.
Þú varst vissulega ákveðin
kona, en ég man ekki eftir að þú
hafir skammað mig oft. Þú hafðir
alltaf tíma fyrir mig. En nú er
komið að leiðarlokum og ég kveð
þig með þakklæti og kærleika, ég
er svo rík að hafa átt þig að,
amma mín. Vertu blessuð, þín
Sigríður (Sigga).
Sigríður
Valdimarsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Sigríði Valdimars-
dóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.