Morgunblaðið - 02.08.2011, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.08.2011, Blaðsíða 22
✝ Sævar MarinóCiesielski fæddist á Stóra- Hofi í Gnúpverja- hreppi 6. júlí 1955. Hann lést í Kaup- mannahöfn 12. júlí 2011. Foreldrar hans voru Michael Francis Ciesielski, viðskipta- og veð- urfræðingur, f. 24.4. 1922, d. 1969 og Sig- urbjörg Ólöf Guðjónsdóttir húsmóðir, f. 28.5. 1930, d. 22.12. 2000. Önnur börn Sigurbjargar og Michaels eru John Óli, f. 3.6. 1952, Anna Björg, f. 21.8. 1957, og Edna María, f. 18.7. 1958. Barn Sigurbjargar og Jóseps Matt- híassonar, f. 19.2.1939, er Jósep Matthías, f. 21.6. 1969. Sævar og Erla Bolladóttir, f. 19.7. 1955, eiga saman Júl- íu Marinósdóttur, f. 24.9. 1975. Júlía og Páll Hjálm- arsson, f. 16.11. 1974, eiga saman Sindra Franz, f. 5.11. 1996. Júlía og maki hennar Steinar Marinó Skúlason, f. 29.9. 1975, eiga Thelmu Na- aðild að tveimur manns- hvörfum. Sævar hélt því fram, sem fangaverðir síðar staðfestu, að hann hefði verið þvingaður með pyntingum og ómannúðlegum aðferðum til þeirra játninga, sem hann dró til baka þegar einangr- unarvistinni lauk. Eftir að hafa setið á Litla-Hrauni til 1984 vann hann af kappi að beiðni um endurtöku dóms- mála sinna. Sú beiðni var lögð formlega fyrir Hæsta- rétt árið 1997 og í tengslum við það gaf Sævar út bókina Dómsmorð. Urðu margir til að taka undir málflutning um að nauðsynlegt væri að taka málin upp að nýju, en Hæsti- réttur hafnaði beiðninni. Sævar starfaði lengi við smíðar og parketslípun bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum. Síðari ár lagði Sævar m.a. stund á myndlist og sýndi hluta verka sinna opin- berlega. Hann var um árabil heimilislaus í Reykjavík, bjó um tíma að Hesteyri í Mjóa- firði, en settist svo að í Kaup- mannahöfn og naut þar góð- vilja danska ríkisins. Minningarathöfn um Sævar var haldin í Vor Frelsers Kirke við Prinsessugötu í Kaupmannahöfn, 21. júlí. Útför Sævars fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 2. ágúst 2011, og hefst athöfnin kl. 13. talíu, f. 12.6. 2004. Sævar og Þór- dís Hauksdóttir, f. 15.10. 1964, eiga saman Haf- þór Sævarsson, f. 29.6. 1989, og Sigurþór Sæv- arsson, f. 20.4. 1991. Sævar og Sól- ey Brynja Jen- sen, f. 25.4. 1970, eiga saman Victor Blæ Jensen, f. 23.8. 1998, og Lilju Rún Jensen, f. 1.9. 1999. Sævar ólst upp í Reykjavík til ársins 1966, en var þá sendur í heimavistarskóla og síðar á vistheimilið Breiðavík eitt ár á fermingaraldri. Veturinn 1971-72 stundaði Sævar nám í matreiðslu og árin 1974-75 vann hann við kvikmynda- og heimild- arþáttagerð, m.a. fyrir norska sjónvarpið og fræðslu- myndasafn Óslóar. Í lok árs- ins 1975 var Sævar hnepptur í gæsluvarðhald og hafður í einangrun fram til ársins 1977 þangað til hann játaði Hann er sá sem ég hef alltaf virt og elskað. Það sem hann gaf mér var mér svo dýrmætt. Ég mun búa að því alla ævi. Ég miðla því áfram til barna minna og held minningu hans lifandi. Þær stundir sem við áttum saman voru yndislegar. Þær voru inni- haldsríkar, hann var svo mikill spekingur og sá alltaf það sem var undir yfirborðinu, skemmti- legur og einlægur og alveg ótrú- lega klár. Svona eins og pabbar eiga að vera. Þegar hann var ung- ur ætlaði hann að læra kvik- myndagerð, en hann var mjög listrænn eins og sýndi sig í mörgu því sem hann skildi eftir sig. Hann var mjög stoltur af afa- börnunum sínum og var í miklum metum hjá Sindra og Sindri er mjög stoltur af honum. Það átti enginn afa eins og hann. Ég er stolt af föður mínum. Hann háði harða baráttu fyrir réttlætinu. Hann trúði alltaf á að réttlætið myndi sigra þrátt fyrir stórkostlegt mótlæti. Hann barð- ist áfram af miklu hugrekki sem aðeins fáir ráða yfir. Ég veit eins og ég stend hér að hann er sak- laus af þeim glæpum sem hann var sakaður um. Hjartalag hans bar vitni um góðan og elskuríkan mann. Hann lagði allt í sölurnar til að fá æruna aftur. Enginn get- ur skilið hvers virði æra manns er sem ekki hefur þurft að reyna að endurheimta hana. Ég sá þrótt hans dvína með hverri höfnuninni á fætur annarri. Það var svo sárt. Það var honum mikils virði að ég væri stolt af honum. Hann ætlaði að hreinsa nafn sitt svo ég gæti borið höfuðið hátt. Missirinn er svo sár, og það tekur á, að rétt- lætið sem hann barðist fyrir er enn á bak við luktar dyr. En sannleikurinn um það óréttlæti sem hann varð fyrir hefur þó fengið að líta dagsins ljós vegna þeirrar þrotlausu vinnu sem hann lagði á sig, ásamt þeim sem hjálpuðu honum. Það tók sinn toll að sækja réttlætið sjálft, en á þeirri vegferð brenndi hann eng- ar brýr að baki sér. Aðrir brenndu þær áður en hann gat farið þar yfir. Málinu lýkur ekki með fráfalli hans. Hann lifir áfram í mér og ég sætti mig ekki við óréttlætið. Júlía. Síðustu orð pabba sem hann tjáði okkur bræðrum, hvorum í sínu lagi, hafa verið okkur hug- leikin eftir fráfall hans: „Drott- inn blessi þig og varðveiti þig. Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig.“ Þau gildi sem við lærðum af pabba og það uppeldi sem hann gaf okkur er samofið þeirri af- stöðu til lífsins sem hann og móð- ir okkur báru fyrir brjósti. Pabbi var mikill fjölskyldumaður. Og þegar við lítum til baka finnum við fyrir því að minningarnar um hann eru bæði um pabba og um föður. Sem pabbi kenndi hann okkur að leika okkur mikið saman, undrast, rannsaka lífið á okkar eigin forsendum og að trúa á það góða í manninum. Af föður lærð- um við að halda á lofti sannleik og að vera þolinmóðir, hafa seiglu, greina það sem við þekkj- um; fylgja okkar hugsjónum og trúa því að réttlæti sé þess virði að berjast fyrir. Eins og pabbi leit á það geta minningar verið eins og frosnar myndir. Þær ferðast um í huga okkar og búa til samhengi. Við bræðurnir rifjuðum upp kyrr- myndir af pabba og góðar stundir fylltu hugann. Ilmurinn af nátt- úrunni og fallegu fjöllin í Colo- rado. Þegar pabbi tók í sundur hálfónýtt vídeótæki og lagaði. Al- gebru- og teiknileiðsögn. leik- fangasmíðaverkstæðið þar sem við smíðuðum allir saman. Kvöld- ferð í Perluna og blái ísinn. Við munum eftir lego-kafbátnum sem brotnaði í marga mola. Pabbi hvatti okkur þá hughreystandi til að búa til eitthvað nýtt. Og eitt- hvað miklu betra en leiðbeininga- bæklingurinn sýndi. Við erum þakklátir fyrir þann tíma sem við áttum með pabba okkar, þó sárt sé til þess að vita að sá tími er liðinn. Við munum varðveita minn- ingarnar um pabba. Minningar hans eru nú farnar með honum. Partur af okkur er í vissum skiln- ingi farinn: Hér hvílast þeir, sem þreyttir göngu luku í þagnar brag. Ég minnist tveggja handa, er hár mitt struku einn horfinn dag. Ó, guðir, þér, sem okkur örlög vefið svo undarleg. Það misstu allir allt, sem þeim var gefið, og einnig ég. Og ég sem drykklangt drúpi höfði yfir dauðans ró, hvort er ég heldur hann, sem eftir lifir, eða hinn, sem dó?“ (Steinn Steinarr) Pabbi myndi hugga okkur með rólegum málróm, brosi og kær- leik. Og benda á skoplegu hlið- arnar. Faðir okkar myndi styrkja með uppörvandi orðum. Tala kjarkinn í okkur, til að halda sleitulaust áfram og láta aldrei deigan síga. Heyr mig, lát mig lífið finna, læs mér öll hin dimmu þil. Gef mér stríð – og styrk að vinna, stjarna, drottning óska minna. Ég vil hafa hærra spil, hætta því, sem ég á til. Bráðum slær í faldafeykinn, – forlög vitrast gegnum reykinn. Alls má freista. Eitt ég vil. Upp með taflið. – Ég á leikinn. (Einar Benediktsson) Síðustu orð pabba eru greypt í hugann: „Drottinn blessi þig og varðveiti þig. Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig.“ Eftir umhugsun og uppflett- ingu áttuðum við okkur á að pabbi var aðeins hálfnaður með þessa blessunarósk; seinni hlut- inn var eftir: „… og sé þér náð- ugur. Drottinn upplyfti sínu aug- liti yfir þig og gefi þér frið. Amen.“ Drottinn gefi þér frið, pabbi. Hafþór og Sigurþór Sævarssynir. Ég varð þeirrar ánægju að- njótandi að heimsækja Þórdísi systurdóttur mína og Sævar ásamt drengjunum sínum Haf- þóri og Sigurþóri þegar þau bjuggu í Breiðholti. Þau voru bú- in að koma sér vel fyrir þar og kaupa sér falleg húsgögn. Sævar var mjög fær kokkur og sérstak- lega bakaði hann góð brauð. Það var gott að borða hjá þeim og við spjölluðum oft saman um heima og geima. Sævar upplauk fyrir mér fegurð í ljóðum íslenskra kvenna og þá sérstaklega í ljóð- um Ólafar Andrésdóttur frá Hlöðum. Sævar las upphátt fyrir okkur ljóð hennar. Það var ótrú- legt hvað Sævar var vel að sér í íslenskum bókmenntum almennt. Það var mikill skaði að hann skyldi ekki fá leyfi hjá þáverandi menntamálaráðherra til að stunda nám í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi ásamt öðr- um föngum á Litla-Hrauni á þeim tíma. Það hefði gert þessa hrylli- legu dvöl hans þar aðeins létt- bærari því þá hefði hann loksins fengið að sækja nám sem hann hafði ekki tækifæri til í æsku. Ég átti bágt með að sofa þegar ég frétti andlát Sævars. Ég hugs- aði að ef til vill hefði maður getað verið honum hjálplegri meðan hann lifði. Hann átti sérstaklega bágt síðustu æviár sín enda ævi hans ein sorgarganga. Þegar maður hugsar til þessarar ægi- löngu fangelsisvistar hans á fölskum forsendum verður manni illt innra með sér og hugsar af hverju lífið þurfi að vera svona grimmt. Davíð Oddsson, forsætisráð- herra á þessum árum, reyndi af bestu getu að rétta hlut Sævars og sagði í ráðherrastól sínum á Alþingi að dómurinn yfir Sævari væri dómsmorð. Það væri ekki tekið tillit til skrifaðra og sannra heimilda um Sævar Ciesielski. Davíð hafði lesið sér til um hann í bók Sævars sjálfs sem heitir Dómsmorð og í fleiri bókum og blaðagreinum um málaferlin. Þórdís Hauksdóttir gekk einnig á fund Davíðs og tjáði honum allt sem Sævar hafði sagt henni um sig og þessa ákæru gegn sér sjálfum. Davíð hlustaði á hana af miklum skilningi. Málið var ekki tekið upp aftur þrátt fyrir sterk- an málflutning Davíðs Oddssonar forsætisráðherra á Alþingi. Ég vil sérstaklega þakka séra Jóni Bjarman, sem var fangelsi- sprestur þegar Sævar var í fang- elsinu. Jón reyndist honum og Þórdísi einstaklega vel og voru þau honum afar þakklát. Hann skírði drengina þeirra og hafði stöðugt samband við þau. Hafþór og Sigurþór Sævars- synir eru frábærir ungir menn og er sérstaklega gaman að hitta þá heima. Þeir eru fullir áhuga á að kynna sér til hlítar alla málavexti vegna málaferlanna sem ollu handtöku föður þeirra. Þeir ætla að innrita sig í Háskóla Íslands og læra lögfræði til þess að kynna sér málavextina frá grunni. Guð blessi minningu Sævars og styrki einkanlega öll mann- vænlegu börnin hans og barna- börn í Jesú nafni. Þóra Benediktsson. Stirðnuð er fífilsins brosmilda brá og brostinn er lífsins strengur. Helkaldan grætur hjartað ná því horfinn er góður drengur. Sorgmædd sit við mynd af þér og sárt þig ákaft trega. Herrann helgur gefur mér huggun náðarvega. Tekinn var litríkur fífill frá mér og ferðast einn um sinn. Í kærleiksljósi leita að þér og leyndardóminn finn. Kyrrum klökkum tregarómi kveð nú vininn hljóða. Af sálarþunga úr sorgartómi signi drenginn góða. Farinn ert á friðarströnd frjáls af lífsins þrautum. Styrkir Drottins helga hönd hal á ljóssins brautum. Englar bjartir lýsi leið lúnum ferðalangi. Hefst nú eilíft æviskeið ofar sólargangi. Vonarkraftur vermir trú og viðjar sárar brýtur. Ótrúleg er elska sú sem eilífðinni lýtur. Í Gjafarans milda gæskuhjúpi gróa öll mín sár. Með sólargeisla úr sorgardjúpi sendi þér kveðjutár. Jóna Rúna Kvaran. Að leiðarlokum er mér ljúft að minnast Sævars nokkrum orðum. Kynni okkar hófust er hann flutti í fjölbýlishúsið í Flúðaseli 89 í Breiðholti, með konu sinni og ungum börnum. Raunar sá ég hann ekki oft í fyrstu, því hann fór snemma til vinnu og kom stundum seint heim, en smám saman urðum við málkunnugir. Sævari lá lágt rómur á þessum tíma og virtist í fyrstu hikandi og óöruggur að eiga almennar sam- ræður við mann og annan – hvað þá horfast í augu við viðmælanda sinn. En smám saman varð hann upplitsdjarfari, öruggari. Það var verðskuldað, því hann var greini- lega ástríkur faðir og umhyggju- samur. Börnin voru sælleg og þrifaleg, brosleit og alltaf fallega klædd. Ég gleymi því aldrei að þegar Sævar og kona hans fluttu úr Flúðaselinu komu þau til okk- ar hjónanna og kvöddu okkur með handabandi með þökk fyrir ánægjuleg kynni. Ég minnist Sævars og konu hans með þakk- læti fyrir sambýlið. Síðar hitti ég Sævar oft í mið- bænum, ýmist á daginn eða í kvöldiðu skemmtanalífsins. Allt- af átti hann frumkvæðið að heilsa og gerði það með þéttu og hlý- legu handtaki, brosti og bað fyrir kveðju til fjölskyldunnar. Margt bjó í Sævari. Hann var vel að sér um ýmislegt, sem stór hluti borgararanna leiðir ekki hugann að í erli dagsins. Hann bjó greinilega yfir ríkri réttlæt- iskennd og þráði eðlileg mannleg samskipti. En þeir sorglegu at- burðir sem Sævar bendlaðist vörpuðu upp frá því skugga á lífs- göngu hans. Hann komst aldrei undan þeim skugga. Sævar galt þá skuld sem þjóðfélagið gerði honum að axla. En hann bar líka aðra bagga þessa samfélags, óverðskuldaða. Sævar bar mann- vonsku og fordóma íslensks sam- félags af ótrúlegri þrautseigju. Hann gerði sér grein fyrir því að hann myndi aldrei losna við þess- ar klyfjar; axlað byrði sína og gekk lífsins braut í skugga at- burðanna unz yfir lauk. Aðstandendum og börnum sendum við samúðarkveðjur. Megi hann í friði hvíla. Haraldur G. Blöndal og fjölskylda. Kær vinur er fallinn frá, Sæv- ar Ciesielski. Ég kynntist honum sem unglingi, sjálfur ekki mikið eldri. Hann var einkar áhuga- verður á margan hátt, eiginlega einn sinnar tegundar. Hann hafði mjög frjóa og skapandi hugsun, skýra myndræna upplifun á um- hverfinu og var alls óhræddur að segja það sem honum flaug í hug. Heilmiklar náttúrugáfur og ótví- rætt listamannsefni. Jafnframt stóð hann í alls kyns vílingum og dílingum sem maður vissi sem minnst um. Að vissu leyti var hann eins og miðaldra forstjóri í einhverju óskilgreindu kompaníi, kurteis og þægilegur. Ég hafði samt á tilfinningunni að eðlislæg greind hans og löngun til list- rænnar sköpunar myndu fleyta honum í öruggari farveg þegar hann fullnorðnaðist. Á það reyndi aldrei. Íslenskir barnaskólar uppúr miðbiki síðustu aldar voru ekki griðastaðir fyrir óttaslegin börn frá stríðsþjáðum heimilum. Þeir snérust um kurteis börn úr sta- bílu umhverfi. Hin voru grisjuð frá. Fyrir þau var annað hvort að duga eða drepast. Sævar lét sannarlega ekki bugast heldur snéri vörn í sókn. Hann brynjaði sig og var sérlega glöggur að lesa í umhverfið. Betrunarvistin í Breiðavík hreyfði minna við hon- um en flestum. Hann var búinn að átta sig á hvernig spilin voru gefin og beið bara af sér vistina hjá illþýðinu. Allar heimsins gáfur hefðu samt dugað skammt til að takast á við hlutverkið sem forlögin ætl- uðu honum nokkrum árum síðar. Skömmu eftir að Sævar losnaði úr rúmlega tveggja ára einangr- un fékk ég að hitta hann í fang- elsinu á Skólavörðustíg. Hann var hræðilega á sig kominn. Þó undraðist ég baráttuþrek hans og lífsvilja. Líklegast er þessi ein- angrunarvist, og þær líkamlega og sálrænu pyntingar sem jafn- framt voru stundaðar, síðari tíma Vesturlandamet í illri meðferð og lögreglumistökum. Allir sem unnu við þessi mál eða hafa kynnt sér þau vita hvernig í pottinn var búið og það er sorglegt að ís- lenskt samfélag skuli ekki hafa haft dug og þor í sér að gera mál- ið upp. Hinir ábyrgu einstakling- ar voru ekki margir en þeir hafa notið verndar alla tíð af starfs- bræðrum sínum og sumir jafnvel hlotið framgang. Auðvitað mun koma að því að sannleikurinn verður skjalfestur og almennt viðurkenndur. Það verður þá af- komenda þessara manna að tak- ast á við skömmina. Þegar á Litla-Hraun kom jafn- aði Sævar sig tiltölulega fljótt að svo miklu leyti sem það er hægt. Hann fór þegar að sinna réttinda- baráttu sinni og má segja að það hafi verið lífsstarf hans síðan. Það fór sem fór. Síðustu árin gekk Sævar vímunni á hönd. Hann fór oftast tiltölulega vel með það, hélt vel höfði og var ágætlega viðræðu- hæfur og áttaður. Það var heil- mikið mál að vera Ciesielski, allir þekktu hann, allir höfðu skoðanir á honum. Mér fannst honum fara Sævar Marinó Ciesielski 22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011 ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, SIGRÍÐUR VALDIMARSDÓTTIR frá Bringu í Eyjafirði, lést á Kjarnalundi miðvikudaginn 27. júlí. Jarðarför hennar verður gerð frá Munkaþverárkirkju kl. 13.30 þriðjudaginn 2. ágúst. Fyrir hönd annarra vandamanna, Sverrir Gunnarsson, Vignir Gunnarsson, Bergljót Jónsdóttir, Kristbjörg Gunnarsdóttir, Jón Matthíasson, Valdimar Gunnarsson, Svava Jóhannsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR ÁGÚSTSSON íþróttakennari á Laugum, Suður-Þingeyjarsýslu, andaðist miðvikudaginn 27. júlí. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 9. ágúst kl. 13.00. Elín Friðriksdóttir, Ágúst Óskarsson, Helga Sigurðardóttir, Hermann Óskarsson, Karín M. Sveinbjörnsdóttir, Knútur Óskarsson, Guðný Jónsdóttir, Una María Óskarsdóttir, Helgi Birgisson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.