Morgunblaðið - 02.08.2011, Page 22
✝ Sævar MarinóCiesielski
fæddist á Stóra-
Hofi í Gnúpverja-
hreppi 6. júlí 1955.
Hann lést í Kaup-
mannahöfn 12. júlí
2011.
Foreldrar hans
voru Michael
Francis Ciesielski,
viðskipta- og veð-
urfræðingur, f.
24.4. 1922, d. 1969 og Sig-
urbjörg Ólöf Guðjónsdóttir
húsmóðir, f. 28.5. 1930, d.
22.12. 2000. Önnur börn
Sigurbjargar og Michaels eru
John Óli, f. 3.6. 1952, Anna
Björg, f. 21.8. 1957, og Edna
María, f. 18.7. 1958. Barn
Sigurbjargar og Jóseps Matt-
híassonar, f. 19.2.1939, er
Jósep Matthías, f. 21.6. 1969.
Sævar og Erla Bolladóttir,
f. 19.7. 1955, eiga saman Júl-
íu Marinósdóttur, f. 24.9.
1975. Júlía og Páll Hjálm-
arsson, f. 16.11. 1974, eiga
saman Sindra Franz, f. 5.11.
1996. Júlía og maki hennar
Steinar Marinó Skúlason, f.
29.9. 1975, eiga Thelmu Na-
aðild að tveimur manns-
hvörfum. Sævar hélt því
fram, sem fangaverðir síðar
staðfestu, að hann hefði verið
þvingaður með pyntingum og
ómannúðlegum aðferðum til
þeirra játninga, sem hann dró
til baka þegar einangr-
unarvistinni lauk. Eftir að
hafa setið á Litla-Hrauni til
1984 vann hann af kappi að
beiðni um endurtöku dóms-
mála sinna. Sú beiðni var
lögð formlega fyrir Hæsta-
rétt árið 1997 og í tengslum
við það gaf Sævar út bókina
Dómsmorð. Urðu margir til
að taka undir málflutning um
að nauðsynlegt væri að taka
málin upp að nýju, en Hæsti-
réttur hafnaði beiðninni.
Sævar starfaði lengi við
smíðar og parketslípun bæði
á Íslandi og í Bandaríkjunum.
Síðari ár lagði Sævar m.a.
stund á myndlist og sýndi
hluta verka sinna opin-
berlega. Hann var um árabil
heimilislaus í Reykjavík, bjó
um tíma að Hesteyri í Mjóa-
firði, en settist svo að í Kaup-
mannahöfn og naut þar góð-
vilja danska ríkisins.
Minningarathöfn um Sævar
var haldin í Vor Frelsers
Kirke við Prinsessugötu í
Kaupmannahöfn, 21. júlí.
Útför Sævars fer fram frá
Dómkirkjunni í dag, 2. ágúst
2011, og hefst athöfnin kl. 13.
talíu, f. 12.6.
2004.
Sævar og Þór-
dís Hauksdóttir,
f. 15.10. 1964,
eiga saman Haf-
þór Sævarsson, f.
29.6. 1989, og
Sigurþór Sæv-
arsson, f. 20.4.
1991.
Sævar og Sól-
ey Brynja Jen-
sen, f. 25.4. 1970, eiga saman
Victor Blæ Jensen, f. 23.8.
1998, og Lilju Rún Jensen, f.
1.9. 1999.
Sævar ólst upp í Reykjavík
til ársins 1966, en var þá
sendur í heimavistarskóla og
síðar á vistheimilið Breiðavík
eitt ár á fermingaraldri.
Veturinn 1971-72 stundaði
Sævar nám í matreiðslu og
árin 1974-75 vann hann við
kvikmynda- og heimild-
arþáttagerð, m.a. fyrir
norska sjónvarpið og fræðslu-
myndasafn Óslóar. Í lok árs-
ins 1975 var Sævar hnepptur
í gæsluvarðhald og hafður í
einangrun fram til ársins
1977 þangað til hann játaði
Hann er sá sem ég hef alltaf
virt og elskað. Það sem hann gaf
mér var mér svo dýrmætt. Ég
mun búa að því alla ævi. Ég miðla
því áfram til barna minna og held
minningu hans lifandi. Þær
stundir sem við áttum saman
voru yndislegar. Þær voru inni-
haldsríkar, hann var svo mikill
spekingur og sá alltaf það sem
var undir yfirborðinu, skemmti-
legur og einlægur og alveg ótrú-
lega klár. Svona eins og pabbar
eiga að vera. Þegar hann var ung-
ur ætlaði hann að læra kvik-
myndagerð, en hann var mjög
listrænn eins og sýndi sig í mörgu
því sem hann skildi eftir sig.
Hann var mjög stoltur af afa-
börnunum sínum og var í miklum
metum hjá Sindra og Sindri er
mjög stoltur af honum. Það átti
enginn afa eins og hann.
Ég er stolt af föður mínum.
Hann háði harða baráttu fyrir
réttlætinu. Hann trúði alltaf á að
réttlætið myndi sigra þrátt fyrir
stórkostlegt mótlæti. Hann barð-
ist áfram af miklu hugrekki sem
aðeins fáir ráða yfir. Ég veit eins
og ég stend hér að hann er sak-
laus af þeim glæpum sem hann
var sakaður um. Hjartalag hans
bar vitni um góðan og elskuríkan
mann. Hann lagði allt í sölurnar
til að fá æruna aftur. Enginn get-
ur skilið hvers virði æra manns er
sem ekki hefur þurft að reyna að
endurheimta hana. Ég sá þrótt
hans dvína með hverri höfnuninni
á fætur annarri. Það var svo sárt.
Það var honum mikils virði að ég
væri stolt af honum. Hann ætlaði
að hreinsa nafn sitt svo ég gæti
borið höfuðið hátt. Missirinn er
svo sár, og það tekur á, að rétt-
lætið sem hann barðist fyrir er
enn á bak við luktar dyr. En
sannleikurinn um það óréttlæti
sem hann varð fyrir hefur þó
fengið að líta dagsins ljós vegna
þeirrar þrotlausu vinnu sem
hann lagði á sig, ásamt þeim sem
hjálpuðu honum. Það tók sinn
toll að sækja réttlætið sjálft, en á
þeirri vegferð brenndi hann eng-
ar brýr að baki sér. Aðrir
brenndu þær áður en hann gat
farið þar yfir. Málinu lýkur ekki
með fráfalli hans. Hann lifir
áfram í mér og ég sætti mig ekki
við óréttlætið.
Júlía.
Síðustu orð pabba sem hann
tjáði okkur bræðrum, hvorum í
sínu lagi, hafa verið okkur hug-
leikin eftir fráfall hans: „Drott-
inn blessi þig og varðveiti þig.
Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir
þig.“
Þau gildi sem við lærðum af
pabba og það uppeldi sem hann
gaf okkur er samofið þeirri af-
stöðu til lífsins sem hann og móð-
ir okkur báru fyrir brjósti. Pabbi
var mikill fjölskyldumaður. Og
þegar við lítum til baka finnum
við fyrir því að minningarnar um
hann eru bæði um pabba og um
föður.
Sem pabbi kenndi hann okkur
að leika okkur mikið saman,
undrast, rannsaka lífið á okkar
eigin forsendum og að trúa á það
góða í manninum. Af föður lærð-
um við að halda á lofti sannleik
og að vera þolinmóðir, hafa
seiglu, greina það sem við þekkj-
um; fylgja okkar hugsjónum og
trúa því að réttlæti sé þess virði
að berjast fyrir.
Eins og pabbi leit á það geta
minningar verið eins og frosnar
myndir. Þær ferðast um í huga
okkar og búa til samhengi. Við
bræðurnir rifjuðum upp kyrr-
myndir af pabba og góðar stundir
fylltu hugann. Ilmurinn af nátt-
úrunni og fallegu fjöllin í Colo-
rado. Þegar pabbi tók í sundur
hálfónýtt vídeótæki og lagaði. Al-
gebru- og teiknileiðsögn. leik-
fangasmíðaverkstæðið þar sem
við smíðuðum allir saman. Kvöld-
ferð í Perluna og blái ísinn. Við
munum eftir lego-kafbátnum
sem brotnaði í marga mola. Pabbi
hvatti okkur þá hughreystandi til
að búa til eitthvað nýtt. Og eitt-
hvað miklu betra en leiðbeininga-
bæklingurinn sýndi.
Við erum þakklátir fyrir þann
tíma sem við áttum með pabba
okkar, þó sárt sé til þess að vita
að sá tími er liðinn.
Við munum varðveita minn-
ingarnar um pabba. Minningar
hans eru nú farnar með honum.
Partur af okkur er í vissum skiln-
ingi farinn:
Hér hvílast þeir, sem þreyttir göngu
luku
í þagnar brag.
Ég minnist tveggja handa, er hár mitt
struku
einn horfinn dag.
Ó, guðir, þér, sem okkur örlög vefið
svo undarleg.
Það misstu allir allt, sem þeim var
gefið,
og einnig ég.
Og ég sem drykklangt drúpi höfði
yfir
dauðans ró,
hvort er ég heldur hann, sem eftir
lifir,
eða hinn, sem dó?“
(Steinn Steinarr)
Pabbi myndi hugga okkur með
rólegum málróm, brosi og kær-
leik. Og benda á skoplegu hlið-
arnar. Faðir okkar myndi styrkja
með uppörvandi orðum. Tala
kjarkinn í okkur, til að halda
sleitulaust áfram og láta aldrei
deigan síga.
Heyr mig, lát mig lífið finna,
læs mér öll hin dimmu þil.
Gef mér stríð – og styrk að vinna,
stjarna, drottning óska minna.
Ég vil hafa hærra spil,
hætta því, sem ég á til.
Bráðum slær í faldafeykinn, –
forlög vitrast gegnum reykinn.
Alls má freista. Eitt ég vil.
Upp með taflið. – Ég á leikinn.
(Einar Benediktsson)
Síðustu orð pabba eru greypt í
hugann: „Drottinn blessi þig og
varðveiti þig. Drottinn láti sína
ásjónu lýsa yfir þig.“
Eftir umhugsun og uppflett-
ingu áttuðum við okkur á að
pabbi var aðeins hálfnaður með
þessa blessunarósk; seinni hlut-
inn var eftir: „… og sé þér náð-
ugur. Drottinn upplyfti sínu aug-
liti yfir þig og gefi þér frið.
Amen.“
Drottinn gefi þér frið, pabbi.
Hafþór og Sigurþór
Sævarssynir.
Ég varð þeirrar ánægju að-
njótandi að heimsækja Þórdísi
systurdóttur mína og Sævar
ásamt drengjunum sínum Haf-
þóri og Sigurþóri þegar þau
bjuggu í Breiðholti. Þau voru bú-
in að koma sér vel fyrir þar og
kaupa sér falleg húsgögn. Sævar
var mjög fær kokkur og sérstak-
lega bakaði hann góð brauð. Það
var gott að borða hjá þeim og við
spjölluðum oft saman um heima
og geima. Sævar upplauk fyrir
mér fegurð í ljóðum íslenskra
kvenna og þá sérstaklega í ljóð-
um Ólafar Andrésdóttur frá
Hlöðum. Sævar las upphátt fyrir
okkur ljóð hennar. Það var ótrú-
legt hvað Sævar var vel að sér í
íslenskum bókmenntum almennt.
Það var mikill skaði að hann
skyldi ekki fá leyfi hjá þáverandi
menntamálaráðherra til að
stunda nám í Fjölbrautaskóla
Suðurlands á Selfossi ásamt öðr-
um föngum á Litla-Hrauni á þeim
tíma. Það hefði gert þessa hrylli-
legu dvöl hans þar aðeins létt-
bærari því þá hefði hann loksins
fengið að sækja nám sem hann
hafði ekki tækifæri til í æsku.
Ég átti bágt með að sofa þegar
ég frétti andlát Sævars. Ég hugs-
aði að ef til vill hefði maður getað
verið honum hjálplegri meðan
hann lifði. Hann átti sérstaklega
bágt síðustu æviár sín enda ævi
hans ein sorgarganga. Þegar
maður hugsar til þessarar ægi-
löngu fangelsisvistar hans á
fölskum forsendum verður manni
illt innra með sér og hugsar af
hverju lífið þurfi að vera svona
grimmt.
Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra á þessum árum, reyndi af
bestu getu að rétta hlut Sævars
og sagði í ráðherrastól sínum á
Alþingi að dómurinn yfir Sævari
væri dómsmorð. Það væri ekki
tekið tillit til skrifaðra og sannra
heimilda um Sævar Ciesielski.
Davíð hafði lesið sér til um hann í
bók Sævars sjálfs sem heitir
Dómsmorð og í fleiri bókum og
blaðagreinum um málaferlin.
Þórdís Hauksdóttir gekk einnig á
fund Davíðs og tjáði honum allt
sem Sævar hafði sagt henni um
sig og þessa ákæru gegn sér
sjálfum. Davíð hlustaði á hana af
miklum skilningi. Málið var ekki
tekið upp aftur þrátt fyrir sterk-
an málflutning Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra á Alþingi.
Ég vil sérstaklega þakka séra
Jóni Bjarman, sem var fangelsi-
sprestur þegar Sævar var í fang-
elsinu. Jón reyndist honum og
Þórdísi einstaklega vel og voru
þau honum afar þakklát. Hann
skírði drengina þeirra og hafði
stöðugt samband við þau.
Hafþór og Sigurþór Sævars-
synir eru frábærir ungir menn og
er sérstaklega gaman að hitta þá
heima. Þeir eru fullir áhuga á að
kynna sér til hlítar alla málavexti
vegna málaferlanna sem ollu
handtöku föður þeirra. Þeir ætla
að innrita sig í Háskóla Íslands
og læra lögfræði til þess að kynna
sér málavextina frá grunni.
Guð blessi minningu Sævars
og styrki einkanlega öll mann-
vænlegu börnin hans og barna-
börn í Jesú nafni.
Þóra Benediktsson.
Stirðnuð er fífilsins brosmilda brá
og brostinn er lífsins strengur.
Helkaldan grætur hjartað ná
því horfinn er góður drengur.
Sorgmædd sit við mynd af þér
og sárt þig ákaft trega.
Herrann helgur gefur mér
huggun náðarvega.
Tekinn var litríkur fífill frá mér
og ferðast einn um sinn.
Í kærleiksljósi leita að þér
og leyndardóminn finn.
Kyrrum klökkum tregarómi
kveð nú vininn hljóða.
Af sálarþunga úr sorgartómi
signi drenginn góða.
Farinn ert á friðarströnd
frjáls af lífsins þrautum.
Styrkir Drottins helga hönd
hal á ljóssins brautum.
Englar bjartir lýsi leið
lúnum ferðalangi.
Hefst nú eilíft æviskeið
ofar sólargangi.
Vonarkraftur vermir trú
og viðjar sárar brýtur.
Ótrúleg er elska sú
sem eilífðinni lýtur.
Í Gjafarans milda gæskuhjúpi
gróa öll mín sár.
Með sólargeisla úr sorgardjúpi
sendi þér kveðjutár.
Jóna Rúna Kvaran.
Að leiðarlokum er mér ljúft að
minnast Sævars nokkrum orðum.
Kynni okkar hófust er hann
flutti í fjölbýlishúsið í Flúðaseli
89 í Breiðholti, með konu sinni og
ungum börnum. Raunar sá ég
hann ekki oft í fyrstu, því hann
fór snemma til vinnu og kom
stundum seint heim, en smám
saman urðum við málkunnugir.
Sævari lá lágt rómur á þessum
tíma og virtist í fyrstu hikandi og
óöruggur að eiga almennar sam-
ræður við mann og annan – hvað
þá horfast í augu við viðmælanda
sinn. En smám saman varð hann
upplitsdjarfari, öruggari. Það var
verðskuldað, því hann var greini-
lega ástríkur faðir og umhyggju-
samur. Börnin voru sælleg og
þrifaleg, brosleit og alltaf fallega
klædd. Ég gleymi því aldrei að
þegar Sævar og kona hans fluttu
úr Flúðaselinu komu þau til okk-
ar hjónanna og kvöddu okkur
með handabandi með þökk fyrir
ánægjuleg kynni. Ég minnist
Sævars og konu hans með þakk-
læti fyrir sambýlið.
Síðar hitti ég Sævar oft í mið-
bænum, ýmist á daginn eða í
kvöldiðu skemmtanalífsins. Allt-
af átti hann frumkvæðið að heilsa
og gerði það með þéttu og hlý-
legu handtaki, brosti og bað fyrir
kveðju til fjölskyldunnar.
Margt bjó í Sævari. Hann var
vel að sér um ýmislegt, sem stór
hluti borgararanna leiðir ekki
hugann að í erli dagsins. Hann
bjó greinilega yfir ríkri réttlæt-
iskennd og þráði eðlileg mannleg
samskipti. En þeir sorglegu at-
burðir sem Sævar bendlaðist
vörpuðu upp frá því skugga á lífs-
göngu hans. Hann komst aldrei
undan þeim skugga. Sævar galt
þá skuld sem þjóðfélagið gerði
honum að axla. En hann bar líka
aðra bagga þessa samfélags,
óverðskuldaða. Sævar bar mann-
vonsku og fordóma íslensks sam-
félags af ótrúlegri þrautseigju.
Hann gerði sér grein fyrir því að
hann myndi aldrei losna við þess-
ar klyfjar; axlað byrði sína og
gekk lífsins braut í skugga at-
burðanna unz yfir lauk.
Aðstandendum og börnum
sendum við samúðarkveðjur.
Megi hann í friði hvíla.
Haraldur G. Blöndal
og fjölskylda.
Kær vinur er fallinn frá, Sæv-
ar Ciesielski. Ég kynntist honum
sem unglingi, sjálfur ekki mikið
eldri. Hann var einkar áhuga-
verður á margan hátt, eiginlega
einn sinnar tegundar. Hann hafði
mjög frjóa og skapandi hugsun,
skýra myndræna upplifun á um-
hverfinu og var alls óhræddur að
segja það sem honum flaug í hug.
Heilmiklar náttúrugáfur og ótví-
rætt listamannsefni. Jafnframt
stóð hann í alls kyns vílingum og
dílingum sem maður vissi sem
minnst um. Að vissu leyti var
hann eins og miðaldra forstjóri í
einhverju óskilgreindu kompaníi,
kurteis og þægilegur. Ég hafði
samt á tilfinningunni að eðlislæg
greind hans og löngun til list-
rænnar sköpunar myndu fleyta
honum í öruggari farveg þegar
hann fullnorðnaðist. Á það reyndi
aldrei.
Íslenskir barnaskólar uppúr
miðbiki síðustu aldar voru ekki
griðastaðir fyrir óttaslegin börn
frá stríðsþjáðum heimilum. Þeir
snérust um kurteis börn úr sta-
bílu umhverfi. Hin voru grisjuð
frá. Fyrir þau var annað hvort að
duga eða drepast. Sævar lét
sannarlega ekki bugast heldur
snéri vörn í sókn. Hann brynjaði
sig og var sérlega glöggur að lesa
í umhverfið. Betrunarvistin í
Breiðavík hreyfði minna við hon-
um en flestum. Hann var búinn
að átta sig á hvernig spilin voru
gefin og beið bara af sér vistina
hjá illþýðinu.
Allar heimsins gáfur hefðu
samt dugað skammt til að takast
á við hlutverkið sem forlögin ætl-
uðu honum nokkrum árum síðar.
Skömmu eftir að Sævar losnaði
úr rúmlega tveggja ára einangr-
un fékk ég að hitta hann í fang-
elsinu á Skólavörðustíg. Hann
var hræðilega á sig kominn. Þó
undraðist ég baráttuþrek hans og
lífsvilja. Líklegast er þessi ein-
angrunarvist, og þær líkamlega
og sálrænu pyntingar sem jafn-
framt voru stundaðar, síðari tíma
Vesturlandamet í illri meðferð og
lögreglumistökum. Allir sem
unnu við þessi mál eða hafa kynnt
sér þau vita hvernig í pottinn var
búið og það er sorglegt að ís-
lenskt samfélag skuli ekki hafa
haft dug og þor í sér að gera mál-
ið upp. Hinir ábyrgu einstakling-
ar voru ekki margir en þeir hafa
notið verndar alla tíð af starfs-
bræðrum sínum og sumir jafnvel
hlotið framgang. Auðvitað mun
koma að því að sannleikurinn
verður skjalfestur og almennt
viðurkenndur. Það verður þá af-
komenda þessara manna að tak-
ast á við skömmina.
Þegar á Litla-Hraun kom jafn-
aði Sævar sig tiltölulega fljótt að
svo miklu leyti sem það er hægt.
Hann fór þegar að sinna réttinda-
baráttu sinni og má segja að það
hafi verið lífsstarf hans síðan.
Það fór sem fór.
Síðustu árin gekk Sævar
vímunni á hönd. Hann fór oftast
tiltölulega vel með það, hélt vel
höfði og var ágætlega viðræðu-
hæfur og áttaður. Það var heil-
mikið mál að vera Ciesielski, allir
þekktu hann, allir höfðu skoðanir
á honum. Mér fannst honum fara
Sævar Marinó
Ciesielski
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
SIGRÍÐUR VALDIMARSDÓTTIR
frá Bringu í Eyjafirði,
lést á Kjarnalundi miðvikudaginn 27. júlí.
Jarðarför hennar verður gerð frá
Munkaþverárkirkju kl. 13.30 þriðjudaginn 2. ágúst.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Sverrir Gunnarsson,
Vignir Gunnarsson, Bergljót Jónsdóttir,
Kristbjörg Gunnarsdóttir, Jón Matthíasson,
Valdimar Gunnarsson, Svava Jóhannsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÓSKAR ÁGÚSTSSON
íþróttakennari
á Laugum,
Suður-Þingeyjarsýslu,
andaðist miðvikudaginn 27. júlí.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 9. ágúst
kl. 13.00.
Elín Friðriksdóttir,
Ágúst Óskarsson, Helga Sigurðardóttir,
Hermann Óskarsson, Karín M. Sveinbjörnsdóttir,
Knútur Óskarsson, Guðný Jónsdóttir,
Una María Óskarsdóttir, Helgi Birgisson,
barnabörn og barnabarnabörn.