Morgunblaðið - 02.08.2011, Side 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Bílar
Saab 9-3 1/2007 Ekinn 47 þús. km.
Leður. Sjálfskiptur. 16” álfelgur.
Flottur og traustur bíll fyrir lágt verð.
Aðeins 2.890 þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Opið 12-18 virka daga.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Snorri Bjarnason
BMW 116i.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '11.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Sumarhús
ROTÞRÆR OG VATNSGEYMAR
Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir
- réttar lausnir. Vatnsgeymar frá 300
til 50.000 lítra. Lindarbrunnar.
Borgarplast.is
Mosfellsbæ, s. 561 2211.
Lyngborgir.is. Sumarhúsalóðir
Til sölu eignarlóðir í Grímsnesi.
Stærðir 5800 m² - 8700 m²
gott verð. 75 km frá Rvík. Uppl. í s.
862 9626 - 868 3592 - lyngborgir.is.
Opel Astra station sjálfskiptur
Til sölu Opel Astra G 1998, station,
sjálfskiptur, dráttark., ekinn 212 þ.
km, nýleg tímareim, nýsk. 2012,
góður bíll.
Verð 330 þúsund staðgreitt.
Upplýsingar í síma 820 4640.
Veitingastaðir
HUMARHLAÐBORÐ
Humarhlaðborð á Hafinu Bláa öll
kvöld frá kl. 18.00 - 21.00. Aðeins 35
min frá Reykjavík. Við Óseyrarbrú,
milli Þorlákshafnar og Eyrarbakka
Borðapantanir í síma 483 1000 og
www.hafidblaa.is
Bílaþjónusta
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
✝ Bjarney Sigríð-ur Guðmunds-
dóttir fæddist í
Hælavík á Horn-
ströndum 14. ágúst
1918 en ólst upp á
Búðum í Hlöðuvík.
Hún lést á Drop-
laugarstöðum við
Snorrabraut í
Reykjavík 15. júlí
2011.
Hún flutti til
Reykjavíkur tvítug að aldri og bjó
þar og ól sín sex börn. Foreldrar
hennar voru Guðmundur Jón
Guðnason frá Hælavík, f. 11.11.
1890, d. 8.12. 1972, og Jóhanna
Bjarnadóttir frá Neðri-Miðvík í
Aðalvík, f. 21.8. 1891, d. 12.11.
1980. Systkini Bjarneyjar eru Guð-
rún Soffía Guðmundsdóttir, tví-
buri við Bjarneyju, f. 15.8. 1918, d.
26.9. 2006, Kristjana Ólavía Guð-
mundsdóttir, f. 29.8. 1920, d. 14.7.
1930, Kjartan Hafsteinn Guð-
mundsson, f. 18.6. 1923, býr á
vík, f. 22.10. 1952 og eiga þau
Bjarneyju Sigrúnu, f. 22.5. 1973,
Sigurð Karl, f. 15.11. 1975 og Sæv-
ar Baldur, f. 25.7. 1990 og þrjú
barnabörn. Sigurbjörg Guðrún, f.
10.8. 1949, maki Snæbjörn Óli
Ágústsson, f. 23. maí 1940 og eiga
þau Ágúst Alfreð, f. 30.11. 1971,
Ingvar Jóhann, f. 16.7. 1975 og
fjögur barnabörn. Jóhann Sig-
urður, f. 8.9. 1953 sem á Olgu Sig-
ríði, f. 31.5. 1975, Bryndísi Erlu, f.
2.12. 1976 og fimm barnabörn.
Móðir Olgu og Bryndísar er Jó-
hanna Olga Björnsdóttir, f. 20.2.
1957, d. 20.10. 2006. Kristinn
Bjarni, f. 16.11. 1956, maki Auður
Hreinsdóttir úr Kópavogi, f. 15.10.
1955 og eiga þau Guðrúnu Ósk, f.
1.5. 1976, Írisi Hrönn, f. 3.9. 1979,
Kristínu Dögg, f. 28.12. 1983,
Hrein Ágúst, f. 11.7. 1990 og tvö
barnabörn. Þorsteinn Heiðar, f.
18.11. 1960, maki Sigríður Erna
Hafsteinsdóttir og eiga þau Ernu
Björk, f. 1.2. 1990, Daníel Arnar, f.
25.9. 1996, Kristbjörgu Elínu, f.
22.2. 1999 og fósturson Þorsteins
og son Sigríðar, Brynjar Ágúst
Snædal Agnarsson, f. 15.2. 1979 og
eitt barnabarn.
Bjarney verður jarðsungin frá
Fella- og Hólakirkju í dag, 2. ágúst
2011, og hefst athöfnin kl. 13.
Akranesi, og Herdís
Salbjörg Guðmunds-
dóttir, f. 3.9. 1929,
búsett á Húsavík.
Bjarney giftist 29.
maí 1943 Ögmundi
Ingvari Þorsteins-
syni, verkamanni í
Reykjavík, f. í Gísl-
holti, Holtahreppi
29.12. 1919, d. 12.5.
2002, sonur hjónanna
Þorsteins Brynjólfs-
sonar frá Mykjunesi, Holtahreppi,
f. 29.7. 1887, d. 2.11. 1957 og Sól-
borgar Guðjónsdóttur, f. 11.6.
1893 að Kaldbak í Hrunamanna-
hreppi, d. 5.8. 1978. Bjarney og
Ögmundur eignuðust sex börn
sem öll lifa móður sína. Þau eru:
Kristján Ágúst, f. 28.8. 1943, maki
Elín Þórjónsdóttir frá Ólafsvík, f.
17.7. 1946 og eiga þau Sigurð
Kára, f. 9.5 1973 og Hafrúnu, f.
20.11. 1979 og eitt barnabarn.
Lúðvík Baldur, f. 11.12. 1947, maki
Guðrún Sigurðardóttir frá Reykja-
Elsku mamma, það er með
söknuði sem ég kveð þig. Um leið
rifjast upp allar þær ótrúlegu
gleðistundir sem við áttum saman
í gegnum árin og allt það sem þú
kenndir mér í leik og starfi. Sum-
ar stundir eru minnisstæðari en
aðrar eins og gerist og gengur í
lífi voru. Nú þegar leiðir skilur
fyrir fullt og allt er svo margt sem
bregður fyrir í hugskoti manns
frá uppvaxtarárunum sem gaman
væri að segja frá. Okkar samband
var sterkt og einlægt.
Það var ótrúleg elja og jafnað-
argeð sem einkenndi þig, elsku
mamma, þegar við krakkarnir
vorum að alast upp í faðmi þínum
og nutum við þess til hins ýtrasta
á meðan þú hafðir taumhald á
okkur gemlingunum. Það var ekki
og verður ekki einfalt né létt að
ala upp sex börn við afar kröpp
kjör og á tímum þegar litla at-
vinnu var að hafa fyrir verkafólk
og húsnæðisekla ríkti í höfuð-
borginni í þokkabót.
Þegar horft er til baka og þeir
tímar skoðaðir í samanburði við
nútímann getur maður ekki annað
en dáðst að þér og öllu því sem þú
áorkaðir.
Sú djúpstæða réttlætiskennd
sem einkenndi þig alla tíð mun
fylgja minningu þinni um ókomna
tíð og erum við systkinin afar stolt
af þér fyrir það eitt.
Ég tel að þú hafir öðlast þessa
sterku réttlætis- og samkennd
sem fylgt hefur þér alla tíð strax í
æsku þegar þú tókst að þér, ung
að árum, að sinna þinni lömuðu
systur Kristjönu sem gat ekki tjáð
sig en hún lést 10 ára gömul og þú
þá við dánarbeðið. Okkur er sagt
að einmitt þú ein hafir náð ótrú-
legum samskiptum við hana með
augunum einum. Þetta fannst
mér ég einnig hafa upplifað með
þér rétt fyrir andlátið þegar þú
gast ekki tjáð þig nema með aug-
unum.
Þegar þú kvaddir þennan heim
kom upp í huga mér hið yndislega
ljóð Davíðs Stefánssonar sem mér
fannst svo eiga vel við þig en þar
segir í fyrsta erindi:
Ef sérð þú gamla konu, þá minnstu
móður þinnar,
sem mildast átti hjartað og þyngstu
störfin vann
og fórnaði þér kröftum og fegurð æsku
sinnar
og fræddi þig um lífið og gerði úr þér
mann.
Þessar línur eiga einstaklega
vel við þegar horft er til baka því
mildast áttir þú hjartað og vannst
hörðum höndum við að koma okk-
ur systkinunum til manns sem þú
getur svo sannanlega verið stolt
af. Eitt af þínum einkennum sem
ég mat mikils var þinn einstaki
eiginleiki að skipta þér ekki af
hlutum sem þér komu ekki við
enn varst alltaf tilbúin að aðstoða
væri þess óskað. Því má segja að
Æðruleysisbænin hafi átt vel við
þig því þér var greinilega gefið það
æðruleysi að sætta þig við það sem
þú fékkst ekki breytt en um leið
kjark til að breyta því sem þú gast
breytt.
Mamma var sterk kona, kvart-
aði aldrei og lét sig hafa það sem í
boði var. Hún var einstaklega fé-
lagslynd og starfaði af krafti fyrir
verkalýðssamtökin og gekk svo
langt að fara í framboð til þing-
kosninga árið 1987. Hún var mikil
hannyrðakona og naut þess að
skapa. Hún var öflugur brige-spil-
ari og skákmaður, vann oft til
verðlauna.
Megir þú hvíla í friði, elsku
mamma, um leið og ég þakka þér
allt það góða sem þú veittir mér.
Lúðvík B. Ögmundsson.
Í dag kveð ég hana ömmu mína.
Eyju ömmu sem ég minnist með
miklum hlýhug, þakklæti fyrir all-
ar góðu stundirnar sem við áttum
saman og fyrir allt það uppbyggi-
lega og góða sem hún kenndi mér.
Ég var mikið hjá henni ömmu
minni þegar ég var yngri, sérstak-
lega þegar ég var barn. Þó svo að
hún og afi hafi búið við þröngan
kost og aldrei haft mikið umleikis
vorum við systkinin alltaf velkom-
in til hennar. Hún tók okkur opn-
um örmum og hjá henni skorti
okkur aldrei neitt.
Við amma eyddum heilu og
hálfu dögunum við að spila hvort
við annað. Hún kenndi mér að
spila og líka að tefla. Það tók mig
mörg ár að máta þá gömlu, enda
var hún býsna lunkin í skákinni.
Hún amma mín lifði tímana
tvenna. Lífshlaup hennar var erf-
itt. Hún fékk aldrei neitt upp í
hendurnar og þurfti, held ég, að
mörgu leyti að hafa meira fyrir líf-
inu en flestir aðrir. Það markaði
allt hennar líf að hafa fæðst og al-
ist upp norður á Hornströndum
þar sem lífsbaráttan var harðari
en víðast hvar á Íslandi, einkum á
vetrum. Hún sagði mér oft sögur
af því hvernig lífið á Hornströnd-
um var þegar hún var ung og
hversu erfitt það var. Ég sé alltaf
eftir því að hafa aldrei skrásett
þessar sögur, einkum eftir að hún
fór að gleyma. En ég held að sög-
urnar og lýsingar hennar á því
sem hún þurfti að ganga í gegnum
hafi haft mikil og góð áhrif á mitt
eigið gildismat.
Ömmu minnar biðu heldur eng-
ar vellystingar þegar hún flutti
suður. Lífið var ekki samfelldur
dans á rósum á Grímsstaðaholtinu
á árunum eftir stríð og heldur
ekki í verkamannabústöðunum í
Breiðholtinu síðar. Það var erfitt.
En hún kvartaði aldrei. Hún
var stolt af sínu. Hún var stolt af
störfum sínum, bæði af ævistarfi
sínu sem verkakona og ekki síður
störfum sínum í þágu Verka-
kvennafélagsins Sóknar. Hún
stóð með sínu fólki og skeytti aldr-
ei skapi sínu á neinum, sama hvað
gekk á, þó oft hafi hún haft tilefni
til. Ég sá hana aldrei reiðast.
Við amma vorum sammála um
flest, en ekki allt. Hún talaði vel
um alla nema íhaldsmenn. Á
íhaldinu hafði hún litlar mætur.
Hún var hrifnari af Guðmundi
jaka og þeim. Af þeim ástæðum
gerðum við amma með okkur
þegjandi samkomulag um að tala
ekki um stjórnmál eftir að ég
gekk í Sjálfstæðisflokkinn. Það
samkomulag héldum við alla tíð.
Eyja amma mín var alla tíð
glaðlynd, hlý og góð. Hjá henni
var óskaplega gott að vera.
Ég kveð hana ömmu með mikl-
um hlýhug og söknuði. Mér þótti
þá og þykir enn afar vænt um
hana og ég þakka henni fyrir allt
sem hún hefur fyrir mig gert.
Guð blessi minningu ömmu
minnar.
Sigurður Kári Kristjánsson.
Mig langar í nokkrum orðum
að minnast Bjarneyjar Guð-
mundsdóttur, sem í dag verður
borin til hinstu hvílu. Kynni okkar
Bjarneyjar liggja til áranna upp úr
1970 þegar ég er að stíga mín
fyrstu skref innan verkalýðshreyf-
ingarinnar, en hún hafði þá þegar
nokkra reynslu af faglegu starfi
innan Starfsstúlknafélagsins Sókn-
ar í stjórn og trúnaðarráði og einn-
ig sem trúnaðarmaður á sínum
vinnustað, Landakoti.
Bjarney hafði sterka réttlætis-
kennd og var ávallt reiðubúin að
miðla af reynslu sinni sem var all-
nokkur og gott fyrir ungan mann
að fá innsýn í þann reynsluheim.
Ég var nokkuð ósveigjanlegur í
skoðunum á þessum tíma, en
Bjarney hafði sérstakt lag á að
ræða málin við menn eins og mig,
þótt hún væri ekki endilega sam-
mála í einu og öllu. Á þessum tíma
vissi ég ekki um skyldleika okkar
Bjarneyjar í gegnum Hælavík-
urættina, en ekki leið á löngu áður
en hún fræddi mig um þau mál.
Bjarney var dóttir Guðmundar
Guðnasonar, sem var bróðir ömmu
minnar, Ingibjargar Guðnadóttur.
Tvíbýlið á Búðum í Hlöðuvík var
myndað af þessum tveimur fjöl-
skyldum, þ.e. Ingibjörgu ömmu og
Guðlaugi afa annarsvegar og Guð-
mundi Guðnasyni og Jóhönnu
Bjarnadóttir hinsvegar. Var þetta
tvíbýli barnmikið samfélag og stóð
saman af 12 börnum. Bjarney Guð-
mundsdóttir var eitt af þessum
börnum og elst sinna systkina sem
voru 5, en börn ömmu og Guðlaugs
voru 7. Er þar þó ekki talinn með
Þórleifur Bjarnason, sem var
fyrsta barn ömmu, en utan hjóna-
bands.
Eftir að faðir minn Hallvarður
tók að byggja sumarhús í Hlöðuvík,
Búðabæ, 1977 tók ég að tengjast
þessu svæði nánari böndum í gegn-
um leiðsögn í Hornstrandaferðum
fyrir Ferðafélag Íslands. Í gegnum
slíka ferðamennsku kynntist ég
síðan syni Bjarneyjar, Lúðvík
Baldri sem fór með mér í margar
langar og strangar Hornstranda-
ferðir á tímabilinu frá 1995 til 2000.
Eftir að við Lúðvík urðum eig-
endur að húseignunum í Hlöðu-
vík, ásamt fleiri frændum okkar
úr Hælavíkurættinni, urðu tengsl
okkar nánari.
Einn stærsti vettvangurinn í
kynnum okkar Bjarneyjar var
Félagsmálaskóli alþýðu sem
starfræktur var í Ölfusborgum
frá 1976. Það var Menningar- og
fræðslusamband alþýðu – MFA
sem setti skólann á laggirnar. Í
Félagsmálaskólanum náðum við
Bjarney góðum tengslum, enda
skólinn merkileg nýjung og fram-
sækin tilraun í alþýðufræðslu.
Kennsluhættir byggðust á miklu
hópstarfi og umræðum. Sem
dæmi má nefna að meðal kennslu-
greina var sk. hópefli, sem á þeim
tíma þótti mikil nýjung og afar
framsækið.
Næsta ár 1977 var svo skipu-
lögð önnur önn og aftur mættum
við Bjarney galvösk til leiks. Þátt-
takan í Félagsmálaskólanum
varð mér mikilvæg fyrir starf
mitt innan Dagsbrúnar. Sama
hygg ég að hafi gilt um Bjarneyju
og hennar starf innan Starfs-
stúlknafélagsins Sóknar, enda
hefur hún sjálf sagt að Félags-
málaskólinn hafi skipt sig miklu
máli.
Að lokum vil ég votta aðstand-
endum mína dýpstu samúð og ég
veit að minningin um góða konu
mun lifa í vitund þeirra.
Guðmundur J. Hallvarðsson.
Bjarneyjar minnist ég með
þakklæti og hlýhug.
Leiðir Bjarneyjar og móður
minnar, Jóhönnu Thorlacius, lágu
saman á hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum fyrir nokkr-
um árum. Við borðið þeirra á
þriðju hæðinni spiluðu þær á spil
og spjölluðu. Alltaf brosti Bjarn-
ey, þegar litið var inn, ætíð glöð.
Bjarneyjar minnist ég fyrir
frið og kyrrláta gleði sem um
hana lék. Blessuð sé minning þín,
Bjarney.
Guðmundur Hannesson.
Bjarney Sigríður
Guðmundsdóttir
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
STEINAR GUÐMUNDSSON
Lindargötu 57,
Reykjavík
andaðist á Elliheimilinu Grund 1. ágúst.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Anna Steinarsdóttir, Gísli Snorrason,
Magnús Steinarsson, Eygló Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.