Morgunblaðið - 02.08.2011, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011
Það er fullt af hlutum sem hafaekkert farið af stað í atvinnulíf-
inu. Og að hluta til er það vegna þess
að ríkisstjórnin er að tefja það,“
sagði Halldór Halldórsson, formað-
ur Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga,
við Rúv. um helgina.
Halldór sagðieinnig að vegna
þessa hefðu sveit-
arstjórnarmenn
áhyggjur af for-
sendum kjarasamn-
inganna og að sú
tekjuaukning sem þar
væri gert ráð fyrir
mundi ekki skila sér.
Það eru minni um-svif heldur en reiknað var með.
Það er fullt af hlutum sem hafa ekk-
ert farið af stað í atvinnulífinu,“ seg-
ir Halldór.
Hann nefnir sjávarútveginn ogaðförina að honum sem dæmi
um tafir ríkisstjórnarinnar og einnig
stórar framkvæmdir sem hafi verið
fyrirhugaðar. Halldór óttast að
þetta verði til þess að sveitarfélögin
þurfi að segja upp fólki.
Eins og vænta mátti kom GylfiArnbjörnsson, forseti ASÍ, rík-
isstjórninni til hjálpar og taldi ólíkt
Halldóri að ekki þyrfti að koma til
uppsagna hjá sveitarfélögunum.
En jafnvel þessi gallharði sam-fylkingarmaður gat ekki neit-
að því að hér þyrfti að fara af stað
uppbygging og hagvöxtur og að
stjórnvöld þyrftu að standa við yf-
irlýsingar um framkvæmdir.
ASÍ mun þó vafalítið ekkert að-hafast sem gæti komið sér illa
fyrir ríkisstjórnina og standa áfram
með henni þegar á reynir.
Ríkisstjórnin studd
þrátt fyrir allt
STAKSTEINAR
Gylfi
Arnbjörnsson
Halldór
Halldórsson
Veður víða um heim 1.8., kl. 18.00
Reykjavík 15 skýjað
Bolungarvík 11 skýjað
Akureyri 14 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 11 alskýjað
Vestmannaeyjar 10 skýjað
Nuuk 12 alskýjað
Þórshöfn 11 þoka
Ósló 22 skýjað
Kaupmannahöfn 20 léttskýjað
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 17 léttskýjað
Lúxemborg 22 heiðskírt
Brussel 22 heiðskírt
Dublin 17 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 27 heiðskírt
París 26 heiðskírt
Amsterdam 22 léttskýjað
Hamborg 18 skýjað
Berlín 22 léttskýjað
Vín 20 skýjað
Moskva 22 léttskýjað
Algarve 25 léttskýjað
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 30 heiðskírt
Róm 26 léttskýjað
Aþena 30 léttskýjað
Winnipeg 27 skýjað
Montreal 27 skýjað
New York 32 léttskýjað
Chicago 30 skýjað
Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:38 22:31
ÍSAFJÖRÐUR 4:21 22:57
SIGLUFJÖRÐUR 4:04 22:41
DJÚPIVOGUR 4:02 22:06
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Togarinn Baldvin NC 100 kom til
Akureyrar í gærkvöldi með fyrsta
aflann til vinnslu í fiskiðjuveri Út-
gerðarfélags Akureyringa og
vinnsla átti að hefjast þar í bítið í
dag. Samherji keypti reksturinn af
Brimi í maí og viðskiptin voru sam-
þykkt af Samkeppniseftirlitinu nú í
lok júlí.
Samherji tók í gær formlega við
rekstrinum og starfsemi hefst á ný í
dag að loknu sumarfríi, í nafni Út-
gerðarfélags Akureyringa, ÚA.
Samherji keypti fiskvinnslu á Ak-
ureyri og Laugum, ísfisktogarana
Sólbak EA 1 og Mars RE 205 og
veiðiheimildir, samtals 5.900 þorsk-
ígildistonn. Baldvin NC kom með
fullfermi af þorski sem veiddur var
á Grænlandsmiðum. Skipið er gert
út af Deutsche Fischfang Union
(DFFU) sem er dótturfélag Sam-
herja og skipstjóri er Sigurður
Kristjánsson. „Þetta er stór og góð-
ur þorskur, meðalviktin er yfir þrjú
kíló eftir aðgerð. Áhöfnin á Baldvin
NC er sannarlega ánægð og stolt af
því að koma með fyrsta farminn til
vinnslu hjá ÚA,“ segir Sigurður í
tilkynningu frá Samherja. Löndun
átti að hefjast um miðnætti og
vinnsla með morgninum.
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, sagði í gærkvöldi
að spennandi tímar væru framund-
an. „Við erum bjartsýn á að sam-
starfið í þessum stækkandi hóp
samstarfsmanna verði farsælt. Okk-
ur stjórnendum Samherja er ljóst
hve stóran sess ÚA skipar í huga
heimamanna. Við gerum okkur
grein fyrir ábyrgðinni sem fylgir því
að taka yfir þennan rekstur og mun-
um leggja okkur fram um að hann
gangi sem best í framtíðinni.“
„ÚA skipar stóran sess
í huga heimamanna“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fiskur til vinnslu Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri út-
gerðarsviðs, taka á móti Baldvin NC 100 á togarabryggjunni á Akureyri, fyrir framan ÚA, í gærkvöldi.
Samherji tekinn við ÚA Baldvin með fullfermi af þorski
Ferskt og fryst
» Hjá ÚA á Akureyri og á
Laugum starfa samtals um 150
manns.
» Í vinnslunni á Akureyri fer
fram tæknivædd bolfiskvinnsla
þar sem unnar eru ferskar og
frystar afurðir fyrir neyt-
endamarkað, aðallega í
Evrópu.
» Á Laugum starfrækir ÚA
fiskþurrkun.
Íslenskum og
færeyskum skip-
um hefur verið
bannað að landa
makríl í norskum
höfnum. Norska
sjávarútvegs-
ráðuneytið til-
kynnti umrætt
löndunarbann í
gær. Tilkynn-
ingin var birt á
heimasíðu ráðuneytisins. Bannið
nær til alls makrílafla, sem veiddur
er í íslenskri og færeyskri lögsögu
og makrílafla veidds með skipum,
sem hafa leyfi frá íslenskum og
færeyskum stjórnvöldum.
Sigurgeir B. Kristgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar
í Vestmannaeyjum, segir lönd-
unarbannið hafa litla þýðingu fyrir
íslenska makrílveiðimenn. Makríll-
inn sé veiddur mjög nálægt Íslands-
ströndum og því þurfi nær aldrei að
landa honum utan íslenskrar lög-
sögu. Sigurgeir segir útspil Norð-
manna aðeins sýndarmennsku.
„Skynsamlegast væri fyrir alla að
semja um málið og hætta þessu
skítkasti.“ hjaltigeir@mbl.is
Bannað að
landa makríl
Sigurgeir B.
Kristgeirsson
Í kvöld, þriðjudagskvöldið 2. ágúst,
býðst áhugasömum stafgöngu-
kennsla í Viðey hjá Guðnýju Ara-
dóttur. Kennslan er ókeypis. Í til-
kynningu segir að stafganga sé holl
og góð hreyfing fyrir alla og hafi
undanfarin ár rutt sér til rúms sem
fyrirtaks heilsurækt og útivist. Sí-
fellt fleiri sækja námskeið í staf-
göngu og stunda íþróttina reglu-
lega í kjölfarið. Þeir sem eiga stafi
taka þá með, en einnig verður hægt
að fá stafi lánaða hjá leiðbeinand-
anum. Leiðsögn hefst við Viðeyj-
arstofu kl. 19:30 og tekur eina og
hálfa til tvær klukkustundir.
Boðið upp á ókeypis
kennslu í stafgöngu
í Viðey í kvöld