Morgunblaðið - 02.08.2011, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011
BAKSVIÐ
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Í hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavík-
urborg sem var samþykkt sam-
hljóða í janúar 2010, þ.e. á síðasta
kjörtímabili, er mælt fyrir um að
fram til ársins 2015 verði lagðir 40
kílómetrar af nýjum hjólastígum. Í
fyrra var lagður einn kílómetri og
á þessu ári verður tæplega tveggja
kílómetra stígur lagður. Í stað 20
kílómetra á tveimur árum verða
því lagðir þrír kílómetrar. Hallinn,
ef svo má segja, nemur 85%.
Hjólreiðaáætlunin er í raun ekki
komin til framkvæmda, m.a. vegna
þess að enn er unnið að því að afla
láns hjá Evrópska fjárfestinga-
bankanum undir formerkjum
Elena sem lánar til umverfisvænna
framkvæmda og verkefna. Vextir á
Elena-lánum eru lægri en gengur
og gerist. Hjólastígarnir eru hluti
af lánaumsókn fyrir endurnýjun
strætisvagnaflotans með vistvæn-
um bílum og til að reisa gasstöð.
Í hjólreiðaáætluninni kemur
fram að hjólastígar í Reykjavík
eru um 10 km en í áætluninni seg-
ir að sú vegalengd eigi að vera
orðin 50 km árið 2015 og 100 km
árið 2020.
Kílómetri kostar 61 milljón
Fyrir þá sem eru óvanir vega-
framkvæmdum kemur nokkuð á
óvart hversu mikið það kostar að
leggja hjólastíga. Um einn kíló-
metri af hjólastíg í Fossvogi var
lagður auk smærri verkefna og
kostaði um 61 milljón. Við stíginn
var búið til útskot fyrir bekk,
gangbrautir lagðar o.fl. og hefur
það væntanlega verið meðal þess
sem hleypti kostnaðinum upp. Í ár
er ætlunin að leggja 1,9 km af
hjólastígum og er gert ráð fyrir
130 milljónum til verksins. Til
samanburðar er miðað við að það
kosti um 150-250 milljónir að
leggja nýja götu í borginni en
kostnaður við gatnagerð fer mjög
eftir því hvort það þurfi að leggja
lagnir um leið. Þá má benda á að
um þrír milljarðar á ári fara til
samgönguskrifstofu, s.s. til við-
halds gatna og moksturs.
Hjólastígar eru 85% á eftir áætlun
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Hressandi Þegar margir hjóla á göngu- og hjólastígum er plássið oft lítið. Sérstakir hjólastígar hafa reynst vel.
Reykjavíkurborg ætlaði að leggja 20 km af nýjum hjólastígum 2010-2011 en mun leggja 3 km
Aldrei sett í fjárhagsáætlun Bíða eftir vistvænu láni frá Evrópska fjárfestingabankanum
Gengur hægt
að leggja
» Árið 2010 var, skv. upplýs-
ingum frá borginni, lagður 1
km langur hjólastígur fyrir
neðan kirkjugarðinn í Foss-
vogi auk smærri verkefna.
Áfallinn kostnaður er um 61
milljón.
» Umhverfis- og samgöngu-
ráð hefur samþykkt að leggja
hjólastíg í Fossvogi, í grennd
við Fossvogsskóla og í
Skerjafirði, vestan við norð-
ur-suður-flugbrautina á
Reykjavíkurflugvelli. Lengdin
verður samtals 1,9 km og á
fjárhagsáætlun er miðað við
130 milljónir til verksins.
» Í hjólreiðaáætlun er gert
ráð fyrir að vegna aukinnar
hlutdeildar hjólreiða í sam-
göngum til ársins 2020
sparist 7,3 milljarðar króna í
viðhaldi og rekstri stofn-
brautakerfisins í borginni.
Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og
fulltrúi í umhverfis- og samgönguráði, segir enga afsökun að ekki
hafi fengist lán frá Evrópska fjárfestingabankanum. Í hjólreiðaáætl-
unin hefði hvergi verið minnst á að lánið væri forsenda fyrir nýjum
hjólastígum. Málið snúist um að forgangsraða fjármunum þannig að
hægt verði að leggja þessa stíga og gera fólki auðveldara að komast
leiðar sinnar á reiðhjóli. „Hugmyndin er sú að fá fleiri til að hjóla og
það kostar fjárútlát. Menn verða að hafa pólitískan vilja til þess,“
segir hann. Takist að fjölga hjólreiðamönnum muni borgin
spara miklu meiri fjármuni til langs tíma heldur en sem
nemur kostnaði við hjólastígana.
Hann hafi boðið fulltrúum meirihluta Besta flokksins
og Samfylkingarinnar að setjast niður með þeim og
finna þessa peninga, færa þá úr öðrum verkefnum, en
því boðið hefði ekki verið tekið.
„Samfylkingin samþykkti áætlunina fyrir ári en
ef menn meintu ekkert með því þá áttu þeir
ekki að samþykkja þetta,“ segir Gísli Mar-
teinn.
Vantar vilja til að forgangsraða
GÍSLI MARTEINN BALDURSSON, SJÁLFSTÆÐISFLOKKI
Kristín Soffía Jónsdóttir, Samfylkingu, varaformaður umhverfis- og
samgönguráðs, segir að peningar séu af skornum skammti hjá borg-
inni og á því hafi hjólreiðastígarnir strandað. Fáist Elena-lánið verði
það á lágum vöxtum og það væri beinlínis óábyrgt að taka fé úr rekstri
borgarinnar til að leggja hjólreiðastíga eða taka óhagstæðara lán til
verkanna.
Í hjólreiðaáætluninni er hvergi minnst á Elena-lánið en Kristín Soffía
bendir á að aldrei hafi verið gert ráð fyrir fjármunum til stígagerðar í
fjárhagsáætlun, hvorki í tíð fyrri meirihluta né þess sem nú sit-
ur, og einhvers staðar verði að fá peninga. Elena-lánið sé
hagkvæmasta leiðin.
Þá segir hún að þótt Samfylkingin standi að hjólreiða-
áætluninni þurfi að rýna í áætlunina og kanna hvort hægt
sé að leggja hjólastíga á ódýrari hátt en hingað til hafi
verið gert, s.s. með því að mála línur á götur o.fl. Meiri-
hlutinn vilja treysta hjólreiðar í Reykjavík. „En við þurf-
um að skoða hvort hægt sé að fara í þessa bröttu
og miklu framkvæmd á þessum tíma eða hvort
við getum fundið aðra leið,“ segir hún.
Óábyrgt að bíða ekki eftir láni
KRISTÍN SOFFÍA JÓNSDÓTTIR, SAMFYLKINGU
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Stakir jakkar
Buxur, pils og kjóll úr sama efni
ÚTSALA
25-60% afsláttur
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Sendum frítt úr vefverslun
www.lindesign.isbarnavörur
rúmföt
púðar
lök
dúkar
sloppar
Foreldrar Sturlu Þórs Friðriks-
sonar, sem lét lífið eftir fluglys í
Skerjafirði árið 2000, hafa fært
gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi að gjöf sjónvarp, DVD-
tæki og nokkra mynddiska til minn-
ingar um hann.
Sturla Þór var samanlagt í þrjá
mánuði á gjörgæsludeildinni. Hann
var sonur Kristínar Dýrfjörð og
Friðriks Þórs Guðmundssonar. Í til-
kynningu frá spítalanum kemur
fram að þegar Kristín varð fimm-
tug í lok júní hafi hún beðið fólk um
að leggja fé í söfnunarbauk í stað
þess að gefa gjafir. Í samráði við
deildarstjóra gjörgæslunnar, Krist-
ínu Gunnarsdóttur, hafi hún ákveð-
ið að nota peninga í ofangreinda
gjöf.
Foreldrar Sturlu Þórs
færðu LSH minningargjöf
Styrkur til gjörgæsludeildar Kristín Dýrfjörð, Kristín Gunnarsdóttir deild-
arstjóri, Kristinn Sigvaldason yfirlæknir og Friðrik Þór Guðmundsson.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Gísli Marteinn
Baldursson
Kristín Soffía
Jónsdóttir