Morgunblaðið - 02.08.2011, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011
ALLT Í
FERÐALAGIÐ
fyrst og fremst ódýrt
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
A llt jóga gengur út ásameiningu líkama, hugaog sálar, en í gönguhug-
leiðslu er það gert á meðan fólk
gengur úti í íslenskri náttúru, sem
er svo yndislegt,“ segir Arnbjörg
Kristín Konráðsdóttir kundalini-
jógakennari sem ætlar á morgun að
fara af stað með námskeið í göngu-
hugleiðslu í Öskjuhlíðinni.
„Gangan sjálf er hugleiðsla og
fólk gerir ákveðnar fingrastöður á
meðan það gengur, andar í takt við
gönguna og fer með möntru í hug-
anum. Í nútímasamfélagi er andar-
dráttur fólks oft óreglulegur, hugur-
inn dreifður og athyglin flöktandi.
Þess vegna þarf að koma á jafn-
vægi,“ segir Arnbjörg og bætir við
að til séu margar tegundir af göngu-
hugleiðslu. „Oftar en ekki er farið
með möntru í hljóði, en þær eru mik-
ið notaðar í kundalini-jóga almennt.
Ein af þeim er sett saman úr frum-
hljóðum sem auðveldar okkur leið-
ina í ástand núvitundar og jafn-
vægis. Gönguhugleiðsla hjálpar til
við að þróa með okkur einbeitingu
og yfirvegun meðan við erum að
framkvæma hluti í okkar daglega
lífi.“
Boð til heilans
Engin tilviljun ræður því hvaða
orð eru notuð í möntrum í kundalini-
jóga. „Þegar fólk fer með möntru þá
þrýstir tungan á ákveðna punkta í
efri góm og frá þeim berast ákveðin
boð upp í heila. Það framkallar fyrir-
sjáanleg áhrif samkvæmt jógískum
Okkur veitir ekki af
jafnvægisstillingu
Kundalini-jóga er hægt að stunda nánast hvar sem er og hvenær sem er. Arnbjörg
Konráðsdóttir kundalini-jógakennari var í sjósundi ásamt góðum hópi kvenna
nýlega og prófaði í leiðinni að iðka jóga í köldum sjónum á Gáseyri við Eyjafjörð
og kunni því vel. Hún ætlar að bjóða upp á gönguhugleiðslu í Öskjuhlíðinni og
hefst hún á morgun.
Ljósmynd/Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir
Úti Arnbjörg í Kjarnaskógi fyrir helgi þar sem hún fór í gönguhugleiðslu.
Ljósmynd/Freydís Erna Guðmundsdóttir
Í sjónum Hér gerir Arnbjörg jógaæfingar í sjónum á Gáseyri við Eyjafjörð.
Hollt og gott mataræði skiptir máli
þegar maður stundar mikla hreyfingu
og/eða vill ná af sér nokkrum kílóum.
Til að fá hugmyndir að heilsu-
samlegum og góðum mat er sniðugt
að kíkja á vefsíðuna eatingwell.com.
Þar er meðal annars að finna hand-
hægt viku matarplan fyrir þá sem
vilja létta sig. Því er skipt eftir því
hversu margar kaloríur fólk vill inn-
byrgða á viku hverri. Einnig er á vef-
síðunni að finna hugmyndir að holl-
um morgunmat og uppskriftir að alls
konar girnilegum, einföldum og holl-
um mat. Sumar hverjar miða líka að
því að fólk þurfi ekki að eyða of miklu
í máltíðina heldur geti borðað vel á
fremur ódýran hátt. Á vefsíðunni er
einnig að finna fréttir tengdar mat-
vælaiðnaðinum, mataræði og nær-
ingarfræði. Forvitnileg vefsíða fyrir
þá sem vilja fræðast og finna góðar
uppskriftir.
Vefsíðan www.eatingwell.com
Hollusta Það er gott að búa sér til pestó úr eldrauðum og fallegum tómötum.
Einföld og ódýr hollusta
Næstkomandi laugardag verður Jök-
ulsárhlaup 2011 haldið í áttunda
skipti en það fer fram í Jökulsár-
gljúfrum í Vatnajökulsþjóðgarði.
Öll leiðin liggur um stígakerfi
þjóðgarðsins og er hlaupið um
hrjóstuga mela og grófar klappir,
eftir moldargötum í grónu landi og
eftir göngu-/fjárgötum í grósku-
miklum birkiskógi. Þá liggur loka-
leggur allra leiðanna meðfram
barmi Ásbyrgis. Í Jökulsárhlaupinu
eru í boði þrjár vegalengdir, Detti-
foss - Ásbyrgi 32,7 km, Hólmatung-
ur - Ásbyrgi 21,2 km og Hljóða-
klettar - Ásbyrgi 13,2 km.
Endilega …
… hlaupið Jökulsárhlaupið
Hlaup Gerir öllum gott, hvort sem er í borg eða úti í náttúrunni.
Maður sem hefur stundað langhlaup í
tæplega fjörutíu ár hafði samband við
blaðið og vildi vekja athygli á því að
þegar hlaupið væri, skipti undirlagið
sannarlega máli. Ástæðan fyrir því að
hann vildi vekja máls á þessu, var
stutt grein hér á þessum síðum fyrir
skömmu, þar sem vitnað var í erlenda
miðla og rannsóknir þar sem fullyrt
var að undirlagið skipti ekki máli. „Þó
svo að líkaminn lagi sig að hörðu und-
irlagi, þá er það ekki rétt að undir-
lagið skipti ekki máli, þegar fólk á
annað borð hleypur eitthvað að ráði.
Við eigum ekki að taka öllu sem vís-
indamenn fullyrða sem sannleika, ef
reynslan segir annað. Ég vil að þeir
sem eru kannski að byrja að hlaupa,
viti að við, sem höfum reynsluna,
þekkjum það að undirlagið skiptir
máli. Ég hef reynt þetta á eigin
skrokk. Það er til dæmis ástæða fyrir
því að ég vil ekki hlaupa á steyptum
gangstéttum. Þær eru alltof hart und-
irlag fyrir langhlaupara. Ef fólk prófar
að hlaupa lengi eftir malbikaðri gang-
stétt annars vegar og eftir steyptri
gangstétt hinsvegar, þá finnur það
fljótt að það er eins og svart og hvítt.
Steypta gangstéttin er allt of hörð og
fólk verður miklu þreyttara eftir að
hafa hlaupið á slíku undirlagi heldur
en á malbikinu. Hér í Reykjavíkurborg
eru víða steyptar gangstéttir á löng-
um köflum og við hlauparar höfum
fengið skammir fyrir að hlaupa ekki á
gangstéttum heldur á malbikinu á
akstursgötunum, en það er einfald-
lega vegna þess að það fer betur með
okkur að hlaupa á malbikinu. Ég lagði
til við Reykjavíkurborg að rannsakað
væri hvaða áhrif það hefði á hlaupara
að hlaupa á steyptu undirlagi, því það
mun skila sér í betri heilsu borgar-
anna í framtíðinni ef gangstéttir eru
ekki steyptar. Ég hef hlaupið að með-
altali tíu kílómetra á hverjum degi í
tæpa fjóra áratugi og veit að góðir
skór með góðum púða í hæl skipta
máli þegar við hlaupum langt, eins og
maraþon, á hörðu undirlagi. En skór
mega heldur ekki verða of mikið
tæknivæddir, ef svo má segja. En það
má heldur ekki fara út í öfgar í hina
áttina og hlaupa berfættur, ekki í
langhlaupi. Við sem erum að hlaupa í
bæjarfélögum þar sem er steypa og
malbik út um allt, við vitum að við
þurfum góða skó en þeir sem hlaupa á
mjúku undirlagi, grasi úti í sveit, geta
leyft sér að vera á skóm sem eru með
þunnum botni.
Reynslan kennir fólki
Undirlagið
skiptir víst
máli
Ljósmynd/Eyþór
Undirlag Það skiptir máli hvort undir fótum er steinn, malbik, möl eða gras.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.