Morgunblaðið - 02.08.2011, Page 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011
Nú eru eflaust margir farnir að
hlakka til Reykjavíkurmaraþonsins
sem verður núna í ágúst, nánar til-
tekið 20. ágúst. Ótrúlegur fjöldi
fólks á öllum aldri tekur þátt í
hlaupinu og misjafnt hversu langa
vegalengd fólk hleypur. Hægt er að
velja um að hlaupa heilt maraþon,
hálft maraþon, boðhlaup, 10 km, 3
km skemmtiskokk og svo Lata-
bæjarhlaup fyrir krakkana (700-
1.500 m)
En þó það sé vissulega gaman að
taka þátt í þessum viðburði þá er
hægt að gera enn betur með því að
styrkja gott málefni í leiðinni, eða
hlaupa til góðs. Eins og venjan hefur
verið undanfarin ár er hægt að
safna áheitum í Reykjavíkur-
maraþoninu. Fólk getur ýmist sett í
gang áheitasöfnun þar sem það
hleypur sjálft í nafni einhverra sam-
taka, stofnana eða einstaklings sem
þarf á styrk og stuðningi að halda,
eða þá heitið á einhvern hlaupara.
Þeir sem vilja hlaupa til góðs fyrir
einhvern skrá sig í hlaupið og fara
síðan inn á www.hlaupastyrkur.is til
að setja áheitasöfnun í gang.
Nú er í gangi mikil hvatning til
fólks um að leggja styrktarfélaginu
Líf lið, en það styrkir kvennadeild
Landspítalans. Það bætir aðbúnað
og þjónustu við konur og fjölskyldur
þeirra á meðgöngu, í fæðingu og
sængurlegu, sem og kvenna sem
þurfa umönnun vegna kven-
sjúkdóma.
Öflug boðsveit sem kallar sig
Hlaupalíf hefur skráð sig til að
hlaupa fyrir Líf og eru þar á meðal
læknar og ljósmæður. Þau ætla að
safna fyrir einbýlisaðstöðu fyrir
konur á kvennadeildinni.
Hægt er að leggja málefnum lið
Morgunblaðið/Eyþór
Maraþon Tíu þúsund tóku þátt í fyrra. Mynd frá Reykjavíkurmaraþoni 2010.
Hlaupið maraþon til góðs
Ljósmynd/Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir
Gönguhugleiðsla Það er slakandi að ganga úti í náttúrunni og hugleiða.
fræðum. Við það að þrýsta til skiptis
með þumlinum á vísifingur, löngu-
töng, baugfingur og litla fingur, er
einnig verið að senda ákveðin boð
upp í heila og jafna segulsvið okkar.“
Kundalini-jógað sem Arnbjörg
kennir er eftir forskrift Yogi Bhajan.
„Hann kom með þetta jóga frá Ind-
landi árið 1969 og kynnti það fyrir
Vesturlandabúum, en fram að þeim
tíma var þetta stundað sem laun-
helgi. Kundalini-jóga kemur fólki á
skjótvirkan hátt í vitundarástand,
hér og nú, í núvitundina. Yogi Bhaj-
an taldi það vera það sem fólk í
hraða nútímans þyrfti á að halda.
Kundalini-jóga er yndisleg leið til
bættrar heilsu og það er gaman að
vinna með það. Ég get vitnað um að
það virkar, hef reynt það á eigin
skinni.“
Bílleysi var kveikjan
Arnbjörg segir að til mikils sé
að vinna með því að stunda göngu-
hugleiðslu, hún samþætti heilahvel-
in, örvi virkni heilans, auki jafnvægi,
mildi skap, slaki á, losi streitu og
endurnýi orku. „Að koma sér í núvit-
undarástand og ná slökun, hjálpar til
við að vinna úr alls konar áföllum og
daglegu álagi, og ekki veitir af í
hraða nútímans að sinna okkar innri
líðan.“
Arnbjörg hefur verið með opna
tíma í gönguhugleiðslu í Öskjuhlíð-
inni frá því í apríl. „En nú langar
mig að hafa námskeið og fræða fólk
betur og fara dýpra inn í þessa
ástundun. Ég fór að tileinka mér
gönguhugleiðslu þegar bíllinn minn
bilaði í febrúar og ég þurfti að ganga
til og frá vinnu. Þannig gat ég snúið
bílleysi um miðjan vetur upp í yndis-
lega slakandi hugleiðslu, svo ekki sé
talað um góða nýtingu á tíma. Þetta
er kjörið fyrir fólk sem kýs að ganga
til vinnu dags daglega.“
Arnbjörg hefur kennt kundal-
ini-jóga í tæpt ár, en áður hafði hún
unnið við heilun og Bowen-tækni.
„Ég kenni í jógasal Ljósheima og
hjá Sóley Natura Spa. Ég verð með
hugleiðslunámskeið í vatni sem byrj-
ar núna í ágúst í Sóley Natura Spa,“
segir Arnbjörg sem var nýkomin frá
því að gera jógaæfingar í sjónum á
Gáseyri við Eyjafjörð. „Það var
mjög gaman. Sjórinn er ansi kaldur
en það er ögrandi að einbeita sér á
meðan maður er ofan í honum, það
krefst dýpri einbeitingar.“
Nú hefur verið sýnt fram á það með
rannsóknum að líkamleg hreyfing
hefur góð áhrif á heilastarfsemina og
hægir á andlegri öldrun. Frá þessu er
sagt á vef The New York Times. Þetta
eru góðar fréttir, því eflaust vonast
allir til að halda andlegri heilsu sem
lengst á sínum efri árum. Samkvæmt
þessum rannsóknum hefur líkamleg
áreynsla marktæk bætandi áhrif á
minni eldra fólks, þó reyndar hafi
ekki enn tekist að sanna að hún
hamli sjúkdómum eins og alzheimer.
Hið hversdagslega minnisleysi get-
ur þó plagað fólk alveg nógu mikið,
þegar það man ekki hvar það lagði
frá sér hluti, man ekki nöfn fólks og
fleira í þeim dúr. Það er því til mikils
að vinna fyrir eldra fólk að stunda
reglulega líkamlega hreyfingu, og
góðu fréttirnar eru þær að sam-
kvæmt þessum rannsóknum þurfa
það ekki að vera kröftugar æfingar
heldur hafa stuttir göngutúrar, garð-
vinna og almenn heimilisþrif góð
áhrif á heilastarfsemina. Aukið blóð-
flæði til heilans er það sem skiptir
mestu og það eykst við alla líkamlega
hreyfingu. Þetta ætti að hvetja þá
sem hafa verið óduglegir við að
hreyfa sig, til að standa upp og koma
blóðinu á hreyfingu. Það er semsagt
ekki nauðsynlegt að fara í ræktina
eða gera flóknar og erfiðar æfingar.
Það sem skiptir máli er að sitja ekki
kyrr. Algert hreyfingarleysi er verst
af öllu.
Ein af rannsóknunum stóð yfir í
fimm ár og náði til hóps kvenna sem
allar voru um sjötugt og með æða-
sjúkdóma. Þær voru ekkert sér-
staklega sprækar líkamlega og meðal
þeirra var enginn maraþonhlaupari.
Þær sem voru virkastar fóru í göngu-
túra. En gerður var samanburður á
þeim sem hreyfðu sig eitthvað og
hinum sem voru kyrrsetumanneskjur.
Vissulega varð vitsmunaleg hnignun
hjá báðum hópum, en hjá kyrrsetu-
konunum dró hraðar úr hæfileikanum
til að muna og hugsa heldur en hjá
þeim sem hreyfðu sig eitthvað.
Það að ganga og stunda létta
hreyfingu getur fært fólki allt að
fimm ár með betri heilastarfsemi en
ella. Fólk getur því frestað elliglöp-
unum um nokkur ár með því að
stunda reglulega hreyfingu.
Rannsóknir
Tekið á því Að lyfta lóðum eða stunda aðra hreyfingu hægir á elliglöpum.
Hreyfing heldur heilanum við
Kennda verður ferns konar göngu-
hugleiðsla á þessu fjögurra vikna
námskeiði. Námskeiðsdagar eru
miðvikudagar og tveir hópar í boði.
Fyrri hópurinn hittist kl. 16:30 og
seinni hópurinn kl. 17:30.
Hist verður í Öskjuhlíð á bílaplan-
inu við Perluna. Hver tími er ein
klukkustund. Fyrsta skipti er á
morgun, 3. ágúst.
Skráning og nánari upplýsingar:
akk@samana.is, www.samana.is,
www.ljosheimar.is og Facebook:
Samana, s: 862-3700
Tveir hópar í boði
NÁMSKEIÐIÐ
Morgunblaðið/Ernir
Skógur Fallegt er í Öskjuhlíð og
þar rekst fólk oft á kanínur.
Þann 19. ágúst kemur út
glæsilegt sérblað um skóla
og námskeið sem mun
fylgja Morgunblaðinu
þann dag
MEÐAL EFNIS:
Endurmenntun.
Símenntun.
Iðnnám.
Tómstundarnámskeið.
Tölvunám.
Háskólanám.
Framhaldsskólanám.
Tónlistarnám.
Skólavörur.
Skólatölvur.
Ásamt full af spennandi efni.
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 15. ágúst
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
Í blaðinu verður fjallað um þá fjölbreyttu
flóru sem í boði er fyrir þá sem stefna á
frekara nám í haust.
Skólar & námskeið
SÉRBLAÐ
Skólar & námske
ið