Morgunblaðið - 02.08.2011, Side 14
BAKSVIÐ
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Bændurnir á Ytra-Lóni á Langanesi vilja moka
ofan í um 5 kílómetra langa skurði í mýrum sem
voru framræstar fyrir 30-40 árum. Skurðgröft-
urinn var ríkisstyrktur á sínum tíma en erfitt
hefur verið að fá styrki til að moka aftur ofan í,
þótt það sé óumdeilanlega afar umhverfisvænt.
Með framlagi frá álverinu í Straumsvík virðist
sem fé fáist loks til að moka ofan í skurði í
stórum stíl.
Með því að moka ofan í
skurði má endurheimta vot-
lendi sem bætir m.a. vatna-
far í ám sem liggja að mýr-
unum, varðveitir
næringarefnin í landinu,
bætir skilyrði fyrir fuglalíf
og bindur kolefni.
Sverrir Möller og eigin-
kona hans, Mirjam Blekken-
horst, reka umhverfisvænt
farfuglaheimili að Ytra-Lóni á og hafa fylgt um-
hverfisstefnu Bandalags íslenskra farfugla-
heimila í 8-10 ár. Þau eru líka sauðfjárbændur
með um 450 fjár. Fuglalíf við Ytra-Lón er afar
mikið og með eindæmum fjölbreytt og segir
Sverrir að sífellt fleiri ferðamenn komi sérstak-
lega á Langanes til að fylgjast með fuglalífinu. Á
Ytra-Lóni er töluvert stólað á fuglaáhugamenn
og í fyrra var t.d. reist þar fuglaskoðunarhús.
Skógur styrktur – ekki mokstur
Sverrir segir þau hjónin hafa reynt eftir
mætti að draga úr kolefnislosun við búskap og
annan rekstur. Fyrir nokkrum árum hófu þau
þátttöku í Norðurlandsskógum, sem er ríkis-
styrkt verkefni, og hafa hlotið styrki til að gróð-
ursetja á jörðinni, einkum lerki og birki en einn-
ig greni. Þannig binda þau kolefni en rækta
jafnframt skóg og skapa atvinnu fyrir börn sín.
Þá bendir Sverrir á að eftir að hann ræktaði upp
nokkra kílómetra af skjólbeltum, frá árinu 2000,
hafi rjúpu stórfjölgað við bæinn og að undan-
förnu hafi um 4-5 rjúpnahópar haldið sig á bæj-
arhlaðinu. Ýmsar aðrar tegundir sæki í skjól-
beltið.
Það hefur á hinn bóginn reynst Sverri erf-
iðara að afla styrkja til að moka ofan í gríð-
armikla skurði sem grafnir voru í mýrar fyrir
norðan bæinn á áttunda áratugnum. Skurðirnir
hafa verið þyrnir í augum Sverris frá því þau
hófu þar búskap árið 1991.
„Þessir skurðir eru flestir ekki til neins, nema
til bölvunar. Við missum fullt af fé í þá á haustin,
aðgengi fjárins að beitilandinu er verra en það
gæti verið og síðan er þetta hroðalegt lýti á land-
inu,“ segir Sverrir. Lengsti skurðurinn sem
hann vill láta moka ofan í er um 2,5 km að lengd.
Sverrir segir að á sínum tíma hafi verið ætl-
unin að rækta upp hluta af mýrunum en ekkert
hefði orðið af því. Framræslan hafi því í raun
spillt gæðum landsins. Áður hafi þarna verið
gjöful engi sem slegin voru með handafli og síð-
ar léttum vélum. „Hefði þekkingin verið meiri
hefðu menn líklega séð að þetta yrði ekki til
gagns. En þetta var tilraunaverkefni á sínum
tíma og bændur gerðu það sem þeim var
kannski ráðlagt,“ segir hann.
Fyrir nokkrum árum hafði Sverrir samband
við Hlyn Óskarsson vistfræðing, sem þá hafði
tekið við verkefnum votlendisnefndar. Sverrir
segir að þá hafi enga fjármuni verið að hafa hjá
ríkinu til svona verkefna. Helsta vonin var
Vegagerðin en hún er skuldbundin til að end-
urheimta jafn mikið votlendi og hún ræsir fram
þegar hún leggur vegi. „En þar var enginn
áhugi á því og ég er alveg viss um að Vegagerðin
skuldar heilmikið votlendi,“ segir Sverrir.
Tilstyrkur nauðsynlegur
Nú er ætlun Sverris að bjóða fram mýrarnar
til að álver geti látið moka ofan í skurðina. Með
því móti binst kolefni í jarðveginum og þannig
stuðlar álverið að því að kolefnisjafna fram-
leiðslu sína. Bæði Sverrir og álverið mun því
leggja sitt til umhverfisins með þessu móti.
Sverrir segir kostnað við að moka ofan í
skurðina vera verulegan og of mikinn til að bú-
reksturinn og farfuglaheimilið ráði við hann. Til-
styrkur frá öðrum sé því nauðsynlegur. Bænd-
ur, ekki síst á jaðarsvæðum, þurfi að hafa allar
klær úti til að láta reksturinn ganga upp. „Fyrir
láglaunasauðfjárbændur eins og mig er þetta
mikill pakki en ávinningurinn er mikill.“
Vill moka ofan í ljóta skurði
Bændur á Ytra-Lóni vilja moka ofan í 5 km af ljótum og gagnslausum skurðum frá 8. áratugnum
Mokstur var ríkisstyrktur á sínum tíma Aldrei notaðir í ræktunarskyni Tilstyrkur nauðsynlegur
Djúpir Skurðirnir í landi Ytra-Lóns eru hættulegir fé og bændur hafa misst margt fé ofan í þá.
Hundarnir eru óhultir, enda virðast þeir kunna hundasund ágætlega.
Ljósmynd/Sverrir Möller
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011
Viðamesta aðgerð til endurheimtar votlendis
var endurheimt Framengja og Nauteyjar sem
eru í Mývatnssveit, sunnan Mývatns. Alls var
vegalengd skurða sem var lokað 13,7 km.
Framengjar voru ræstar fram upp úr 1950
og næstu 20-25 árin voru þær notaðar tölu-
vert til slægna. Því var að mestu hætt eftir
um 1970 þegar bændur á nálægum bæjum
eignuðust tún í Hofsstaðaheiði.
Upp úr 2000 kviknaði áhugi á að fylla upp í
skurðina og endurheimta votlendið. Einn af
helstu forgöngumönnum verkefnisins var
Ingólfur Á. Jóhannesson prófessor, en hann
er alinn upp á Skútustöðum.
Ingólfur segir að mestu hafi skipt að bænd-
um tókst að afla fjár frá Vegagerðinni sem
þarf að bæta fyrir votlendi sem hún ræsir
fram. Þá hafi sömuleiðis verið mikilvægt að
Pokasjóður styrkti gerð vörslugirðinga.
Vegagerðin þurfti því eingöngu að leggja til
fé til framræslu, en ekki til að girða.
Ingólfur hefur fylgst með þessum málum
fuglalíf hafi endilega aukist í kjölfar þess að
skurðunum var lokað, enda hafi flatarmál
vatns í skurðunum verið töluvert. Ekki hafi
þó verið fylgst með því sérstaklega.
Gaman að sjá landið taka við sér
Ingólfur segir að líkt og margir hafi gaman
af skógrækt, að sjá trén vaxa upp, sé einnig
gaman að sjá landið ná sér eftir framræslu,
að sjá gróðurinn breytast og taka við sér.
Sums staðar spretti grasið líka betur eftir að
mokað var ofan í skurðina. Einnig fegri þetta
landið.
„Eitt það alversta sem ég sé er svæði sem
skurðir voru grafnir, kannski fyrir löngu, en
svo hefur ekkert verið gert þar,“ segir hann.
Ingólfur segir að það sé að sjálfsögðu eðlilegt
að menn endurnýi og haldi við þeim skurðum
sem þeir þurfi til ræktunar. „Ég veit ekki um
neinn sem hefur áhuga á að fylla upp í alla
skurði á landinu.“
runarp@mbl.is
eftir að þessu verkefni lauk og hann telur að
mun meira fé vanti í þennan málaflokk.
Aðspurður segist hann ekki viss um að
Gaman að sjá landið lifna
Mestu endurheimturnar voru með styrk Vegagerðarinnar og Pokasjóðs
Eðlilegt að halda við skurðum til ræktunar Stundum bara mokað
Ljósmynd/Ingólfur Á. Jóhannesson
Verk Mokað í Framengjum. Eyþór Baldursson
bóndi í Baldursheimi sést á mynd en Marteinn
Gunnarsson á Hálsi í Kinn er á gröfunni.
Í skýrslu votlendisnefndar frá 2006 kemur
fram að á Íslandi hafi verið grafnir u.þ.b.
32.000 km af skurðum til að framræsa mýrar.
Talið er að flatarmál þess votlendis sem hef-
ur verið framræst sé yfir 4.000 km².
Framræsla var styrkt af ríkinu til 1987.
Framræsla hófst af alvöru á fjórða áratug
síðustu aldar. „Þegar styrkveitingar lögðust
af var búið að framræsa stóran hluta alls vot-
lendis á láglendi. Í Borgarfjarðarsýslu, þar
sem votlendi var um 240 km² árið 1930, voru
aðeins um 22 km² af ósnortnu votlendi eftir
þegar framræslu lauk. Í öðrum landshlutum
var ástandið jafnvel enn verra, svo sem á
Suðurlandi. Á svæðinu frá Ölfusá að Mark-
arfljóti er áætlað að um aldamótin 1900 hafi
verið um 1.100 km² af mýrlendi. Nú eru að-
eins um 170 km² eftir af lítt röskuðu mýrlendi
og um 33 km² af óröskuðu mýrlendi,“ segir í
skýrslu nefndarinnar.
Á starfstíma nefndarinnar náðist þó aðeins
tæplega að halda í horfinu því meira var ræst
fram en var endurheimt. Nefndin náði þó
töluverðum árangri, ekki síst við að breyta
hugarfari en mörgum þótti sérkennilegt að
moka ofan í skurði.
Um 32.000 km af skurð-
um framræstu nánast allt
votlendi á láglendi
Hlynur Óskarsson, vistfræðingur og
stjórnarformaður Votlendissetursins á
Hvanneyri, segir aðspurður ríkið hafi varið
litlu fé til að endurheimta votlendi. Á
starfstíma votlendisnefndar 1996-2006
hafi samtals 5 milljónum verið varið í
verkefnið. Vegagerðin hafi staðið fyrir
mestu endurheimt votlendis því henni beri
að endurheimta jafn mikið af votlendi og
hún ræsir fram við vegagerð. Þannig er
einungis haldið í horfinu en Hlynur segir
að Vegagerðin hafi staðið sig vel í þessu.
Til viðbótar hafi Pokasjóður styrkt nokkur
verkefni og nýr sjóður, Auðlind, sömuleið-
is en sá sjóður ráði ekki yfir miklu fé.
Hlynur segir að mest muni um samning
Votlendissetursins og Alcan á Íslandi sem
rekur álverið í Straumsvík. Samið var um
að Alcan legði fram 40 milljónir á fjórum
árum til að endurheimta votlendi. Mark-
mið samningsins er að endurheimta um 5
ferkílómetra votlendis og stöðva þannig
árlega losun á um 2.500 tonnum af kol-
díoxíði. Þetta jafngildir útblæstri frá um
600 einkabílum.
Lengst af
févana verkefni
ÁLVERIÐ Í STRAUMSVÍK
ÆTLAR AÐ ENDURHEIMTA 5 KM²
Sverrir Möller