Morgunblaðið - 02.08.2011, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011
ENN MEIRI m.mbl.is
- V I L T U V I T A M E I R A ?
Fleiri efnisflokkar, vefsjónvarp mbl, Smartland
og margt fleira er meðal nýjunga sem þú
getur nálgast í símanum þínum.
Fáðu fréttirnar þegar þú vilt.
www.m.mbl.is
m.mbl.is var valinn farsímavefur ársins fyrir árið 2010.
NÚ ÆTLUM VIÐ AÐ GERA ENN BETUR 2011.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Hinsegin dagar eru ekki bara
skemmtileg hátíð og mannréttinda-
viðburður, heldur líka allstórt fyr-
irtæki. „Þegar allt
er talið eru vel yf-
ir 200 sjálf-
boðaliðar sem
leggja hönd á plóg
við að gera hátíð-
ina að veruleika
og heildarkostn-
aðurinn hleypur á
bilinu 12 til 16
milljónir ár
hvert,“ segir Jón
Sævar Baldvins-
son, gjaldkeri Hinsegin daga í
Reykjavík, en talið er að á milli 70 og
90 þúsund manns hafi komið í mið-
borgina síðasta ár til að fylgjast með
herlegheitunum. „Allir listamenn-
irnir sem fram koma, allir sem smíða
vagna fyrir gönguna og eru þar með
atriði eða selja varning – allt eru
þetta sjálfboðaliðar sem gefa vinnu
sína.
Auk göngunnar næsta laugardag
er fjöldi viðburða haldinn undir hatti
Hinsegin daga. „Dagskráin byrjar á
fimmtudag með opnunarhátíð í Há-
skólabíói. Á föstudag bjóðum við
landsmönnum á ókeypis tónleika í
Hörpunni, Á hinsegin nótum, og eftir
það verður hinseginsigling með Eld-
ingu út á sundin og dansleikir fram
eftir nóttu. Á laugardagskvöld verða
aftur dansleikir og svo fjölskylduhá-
tíð í Viðey á sunnudag og sýning á
Svikaranum í Tjarnarbíói,“ útskýrir
Jón Sævar „Ofan á allt þetta bætist
svo útgáfa hátíðarrits sem dreift er
víða um land í 18.000 eintökum, sala á
varningi í aðdraganda hátíðarinnar
og á sjálfan göngudaginn, og loks
ýmsir fjáröflunarviðburðir vikurnar
og mánuðina fyrir hátíðina.“
Styrkirnir skila sér vel
Hinsegin dagar eru að stærstum
hluta reknir með styrkjum og auglýs-
ingum. Borgin leggur 4 milljónir til
hátíðarinnar, ríkið styrkir hátíðina
með nokkrum smáum styrkjum frá
ráðuneytunum, og stórir styrktarað-
ilar eins og Landsbankinn, N1, Ice-
landair Hotels, Vís og Vífilfell leggj-
ast á eitt með minni styrktaraðilum
til að létta róðurinn enn frekar. Jón
segir alls ekki hægt að kvarta yfir
þeim stuðningi sem viðburðurinn fær
og heimtur á lofuðum styrkjum í
fyrra hafi verið nærri því 100%. Ekki
aðeins sé fjöldi fólks tilbúinn að gefa
vinnu sína ár eftir ár heldur séu fyr-
irtækin mjög viljug til að stykja.
„Fyrstu ár göngunnar gat reksturinn
verið mjög erfiður, og Hinsegin dag-
ar oft fjármagnaðir með yfirdrætti og
persónulegum lánum. Núna er fjár-
hagurinn farinn að ganga nokkuð vel
og síðastliðin tvö ár hefur hátíðin
nokkurn veginn staðið á jöfnu.“
Jón Sævar bendir líka á að það er
ekki bara gott fyrir samviskuna að
styðja gott málefni eins og Hinsegin
daga. „Ég held það sé líka óhjá-
kvæmilegt að fyrirtæki njóta góðs af
því að veita okkur stuðning í verki.
Við sjáum á pöntunum á aðgangs-
pössum á netinu að fjöldi útlendinga
kemur til landsins gagngert til að
upplifa hátíðina. Þetta fólk þarf að
kaupa flug og gistingu. Gestir á við-
burðum hátíðarinnar eru svo að
heimsækja verslanir og veitingastaði
í miðborginni, og nota oft hátíðarrit
Hinsegin daga sem vegvísi.“
Allir leggjast á eitt til að halda hátíð
Borg, ríki, styrktaraðilar og yfir 200 sjálfboðaliðar á bak við Hinsegin daga
Getur verið gáfulegt að höfða til samkynhneigðra enda góðir neytendur
Morgunblaðið/Ómar
Kæti Sölukona á ferð á Laugaveginum með varning síðasta sumar. Skari
sjálfboðaliða kemur að viðburðinum og ýmsar leiðir eru farnar til að afla fjár.
Jón Sævar
Baldvinsson
Arndís Björg Sigurgeirsdóttir á og
rekur verslunina Iðu í félagi við
Báru Kristinsdóttur. Þær stofnuðu
fyrirtækið saman árið 2004 og selja
þar í dag blöndu
af gjafavöru, bók-
um og ferða-
mannavarningi.
Arndís segir
það ekki fara
milli mála að Hin-
segin dagar og
Gay pride-
gangan skipti
miklu fyrir rekst-
ur verslana og
veitingastaða í
miðborginni. „Þetta er kannski ekki
eins og Þorláksmessa, en viðburður
sem skiptir gífurlegu máli fyrir bæ-
inn. Það er uppgangur hjá öllum
verslunum þennan dag og að mínu
mati stærri verslunardagur en 17.
júní. Við sjáum einnig að viðburð-
urinn trekkir að mjög mikið af túr-
istum, bæði samkynhneigðum og
gagnkynhneigðum, því þessi hátíð
okkar er orðin að þekktu fyrirbæri
erlendis.“
Eflir mannlífið
Arndís segir söluna í kringum Gay
pride það góða að skipti töluverðu
máli fyrir reksturinn. Þar að auki
segir hún að hátíð eins og Hinseg-
ingangan minni fólk á miðbæinn.
„Rétt eins og á menningarnótt og 17.
júní er þetta hátíð sem fær fólk til að
koma í bæinn. Hátíðargestir skoða
sig um, ganga um miðborgina í
hægðum sínum og gera sér glaðan
dag. Ef fólk notar ekki ferðina til
innkaupa, þá kemur það kannski
auga á eitthvað skemmtilegt og kíkir
aftur í bæinn síðar til að versla.“
Áhrifin af göngunni segir Arndís
að séu svo góð að henni kæmi ekki á
óvart ef verslunareigendur ofarlega
á Laugaveginum muni finna mikinn
mun í ár með breyttri gönguleið.
Hersingin hefur hingað til farið frá
Hlemmtorgi og niður í bæ eftir
Laugaveginum en nú hefst gangan
við BSÍ og liggur meðfram Reykja-
víkurtjörn. Breytingin er gerð til að
gefa stærri vögnum og áhorfendum
betra rými. „Ég held ég myndi verða
alveg miður mín ef gangan færi eitt-
hvað allt annað. Það væri töluverður
missir verslunarlega séð, fyrir utan
hvað það er gaman að geta skotist
frá og fylgst með atriðunum og
skemmtidagskránni.“
Nokkrar hillur fráteknar
Stutt er síðan Iða tók yfir rekstur
Bókabúðar Máls og menningar á
Laugaveginum. Þar, eins og í Iðu við
Lækjargötu, segir Arndís að þess sé
gætt að gleyma ekki hinseginbók-
menntunum. „Þegar við hófum
rekstur árið 2004 var sáralítið að
finna af bókum um samkynhneigð.
Við höfum frá upphafi gætt þess að
taka alltaf frá nokkrar hillur í Iðu
undir hýrar bókmenntir. Veltan er
kannski ekki svo mikil, og lestr-
arhestarnir geta líka gengið að mjög
góðu og sérhæfðu bókasafni hjá
Samtökunum 78, en við seljum þess-
ar bækur ekki síst vegna hugsjónar-
innar. Við höfum þó vissulega ákveð-
inn hóp fastakúnna sem kaupa
reglulega eina og eina hýra bók.“
ai@mbl.is
„Ég myndi verða miður mín ef
gangan færi eitthvað annað“
Gleðigangan vítamínsprauta fyrir verslun í miðborginni
Kaupfélag Hinsegin daga starfrækt í Iðu þessa vikuna
Morgunblaðið/Ómar
Fjöldi Arndís segir mikinn uppgang hjá verslunum í miðborginni þegar
gleðigangan fer fram. Hátíðin festir miðborgina í sessi sem viðkomustað.
Arndís Björg
Sigurgeirsdóttir
Hinsegin dagar eru ekki bara gleði og gaman og minnir Jón á að þrátt fyr-
ir litadýrðina, fjörið og jákvæðnina sem fylgir skrúðgöngunni og öðrum
viðburðum þá sé réttindabarátta samkynhneigðra og tengdra minni-
hlutahópa alvörumál. Þó stórir sigrar hafi unnist hér á landi sé enn hægt
að finna gloppur í lögunum, t.d. hvað varðar transfólk, og eins þurfi að
minna á að úti í heimi búa samkynhneigðir við allt annan veruleika en
fólk fær notið á Íslandi. „Þó að við höfum það nokkuð gott hér þá er fullt
af fólki sem býr við virkilega skítt umhverfi,“ segir Jón.
Auk þess að sýna stuðning með því að mæta á hátíðina í miðborginni á
laugardag segir Jón mikilvægt að almenningur leggi göngunni lið með því
að kaupa varning. „Að frátöldum styrkjum er sala á regnbogavarningi
okkar stærsta tekjulind. Auk þess að selja regnbogafána og smávörur
prentum við Hinsegin daga-bol og hann þykir trendý þetta árið.“
Samkynhneigðir eiga undir
högg að sækja víða um heim
ALMENNINGUR GETUR LAGT SITT AF MÖRKUM
Samkynhneigðir neytendur virð-
ast á síðustu árum hafa náð að
rata inn í sjónsvið íslenskra fyr-
irtækja. Þetta er svipuð þróun og
sést hefur vestanhafs, en mæl-
ingar í Bandaríkjunum sýndu t.d.
að af 500 stærstu fyrirtækjunum
þar í landi voru um 175 sem
reyndu að höfða sérstaklega til
samkynhneigðra í markaðsstarfi
sínu árið 2005, borið saman við
aðeins 19 árið 1994.
Jón segir eftir miklu að slægj-
ast ef fyrirtæki tekst að laða til
sín samkynhneigða kúnna. „Bæði
er þetta allstór hópur og líka
mjög neysluvænn. Ef við tökum
karlhópinn eru þar iðulega tvær
fyrirvinnur á heimili og mikið af-
lögu fyrir hvers kyns neyslu.
Þetta er oft fólk sem verslar vel,“
segir hann. „Samkynhneigðir
taka líka vel eftir, eins og aðrir
minnihlutahópar, hver það er sem
gefur þeim gaum, og eru þakk-
látur hópur.“
„Fólk sem
verslar vel“
SAMKYNHNEIGÐIR ÞYKJA
SAFARÍKUR MARKAÐSBITI
Í Iðu er nú starfrækt lítið, hýrt
verslunarsvæði, Kaupfélag Hin-
segin daga. „Við höfum lengi haft
í boði smávegis af vöru sem teng-
ist samkynhneigð en svo gerðist
það í fyrra að aðstandendur Hin-
segin daga leituðu til okkar til að
athuga hvort við gætum séð af
plássi í versluninni undir vöru til
styrktar göngunni. Útkoman var
mjög góð, við tókum frá gott
pláss og höfðum mjög gaman af
að hafa hér inni í búðinni þennan
bás og fólkið sem stóð þar vakt-
ina,“ segir Arndís. „Við tókum
þeim því fagnandi þegar skipu-
leggjendur hátíðarinnar leituðu
aftur til okkar í ár.“
Kaupfélag Hinsegin daga var
opnað fyrir röskri viku og selur
fána, boli og ýmsa smávöru í
regnbogalitunum. Hagnaður af
sölunni rennur óskiptur til hátíð-
arinnar.
Regnboga-
kaupfélagið