Morgunblaðið - 02.08.2011, Side 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011
Á löglegum hraða Einhver spaugarinn hefur fest upp spjald á hraðamæli á Þingvallavegi í Mosfellsdal þar sem skrá á númer bílanna sem mælst hafa á hvað mestum hraða. Hraðakstur veldur
hinsvegar mörgum bílslysum ár hvert og má rekja mörg dauðsföll til hans. Geta því flestir sammælst um að hraðakstur er ekkert til að grínast með.
Ernir
Manila – Eina
helstu uppsprettu
spennu í Asíu er að
finna í Spratlyeyjum í
Suður-Kínahafi, þar
sem Filippseyjar, Ví-
etnam, Kína og önnur
ríki gera kröfur sem
stangast á. Í kín-
verskum fréttaskeyt-
um er því haldið fram
að aukin „óvinátta“ á
svæðinu stafi af „illmælgi og
vangaveltum“ álitsgjafa á Filipps-
eyjum. En raunveruleikinn á sér
harðari hlið: rof kínverskra flug-
véla á lofthelgi Filippseyja í maí;
sigling kínverskra varðskipa í
mars á Reedgrunni, um 137 km
vestur af filippeysku eyjunni Pa-
lawan; og það sem alvarlegast er,
skothríð kínverskrar freigátu á fil-
ippeyska fiskibáta í febrúar nærri
kóraleyjum í héraðinu Quirino,
undan ströndum Palawan.
Munu vopnuð átök hljótast af
þessum endurteknu – og, að því er
virðist, stigmagnandi – deilum á
milli Filippseyja og Víetnam ann-
ars vegar og Kína hins vegar?
Stríð þjónar, að sjálfsögðu, ekki
hagsmunum neins. En áhættan
sem er fólgin í þessum deilum fer
vaxandi vegna þess að samskipti
Kínastjórnar við Filippseyjar og
Víetnam hafa ekki verið stirðari í
áratugi. Með þessa spennu í huga
kemur ekki á óvart að nánast megi
slá því föstu að deilur
um fullveldi í Suður-
Kínahafi muni verða í
brennidepli á svæðis-
þingi ASEAN-
ríkjahópsins og á
Austur-Asíuþinginu í
Balí í kjölfarið.
Í júní síðastliðnum
var ég með framsögu
á hátíðardagskrá í til-
efni þess að 36 ár eru
liðin frá því að dipló-
matískum sam-
skiptum var komið á
milli Filippseyja og Kína og í til-
efni þess að haldið var upp á „vina-
dag“ Filippseyja og Kína í tíunda
sinn, að viðstöddum um 5.000 lönd-
um mínum og reytingi af kínversk-
um embættismönnum. Engu að
síður átöldu kínversku blöðin í
uppslætti sínum sama dag Filipps-
eyinga fyrir hina sögulegu kröfu til
eignarréttar á Spratlyeyjum.
Að sjálfsögðu gera ríkisstjórnir
beggja ríkja sér grein fyrir því að
viðhalda þarf þeim stöðugleika og
þeirri samvinnu sem hefur gert
Austur-Asíu að því svæði heimsins
þar sem hagvöxtur er mestur.
Sama má segja um stjórnvöld í Ví-
etnam og Bandaríkjunum. Hins
vegar er ekki til neinn vettvangur
á vegum stofnana til að ræða og
leysa ágreininginn, sem hefur
stöðugt meiri þýðingu dag frá
degi, en það má aftur rekja til
þeirrar trúar að gífurlegar birgðir
steinefna og jarðefnaeldsneytis sé
að finna á hafsbotninum umhverfis
Spratlyeyjar. Nú er rétti tíminn
fyrir Kína, Filippseyjar, Víetnam
og aðrar þjóðir sem gera tilkall til
svæðisins og Bandaríkjanna til að
grípa til aðgerða til að slá á þessa
spennu. Umfram allt þurfa leiðtog-
ar á Asíu- og Kyrrahafssvæðinu að
gera með sér sáttmála sem leiðir
til friðsamrar lausnar á deilunni
sem er bindandi fyrir alla hags-
munaðila, stóra sem smáa. Aðeins
slík bindingsheit geta leitt til
þeirrar fullvissu sem fjárfestar –
hvaða fjárfestar sem eru – munu
þurfa ef nýta á auðlindir Sprat-
lyeyja.
Leiðtogar Kína tala vissulega
eins og þetta sé þeirra takmark. Í
apríl lét Hu Jintao, Kínaforseti,
þessi orð falla á þinginu í Boao
(hin asíska hliðstæða Alþjóðaefna-
hagsþingsins í Davos) á Hainan-
eyju: „Friður og þróun mega sín
meira en önnur viðfangsefni í sam-
tímanum. Heimurinn þarf á friði
að halda, ríki eiga þróunina skilið
og almenningur er fylgjandi sam-
vinnu … Kína mun ávallt verða
góður nágranni, traustur vinur og
tryggur félagi annarra Asíuríkja.“
Það er kominn tími til að þessi
viðhorf verði að veruleika; meira
þarf að koma til en fyrirheit um að
leysa ágreining á friðsaman hátt.
Ríkisstjórnir í Asíu þurfa einnig að
byrja að styðja hugmyndir sem
fela í sér opna og mun víðtækari
svæðisstefnu, sem aftur þýðir að
ríki eins og Indland ættu að hafa
rétt til að tjá sig um málefni Asíu-/
Kyrrahafssvæðisins. Þessar ríkis-
stjórnir verða að virða hagsmuni
ríkja sem standa utan svæðisins í
Asíu. Bjóða ætti Bandaríkin, svo
dæmi sé tekið, velkomin til þátt-
töku – eða áframhaldandi þátttöku
– í friðargæslu og samstarfi á sviði
öryggismála.
En hvernig á Asía að ná slíkri
samstöðu á þessum tímapunkti?
Allar götur síðan 1994, þegar Le
Duc Anh, þáverandi forseti Víet-
nams, var forseti ASEAN-
ríkjahópsins, hef ég lagt það til við
forystumenn samtakanna að fyrsta
skrefið til að byggja upp traust sé
að enginn her skuli vera á Sprat-
lyeyjum.
Hafréttarsáttmáli Sameinuðu
þjóðanna og alþjóðlegar skuldbind-
ingar sem honum tengjast þurfa að
verða grundvöllur árangursríkra
viðræðna sem leiða til bindandi
sáttmála. Sameiginleg leit að auð-
lindum og vinnsla á þeim, innan
eyjaklasans og undir honum, gæti
síðan farið í hönd.
Í víðara samhengi standa leið-
togar Asíuríkja frammi fyrir því
áríðandi verkefni á næstu 5 til 10
árum að leysa af hólmi það fyr-
irkomulag friðar sem Bandaríkin
tryggja (Pax Americana) og tryggt
hefur stöðugleika á svæðinu í ára-
tugi, með yfirgripsmeira fyr-
irkomulagi Asíu-/Kyrrahafsríkja
svo tryggja megi friðinn (Pax
Asia-Pacifica), sem byggir á opinni
samvinnu og því viðhorfi að ríkin
skuli deila byrðunum. En slíkur
friður á Asíu-/Kyrrahafssvæðinu
getur aðeins orðið varanlegur ef
hann byggir á jafnvægi sem hlýst
af gagnkvæmum ávinningi fremur
en valdajafnvægi.
Augljóst er að þessi hugmynd
felur í sér að öll ríki Asíu-/
Kyrrahafssvæðisins beri byrð-
arnar saman til að tryggja öryggi
og samstöðu. Byggja þarf upp
stofnanir fyrir hið nýja fyr-
irkomulag friðar í heimshlutanum,
líkt og friður var tryggður í Evr-
ópu með uppbyggingu eftir síðari
heimsstyrjöld, með öflugu og sam-
stilltu átaki öflugustu ríkjanna og
svæðisheilda – Bandaríkjanna,
Kína, Japans, Indlands, Suður-
Kóreu, Rússlands og ríkjanna tíu
sem eru þátttakendur í samstarfi
ASEAN-ríkjahópsins. Áframhald-
andi framfarir og hagvöxtur á
svæðinu útheimta að við Asíubúar
höfum hemil á metingi okkar og
komust hjá vígvæðingunni sem,
því miður, virðist nú hafin.
Eftir Fidel V.
Ramos »… friður á Asíu-/
Kyrrahafssvæðinu
getur aðeins orðið
varanlegur ef hann
byggir á jafnvægi sem
hlýst af gagnkvæmum
ávinningi fremur en
valdajafnvægi.
Fidel V. Ramos
Höfundur er fyrrverandi forseti
Filippseyja.
©Project Syndicate, 2011.
www.project-syndicate.org
Að tryggja frið Asíuríkja í Kyrrahafinu