Morgunblaðið - 02.08.2011, Qupperneq 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011
Sudoku
Frumstig
2 5
9
9 2
3 2
8 7 6 5 3
5 6 1 9
7 3 8
1 9
3 1 7 2
8 3 6 4 7
3 8 1
6 1 5 8 3
5
3 4
1 9 4
4 3 8
1 6 9
8 7
7
5 2 9
9 5
3 7 4
7 9 5 3 6
3 8 1
6 8
2 7 4 5
3 9 1 6 7 5 8 2 4
4 7 8 3 2 1 9 5 6
5 2 6 4 8 9 3 1 7
2 8 4 5 3 7 6 9 1
1 3 7 9 6 2 4 8 5
6 5 9 1 4 8 7 3 2
8 4 3 2 5 6 1 7 9
9 6 5 7 1 3 2 4 8
7 1 2 8 9 4 5 6 3
2 6 1 7 5 8 3 4 9
9 8 7 2 4 3 6 5 1
4 3 5 6 1 9 7 2 8
3 5 4 9 7 2 1 8 6
8 1 6 4 3 5 9 7 2
7 9 2 8 6 1 4 3 5
5 7 8 3 9 6 2 1 4
6 2 3 1 8 4 5 9 7
1 4 9 5 2 7 8 6 3
6 8 1 9 7 5 3 2 4
5 3 2 1 4 8 7 9 6
9 4 7 2 6 3 8 1 5
1 6 3 5 9 4 2 8 7
4 9 8 7 3 2 5 6 1
7 2 5 6 8 1 4 3 9
3 1 9 8 5 7 6 4 2
2 7 4 3 1 6 9 5 8
8 5 6 4 2 9 1 7 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 2. ágúst, 214. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: „Ef þér hafið þekkt mig,
munuð þér og þekkja föður minn.
Héðan af þekkið þér hann og hafið séð
hann.“ (Jóh. 14, 7.)
Sameiginlegir tónleikar fjögurrastóru þrassbandanna, Metallica,
Slayer, Megadeth og Anthrax, eru
einn merkasti listviðburður seinni
ára en þær sameinuðu krafta sína í
fyrsta skipti á nokkrum tónleikum í
Austur-Evrópu fyrir ári. Einir af
þessum tónleikum, í Sófíu í Búlgaríu,
voru kvikmyndaðir og sendir út í
beinni útsendingu víða um heim.
Nú eru þeir tónleikar komnir út á
mynddiski með tilheyrandi efnis-
auka, þar á meðal þriggja kortera
langri heimildarmynd sem tekin er
að tjaldabaki í Sófíu. Kennir þar að
vonum margra grasa.
x x x
Mynddiskur þessi er að sjálf-sögðu skyldueign fyrir alla
flösufeykja þessa heims og óþarfi að
rekja efni heimildarmyndarinnar í ít-
arlegu máli. Víkverji má þó til með að
minnast aðeins á uppáhaldsatriði sitt
í myndinni. Fyrir tónleika af þessu
tagi fá einatt fáeinir útvaldir aðdá-
endur bandanna að hitta goðin í eigin
persónu, taka í spaðann á þeim og fá
eitt og annað áritað. Sófía var engin
undantekning á því. Búlgari nokkur
var búinn að bíða í tvo áratugi eftir að
hitta Slayer með þessum hætti og
skemmst er frá því að segja að kapp-
inn hreinlega bugaðist þegar hann
stóð loksins andspænis söngv-
aranum, Tom Araya. Hann byrjaði á
því að stökkva upp um hálsinn á Ara-
ya – og var alls ekki illa tekið. Síðan
áttu samræður að hefjast en aum-
ingja manninum lá svo mikið á hjarta
að hann hreinlega bara grét eins og
barn. Mátti Araya hafa sig allan við
til að hugga hann. Svipurinn á söngv-
aranum meðan á því verki stendur er
vægast sagt óborganlegur.
x x x
Fleira skemmtilegt ber fyrir augu,svo sem einlægt samtal gömlu
fóstbræðranna Lars Ulrichs og Dave
Mustaines um börn þess fyrrnefnda;
keðjuskröltið í Kerry King þegar
hann gengur til búningstjalds eftir
tónleikana og saumastund með
Frank Bello í Anthrax. Þrassar verða
að geta stoppað í götin eins og aðrir.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 vandræðaleg, 8
þutum, 9 sjaldgæf, 10 bors,
11 verkfærin, 13 mannsnafn,
15 fjárreksturs, 18 skriðdýr-
ið, 21 álít, 22 fangbrögð, 23
afkomendur, 24 vaxtarlag.
Lóðrétt | 2 ljúf, 3 stúlkan, 4
hegna, 5 gosefnið, 6 liðið
hjá, 7 innyfli, 12 greinir, 14
væn, 15 fokka, 16 heilbrigð,
17 bikar, 18 hafði lifað leng-
ur, 19 horfðu, 20 gefa mat.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 áræði, 4 himna, 7 óskin, 8 gæðin, 9 afl, 11 nýra, 13
hrút, 14 undir, 15 þrær, 17 ábót, 20 hin, 22 gella, 23 ennið, 24
regns, 25 ausum.
Lóðrétt: 1 ásókn, 2 æskir, 3 iðna, 4 hagl, 5 múður, 6 afnot, 10
fæddi, 12 aur, 13 hrá, 15 þægur, 16 ærleg, 18 bónus, 19 tíðum,
20 haus, 21 nema.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Strípiþvingun.
Norður
♠642
♥KD62
♦KD3
♣Á76
Vestur Austur
♠85 ♠973
♥1087 ♥954
♦ÁG104 ♦87652
♣K1083 ♣G9
Suður
♠ÁKDG10
♥ÁG3
♦9
♣D542
Suður spilar 6♠.
Duck like a man! skrifaði breski rit-
höfundurinn S.J. Simon árið 1940 og sú
ráðlegging er enn í fullu gildi. Ekki er
þó víst að ráðið góða dugi í þetta sinn.
Útspilið er spaði. Sagnhafi af-
trompar vörnina og spilar síðan tígli að
hjónunum. Ef vestur er kjarklaus og
drepur strax fríast hjónin á augabragði
og slemman stendur á borðinu. Betri
vörn er að dúkka. Í því tilfelli vantar
slag og slemman tapast með því að
spila laufi að drottningunni. En ef
sagnhafi staðsetur laufkónginn í vestur
með tígulásnum getur hann náð í tólf
slagi með strípiþvingun. Hann klárar
trompin og tekur slagina fjóra á hjarta.
Þá eru þrjú spil á hendi: ♦D og ♣Á-7 í
borði, en ♣D-5-4 heima. Vestur fer
væntanlega niður á ♦Á blankan og
verður sendur þar inn.
2. ágúst 1885
Minnisvarði um Hallgrím Pét-
ursson var afhjúpaður norðan
við Dómkirkjuna í Reykjavík.
Þetta er steinn með hörpu of-
an á og er eftir Júlíus Schou
steinsmið.
2. ágúst 1924
Flogið var í fyrsta sinn yfir
Atlantshaf til Íslands. Flug-
maðurinn var sænskur, Eirik
H. Nelson. Hann flaug frá
Orkneyjum til Hornafjarðar á
átta klukkustundum. Vélin
kom til Reykjavíkur 5. ágúst,
ásamt annarri vél sem kom
degi síðar til Hornafjarðar.
Báðar fóru til Grænlands 21.
ágúst.
2. ágúst 1978
Lokað var fyrir rennsli í hita-
veitulækinn í Nauthólsvík að
næturlagi, en lækurinn hafði
verið vinsæll baðstaður, ekki
síst að dansleikjum loknum.
2. ágúst 1988
Kanadísk flugvél fórst í að-
flugi að Reykjavíkurflugvelli.
Hún skall til jarðar aðeins
fimmtíu metrum sunnan
Hringbrautar. Þrír menn lét-
ust.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Ég ætla að vera í rólegheitum með fjölskyldunni,
það er alltaf langbest,“ segir Úlfar Harri Elíasson
sem á 40 ára afmæli í dag. Hann segist hafa átt
marga skemmtilega afmælisdaga en sá eftir-
minnilegasti hafi verið fyrir tveimur árum. Hann
var sá fyrsti eftir að frumburður hans og eiginkon-
unnar Suzette, Yzabelle Kristín, fæddist.
Oft hittir afmælisdagur Úlfars á verslunar-
mannahelgina. „Þá fara margir út úr bænum en
sjálfur er ég yfirleitt heima. Reyndar hef ég stund-
um verið í útlöndum en afmælin eru orðin svo
mörg að þetta er mjög misjafnt,“ segir hann.
Úlfar er gæðastjóri í Iðnskólanum í Hafnarfirði og hefur verið
kennari þar síðan árið 1999. „Ég hef yfirleitt verið að kenna bæði
raungreinar og listasögu og stundum hef ég líka kennt grafíska
vinnslu. Það er afskaplega skemmtilegt og gefandi að vera kennari.
Ég hef verið að vinna í 12 ár í frábærum skóla þar sem er flott starfs-
fólk og góðir nemendur.“ Í frístundum grípur Úlfar stundum í skriftir
en segist hafa gert meira af því þegar hann var yngri og hafði meiri
tíma. „Ég skrifa talsvert af smásögum og auk þess hef ég gefið út eina
barnabók,“ segir hann. ylfa@mbl.is
Úlfar Harri Elíasson er 40 ára í dag
Best í faðmi fjölskyldunnar
Hlutavelta
Víóletta Ósk Agn-
arsdóttir, Björgvin
Skúli Einarsson og
Halldór Kári Erl-
ingsson héldu tom-
bólu við Samkaup í
Hafnarfirði og söfn-
uðu 6.459 kr. sem
þau færðu Rauða
krossinum.
Flóðogfjara
2. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.55 0,1 8.00 4,0 14.08 0,1 20.16 4,3 4.38 22.31
Ísafjörður 4.04 0,1 9.58 2,2 16.14 0,1 22.10 2,5 4.21 22.57
Siglufjörður 0.07 1,5 6.26 0,0 12.46 1,3 18.27 0,1 4.04 22.41
Djúpivogur 5.08 2,2 11.19 0,1 17.32 2,4 23.45 0,3 4.02 22.06
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ef heimilið færir þér ekki þau þægindi
sem þú þarfnast, eyðirðu vissum tíma af deg-
inum í að finna, semja um og kaupa þau.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þér er að takast að koma skikki á hlut-
ina og átt hrós skilið fyrir allt það erfiði sem
þú hefur lagt á þig.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þér finnst þú þurfa að bjarga ein-
hverjum í dag. Kannski af því að þig langar til
að vera innan um fólk.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ættir að reyna að vera einn með
sjálfum þér í dag því jafnvel þótt þú sért inn-
an um aðra er líklegt að þú finnir til einmana-
leika. Mundu að það er ekki nóg að þörfum
þínum sé fullnægt.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Nú væri ekki úr vegi að setjast niður og
gera áætlanir fyrir framtíðina. Notaðu þessa
ofurorku þína til að klára verkefni sem þú
hefur lengi vanrækt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú veist vel hvað þú átt að gera og
verður krafinn svara fljótlega. Hugsanlegt er
að fresta þurfi ferðaáætlunum eða gera á
þeim breytingar.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Mikill áhugi þinn á vini kemur þér í nýjar
aðstæður. Sumir virðast tilbúnir til að ganga
ansi langt til þess að koma skoðunum sínum
á framfæri.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú verður náttúrlega að sýna
einhvern árangur til þess að fá frið í starfi
þínu. Mundu að þú berð ekki ábyrgð á öllu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Allt hefur sinn tíma og það hefur
ekkert upp á sig að beita þrýstingi. Staða þín
í samfélaginu og hefur aukið vægi um þessar
mundir.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Notaðu þennan frábæra dag til
þess að daðra, skemmta þér og lyfta þér upp
í góðum félagsskap.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er eðlilegt að finna til af-
brýðisemi vegna yfirgengilegrar velgengni
annarra. Gríptu þetta tækifæri til að gera
gagn.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ef þú ert búinn að setja saman við-
bragðsáætlun við því versta sem getur gerst
skaltu hætta að hafa áhyggjur.
Stjörnuspá
Vigdís og Hildur Gunnarsdætur
söfnuðu saman fötum og ýmsu dóti
og voru með markað við Nóatún í
Salahverfi í Kópavogi. Þær færðu
Rauða krossinum ágóðann, 15.048
krónur.
Söfnun
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4. Bc4 Rf6
5. e5 d5 6. Bb5 Re4 7. Rxd4 Bd7 8. Bxc6
bxc6 9. O-O Bc5 10. Be3 De7 11. He1
O-O 12. f3 Rg5 13. f4 Re6 14. c3 Bb6 15.
a4 a5 16. Kh1 g6 17. Rd2 Hab8 18. R2f3
Rg7 19. f5 Rxf5 20. Bg5 Dc5 21. Rxf5
Bxf5 22. Rd4 Be4 23. Bf6 Hfe8 24. Dd2
Hb7 25. Df4 Df8
Staðan kom upp á breska samveld-
ismótinu og opna suður-afríska meist-
aramótinu í Ekurhuleni í Suður-Afríku.
Annar sigurvegara mótsins, enski stór-
meistarinn Gawain Jones (2596), hafði
hvítt gegn indverska kollega sínum Ab-
hijeet Gupta (2604). 26. Hxe4! dxe4 27.
Rf5! h5 28. Bg7 Dxg7 29. Rxg7 Kxg7
30. Df6+ Kg8 31. Hf1 Hf8 32. e6! Bc5
33. exf7+ Kh7 34. Dxc6 e3 35. Dxb7 e2
36. He1 Hxf7 37. Db5 og svartur gafst
upp. Gawain Jones (2596)og Nigel
Short (2682) deildu efsta sæti mótsins
en þeir fengu báðir 9 1/2 vinning af 11
mögulegum.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.