Morgunblaðið - 02.08.2011, Page 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011
Bítnikkskáldið Allen Ginsberg, þekktastur skáldanna úr bítnikkhreyfingunni, sagði að engin
bítnikkhreyfing væri til; þetta væru bara nokkrir höfundar að reyna að verða sér út um útgáfu.
KVIKMYNDIR
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Þegar ég var ungur var hluti af skyldulesn-
ingunni að fara yfir Naked Lunch eftir
Burroughs, Á veginum eftir Kerouac og ljóð
Ginsbergs. Þetta voru bítnikkararnir, þessir
töffarar sem lifðu í angist og reiði, í eit-
urlyfjum og andskotanum. Hvorki Burroughs
né Kerouac heilluðu mig það mikið að ég læsi
mikið meira eftir þá, Kerouac var svo einfald-
ur og afslappaður, enda montaði hann sig af
því að hafa skrifað Á veginum á sjö dögum.
Burroughs var svo sýrður að þrátt fyrir bráð-
snjallar einræður og líkingar inni á milli lokk-
aði hann mann ekki. En Ginsberg var nógu
magnaður til að maður læsi hann þokkalega
vel. Öskrandi, eða ýlfrandi svo vitnað sé til
frægasta ljóðsins hans; reiði, ríðinga, homma-
ástarsagna, haturs, ástar, andúðar á stríði en
einhverskonar hassreykur yfir öllu og dauða-
daður. Nú er loksins komin í bíóhús mynd
sem er byggð á lífi og ljóðum Ginsbergs.
Hinsegin og meira hinsegin
Hinn 29. júlí byrjuðu Hinsegin bíódagar í
Bíó Paradís og verða fram til 7. ágúst. Þessi
bíóhátíð var víst haldin árlega í einhvern tíma
en hefur legið í dvala síðustu fimm árin. Dag-
arnir eru haldnir í samvinnu við Hinsegin
daga sem að þessu sinni fara fram 4.-7. ágúst.
Hátíðin er eins og vanalega með marg-
víslegum uppákomum eins og dragkeppni á
miðvikudaginn, opnunarhátíð á fimmtudag-
innn og síðan hinni hápunktinum á laug-
ardaginn sem er gangan sem að þessu sinni
verður ekki á Laugaveginum heldur er geng-
ið frá BSÍ og yfir á Arnarhól þar sem tónleik-
arnir fara fram. Ástæðan fyrir breyttum
göngustað er að í fyrra mættu 70.000 manns
og örtröðin var of mikil og því er verið að
reyna að finna plássmeiri göngustað.
En samhliða þessari hátíð samkynhneigðra
eru bíódagarnir með bíómyndum eins og
Howl, Brotherhood og Tomboy. Allt myndir
sem vöktu þónokkra athygli í fyrra og hitti-
fyrra og eru allar tengdar samkynhneigð með
einhverjum hætti. Howl (Ýlfur) er nafnið á
tilraunamynd um Allen Ginsberg sem einmitt
var aldrei alveg viss um kynhneigð sína og
orti mikið um samkynhneigð. Hann var meðal
annars rekinn úr Columbia-háskólanum eftir
að skólastjórinn hafði komið að honum hálf-
nöktum í rúminu með rithöfundinum Kero-
uac. Ginsberg ólst upp hjá frjálslyndum for-
eldrum sem héngu mikið í kringum
bókmenntahópa Greenwich Village í New
York. Mamma hans var með geðklofa sem
ágerðist með árunum og þegar faðir Allens
þreyttist á að annast móðurina þurfti strák-
urinn oft að sjá um hana og hlusta á ruglings-
legt tal hennar og paranoju. Hann sló fyrst í
gegn með ljóðum sínum eftir frægan ljóða-
upplestur á ljóðinu Ýlfur í Six Gallery í San
Francisco árið 1955 og var eftir það gefin út
af bókaforlaginu City Lights, en vegna ósið-
legs texta Ginsbergs var forlagið lögsótt.
Þessi tilraunamynd um Ginsberg hefur farið
víða og hlotið mörg alþjóðleg verðlaun. Í
ólínulagaðri frásögn myndarinnar er blandað
saman bútum úr lífi Ginsbergs á fimmta og
sjötta áratugnum, frumflutningi hans á hinu
fræga ljóði sínu Howl í Six Gallery, sviðsetn-
ingu ljóðsins í hreyfimynd og réttarhöldum
yfir City Lights-forlaginu sem var kært fyrir
brot á velsæmi árið 1957. Rotten Tomatoes
gefur myndinni 61%. Myndin er sýnd klukk-
an 22 núna á þriðjudag, miðvikudag og
fimmtudag í Bíó Paradís.
Bræðralag
Svo verður sýnd myndin Broderskap eða
Brotherhood sem er dönsk og er fyrsta bíó-
mynd leikstjórans Nicola Donato. Myndin var
frumsýnd árið 2009 og fjallar um Lars sem er
rekinn úr hernum fyrir að hafa reynt við fé-
laga sinn í hernum. Svo ringlaður og ráð-
villtur er þessi ungi maður að hann gengur í
nýnasistahreyfingu þar sem aðrir ringlaðir
ungir menn þjálfa hálfgerða hermennsku og
það sem meira er stunda það að fara saman út
á kvöldin að lumbra á hommum. Hann lendir í
harkalegum deilum við einn félaga sinn hjá
nýnasistunum en með tímanum breytast sam-
skipti þeirra þannig að þau einkennast af
gagnkvæmri virðingu og vináttu. Á endanum
breytast þau í ástarsamband. Þegar grunur
vaknar hjá hinum ný-nasistunum um hvers
eðlis þeirra samband sé, eru þeir komnir í
stórhættu. Rotten Tomatoes gefur henni
64%. Myndin er sýnd hinn 7. ágúst klukkan
20.00 og 22.00.
Strákastelpa eða stelpustrákur
Þá verður sýnd myndin Tomboy, sem
fjallar um unga stúlku, Laure, sem flytur á
nýjan stað og kynnir sig fyrir nágrönnum
sem strákur að nafni Mickaël. Blekkingin
gengur upp en fer að verða flókin þegar ein
vinkona hennar, Lisa, verður ástfangin af
Mickaël. Gagnrýni Variety Review er vinaleg
og Rotten Tomatoes gefur henni 67%. Mynd-
in er sýnd 4. ágúst klukkan 22.00, 5. ágúst
klukkan 20.00 og 6. ágúst klukkan 22.00.
Svo er það myndin Skógurinn og trén sem
fjallar um Frederick sem er höfuð virðu-
legrar efnafjölskyldu og síðastliðin sextíu ár
hefur hann átt sér leyndarmál. Konan hans
og elsti sonur eru þau einu sem vita hið
sanna. Samband hans við soninn er erfitt en
þegar sonurinn fellur skyndilega frá, finnur
Frederick sig knúinn til að koma út úr skápn-
um og opinbera samkynhneigð sína. Rotten
Tomatoes gefur henni 75%. Myndin er sýnd í
kvöld og annað kvöld, 2. og 3. ágúst, klukkan
20.00.
Veisla strákastúlkna og
stelpustráka í paradís bíóanna
Samhliða Hinsegin hátíðinni fara fram Hinsegin bíódagar í Bíó Paradís Bítnikk skáldið Ginsberg
mun öskra á áhorfendur af hvíta tjaldinu Ljóshærðir og bláeygðir nýnasistar munu fara í sleik
Skógurinn og trén Í þessari fallegu bíómynd segir frá eldri manni sem kemur út úr skápnum.
Strákastelpa Lítil stelpa ákveður að ljúga því að hún sé strákur. Það reynist skemmtilegur
leikur en verður óvænt flókinn þegar vinkona hennar verður ástfangin af henni.
Nasistar Þeir sem eru með búningafetish fá eitthvað fyrir sinn snúð með myndinni Bræðralag.