Morgunblaðið - 02.08.2011, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2011
Ég held að það hafi
verið In Utero með
Nirvana, á flugvelli
einhversstaðar.
Klassík.
Hvaða íslensku plötu
þykir þér vænst um?
Sennilega sviga-
plötuna með Sigur
Rós.
Hvaða tónlistarmaður
værir þú mest til í að
vera?
Eiginlega bara
hver sem er sem er
að gefa út góða tón-
list og spila á tón-
leikum, alveg
skemmtilegasta starf
í heimi örugglega.
Hvað fær að hljóma
villt og galið á föstu-
dagskvöldum?
Það eru yfirleitt Motown-snillingar sem koma
mér í gírinn um helgar.
En hvað yljar þér svo á sunnudagsmorgnum?
Velvet Underground, The Smiths, Leonard Cohen, Neil
Young, Nick Drake …
Hvað ertu að hlusta á
um þessar mundir?
Nýju plöturnar með
Fucked Up, Bon Iver,
TV on the Radio og
Battles. Svo er ég að
dýfa mér í WHY?-
katalóginn, mögnuð
hljómsveit.
Hvaða plata er sú besta
sem nokkurn tíma hef-
ur verið gerð að þínu
mati?
Vá, þetta er hrikaleg
spurning og ég get eig-
inlega ekki svarað
henni. En það eru
nokkrar plötur sem
hafa alltaf verið og
munu alltaf vera í sér-
stöku uppáhaldi, t.d. I
See a Darkness með
Bonnie ’Prince’ Billy,
Feels með Animal Col-
lective. Disintegration með The Cure, If You’re Feeling Sin-
ister með Belle & Sebastian, Desire með Bob Dylan … gæti
haldið endalaust áfram.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir og hvar keyptir þú hana?
Í mínum eyrum Hildur Maral Hamíðsdóttir (Bedroom Community)
Klassík Fyrsta platan
var með Nirvana.
Sigurrós Þykir vænst
um svigaplötuna.
Innipúkinn í Iðnó
Morgunblaðið/Ernir
Dúkkulísurnar léku við hvern sinn fingur og sýndu áhorfendum að þær hafa engu gleymt.
Sindri Már og félagar í Sin Fang en hljómsveitin gaf fyrir skömmu út plötuna Summer Echoes sem hefur fengið góða dóma. Sólstafir rokkuðu eins og þeim einum er lagið.
Eyfi var heiðursgestur og spilaði hljómsveitin Valdimar undir hjá honum.
»Það var ýmislegt í boði um helgina fyrir þá
Reykvíkinga sem ákváðu að leggja ekki land
undir fót heldur halda sig innan borgarmarkanna.
Innipúkinn var haldinn í tíunda sinn og var vegleg
dagskrá í boði frá föstudagskvöldi til sunnudags-
kvölds. Fjöldi hljómsveita steig á stokk í Iðnó en
heiðursgestur Innipúkans í ár var Eyfi, Eyjólfur
Kristjánsson. Hljómsveitin Valdimar spilaði undir.
Motown-snillingar koma manni í gírinn