Morgunblaðið - 22.08.2011, Side 1
M Á N U D A G U R 2 2. Á G Ú S T 2 0 1 1
Stofnað 1913 195. tölublað 99. árgangur
LEIÐTOGARNIR
OG STJÓRNUN
VERKEFNA
MENNINGARNÓTT KOLBEINN SKOR-
AÐI OG TRYGGÐI
AJAX JAFNTEFLI
TUGIR ÞÚSUNDA Í BÆNUM 26 ÍÞRÓTTIRGEFA ÚT TVÆR BÆKUR 10
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Virkjun Norðlingaölduveita er í
verndunarflokki í nýkynntri tillögu.
,,Það kemur okkur óneitanlega á
óvart hversu margir orkukostir,
sem verkefnastjórn raðaði ofarlega
í skýrslu sinni, hafa verið færðir
niður í biðflokk og sumir jafnvel
niður í verndarflokk,“ segir Gústaf
Adolf Skúlason, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Samorku, inntur eft-
ir athugasemdum um þingsályktun-
artillögu um áætlun um vernd og
orkunýtingu landsvæða sem kynnt
var fyrir helgi.
Jón Gunnarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, kveðst ekki
sáttur við þá ákvörðun að slá Norð-
lingaölduveitu út af borðinu.
,,Það er búið að mæta öllum
helstu viðmiðunum sem voru um
Norðlingaölduveitu,“ segir Jón.
„Eftir stendur einhver hagkvæm-
asti virkjunarkostur sem við eigum
með mjög litlum umhverfisáhrif-
um.“ »6
Röðun orkukosta
kemur á óvart
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Komið virðist að endalokum
Muammars Gaddafis, einræðisherra
Líbíu. Mótstaða stjórnarhersins var
lítil sem engin þegar sveitir upp-
reisnarmanna komu inn í Trípólí,
höfuðborg landsins, í gærkvöldi.
Gaddafi biðlaði til þjóðar sinnar í
sjónvarpsávarpi að „bjarga Trípólí“
og berjast gegn uppreisnarmönnun-
um, en raunin varð hið gagnstæða. Í
miðborginni sáust almennir borgar-
ríkisstjórnar Gaddafis, til NATO um
að koma á vopnahléi og sagði ríkis-
stjórnina reiðubúna til samningavið-
ræðna. Hann sagði 1.300 fallna um
helgina. Uppreisnarmennirnir sögð-
ust hins vegar aðeins myndu draga
sig í hlé ef Gaddafi viki. Sagði leiðtogi
þeirra að Gaddafi og syni hans yrði
hleypt úr landi ef þeir gæfust upp.
„Það sem við sjáum í kvöld er fall rík-
isstjórnarinnar,“ sagði Oana Lung-
escu, talsmaður NATO. Baráttunni
um borgina var þó ekki lokið þegar
Morgunblaðið fór í prentun. »15
Stefnir í endalok Gaddafis
Uppreisnarmönnum fagnað af borgarbúum Trípólí Synir Gaddafis í haldi
Baráttuhugur í Gaddafi en ríkisstjórnin segist vilja semja Um 1.300 fallnir
ar rífa niður myndir af Gaddafi og
fagna uppreisnarmönnunum. Um
sama leyti bárust þær fregnir að
tveir synir einræðisherrans hefðu
verið handsamaðir.
Fall ríkisstjórnarinnar
„Við höfum gefið fyrirmæli um að
hann hljóti mannsæmandi meðferð
svo hann geti komið fyrir dóm,“ hafði
Reuters eftir Mustafa Abdel Jalil,
leiðtoga uppreisnarmanna.
Þegar ljóst varð í hvað stefndi
biðlaði Moussa Ibrahim, talsmaður
Reuters
Vígreifir Uppreisnarmenn sóttu
fram af krafti í Trípólí í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Leikskólinn Verkfallinu sem hefj-
ast átti í dag hefur verið aflýst.
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
„[Öll] viðbótarútgjöld fyrir sveitar-
félögin kalla einfaldlega á það að þau
þurfa að skoða sín mál og þá vænt-
anlega mæta þeim annaðhvort með
auknum tekjum eða niðurskurði á
þjónustu. Það segir sig sjálft,“ segir
Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Sveitarfélögin eru misvel í stakk
búin að mæta þeim launahækkunum
sem fylgja nýjum kjarasamningum
Félags leikskólakennara. Samning-
ar voru undirritaðir á laugardag og
sveitarfélaganna bíður því að reikna
út hvernig kjarabæturnar verða
fjármagnaðar. Samkomulagið hljóð-
ar upp á 7% upphafshækkun, en eft-
ir er að ákvarða hversu stór skref
þarf að taka umfram það og á hve
löngum tíma til að jafna bilið milli
leikskólakennara og sambærilegra
stétta.
Haraldur Freyr Gíslason, formað-
ur Félags leikskólakennara, segist
ánægður með samninginn og að
samninganefndin hafi náð sínum
markmiðum. »4
Kjarabótin þungur baggi
Sveitarfélögin skoða hvernig launahækkunum verði mætt
Vel á annað hundrað manns lagði leið sína út í
Viðey í gærkvöldi en þar var tendrað á Frið-
arsúlunni af því tilefni að stjórnvöld í Noregi
ákváðu að 21. ágúst skyldi tileinkaður minningu
þeirra er létust í hryðjuverkaárásunum í Osló og
á Útey. Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, og
Silje Arnekleiv, sendiráðsritari í norska sendi-
ráðinu, sögðu nokkur orð áður en kveikt var á
súlunni.
Sendu samúðarkveðjur til Noregs
Morgunblaðið/Kristinn
Eistlendingar
þökkuðu í gær
Íslendingum fyr-
ir stuðninginn
þegar landið
barðist fyrir að
endurheimta
sjálfstæði sitt
fyrir tuttugu ár-
um. Haldinn var
sérstakur Íslend-
ingadagur og var hann mun viða-
meiri en blaðamaður Morgunblaðs-
ins hafði gert sér í hugarlund.
Meðal annars var Ólafi Ragnari
Grímssyni, forseta Íslands, fagnað
sem poppstjörnu og voru kallaðar
til hans þakkir og til íslensku þjóð-
arinnar fyrir það hugrekki að
standa með Eistum. »12
Íslendingadagurinn
í Eistlandi tókst vel
„Vandamálið er
að einhverjum
hefur dottið í
hug að leigja
þetta húsnæði á
Seltjarnarnesi til
25 ára með
óuppsegjanlegri
leigu,“ segir
Guðbjartur
Hannesson vel-
ferðarráðherra
um eldra húsnæði Landlæknis sem
stendur autt með óuppsegjanleg-
um leigusamningi. Greiða þarf 24
milljónir króna á ári vegna þessa.
Guðbjartur segir skelfilegt að
lifa við þetta en reynt verði að
semja um málið. Hann bendir jafn-
framt á að fermetraverð í Heilsu-
verndarhúsinu við Barónsstíg sé
töluvert lægra og því verði af
flutningi Landlæknisembættisins
hagræðing til lengri tíma litið, en
um mánaðamótin síðustu hófst
starfsemi sameinaðs embættis
Landlæknis og Lýðheilsustöðvar í
húsinu.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, segir sár-
grætilegt að horfa upp á bruðl
stjórnvalda í málinu. »9
Vandamálið óuppsegjan-
legur samningur til 25 ára
Guðbjartur
Hannesson