Morgunblaðið - 22.08.2011, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 234. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Glerhjúpur Hörpu tendraður
2. Óþægileg ferð heim frá Spáni
3. Hélt sig frá öllu áfengi næstu árin
4. Flaggaði flík um miðja nótt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
School of Transformation, verk um
netið, hinn hnattræna leikvöll, eftir
Steinunni Knútsdóttur og Zoe
Christiansen, verður frumsýnt í
Tjarnarbíói fimmtudaginn 25. ágúst,
en alls verða fimm sýningar hér-
lendis.
Verk um hnattræna
leikvöllinn frumsýnt
Gallerí Fold við
Rauðarárstíg opn-
aði á laugardag
sölusýningu á 10
málverkum eftir
Erró og seldust
sex þeirra fyrsta
daginn. Verð
þeirra var frá 1,8
upp í 4,5 milljónir
króna. Jóhann Ágúst Hansen, fram-
kvæmdastjóri Gallerís Foldar, telur að
allar myndirnar seljist en sýningin
stendur fram á sunnudag.
Sex af 10 málverkum
eftir Erró seld
Prófessorarnir Chung-in Moon og
Daniel A. Bell flytja erindi á ensku á
Háskólatorgi á morgun og er aðgang-
ur ókeypis. Moon flytur erindið „Upp-
gangur Kína og framtíð Kóreu-
skagans“ frá kl.
14.45-15.45. Bell
flytur erindið „Póli-
tískt lögmæti í Kína
frá konfúsísku
sjónarmiði“
frá kl. 16-
17.
Moon og Daniel Bell
með fyrirlestra
Á þriðjudag Austan 5-13 m/s, hvassast með s-ströndinni. Rigning
á sunnanverðu landinu, en úrkomuminna fyrir norðan. Hiti 8 til 16
stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan og austan 3-10 m/s og víða
væta, en úrkomulítið na-lands. Hiti 7 til 14 stig.
VEÐUR
Valskonur tryggðu sér
bikarmeistaratitilinn í
knattspyrnu þriðja árið
í röð með því að leggja KR
að velli, 2:0, í úrslitaleik
á Laugardalsvelli. Þetta
var 13. bikarmeistaratitill
Vals en ekkert lið hefur
unnið bikarinn oftar en
Hlíðarendaliðið. Rakel
Logadóttir og Kristín Ýr
Bjarnason skoruðu mörk
Vals í úrslitaleiknum.
»4-5
Þrettándi titill
Valskvenna
„Þetta var gríðarlega mikil og
skemmtileg upplifun sem fer í
reynslubankann hjá manni,“ sagði
Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr
Nesklúbbi, en hann varð fyrsti ís-
lenski kylfingurinn sem
tekur þátt í PGA-
móti í golfi. »1
Þetta fer í reynslubank-
ann hjá manni
FH og ÍBV fögnuðu bæði sigri í
Pepsi-deild karla í knattspyrnu
og nálguðust þar með KR-inga
sem eru í toppsætinu. Manni
færri skoruðu FH-ingar tvö
mörk á móti Þór og ÍBV náði að
knýja fram sigur á Keflvíkingum
með marki á lokamínútunum.
16. umferðinni lýkur í kvöld
með fjórum leikjum. »2-3
ÍBV og FH halda í við
KR-ingana
ÍÞRÓTTIR 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Stefán Örn Gíslason er í stjórn AUS
(Alþjóðleg ungmennaskipti), sem
eru frjáls félagasamtök. Samtökin
eru starfandi í yfir þrjátíu löndum. Á
vegum samtakanna hafa sjálfboða-
liðar farið frá Íslandi og hjálpað við
ýmiskonar góðgerðarmál út um all-
an heim. Á vegum samtakanna hafa
ungmenni alls staðar að úr heim-
inum komið hingað til lands og unnið
sjálfboðavinnu. Allir sem eru orðnir
eldri en 18 ára geta farið með AUS.
Ekki er gerð krafa um menntun eða
starfsreynslu, aðeins áhuga á að
leggja sitt af mörkum við að bæta
heiminn. Hægt er að velja verkefni
frá tveimur vikum upp í tólf mánuði.
„Það sem greinir á milli okkar og
annarra sjálfboðaliðasamtaka er það
skýra markmið okkar að hagnast
ekki,“ segir Stefán Örn. „Samtök-
unum stýra fyrrverandi sjálfboða-
liðar í sjálfboðavinnu. Við erum að
fagna 50 ára starfsafmæli núna í
haust og það verður stórafmæli hjá
okkur í október. Þá verður málþing
og bókaútgáfa. Við munum gefa út
bók sem rekur sögu sjálfboðaliða-
starfs á Íslandi. Sú saga er ekki svo
löng, það er ekki fyrr en við og svo
Nínukot og Worldwide Friends
koma á sjónarsviðið að þetta hefst
fyrir einhverja alvöru á Íslandi.
AUS byrjaði sem
hluti af kirkjunni,
ég held að þá hafi
þetta heitið
KAUS, með
kirkjuforskeyt-
inu fyrir framan.
Svo voru tengsl-
in við kirkjuna
rofin en samtökin
breyttu ekki
markmiði sínu.
Við munum halda
upp á afmælið í sal í
ráðhúsinu í október.
Á þessum fimmtíu árum hefur þetta
stækkað töluvert. Núna í ár erum
við að senda um 40 manns í svona
styttri verkefni. Stutt verkefni geta
verið frá svona tveimur mánuðum
upp í sex mánuði. Sjálfboðaliðar geta
nánast farið hvert sem er á vegum
samtakanna og til allra heimsálfa
nema Antarktíku. Við sendum samt
mest til Evrópu, því það er hægt að
fá styrki þegar þangað er farið frá
European Voluntery Service.
Þeir sem fara út fyrir Evrópu
þurfa að borga eitthvað með sér. Ég
var á sínum tíma utan Evrópu og
þurfti að borga slatta með mér en ég
sé ekki eftir því. Ég var í Víetnam í
eitt ár og það var hverrar krónu
virði,“ segir Stefán Örn.
Í gær stýrði Nikiwe Ntabeni öðr-
um sjálfboðaliðum í uppákomu á elli-
heimilinu Grund.
Sjálfboðaliðar skemmta
Samtökin AUS
senda ungmenni
út um allan heim
Morgunblaðið/Kristinn
álfboðaliðastarf Nikiwe Ntabeni stýrði öðrum sjálfboðaliðum í uppákomu á elliheimilinu Grund í gær þar sem þeir
höfðu ofan af fyrir vistmönnum. Sjálfboðaliðarnir voru á vegum samtakanna AUS (Alþjóðleg ungmennaskipti).
Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS) eru alþjóðleg sjálf-
boðaliða- og fræðslusamtök sem gefa ungu fólki
möguleika á því að kynnast menningu og samfélagi
annarra þjóða. Markmið AUS er að gefa ungu fólki
tækifæri til ferðast til framandi landa og upplifa ólíka
menningarheima í þeim tilgangi að auka þekkingu og
skilning á ólíkri menningu og samfélögum og stuðla
þannig að friði og skilningi milli einstaklinga og þjóða
og vinna gegn fordómum og hleypidómum hvers konar.
AUS hefur í 50 ár gefið ungum Íslendingum tækifæri
á að vinna sem sjálfboðaliðar erlendis og hefur á sama
tíma einnig tekið á móti erlendum sjálfboðaliðum og kynnt
þeim íslenska siði og íslenska menningu í gegnum leik og
starf.
ALÞJÓÐLEG SAMSKIPTI
Vinna gegn fordómum