Morgunblaðið - 22.08.2011, Blaðsíða 4
FRÉTTASKÝRING
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
„Að sjálfsögðu þarf að taka allan
viðbótarkostnað til skoðunar og
okkar fjármálaskrifstofa mun fara
yfir áætlaðan kostnað vegna þessa
samnings. En þetta mun ekki sliga
sveitarfélagið,“ segir Árni Sigfús-
son, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Sveitarfélögin standa misvel að
vígi til að mæta launahækkun leik-
skólakennara, sem samningar náð-
ust um á laugardag. Halldór Hall-
dórsson, formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga, segir ljóst
að sveitarfélögin þurfi að bregðast
við viðbótarútgjöldum með því ann-
aðhvort að skera niður þjónustu
eða auka tekjur sínar. Það sé hins-
vegar undir hverju og einu sveitar-
félagi komið hvaða leið verði farin
til að fjármagna launahækkanirn-
ar.
Þungt til lengri tíma lítið
Árni Sigfússon segir að í tilfelli
Reykjanesbæjar hafi hlutfall sveit-
arfélagsins í kostnaði við rekstur
leikskóla hækkað mjög mikið á síð-
ustu 8 árum. Áður hafi foreldrar
greitt um 25% af heildarkostnaði
til móts við sveitarfélagið, en greiði
nú rúmlega 10%. Svigrúm sveitar-
félagsins til að taka á sig viðbót-
arkostnað sé því eðli málsins sam-
kvæmt minna. Í Reykjanesbæ eru
10 leikskólar, þar af 4 einkareknir.
„Þetta er það sem við þurfum að
skoða, en á sama tíma gerum við
okkur grein fyrir að foreldrar eru
ekki síður í erfiðri stöðu en sveit-
arfélögin. Þetta eru staðreyndirnar
en það þýðir lítið annað en að
vinna saman að lausn á þessu.
Leikskólakennarar vinna mjög
mikið starf og það var orðinn óeðli-
lega mikill launamunur milli kenn-
arastétta. Við höfum fullan skilning
á að það þurfi að leiðrétta það.“
Eiríkur Björn Björgvinsson,
bæjarstjóri Akureyrar, segir að
áhrifin á fjárhag bæjarins séu ekki
ljós þar sem nákvæmar prósentu-
tölur launahækkunar hafi ekki ver-
ið gefnar upp. „Vonandi er þetta á
svipuðum nótum og það sem er að
gerast á almenna markaðnum, en
til lengri tíma gæti þetta orðið
þyngra ef til stendur að jafna laun-
in eins og manni heyrist. Almennt
er það svo að kjarasamningarnir
taka í budduna hjá okkur sem þýð-
ir að við þurfum að skoða hvernig
við getum mætt þeim. Við erum
einmitt í því þessa dagana að finna
út hvernig við getum mætt þessum
áhrifum því það þarf að horfa í
hverja einustu krónu í rekstri
sveitarfélaganna í dag.“
Sveitarfélögin skoða hvernig
launahækkun verður mætt
Morgunblaðið/Golli
Skólastarfið Leikskólakennarar hafa dregist aftur úr grunnskólakennurum í launum og knúðu fram leiðréttingu.
Kjarabætur leikskólakennara taka í budduna Hækkanir eða niðurskurður
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2011
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Tyrkland
27. ágúst í 10 nætur
Kr. 131.900 – Allt innifalið
M.v. tvo fullorðna og eitt barn í herbergi á Royal Palm Beach **** í Bodrum með allt innifalið, 27. ágúst.
Verð 159.800 kr. m.v. tvo í herbergi á Royal Palm Beach **** í Bodrum með allt innifalið, 27. ágúst.
Frá aðeins 119.900 með „öllu inniföldu“
Heimsferðir bjóða frábær tilboð á allra síðustu sætunum í 10 nátta ferð
til Tyrklands þann 27. ágúst. Í boði er m.a. frábært sértilboð á Hotel
L´Ambiance ***+ og Royal Palm Beach **** með öllu inniföldu á ótrúlegum
kjörum. Einnig önnur sértilboð í boði. Aðeins örfá herbergi í boði - bókaðu
strax! !
Kr. 119.900 – Allt innifalið
M.v. tvo fullorðna og tvö börn í herbergi á L´Ambiance ***+ í Bodrum með allt innifalið, 27. ágúst.
Verð 139.900 kr. m.v. tvo í herbergi á L´Ambiance ***+ í Bodrum með allt innifalið, 27. ágúst.
Þó svo hátíð-
arhöld í
tengslum við
Menningarnótt
hafi gengið vel
framan af degi
var heldur meira
að gera hjá lög-
reglu höfuðborg-
arsvæðisins eftir
að skyggja tók.
Tilkynnt var um
sjö líkamsárásir í miðborginni en
engin þeirra var þó talin alvarleg,
þ.e. enginn hlaut alvarleg meiðsli.
Flestar árásirnar áttu sér stað á
milli klukkan tvö og sjö aðfaranótt
sunnudags. Meðal annars var til-
kynnt um að maður af erlendum
uppruna hefði ráðist á þrjá menn á
Lækjartorgi auk þess sem dyra-
vörður skemmtistaðar slasaðist
þegar gestur staðarins réðist á
hann. Þurfti dyravörðurinn að
leita sér aðhlynningar á slysadeild.
Þá var maður sleginn með
flösku í höfuðið við Sæbraut og
var hann fluttur með sjúkrabíl á
slysadeild, en töluvert blæddi úr
honum.
Tilkynnt um sjö lík-
amsárásir í tengslum
við Menningarnótt
Tekinn Erill var
í miðbænum.
Össur Skarphéð-
insson utanrík-
isráðherra
ræddi Evrópu-
og norðurslóða-
mál á fundi sín-
um með Erkki
Tuomijia, utan-
ríkisráðherra
Finnlands, í
Tallinn í Eist-
landi í gær.
Að sögn utanríkisráðuneytisins
mun Össur hafi þakkað Finnum
samstarfið í Evrópumálum, en þeir
hafa m.a. veitt sérfræðiráðgjöf um
landbúnaðar- og byggðamál.
Þá fór Össur yfir stöðuna í við-
ræðunum við Evrópusambandið og
hét finnski ráðherrann áframhald-
andi fullum stuðningi við umsókn
Íslands. Þeir fóru yfir stöðuna á
evrusvæðinu og finnskum stjórn-
málum þar sem ný ríkisstjórn hefur
nýlega tekið við völdum.
Ráðherrarnir hétu því að auka
samstarf þjóðanna um norðurslóða-
mál þar sem sérstaklega var rætt
um uppbyggingu í menntun, rann-
sóknum og fjarkennslu. Samstarfið
verði þróað áfram í vetur.
Þakkaði Finnum
sérfræðiráðgjöf
Össur
Skarphéðinsson
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, og Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra sóttu í
gær minningarathöfn norsku
þjóðarinnar um þá sem létu lífið í
Útey og í sprengingunni við
stjórnarráðsbyggingarnar.
Norsk stjórnvöld boðuðu til
minningarathafnarinnar og hana
sóttu meðal annarra þjóðhöfð-
ingjar Noregs, Íslands og Finn-
lands og ríkisarfar Danmerkur
og Svíþjóðar auk annarra nor-
rænna og norskra ráðamanna.
Athöfnin var haldin í Oslo
Spektrum-miðstöðinni í Ósló og
hófst um miðjan dag að norskum
tíma.
Athöfn Jóhanna Sigurðardóttir og Ólafur
Ragnar Grímsson við minningarathöfnina.
Forseti og forsætis-
ráðherra sóttu
minningarathöfn
Reuters
Það styttist í að varðskipið Þór
komi til landsins, en áætlað er að
skipið verð afhent 23. september
næstkomandi. Reyndar stóð til að
það legði úr höfn nú um mán-
aðamótin, en á því varð seinkun.
„Það er verið að gera margskon-
ar prófanir sem hafa tekið aðeins
lengri tíma en áætlað var,“ segir
Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir,
upplýsingafulltrú Landhelgisgæsl-
unnar. Um er að ræða sjó- og tog-
prófanir og síðan hallaprófanir á
skipinu, auk þess sem prófanir eru
gerðar á slökkvibúnaði. Þór er fjöl-
nota hátækniskip og verður því al-
gjör bylting í björgunargetu Land-
helgisgæslunnar á hinu víðfeðma
hafsvæði sem Ísland ber ábyrgð á.
Áratugir eru síðan endurnýjun
varð í flotanum, því Ægir var smíð-
aður 1968 og Týr 1975. Meðal
tækjakosts um borð má nefna bún-
að til að gefa þyrlum á flugi elds-
neyti og fjölgeislamæli sem notaður
er til dýptarmælinga og við neð-
ansjávarleit. Áætlað er að 18 manns
verði í áhöfn Þórs og hafa þeir ver-
ið við þjálfun að undanförnu. Um
mánuð tekur að sigla skipinu frá
Síle til Íslands og má því eiga von á
því til landsins í lok október.
Prófanir Þór er búinn öflugum slökkvibúnaði sem var prófaður nýlega.
Hægt er að hylja skipið vatnsúða við slökkvistörf ef á þarf að halda.
Prófanir á búnaði
Þórs tefja brottför
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins varð miðlunartillaga
frá ríkissáttasemjara til þess að
sættir náðust á laugardag. Samn-
ingurinn er sagður fela í sér leið-
réttingu launa leikskólakennara til
jafns við aðrar stéttir, en efni hans
verður ekki gefið upp strax. „Þetta
er flókinn samningur og eðlilegt
að [Félag leikskólakennara] fái
tóm til að útskýra hann fyrir sínu
fólki,“ segir Inga Rún Ólafsdóttir,
formaður samninganefndar sveit-
arfélaganna. Hún staðfestir að
upphafshækkun launa verði 7%,
en ráðist verður í greiningarvinnu
á launum sambærilegra stétta áð-
ur en ákveðið verður í hversu
stórum skrefum og á hve löngum
tíma frekari hækkanir verða. Að-
spurð segir Inga Rún að sú vinna
sem framundan er verði unnin í
sameiningu enda sé samningurinn
á forræði beggja aðila.
Flókin samningagerð
FREKARI GREININGARVINNA Á PRÓSENTUHÆKKUNUM EFTIR
Lögreglan á Suðurnesjum hand-
tók í gærmorgun rúmlega þrítug-
an karlmann eftir að hann var
stöðvaður á Reykjanesbraut. Að
sögn lögreglu var akturslag
mannsins afar varhugavert en
hann ók bíl sínum á tveimur ak-
reinum.
Í ljós kom að maðurinn var vel
við skál og því ekki í neinu ásig-
komulagi til að stjórna ökutæki.
Hann olli ekki tjóni með akstr-
inum en lögregla segir það mikla
mildi að til hans hafi náðst áður
en illa fór. Maðurinn var sviptur
ökuréttindum á staðnum.
Ók á tveimur akreinum