Morgunblaðið - 22.08.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2011
Nú hefur verkefnisstjórn umrammaáætlun um vernd og
nýtingu náttúrusvæða skilað af sér
drögum að þingsályktunartillögu.
Þá bregður svo við að einhverjir
stjórnmálamenn telja sig vera
orðna stikkfrí í um-
ræðunni.
Katrín Júl-íusdóttir iðn-
aðarráðherra tekur
ekki afstöðu til
þess hvort lengra
ætti að ganga í nýt-
ingu náttúru-
auðlindanna en
verkefnisstjórnin
leggur til og segist
vilja sjá „faglega
umræðu“ um þessi
mál. Hún telur líka
tímabært að binda
enda á „tilvilj-
anakenndar ákvarðanir einstakra
stjórnmálamanna“ og þetta ferli
leiði til þess.
Svandís Svavarsdóttir umhverf-isráðherra er ámóta hugrökk
í sinni afstöðu til tillögunnar.
Nú er vitaskuld rétt að fyrirliggur – allt of seint að vísu
– tillaga verkefnisstjórnar um
rammaáætlun. Sú tillaga er ágætt
tæki fyrir stjórnmálamenn og eitt
af því sem hjálpar þeim að taka
afstöðu.
Tillaga verkefnisstjórnar, starfs-hóps, nefndar, vinnuhóps,
samráðsvettvangs, ráðs, samráðs-
hóps, ráðgjafanefndar, faghóps
eða ráðgjafahóps getur hins vegar
ekki leyst þingmenn eða ráðherra
undan þeirri skyldu sinni að taka
sjálfir afstöðu til mála.
Þjóðin kaus fólk á Alþingi til aðsinna slíkum málum fyrir sig
en ekki til að hlaupa í felur þegar
á reynir.
Katrín
Júlíusdóttir
Engin eigin afstaða
STAKSTEINAR
Svandís
Svavarsdóttir
Veður víða um heim 21.8., kl. 18.00
Reykjavík 10 skúrir
Bolungarvík 10 rigning
Akureyri 11 rigning
Kirkjubæjarkl. 13 skýjað
Vestmannaeyjar 11 skýjað
Nuuk 8 léttskýjað
Þórshöfn 11 skúrir
Ósló 12 skúrir
Kaupmannahöfn 21 heiðskírt
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 18 heiðskírt
Lúxemborg 27 léttskýjað
Brussel 27 léttskýjað
Dublin 18 skýjað
Glasgow 16 skýjað
London 22 heiðskírt
París 32 heiðskírt
Amsterdam 23 léttskýjað
Hamborg 26 skýjað
Berlín 23 heiðskírt
Vín 28 léttskýjað
Moskva 17 skýjað
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 37 heiðskírt
Barcelona 28 heiðskírt
Mallorca 32 heiðskírt
Róm 33 léttskýjað
Aþena 30 heiðskírt
Winnipeg 17 skýjað
Montreal 18 skúrir
New York 26 léttskýjað
Chicago 25 léttskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:40 21:22
ÍSAFJÖRÐUR 5:34 21:38
SIGLUFJÖRÐUR 5:17 21:22
DJÚPIVOGUR 5:07 20:54
Meirapróf
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300, 894 2737
Næsta námskeið byrjar 25. ágúst 2011
Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði öku-
mann seint á laugardagskvöld í um-
dæminu eftir að lögreglumönnum
þótti aksturslagið heldur undarlegt.
Eftir að hafa rætt við manninn og
fengið þær upplýsingar að hann væri
gestkomandi í sumarhúsi í grenndinni
ákváðu lögreglumenn að koma þar
einnig við.
Í bústaðnum dvöldust sjö einstak-
lingar á þrítugsaldri. Þeir höfðu í fór-
um sínum nokkurt magn af kannabis-
efnum, þó til eigin neyslu, þ.e.
neysluskammta. Lögregla tók skýrslu
af fólkinu og var því að lokum sleppt.
Þá var gerð húsleit í Kópavogi að-
faranótt sunnudags. Þar stóð yfir sam-
kvæmi og fundust fíkniefni á tveimur
stöðum í íbúðinni og á tveimur gestum.
Með kanna-
bis í bústað
Sjö á þrítugsaldri
með neysluskammta
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Friðrik Ólafsson stórmeistari takast í
hendur eftir sjö mínútna hraðskák með afsteypum af hinum fornu söguald-
arskákmönnum frá Ljóðhúsum. Friðrik fór með sigur af hólmi, en skákin
fór fram í Skálholti í tilefni af málþingi um taflmennina.
Stórmeistarinn sigraði
Mikil umferð var um miðborg
Reykjavíkur á laugardag, en tugþús-
undir sóttu ýmsa viðburði Menning-
arnætur. Að sögn lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu gengu hátíðar-
höld og umferð nokkuð vel fyrir sig.
Þó þurfti lögregla að eiga við „frek-
lega ökumenn“ sem hentu til merkj-
um sem lokuðu götum í miðborginni.
„Á milli klukkan tvö og fjögur
þurftum við að berjast við ansi
ósvífna ökumenn sem færðu til keil-
ur og lokunarharmonikkur svo þeir
gætu ekið um götur sem hafði verið
lokað,“ sagði Guðbrandur Sigurðs-
son, aðalvarðstjóri umferðardeildar
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
í samtali við fréttavef Morgunblaðs-
ins, mbl.is. „Götunum er lokað með
samþykki lögreglu og það ber að
virða.“
Þá var talsvert um að ökutækjum
væri ólöglega lagt í og við miðborg-
ina og í einhverjum tilvikum þurfti
að fjarlægja ökutæki af vettvangi
með dráttarbíl.
Umferðin gekk að mestu áfalla-
laust þótt nokkur umferðaróhöpp
væru tilkynnt til lögreglunnar, en
tvö þeirra má rekja til ölvunarakst-
urs. Sex ökumenn voru teknir fyrir
ölvunarakstur á laugardagskvöld og
aðfaranótt sunnudags og einn öku-
maður var tekinn fyrir akstur undir
áhrifum fíkniefna.
Ökumenn virtu ekki
lokanir lögreglu
Mikil umferð
um miðborgina
Morgunblaðið/Ernir
Umferð Mikil umferð var í miðborg-
inni vegna Menningarnætur.