Morgunblaðið - 22.08.2011, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2011
Hjartans
þakkir:
Á allra vörum safnar nú fyrir
nýju barnahjartasónartæki, í
samstarfi við Neistann. Vertu
með og leggðu hjartveikum
börnum lið með því að kaupa
Á allra vörum gloss frá Dior!
Sjá nánar á www.aallravorum.is.
ÞAÐ ÞARF
STÓRT HJARTA
TIL AÐ BJARGA
ÞEIM LITLU
HREIN
SNILLD
Drjúgt, fjölhæft og þægilegt...
Gott á:
gler
plast
teppi
flísar
stein
ryðfrítt stál
fatnað
áklæði
tölvuskjái
omfl.
ATH. frábært á
rauðvínsbletti
og tússtöflur
S. 544 5466 • www.kemi.is • kemi@kemi.is
ALLIR LITIR
ÚTSÖLULOK
Meyjarnar Austurveri, Háaleitisbraut 68,sími 553 3305.
Fatnaður frá 1000 kr.
50% a
ukaaf
sláttu
r af ú
tsöluv
örum
reikn
ast á
kassa
Útsölulok
30-50%
afsláttur
af útsöluvörum
Skeifunni • 108 Reykjavík
www.belladonna.is • sími 517 6460
Stærðir 40-60
Áfram hjá móður sinni
Vegna fréttar um úrskurð Hæsta-
réttar í máli barns sem á að senda til
Damerkur skal tekið fram að úr-
skurðurinn sneri einvörðungu að því
hvort barnið hefði verið flutt með
lögmætum hætti frá Danmörku til
Íslands með vísan til ákvæða Haag-
sáttmálans. Niðurstaðan er sú að
móðurinni er gert að fara með barn-
ið til Danmerkur. Barnið, sem er ís-
lenskur ríkisborgari, verður áfram
hjá móður sinni þar til dómstólar í
Danmörku hafa tekið afstöðu til
kröfu föður barnsins, sem er norsk-
ur en býr í Danmörku, um að fá fullt
forræði yfir barninu.
Árétting
Hjálmar Vilhjálmsson
fiskifræðingur lést hinn
20. ágúst síðastliðinn,
73 ára að aldri. Hann
fæddist á Brekku í
Mjóafirði 25. september
1937, sonur Vilhjálms
Hjálmarssonar, fv. ráð-
herra, og Önnu Mar-
grétar Þorkelsdóttur
húsfreyju. Eftirlifandi
eiginkona Hjálmars er
Kolbrún Sigurðardóttir
kennari og eignuðust
þau fjögur börn; Sigurð
Stefán, Kristínu Önnu,
Ínu Björgu og Vilhjálm.
Barnabörn Hjálmars og Kolbrúnar
eru átta og eitt barnabarnabarn.
Hjálmar lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Laugarvatni árið
1957. Að loknu stúdentsprófi lagði
hann stund á heimspeki við Háskóla
Íslands. Þaðan lá leiðin í Háskólann í
Glasgow í dýrafræðinám, með
áherslu á fiskifræði, sem hann lauk
1965. Að námi loknu starfaði Hjálmar
hjá Hafrannsóknastofnuninni alla
sína starfsævi. Veturinn 1989/90 var
Hjálmar í rannsóknaleyfi við kan-
adísku hafrannsóknastofnunina í St.
John’s á Nýfundnalandi. Í kjölfarið
varði hann doktorsritgerð sína,
byggða á áratuga rannsóknum á ís-
lenska loðnustofninum, við Háskól-
ann í Bergen 1994.
Auk starfa sinna hjá Hafrann-
sóknastofnuninni sinnti Hjálmar
ýmsum verkefnum bæði innan lands
og utan í tengslum við vísindastörf
sín. Hann sat í ýmsum sérfræðinga-
nefndum Alþjóðahafrannsókn-
aráðsins (ICES) og nefndum á vegum
Hafrannsóknastofn-
unarinnar, meðal ann-
ars við rýni og endur-
skoðun á
ráðgjafarvinnu stofn-
unarinnar. Hann sat á
árunum 1988-1992 í
nefnd Vísindaráðs Ís-
lands sem fjallaði um
vísindastörf á Íslandi
og forgangsröðun
þeirra. Auk þess sat
hann í stjórn Fiski-
málasjóðs um árabil.
Hjálmar var félagi í
Vísindafélagi Íslend-
inga frá 1994. Hann
stóð ásamt Kanadamanninum dr.
James E. Carscadden fyrir sérstakri
ICES-ráðstefnu um loðnu í Reykja-
vík 2001 undir heitinu „Capelin, what
are they good for?“. Einnig sat
Hjálmar fyrir Íslands hönd í mats-
hópi um áhrif veðurfarsbreytinga á
norðurheimskautssvæðinu (Arctic
climate impact assessment). Hann
var ásamt Norðmanninum Alf Haa-
kon Hoel aðalhöfundur og ritstjóri
kafla um fiskveiðar og fiskeldi í
skýrslu hópsins. Hjálmar var enn-
fremur í hópi aðalhöfunda og rit-
stjóra kaflans um fiskveiðar á norð-
urslóðum í fjórðu skýrslu
Milliríkjanefndar um loftslagsbreyt-
ingar (IPCC) sem hlaut frið-
arverðlaun Nóbels 2007. Hjálmar
fékk sérstaka viðkenningu nób-
elsnefndarinnar fyrir markvert
framlag sitt.
Í janúar 2010 var Hjálmar sæmd-
ur riddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu fyrir rannsóknir í fiski-
fræði og hafvísindum.
Andlát
Hjálmar Vilhjálmsson
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Um mánaðamótin hófst starfsemi
sameinaðs embættis Landlæknis og
Lýðheilsustöðvar í Heilsuverndar-
stöðinni við Barónsstíg. Ríkisendur-
skoðun gerði athugasemdir við
kostnað við sameininguna og gagn-
rýndi að fjárhagsáætlun hefði ekki
legið fyrir áður en ráðist var í sam-
eininguna.
Greint var frá því í fréttum Rík-
isútvarpsins um helgin að húsaleigu-
kostnaður við Barónsstíg nemi 41
milljón króna á ári en samanlagður
leigukostnaður stofnananna tveggja
var fyrir sameiningu tæpar 29 millj-
ónir króna á ári. Kostnaðurinn hækk-
ar því um 12 milljónir á ári.
Embætti landlæknisins var áður í
húsnæði á Seltjarnarnesi sem ríkið
þarf að greiða leigu af til ársins 2027.
Samningurinn er óuppsegjanlegur
og er leiguupphæðin 24 milljónir
króna á ári. Það húsnæði er nú tómt.
„Þeir auglýstu eftir húsnæði fyrir
embættið og fengu lágt tilboð sem
þeir tóku ekki,“ segir alþingismaður-
inn Guðlaugur Þór Þórðarson. „Það
er ekkert annað en bruðl að taka ekki
lægsta tilboðinu. Síðan flytja þeir án
þess að vera búnir að framleigja hús-
næðið sem þeir eru að flytja úr.
Þannig að nú eru þeir að borga leigu
fyrir húsnæði sem þeir eru ekki að
nota. Það er sárgrætilegt að horfa
uppá þetta.“
Guðbjartur Hannesson heilbrigð-
ismálaráðherra viðurkennir að þetta
sé rétt. „Vandamálið er að einhverj-
um hefur dottið í hug að leigja þetta
húsnæði á Seltjarnarnesi til 25 ára
með óuppsegjanlegri leigu,“ segir
Guðbjartur. „Það er skelfilegt að lifa
við þetta. Mér finnst ástæða til að
blaðamenn skoði hversvegna menn
hafi gert svona samninga á sínum
tíma. En við munum reyna að semja
okkur útúr þessu eða framleigja hús-
næðið. Ráðuneytið og þeir sem fara
með fasteignir ríkisins eru að vinna í
þessu. En fermetraverðið í Heilsu-
verndarstöðinni er töluvert lægra og
til langs tíma litið verður af þessu
hagræðing.“
Guðlaugur segist vita af þessum
samningum og hvetur blaðamenn til
að rannsaka hvers vegna þeir voru
gerðir. „En það breytir því ekki að
þetta er staðan og það er skelfilega
unnið úr henni með tugmilljóna
bruðli á kostnað skattborgara.“
Tugmilljónir fara
líklega í súginn
Hin meinta hagræðing er enn aðeins aukinn kostnaður
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Bruðl Við sameiningu embættis Landlæknis og Lýðheilsustöðvar í þessu húsnæði við Barónsstíg jókst kostnaðurinn
við embættið. En heilbrigðisráðherra vill meina að til langs tíma litið muni verða hagræðing af þessu.