Morgunblaðið - 22.08.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2011
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
E
ftir farsælt samstarf í
áratug hafa þeir dr.
Helgi Þór Ingason og
dr. Haukur Ingi Jón-
asson nú sent frá sér
bækurnar Leiðtogafærni, sjálfs-
skilningur, þroski og þróun og
Stefnumótunarfærni, markmið,
stefna og leiðir. Þar miðla þeir af
reynslu sinni til almennings.
Kappræður og söngur
„Það er skemmst frá því að
segja að við kynntumst fyrst í
Menntaskólanum við Sund þegar
okkur lenti saman í kappræðum. Þar
fundum við að við áttum ýmislegt
sameiginlegt. Við kynntumst enn
betur þegar við fórum að syngja
saman hlið við hlið í kór. Síðan fór-
um við hvor í sína áttina, Helgi fór til
Noregs í doktorsnám í verkfræði og
ég fór í doktorsnám í guðfræði og
sálgreiningu til Bandaríkjanna. Eft-
ir heimkomu ákváðum við að hittast
og bera saman bækur okkar. Þá kom
á daginn að Helgi var með ýmsar
hugmyndir tengdar verkefnastjórn-
un og ég sagði við hann að ég myndi
leggjast undir feld og sjá hvað ég
gæti mögulega lagt í púkkið. Það má
eiginlega líkja bakgrunni okkar
Helga Þórs við kassa og hring. Góð-
ur verkfræðingur kann að hugsa
skipulega og er góður í að setja
mörk og ramma inn verkefni og við-
fangsefni, en sálgreinirinn og húm-
anistinn setur hlutina í samhengi og
fæst við það mannlega í stjórnun.
Saman verður úr þessu mjög góð
nálgun þar sem bæði er tekist á við
hið tæknilega og hið mannlega. Það
einkennir í raun allt sem við gerum,“
segir Haukur Ingi. En í framhaldinu
stofnuðu þeir félagar námsbrautina
Leiðtogi þarf að
hafa ríkt innsæi
Góður leiðtogi leggur sig fram um að gera góða hluti í þágu sjálfs sín, hópsins,
skipulagsheildarinnar og samfélagsins. Til að öðlast innsæi þarf leiðtoginn að
þekkja sjálfan sig.
Morgunblaðið/Eggert
Nemendur Margir hafa lagt stund á verkefnastjórnun og leiðtogaþ́jálfun.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Námsefni Allir ættu að geta orðið góðir leiðtogar á sínu sviði
Mörgum, sérstaklega ungum stúlk-
um, finnst gaman að klæða dúkkur
eða dúkkulísur í föt. Fyrir þær ætti
vefsíðan Dressupgames.com að vera
skemmtileg. En þarna eru settir inn
nýir netleikir sem snúast um það að
klæða sig eða dúkkur upp á og/eða
mála sig. Á síðunni segir að þar inn á
hafi verið valdir af vandvirkni bestu
tísku-, förðunar- og fataleikir sem
finna má á netinu. Einnig er bent á
aðra örvandi leiki, þar sem koma til
dæmis við sögu gæludýr eða hlut-
verkaleikir.
Það má velja leiki eftir þemum, til
dæmis eru brúðkaupsleikir og heitir
einn þeirra Hin fullkomna brúður. Þá
eru hrekkjavökuleikir þar sem bún-
ingar koma við sögu og leikur fyrir
unglingsstúlkur sem sýnir og kennir
hvernig á að mála sig.
Þetta er mikil „prinsessu“-vefsíða
sem hægt er að hafa gaman af.
Vefsíðan www.dressupgames.com
Morgunblaðið/Ernir
Barbie Þær sem hafa gaman af Barbei-leikjum gætu haft gaman af síðunni.
Dúkkulísuleikir og fleira sætt
Í bíóhúsum um þessar mundir má sjá
kvikmyndina One Day eða Einn dagur.
Myndin er gerð eftir samnefndri bók
Davids Nicholls sem skrifaði jafn-
framt handrit myndarinnar. Bókin er
yndisleg lesning. Epísk ástarsaga
sem er langt frá því að vera eitthvað í
líkingu við Rauðu ástarsögurnar. Í
myndinni segir frá Em og Dex og er
lífi þeirra fylgt eftir í tuttugu ár, en
bara þann 15. júlí ár hvert. Við fáum
að sjá hvernig lífið hjá þeim þróast.
Það þurfa allir smá-rómantík öðru
hverju svo endilega skellið ykkur í bíó
á þessa mynd og finnið hjartað
bráðna.
Endilega …
… upplifið
smá-rómantík
Rómantík Em og Dex í myndinni.
Minnstu herbergin í húsinu geta verið
hættulegir staðir þrátt fyrir að líta
ekki út fyrir það. Samkvæmt tölum frá
Centers for Disease Control and Pre-
vention, sem sér um varnir gegn sjúk-
dómum og forvarnir í Bandaríkjunum,
koma á hverju ári um 235.000 manns
yfir 15 ára aldri á slysavarðstofur
vegna meiðsla sem áttu sér stað inni á
baðherbergi, og um 14% þeirra þarf
að leggja inn.
Yfir þriðjungur þessara meiðsla á
sér stað í baði eða sturtu. Meira en
14% eiga sér stað á meðan salernið er
notað. Sagt er frá þessu á vefsíðu The
New York Times.
Meiðslin aukast með aldrinum, sér-
staklega eftir 85 ára aldur. En slys
sem eiga sér stað við baðkarið eða
sturtuna eru algengust í aldurs-
hópnum 15 til 24 ára og óalgengust á
meðal þeirra sem eru komnir yfir 85
ára. Aftur á móti slasast þeir helst ná-
lægt salerninu. Yfirlið er ekki algengur
orsakavaldur slysanna en þau eiga sér
þó oftast stað í aldurshópnum 14 til
24 ára. Áfengisneysla gæti verið þátt-
ur í því. Slysatíðni á baðherbergjum
var 72% hærri hjá konum en hjá körl-
um. Rannsóknir hafa sýnt að konur
eru í meiri áhættu en karlmenn að
slasast við fall.
Hættulegustu staðirnir á baðher-
bergjum, fyrir allan aldur, eru baðið
eða sturtan. Aðeins 2,2% af meiðslum
eiga sér stað þegar farið er ofan í bað-
karið eða í sturtuna á meðan 9,8%
slysa eiga sér stað þegar farið er upp
úr. Slys sem eiga sér stað rétt hjá bað-
karinu eða sturtunni eru meira en
tveir þriðju ástæðna fyrir heimsókn-
um á slysavarðstofuna. Slys sem
verða þegar farið er á eða af klósett-
inu eru nokkuð algeng hjá fólki 65 ára
og eldra. Að hafa eitthvað til að styðja
sig við eða grípa í við klósettið gæti
verið mjög gagnlegt þegar fólk er orð-
ið eldra, og ekki bara við klósettið því
slíkur stuðningur gæti líka verið gagn-
legur þar sem stigið er inn og út úr
sturtu eða ofan í og upp úr baðkeri.
Heilsa
Hætturnar leynast víða á heimilum fólks
Reuters
Hættulegt Á baðherbergjum gerast mörg slysin.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Breskir slátrarar mega nú búast við
nýrri eftirspurn fyrir helgar þegar
geitakjöt verður í auknum mæli skipt
út fyrir lambalærið í hinni hefð-
bundnu sunnudagsmáltíð. Kjötið er
eitt það vinsælasta í heimi en hingað
til hafa breskir neytendur ekki verið
ýkja hrifnir af því sökum þess að tal-
að hefur verið um að kjötið sé seigt
og mjög bragðmikið. Nú segja breskir
geitabændur hins vegar nýtt hljóð
vera komið í strokkinn og hafi eft-
irspurn eftir gæða geitakjöti aukist
síðastliðinn áratuginn.
Sharon Peacock er ein þeirra sem
rækta eðalgeitur á búi sínu í Lancas-
hire héraðinu og selur hún meðal ann-
ars kjöt til hins þekkta matreiðslu-
manns Nigel Haworth sem eldar á
Northcote Manor veitingastaðnum.
Peacock segir að hingað til hafi það
geitakjöt sem boðist hafi breskum
neytendum ekki verið í hæsta gæða-
flokki og innflutt frá Ástralíu og Nýja-
Sjálandi. Nú hafi hins vegar gæða
geitarækt aukist í Bretlandi og þar
með hafi eftirspurnin aukist. Kíló-
verðið af geitakjöti er ódýrara en af
lambakjöti í Bretlandi auk þess sem
það er nokkuð magurra en lambakjöt.
Kemur þetta fram á vefsíðu breska
dagblaðsins The Independent.
Mataræði
Reuters
Falleg Geitakjöt er vinsæll matur víða en þessi geit er að taka þátt fegurð-
arsamkeppni í Jórdaníu.
Bretar sólgnir í geitakjöt