Morgunblaðið - 22.08.2011, Side 11
Morgunblaðið/Sigurgeir
Samstarfsmenn Þeir Helgi Þór (t.v.) og Haukur Ingi hafa þekkst síðan á menntskólaárunum.
Verkefnastjórnun- og leiðtogaþjálf-
un.
Hagnýtar og aðgengilegar
Það nám hefur verið kennt hjá
Endurmenntun Háskóla Íslands og
verið ein vinsælasta námsbrautin
þar. Haukur Ingi segir það vera
keppikefli þeirra félaga og tilgang
bókanna að hafa uppbyggjandi áhrif
á íslenskt samfélag og atvinnulíf.
Bækurnar eru aðgengilegar og er
víða komið við. Lagt er upp úr því að
kynna eitt og annað hagnýtt sem má
nota beint og reynt að hafa bæk-
urnar í senn faglegar og ferskar. Í
þeim eru kynntar aðferðir til að
þroska sjálfan sig og skipulags-
heildir. Leiðtogafærnibókin er að
vissu leyti sjálfshjálparbók með leið-
um sem Haukur Ingi segist telja að
virki vel ef fólk vill þjálfa sig að taka
leiðandi stöðu á hvaða vettvangi sem
er. Stefnumótunarfærnibókin fjallar
hins vegar um að marka stefnuna í
hvaða skipulagseiningu sem er,
sama hvort fólk rekur heimili, fyr-
irtæki, stofnun eða björgunarsveit
og allt þar á milli.
Haukur Ingi segir mikilvægt að
búa til sameiginlega hugsjón í þeim
fyrirtækjum. „Stefnumótun er til
þess að fólk geti róið í sömu átt og
skilgreindar eru leiðir til að komast
að settum markmiðum. Þar með er
alls ekki girt fyrir skapandi óreiðu,
nýsköpun eða öflugt vitsmunalíf.
Þetta þýðir bara að með ákveðin at-
riði ætli menn að fara í sömu átt og
stefna að sömu markmiðum,“ segir
Haukur Ingi.
Leiðtogi vill leggja sig fram
„Til að gera langa sögu stutta
þarf leiðtogi að hafa ríkt innsæi og
við leiðbeinum í Leiðtogafærni-
bókinni um hvernig megi öðlast það.
Áherslan er á leiðtogann sem ein-
stakling og farið fram á heilmikla
sjálfsrýni. Það er kannski dálítil
þverstæða að tala um leiðtogafærni
en einblína í raun á leiðtogann sjálf-
an. En staðreyndin er sú að þegar
við erum að lesa annað fólk þá erum
við að aðallega að lesa í okkar eigin
tilfinningu fyrir því. Ég held að allir
nútímamenn ættu að geta tekið að
sér þetta hlutverk ef aðstæður krefj-
ast og góður leiðtogi leggur sig fram
um að gera góða hluti í þágu sjálfs
sín, hópsins, skipulagsheildarinnar
og samfélagsins. Við erum ekki að
tala um að búa til Gandhi úr öllum
heldur að gera fólki kleift að geta
með góðu móti gengið í og gert það
sem gera þarf,“ segir Haukur Ingi.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2011
Ný rannsókn hefur leitt í ljós að
Bandaríkjamenn neyta nú minni syk-
urs en fyrir áratug. Hluti þessa ár-
angurs er því að þakka að þeir drekka
færri gosdrykki en áður tíðkaðist.
Hlutfall sykurs í mataræði Banda-
ríkjamanna minnkaði úr 18 prósent-
um á árunum 1999 til 2000 í 14,6
prósent á árunum 2007 til 2008.
Samanburðarrannsókn á 42.000
manns sýndi að frá 1999 til 2000
hafi Bandaríkjamaður að meðaltali
innbyrt um 100 grömm af viðbættum
sykri á dag en frá 2007 til 2008 hafði
talan lækkð niður í 77 grömm.
Þó að neyslan virðist hafa dregist
saman tæknilega séð er þó ekki þar
með sagt að hún sé orðin lítil. Í yfir-
lýsingu frá bandarísku hjartavernd-
arsamtökunum árið 2009 kom fram
að meðal- fullorðinn Bandaríkjamað-
ur neyti sem samsvarar 22 teskeið-
um af sykri á dag en unglingar 34 te-
skeiðum. Þeir eiga því enn nokkuð í
land. Þetta kemur fram á vefsíðunni
Foodconsumer.
Sykurneysla
Morgunblaðið/Ernir
Sykursætir Bandaríkjamenn eru enn nokkuð sólgnir í sykur.
Bandaríkjamenn bæta sig nokkuð
Fólki á öllum aldri finnst skemmti-
legt að leika sér í sandinum og
byggja sandkastala. Það sem
byggt er þessa dagana í sandinum
í Rorschach í Sviss eru þó engir
venjulegir sandkastalar heldur
feiknastór og glæsileg sand-
listaverk. Á myndinni hér til hliðar
leggur keníski listamaðurinn
Atema Bouke lokahönd á risastór-
an sandmaur. Maurinn vann hann í
samvinnu við hollenska listamann-
inn Maxim Gazendam og kalla þeir
félagar skúlptúrinn Diabetes (Ant-
i-jection). Vonandi bara að sjórinn
komi ekki og skoli þessu mikla
listaverki í burtu. Það væri nú
verra.
Sandlistaverk
Reuters
Listaverk Stór maur gerður úr sandi.
Risamaur úr sandi
Leiðtogafærni, sjálfsskiln-
ingur, þroski og þróiun
fjallar um leiðtogafærni í
ljósi sálarfræði og hugvís-
inda. Í bókinni er fjallað um
tilfinningar, hugsun og at-
ferli leiðtogans, persónu-
lega stefnumótun, áhrif við-
horfa og væntinga sem og
áhrif persónuleika hvers og
eins.
Stefnumótunarfærni,
markmið, stefna og leiðir
fjallar um stefnumótun sem
fræðigrein og hagnýtingu
hennar í atvinnulífinu. Með
bókinni er ætlunin að gera
lesendur færari um að taka
virkan þátt í stefnumiðaðri
stjórnun en með þeim hætti
styrkja þeir þátttöku sína í
atvinnulífinu.
Persónuleg
stefnumótun
NÁMSBÆKUR
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P
Þúsundir fermetra
af flísum með
20 -70% afslætti
Eikar plankaparket
kr 4.990 m2
Allar baðherbergisvörur
25% afsláttur
ÚTSALA