Morgunblaðið - 22.08.2011, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2011
Hallur Már
Una Sighvatsdóttir
Allt bendir nú til að sveitir uppreisn-
armanna í Líbíu, sem eru dyggilega
studdar af NATO, séu að ná yfir-
höndinni í bardaganum um landið
eftir sex mánaða baráttu.
Tveir synir Muammars Gaddafis
voru í gærkvöldi handsamaðir af
uppreisnarmönnum og stuttu síðar
var lífvörður hans sagður hafa gefist
upp. Uppreisnarmenn sóttu fram af
krafti í kjölfar bardaga síðustu daga
og nálguðust í gærkvöldi óðum höf-
uðstöðvar Gaddafis.
Í fyrsta skipti á þeim sex mánuð-
um sem liðnir eru frá því átök hófust
í Líbíu voru skærur innan höfuð-
borgarinnar á laugardag þar sem
sprengingar heyrðust og skotbar-
dagar geisuðu fram á sunnudags-
morgun. Að sögn fréttastofu BBC
voru erjurnar á milli sveita Gaddafis
og andstæðinga harðstjórans innan
borgarinnar. Flugsveitir NATO
styðja af krafti við sveitir uppreisn-
armannanna og hafa að sögn Bloom-
berg-fréttaveitunnar sprengt upp
skotmörk innan borgarinnar.
Upplýsingaráðherra Líbíu,
Moussa Ibrahim, var gagnrýninn á
aðgerðir NATO sem hann sagði
greiða götu uppreisnarmanna sem
væru þó vanmegnugir sjálfir. Hann
sakaði jafnframt uppreisnarmennina
um ofbeldisverk innan ríkisins.
NATO hefur fengið á sig gagnrýni
víðar að þar sem aðgerðir banda-
lagsins þykja hafa farið fram úr upp-
runalegu markmiði þess, sem var að
vernda almenna borgara gagnvart
sveitum Gaddafis.
Þegar fregnir hermdu að upp-
reisnarmennirnir væru við útjaðar
borgarinnar á laugardag fóru stjórn-
völd fram á vopnahlé sem taka ætti
gildi samstundis. Af því varð hins-
vegar ekki. Þetta er í fyrsta skipti
sem uppreisnarmennirnir hafa kom-
ist svo langt síðan bardagar hófust.
Í gærkvöldi gerðu þeir svo aðra
ásókn og þótt stjórnarherinn þyki
betur búinn virtist hann veita létt-
vopnuðum sveitum uppreisnar-
manna litla mótstöðu. Ávarp frá
Gaddafi var spilað á ríkissjónvarps-
stöðinni í kjölfarið þar sem hann
hvatti borgarbúa til að berjast. Tals-
maður ríkisstjórnarinnar ítrekaði
hinsvegar beiðni um vopnahlé.
Bandaríkin hvöttu í gærkvöld þjóð-
arráð Líbíu til að byrja skipulagn-
ingu nýs stjórnarfars í landinu.
Flugsveitir NATO gera loftárásir innan höfuðborgarinnar Flest bendir til að nú styttist í sigur
uppreisnarmanna Gaddafi Líbíuforseti segir 65.000 hermenn tilbúna að berjast fyrir borginni
Baráttan um Trípólí er hafin
Reuters
Sókn Uppreisnarmenn fagna eftir að hafa náð bænum Maya á sitt vald.
Sér fyrir enda stríðsins
» Hart er barist um Trípólí en
uppreisnarmenn náðu til borg-
arinnar úr vestri í gær. Þeim
var víða fagnað af íbúum borg-
arinnar sem veifuðu fánum og
skutu úr byssum.
» NATO sætir gagnrýni fyrir
að hafa farið út fyrir heimildir
sínar með loftárásum á hern-
aðartakmörk.
» Uppreisnarmenn eru sig-
urvissir og sannfærðir um að
Gaddafi verði kominn frá völd-
um innan skamms. Talið er að
hundruð manna hafi fallið á
síðustu dögum.
» Gaddafi segir að 65.000
hermenn muni berjast fyrir
borginni. Hann hefur jafnframt
kallað eftir vopnahléi.
Bandarísku ferðalangarnir Shane
Bauer og Josh Fattal voru á laug-
ardaginn dæmdir til þriggja ára
fangelsisvistar fyrir njósnir af dóm-
stólum í Teheran, höfuðborg Írans.
Mennirnir halda því fram að hafa
farið óvart yfir til Írans á göngu
sinni um Írak í júlí 2009. Sarah
Shourd var einnig handtekin en var
leyst úr haldi á síðasta ári.
Hillary Clinton, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, lýsti yfir von-
brigðum með dóminn og sagðist
kalla eftir lausn mannanna tveggja.
Hún sagði jafnframt engar sann-
anir hafa komið fram sem bentu til
sektar mannanna tveggja.
Bandarískir ferða-
langar dæmdir í Íran
Hingað til hafa
verið gerðar
1.875 handtökur
vegna óeirðanna í
London fyrr í
mánuðinum.
Samkvæmt Scot-
land Yard hafa
1.073 einstakl-
ingar verið kærð-
ir fyrir lögbrot í
tengslum við upp-
þotin. Lögreglan hefur 3.296 mál til
rannsóknar. Um 1.100 innbrot voru
gerð í atvinnu- og iðnaðarhúsnæði
en 95 mál tengdust viðskiptum með
stolinn varning og 48 alvarlegar lík-
amsárásir voru tilkynntar.
Nú deila David Cameron forsætis-
ráðherra og Tony Blair, fyrrverandi
forsætisráðherra, um rætur óeirð-
anna. Cameron kennir siðferðis-
bresti innan þjóðfélagsins um en
Blair gefur lítið fyrir þá útskýringu.
Hann kennir um jaðarhópi ungs
fólks sem lifir og hrærist innan sam-
félagsins án þess að viðurkenna
nokkur velsæmismörk.
Nær 2.000
handtökur
í London
Óöld Ástandið var
slæmt á Englandi.
Stjórnmálamenn
deila um rót vandans
Hinn sjaldséði leiðtogi Norður-
Kóreu Kim Jong Il er á ferðalagi um
Rússland um þessar mundir. Í gær
heimsótti hann eina stærstu vatns-
aflsvirkjun Rússa, sem er í austur-
hluta landsins. Kim ferðast með
einkalest sinni vegna mikillar flug-
hræðslu en búist er við að heimsókn-
in vari í viku. Næsti viðkomustaður
er Síbería þar sem Kim mun hitta
Dimitri Medvedev, forseta Rúss-
lands. Heimsókn leiðtogans um-
deilda til Rússlands er sú fyrsta í níu
ár og þykir bera vott um viðleitni til
að rjúfa einangrun landsins. Leið-
togarnir munu ræða um samstarf á
sviði orkumála en Rússar hafa sent
matargjafir til Pyongyang, höfuð-
borgar Norður-Kóreu, undanfarið.
Kim Jong Il
heimsækir
Rússland
Veðrið hafði
áhrif á heimsókn
páfans til Madrid
á laugardaginn.
Þrumuveður
kom í veg fyrir
að páfinn gæti
lokið við ræðu
sína sem hann
flutti fyrir um
milljón píla-
gríma. Í stað
þess að flytja
ræðuna þurfti hann að láta sér
duga að kasta kveðju á mannfjöld-
ann á nokkrum tungumálum.
Þrumuveður stöðv-
aði ræðuhöld páfans
Bleyta Aðstoð-
armenn páfans
skýla honum.
Hallur Már
hallurmar@mbl.is
Vaxandi áhyggjur eru innan alþjóðasamfélagsins
í kjölfar bardaga á milli Ísraela og Palestínu-
manna. Loftárásum Ísraelshers á Gazasvæðið
hefur verið svarað með sprengjuárásum Palest-
ínumanna. Eftir að átta ísraelskir borgarar létu
lífið í skotárás hryðjuverkamanna síðastliðinn
fimmtudag hefur ástandið á svæðinu versnað til
muna. Á undanförnum dögum hafa fimmtán
manns látist í loftárásum Ísraela á Gaza-svæðið
og tugir hafa slasast. Herskáir Palestínumenn
hafa svarað árásunum með því að skjóta yfir 100
flugskeytum og sprengjum yfir landamæri Ísr-
aels. Eitt dauðsfall er staðfest en tugir hafa slas-
ast. Hamas-liðar hafa stutt árásirnar eftir fjög-
urra mánaða vopnahlé.
Sameinuðu þjóðirnar ásamt Bandaríkjamönn-
um, Evrópusambandinu og Rússum, sem hafa
reynt að miðla málum á svæðinu, hafa kallað eftir
ró á svæðinu. Viðbrögð Sambands arabaríkja
voru öllu harðari en það kallaði til neyðarfundar í
gær þar sem aðgerðir Ísraelsmanna voru for-
dæmdar og alþjóðasamfélagið hvatt til að beita
Ísraela þrýstingi til að láta af árásunum.
Eftir skotárásina á fimmtudag, sem var á sum-
arleyfisstaðnum Eilat við landamæri Egypta-
lands, létust fimm egypskir lögreglumenn þegar
ísraelskir hermenn eltust við skotmennina. Þetta
hefur haft slæm áhrif á samskipti Ísraela og
Egypta. Egyptar hótuðu að kalla sendiherra sinn
heim. Þá tilkynntu egypsk stjórnvöld að ísraelsk
eldflaug hefði lent á egypskri grund á sunnudag.
Þúsundir komu í kjölfarið saman til að mótmæla
fyrir framan ísraelska sendiráðið í Kaíró.
Reuters
Eyðilegging Hamas-liði virðir fyrir sér eyðilegg-
ingu af völdum loftárása Ísraelsmanna.
Vaxandi spenna á Gaza
Fimmtán manns hafa látist í loftárásum Ísraela
Samskipti Ísraela og Egypta fara versnandi
Í gær minntust Norðmenn þeirra 77 sem féllu í árás-
unum hinn 22. júlí. Sex þúsund manns komu saman í
Spektrum-höllinni í Osló í gær, þar á meðal ættingjar
hinna látnu. Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Nor-
egs, og Haraldur Noregskonungur fluttu ávörp. Leið-
togar allra Norðurlandaþjóðanna voru viðstaddir, þar
á meðal Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Reuters
Norðmenn minnast þeirra sem féllu